Tíminn - 02.12.1947, Síða 3

Tíminn - 02.12.1947, Síða 3
222. blað TÍMINN, þriðjudaginn 2. des. 1947 3 SkömmtunarregSurnar skapa vöruþurrð utan Reykjavíkur S»cssts yrðl afstýrí, ef falllst væri á tillögur ISermaíiEis J«>iiass®Mar ©g Ssgtryggs Kleineisssoiiar Grein sú, sem hér fer á eftir, birtist nýlega í Degi á Akureyri. Eru bar leidd rök að því, að skömmtunin muni bitna mjög ranglega á þeim hluta landsmanna, sem er búsettur utan Reykjavíkur, ef ekki sé fallist á tiliögur þær varðandi skömmtunar- og irinflutnings- málin, sem Hermann Jónasson og Sigtryggur Klem- ensson hafa borið fram. Það er nú orðið augljóst, að skömmtunarmiðar í urn- ferð fyrir nokkrum skömmt- unarvörum, svo sem vefnað- arvörum og nauðsynlegustu búsáhöldum, eru ekki í sam- ræmi við vörumagn það, sem til er í landinu, og sú skipan virðist ennþá ekki komin á innflutningsmálin að þetta verði lagfært á næstunni. En af þessu ástandi leiðir, að neytendur úti um land veröa ekki aðeins að fá nauðsynja- vörur sínar f gegnum reyk- víska innflytjendur heldur er stefnt að því nú, að þeir verði beinlínis að sækja þær til reykvískra smásöluverzlana. Þegar er fengin nokkur reynsla fyrir þessu. Það er kunnugt að nær allur inn- flutningur til landsins fer í gegn um Reykjavík. Smásölu- verzlanir úti um land verða að leita þangað suður til þess að fá nauðsynlegjir birgðir afgreiddar. Nú, þegar inn- flutningur er svo mjög tak- markaður á ýmsimi vöru- flokkum, sem verið hefir um skeið, er reynslan-sú, að þær verzlanir, sem næstar eru inn flytjandanum, sitja fyrir um vöruafgreiðslu, en hinar, sem fjær eru, verða útundan. Hinn reykvíski innflytjandi getur selt meginið af inn- flutningi sínum á ýmsum vörutegundum til viðskipta- manna sinna í Reykjavík. Hann hefir engum skyldum að gegna við fóikið úti á landi. Ríkisvaldið veitir hon- um forréttindi til gjaldeyris- ráðstöfunar, en þeim forrétt- indum fylgja engar kvaðir. Með þessum hætti er verið að gera skömmtunina í fyllsta máta áréttláta og óviðunandi og ríkisvaldið stefnir óðfluga að því að verulegu.’.- hluti á- ■ góðans af smásöluverzlun- inni lendi innan vébanda höfuðborgarinnar. þar sem allur ágóðinn aí heildsölu- verzluninni var lagður fyrir, en hlutur annarra verzlunar- staða á landinu, e°; fólksins, sem þá byggir, er gerður miklu lakari en áðy.r vai:. Þessi reynsla lei»ðir þegar í ljós, að skömmtunjarkerfið er stórgallað og er þetta tví- mælalaust veigamesti gall- inn, sem fram hefir komið á þvf. Þrátt fyrir það bólar ekkert á leiðréttingum. í annan stað hýltur þetta átsand að verða til þess, að krafan um breythvrar á inn- flutnings fyrir’romulaginu verði borin fram af meiri krafti en áður af öllum þeim, sem verzlunarstaöi úti um land byggja, -Þróunin, sem hér varð á stríðsárunum, er öll innflutningsverzlunin þokaðist í hendur Reykvík- inga, var hin óheillavænleg- asta. En þó má segja, að fyrst kasti tólfunum nú, er skömmtunin og þurrðin á nauðsynjavarningi verður til þess að draga smásöluverzl- un landsmanna þangað suður. — í umræðunum um breytingar á innflutnings- reglunum í útvarpinu um daginn, benti Skúli Guð- mundsson á það, að jafn- framt því, sem nauðsyn væri að koma réttlátiri skipan á skiptingu innflutningsins í milli samvinnuverzlunar og einkaverzlunar, þyrfti einnig að gera breytingar á skipt- ingu innflutnings og gjald- eyris í milli landshlutanna og veita þeim réttláta hlutdeild í verzluninni. Þetta er- full- kornin réttlætiskrafa, sem landsmenn ætlast til að um- boðsmenn þeirra á Alþingi ta'ki til skjótrar meðíerðar. Sú tíð er liðin, að hægt sé að taka aðgerðaleysi þingmanná í hhium þýðingarmestu mál- um með þögn ög'þöiinmæði. Tregða reykvískra inn- flytjenda til þess að afgreiða hinar eftirsóttu skömmtun- arvörur til verzl. úti um land, bendjr ótvírætt á nauðsyn þess að tillögur Framsókn- armanna nái fram að ganga. Það er augljóst, að ef fram- vísaðir skömmtunarseðlar í smásöluverzlun giltu jafn- framt sem ávísun á gjaldeyr- ir og innflutning, væri girt fyrir misnotkun þá á skömmt unarkerfinu, sem nú er að verða augljós. Vitaskuld þyrfti jafnframt að gera ráð- stafanir til þess að samræma vörumagn í landinu og skömmtunarseðla í umferð frekar en nú er. En með gildistöku þeirrar aðferðar, Framsóknarmenn lögðu til að tekin yrði upp — væri neyt- endum úti á landi tryggður miklu meiri réttur í þessu efni en nú er, jafnframt því sem þeim væri það í sjálfs- vald sett hvort það væri sam- vinnuverzlun eða einkaverzl- un, er flytti inn nauðsynjar þeirra. Það er augljóst, að fyrir smákaupmenn úti á landi er það hiö mesta hags- munamál, að fá innflutn- ingsmálunum breytt í þetta horf. Hitt er aftur á móti fullvíst, að heilverzlanir höf- uðstaðarins eru því andstæð- ar og því miður hefir for- ustulið stærsta stjórnmála- flokks landsins skipað sér við hlið þeirra í baráttunni gegn nauðsynlegum réttar- bótum. Það er eftirtektar- vert, að blað kaupmanna hér á Akureyri hefir bent á þá staðreynd, að með núverandi fyrirkomulagi verði verzlanir úti á landi afskiptar um af- greiðslu skömmtunarvara frá reykvískum innflytjendum. En þetta sama blað hefir nýlega tekið undir áróður Böllin og brenni- vínið Kunningi minn, sem stund um fær sér í staupinu, vakti mig upp seint á sunnudags- nóttina. Hann sagði mér ’pessa sögu. ,.í gærkvöldi var skemmtun undir Eyjafjöllum. Um það 'eyti, sem Reykjavíkurbílarn- ir óku austur, hljóp ég út á veginn, náði í einn bílstjór- ann og fékk hjá honum brennivínsflösku fyrir eitt hundrað krónur. KvöJdið leið og það lækk- aði í flöskunni. Um Jágnætti var hún tóm. í þann mund er von var á Reykvíkingum aft- ur að austan, hljóp ég út á þjóðveginn, náði í annan bíl- stjóra, fékk hjá honum far hingað og þessa fallegu flösku fyrir 135 krónur". Og hann dró upp franskt koníak, sem ekki hafði komið í Áfengisverzlun r-íkisins. Svona gengur það sunnan- lands.----- Hér í Rangárþingi verður varla haldið lítilmótleg ,,píu- mót“, án þess að þangað komi fjöldi bíla frá Reykjavík. í sætunum situr fó’kið. Ungir menn og ungar stúlkur. Und- ir sætunum er áfengið: Áka- víti, brennivín og romm og kannske tollsvikið koníak, þegar vel ber í veiði. Og þetta gefa hinir hógværu höfuðstaðarbúar sveitafólk- inu kost á að kaupa fyrir eitt eða hálft annað hundrað krónur flöskuna! — Sannleikurinn er sá, að hérna í hé'raðinu er á seinni árum sjaldan haldin sam- koma án ölvunar til stór- skammar öllum aðstandend- um, en hugraunar hinum. Og aðallega stafar ölvunin frá „bílabrennivíni" höfuðstaðar manna, sem eru svo hugul- samir að selja heimamönnum áfengið með 50%—100% hagnaði. En hvað skal um þetta seg;ja? Áfengisverzlunin selur ó- takmarkað öllum, sem kaupa vilja. Mjög margir heima- manna hafa vanið sig svo við áfengið, að þeim finnst ónýt skemmtun án þess. Og bíl- stjórariiir eru bjargvættir þeirra, sem skortir aðstöðu eða fyrirhyggju til að birgja sig á hagkvæman hátt. — Og hvert er svo hlutskipti okkar hinna? Ýmsir eru áreittir, aðrir barðir, — færrum er skemmt en skapraunaö. — Margir þola þessi sár og þegja. — Aðrir fyllast ógn og hýrast heima. — Eigum við svo um fleiri kosti að velja á öld, sem allt er skammtað, nema eiturlyfin? Helgi Hannesson. forustuliðsins í höfuðstaðn- um gegn nýskipan innflutn- ingsmálanna. Sú nýskipan, ef réttlátlega væri fram- kvæmd, mundi af sjálfu sér leiðrétta þetta misræmi. Vandkvæði þau á leiðrétt- ingum, sem blaðið gerir veð- ur út af, eru helzt þau, að hagsmunir smákaupmann- anna út á landi og almenn- ings þar, og heildverzlana höfuðstaðarins og forustu- liðs Sjálfstæðisflokksins, fara ekki saman. Það er vissu- lega nokkur vandi fyrir „ís- lending" að ákveða, hvorum megin hann skuli standa. En (Framhald á 6. síðu) «-<*> Nýr bókaflokkur fyrir unglinga: MENN OG MÁLLEYSINCJAR I. DÝRASÖGUR Fjölbreytt safn af sönn- um íslenzkum dýrasög-' um, vel valið úr öllum.. áttum lands, prýðisvel sagðar sögur við hæfi. barna og unglinga.------ Öll börn hafa yndi af dýrum og náin kyrinif, af þeim gleðja og þroska sérhvert barn og veita því dýrmætar- yndisstundir. Foreldrar geta tæplega fengið börnum sínum í hendur annað lestrar- efni betra né hollara en dýrasögusafn Norðra. Dáuiarmiiimng: Hannes Gíslason liomSf í Árimila Hinn fyrsta dag september mánaðar barzt mér sú fregn, er mig setti hljóðan við, og mun svo hjá fleirum einnig hafa farið. Hanries á Ármúla varð bráðkvaddur að heimili síriu að Ármúla, að morgni þess dags. Ég haföi fyrir tveim dögum áður hitt Hannes heilan og kátan með sama fjörinu, á- huganum og bjartsýninni á framtíð lífs og starfs, sem honum var í blóð borið og nú myndi breyta til betri tíð- ar eftir höfuðdaginn, sagði Hannes. . Rættist sú spá hans gýörla, því sólbjartur septeiribers- morguninn heilsaði þessum aldna höfðingja með ljúfri blíðu, þá hann árrisull hóf sína hinnstu för til fyrir- heitna landsins. Hannes á Ármúla var morgunsins maður. Hann skyldi það gjörla að morgun stund gefur gull í mund, og honum var ekki lagið að geyma til kvelds, það sem gera átti. Það munu fáir svo snemma morguns að garði hans hafa komið, að ekki hafi hann ávallt • litið hina fyrstu dagsbrún skína, og fyrirfram ákveðið störf dags- ins. Hannes á Ármúla var þétt- ur á velli, og þéttur í lúnd. Hann var léttur í spori og hreyfingum, gjörfilegur og sviphreinn. Hann var gjörfi-1’ menni, og göfugmenni. Ég hefi þekkt Hannes á Ármúla frá barnsaldri og ná búi hans alla tíð síðan. Dvaldi ég á heimili hans lengri og skemmri tíma, auk þess sem ég var þar oft daglegur gest- ur, og má segja að þar hafi mín önnur föðurhús verið. Ég hefi því mikils að sakna, er hinn sterki stofn, sem Hannes var, hverfur á braut en minningin um hann vakir og lifir til fyrirmyndar og eftirbreytni öllum er hann þekktu. Hannes á Ármúla var fædd ur í Reykjarfirði í Reykjar- fjarðarhreppi 1. ágúst þjóð- hátíðarárið 1874, sonur hjón- anna Gísla Sv. Gíslasonar og Salóme Kristjánsd., Danne- • brogsmanns í Reykjarfirði. — Missti hann móður sina ell- efu ára gamall. Snemma fór Hannes því úr foreldrahúsum og lærði brátt að byggjá líf sitt á eigin spýtur. Stundaði hann sjósókn og var við formensku framan af ævi, og revndist við bað starf afburðastjórnari og athafna- maður. Var hann með þe.im fyrstu er tók mótorvélar í þjónustu sína til sjósóknar, og sýndi með því framsækni og áræði, svo sem þeir hlutir þá voru óreyndir og á by-rj- unarstigi. En svo kom að Hannes vildi gjörva hönd . á fleira leggja, og gerðist át- hafnasamur búhöldur á eigria jörð sinni Ármúla í Nauteyr- arhreppi. Bjó hann þar rausnarbúi, þar til nú fyrir ári síðan er hann lét af bú- skap og við tóku synir hans tveir, er nú búa á fööurleifð sinni. Það þarf ekki að taka það fram, að jafn stórhuga og framsækinn maður, sem Hannes var, bætti jörð sjna og bú stórlega. Var honum ekkert annað kærara,,, en byggja og græða jörð sína, svo sem bezt mátti verða. — Enda sá hann árangur hug- sjóna sinna þar í ríkum mæli að lokum rætast. Snyrti og hirðumaður var Hanne§ syo að af bar, og mátti hann sér til fyrirmyndar taka. -og margt af honum læra i því efni. Átti hann því láni að fagna, að eiga við hlið sér konu þá, er mann sinn ltfir, Guðrúnu Sigurðardóttur, er ávallt var honum samhent í greiða og gestrisni, og áunnu þau hjón sér velvild og virð- ingar allra þeirra er að garöi bar og til þekktu. — Fjóra syni eignuöust þau hjón, allir efnismenn. Það er ljúf minning, setn Hannes á Ármúla skilur eftir sig meöal vina og kunningja. Boðinn og búinn til að leysa hvers manns vanda, og gera öllum gott. (Framhald á 6. síðíi)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.