Tíminn - 04.12.1947, Side 8
Reykjavík
4. desember 1947
224. blað
Alls eru 558 barnakennarar
starfandi á landinu.
Þáíf'af ena $4 kennarar án kénnaniréílinda
í haust var óveRjiilsga mikií ekla á kennurum við ýmsa
skóla í landinu, sérstaklega þó bárnaskólana. Leit á tíma-
BiTr út fyrir, að varla myndi takast að fá næga kennara
afe öltum barna.skóiunum í landinu.
Samkv. því, sem Fræðslu-
m'áíaskrifstofan hefir tjáð
blaðínu, hefir nú tekizt að fá
kennara í allar þær stöður,
sem J.ausar voru í haust, svo
að hvergi vantar kennara
eins og stendur.
Kennarar í Reykjavík.
Við barnaskólana í Reykja
vík einni saman eru nú starf-
ándi 175 barnakennarar. Þar
af eru 34 kennarar ráðnir,
sem stunda- og forfalla-
kennarar. í kaupstöðum utan
Reykjavíkur eru 99 fastir
kennarar og í föstum skól-
um utan kaupstaða eru 184.
Farkennarar eru um 100. —
Barnakennarar eru því 558
alls á landinu.
Kennarar án réttinda.
Þótt tekizt hafi að fá menn
í allar kennarastöður við
barnaskólana, er langt frá
þvi að allir þeir, er til slíkra
starfa hafa verið ráðnir, hafi
kennararéttindi. Heldur er
það staðreynd, að í haust
hefir reynzt nauðsynlegt að
ráða í kennarastöður fleiri
menn án kennararéttinda, en
nokkru sinni áður. Skortur-
lilh á rhönnum með sérmennt
un kennara stafar fyrst og
frémst af því, að menn með
kennarapróf hafa kosið að
taka að sér önnur störf en
kennarastörfin og mun að-
feúð' bg laun hafa átt mestan
þátt í því til þessa.
Flestir réttindalausir
við fastaskóla í haust.
í haust varð að ráða 16
ménn án kennararéttinda í
stöður við fasta skóla. Er það
hærri tala en nokkru sinni
fyrr. í fyrrahaust voru 10
siíkir kennarar ráðnir að
fastaskólum, en haustin næst
þar á undan, ýmist einn eða
énginn.
Við fastaskóla er ástandiö
í þessum efnum enn at-
hyglisverðara. Eins og að
frarnan segir eru alls starf-
andi 100 barnakennarar við
þá skóla. Af þeim hafa 28
kénnarapróf, en 5 hafa feng-
ið kennararéttindi við stöðu-
veitingu. Hinir, eða 67 far-
kennarar alls hafa engin
kennararéttindi.
Framhaldsskólarnir.
Þeir eru yfirleitt fullskip-
aðir. Að sumum þeirra er
miklu meiri aðsókn, en nokk
ur leið er að anna vegna
skorts á húsqæði. Mikil vönt-
un var á kennurum við þá
skóla í haust, en þeir hafa
allir féngizt. í Reykjavík mun
nemendafjöldi framhalds-
skóíanna meiri en nokkru
sinni áður. Hið sama er að
segja um alla sérskóla.
Verklegt nám.
Yfirleitt er nú unnið að
framkvæmd hinnar nýju
fræðslulöggjafar, þótt frem-
ur hægt fari. Ekki er unnt að
gjörbreyta fræðslukerfinu í
landinu, svo sem hún mælir
fyrir um, í einum áfangá. —
Þær breytingar verða að
koma smám saman. Aðallega
miðast framkvæmdin nú við
bóklega námið.
Á einum stað, ísafirði, hef-
ir verið hafið verklegt nám
í barnaskólanum. Hefir verið
farið mjög vel af stað þar
og námið samhæft atvinnu-
háttum þar á staðnum. Er
fyrirhugað, að svo verði yfir-
leitt þar sem hinu verklega
námi verður komið á í
barnaskólunum. Mesti örð-
ugleikinn í sambandi við auk
ið verklegt nám, er skortur á
húsnæði og áhöldum.
Aukaskaramtur af
kaffi og sykri
Fyrir nokkru var ákveðið
að úthlutað yrði auka
skammti af kaffi og sykri fyr-
ir jólin. Nú hefir þessi auka-
skamtur verið auglýstur og
er hann 250 gr. af kaffi og
500 gr. af sykri á mann.
Byrjað er nú að afgreiða
þennan aukaskammt, sem er
afgreiddur út á stofnauka
nr. 15. Fæst þessi jólaskammt
ur út á stofnaukann til nýárs,
Eftir nýárið geta verzlanir,
sem selt hafa þessar vörur
fengið innkaupaheimild hjá
^kömmtunarskrifstofunni,
gegn því að framvísa sfc.nfn-
aukunum.
Er þetta jólaglaðningur
skömmtunaryfirvaldanna, til
borgaranna i ár, og mun ekki
aí veita, til að hressa upp á
samtoúðina.
Síldveiðin orðin
350 þús. mál
TJm tuttugu þúsund mál
veiddust í Hvalfirði í gær
og í nótt. Sgm skipin voru
að veiðum í alía nótt, bví
síldin kemur nú ekki upp
undir yifirborð sjávarins,
fyrr en skyggja tekur.
Skortur er á flutninga-
skipum, og er útlit fyrir
alvarlega löndunarstöövun
hjá flotanum næstu daga.
Ekkert dregur .úr síldveið-
inni í Hvalfirði. Síldin er að-
allega veidd, eftir að dimmt
er orðið, vegna þess að á
daginn kemur hún lítið upp
undir yfirborðið, en heldur
sig á miklu dýpi.
Þannig var það í gær, en
þegar dimmt var orðið fengu
skipin flest góð köst. Nokkur
sprengdu nætur sínar, en
sum fylltu sig á skömmum
tíma.
Um klukkan sjö í gærkvöldi
fóru skipin að k.oma inn til
Reykjalfkur og vcíu að tín-
ast inn í alla nótt og í morg-
un.
Eins og sakir standa eru
engin skip að taka sild til
norðurflutnings nema Súðin
og Banan og nær það skammt
til að fullnægja flutninga-
þörfinni. Biða nú um 60 skip
losunar með milli 50 og 60
þúsund mál. Má búast við að
hópurinn stækki verulega i
dag og í nótt, þar sem lítill
skipakostur er fyrir hendi til
flutninganna.
í j^pr fóru tvö stór skip
norður með síld, True Knot |
og Fjallíoss, og auk þeirra
smærri skip. Hafa bví um 50
þúsund mál verið flutt af stað
norður í gær.
Lætnr nærri að búið sé að
veiða um 320 þúsund mál í
Hvalfirði, þannig að vetrar-
síldveiðin er orðin um 350
þúsund mál, með þvi sem
veiddist fyrir vestan.
’é
>
Bílferjurnar, scm ekki veröa notaðar á Hvalfjörð.
Hætt við rekstur bíl-
ferjanna á Hvalfirði
•
Manna á meðal hefir mikið verið rætt um hinar fyrir-
huguðu bílferjur á Ilvalfirði seinustu árin. Hefir verið unnið
nokkuð að nauðsynlegum hafnarframkvæmdum í firðinum
og vegagerð í sambandi við ferjurnar. Nú mun vera afráðið,
að hætta við rekstúr þessara ferja, að minnsta kosti í bili,
hvað sem síðar kaiin að verða.
Stjúrnmálanám-
skeið S. U. F.
8. furidur S.U.F. var í gær-
kvöldi í Baðstofu iðnaðar-
manna.
Þar flutti Bernharð Stef-
ánsson alþm. þriðja og síð-
a-sta erindi sitt um sögu ís-
ienzkra stjórnmálalflokka.
Að því loknu flutti Guð-
mundur Tryggvason frkvstj.
erindi um skipulag og út-
breiðslustarfsemi.
Næsti fundur verður á
sama stað n. k. sunnudag og
hefst kl. 2 eftir hádegi. —
Umræðuefni: Verzlunar-
málin. Áríðandi að nemendur
allir mæti stundvíslega.
SSá tek j umeim
(Framhald af 1. síðu)
ingu íbúða fyrir sig, og spar-
áð með því mikil útgjöid.
Jafnframt þurfa þeir, sem fá
fjárfestingarieyfi til bygg-
inga, að fá sjálfir innflutn-
ingsleyfi fyrir nauðsynlegu
efni, svo að þeir geti keypt það
þar, sem þeir telja sér hag-
kvæmast.
Um 20 Gyðingar og
Arabar drepnir
i gær.
Áíökin á laiidiBisi fara
sífellt harðnandi
Manndráp, brennur og
meiðingar halda áfram í
Palestínu í stórum stíl. í
gær munu átökin hafa ver
ið einna mest og harðvít-
ugust af beggja hálfu.
Gyðingar áttu geysistóra
timburhlaða á svæðinu hjá
Tel Aviv. Kveiktu Arabar í
þessum timburhlöðum í gær.
Brennur og árekstrar milli
flokka af beggja hálfu voru
mjög tíðir viðburðir í gær
víð-s vegar um landið, sér-
staklega mun þó vera barizt
á þéttbýlustu svæðunum og
er það eðlilegt þar sem víða
háttar þannig til að hverfi
Gyðinga og Araba eru hvert
innan um annað. í gær voru
8 Gyðingar drepnir en 13
Arabar — um 100 særðust af
beggja hálfu.
Bílferja á Hvalfjörð
hefir lengi staðið til.
Fyrir um það bil tveimur
árum komst veruleg. hrey fing
á það mál, sem mikið hafði
þó verið rætt áður, að koma
bílferju a Hvalfjörð.
Bílleiðin fyrir Hvalfjörð,
hefir verið einhver lengsti og
versti krókur á íslenzkum
vegum, bar sem þræða þarf
um 80 km lengri leið, fyrir
fjarðarbotninn, en ef vegur-
inn gæt-i legið skemmstu leið
upp í Porgarfjörð. Auk þess
he’fir Hvalfjarðarvegurinn
je.fnan verið með illfæru-stu
vegunum, þeim sem mikið
eru farnir. Sú hugmynd að fá
ferjur á fjörðinn og stytta
leiðina um 60 km. og hálfrar
annarrar stundar akstur um
vondan veg, fékk því byr
undir báða vængi.
Tveir innrásarbátar
keypíir í Englandi.
Þegar það varð að ráði að
Akranesbær keypti þrjú stór
steinker í Englandi, til að
gera úr þeim hafnarbætur,
voru um leið keyptir tveir
stórir innrá-sarbátar, í því
augnamiði, að nota þá sem
bílferjur á Hvalfjörð, en við
haínarbæturnar á Akranesi,
áður en hægt yrði að hefja
rekstur bílferjunnar.
Skip þessi eru þannig útbú-
in,.að þau f?eta hleypt upp á
land og er hægt að láta fram-
hlutann falla niður og aka
bifreiðunum á land.
Ferjurnar voru notaðar til
að sækja möl og grjót inn í
Hvalfjörð, sem notað var við
hafnarframkvæmdirnar á
Akranesi. .Reyndust þær vel
við það verk. Var skipunum
rennt á land og farminum
síðan ekið um borð í fjör-
unni.
Lendingarbætur og vega-
gerð hófust í fyrra.
í fyrra sumar var svo unnið
að því að gera lendingarbæt-
ur í Katanesi, þar sem ferj-
urnar eiga að koma að landi
að norðanverðu. Var byggð
bryggja eða skjólgarður fyrir
ferjurnar. Einnig var lagður
vegur frá Katanesi á þjóö-
veginn skammt frá Litlu-
Fellsöxl í Skilmannahreppi.
Var verki þessu haldið áfram
síðastl. sumar og komst það
þá langt á veg. Hins vegar
er lítið sem ekkert farið að
vinna að hafnarbótum fyrir
ferjurnar að sunnanverðu
fjarðarins, en þar er gert ráð
fyrir, að þær komi, að landi
hjá Eyri í Kjós.
Var ætlunin, að ferjurnar
gegnju þarna yfir fjörðinn
með stúttu millibili, en ferðin
sjálf hefði ekki tekið nema
tæpan stundarfjóroung.
Hætt við framkvæmdir
í bili.
í haust var svo hætt við
þessar framkvæmdir, og
liggja þær nú alveg niðri.
Ferjunum hefir verið komið
j örugglgea fyrir í vetrarlægi
í í þröngri vík, skammt fyrir
innan Akranes, þar sem
Blautós heitir. Er þeim þar
rennt upp í fjöru og liggur
| framhlerinn á annari ferj-
unni niðri, eins og til standi
að aka bifreiðum um borð.
j Samkvæmt upplýriingum,
sem Tíminn hefir aflað sér
j frá ábyggilegum heimildum,
mun nú vera afráðið að
hætta við framkvæmdir þær,
sem standa í sambandi við
bílferjuna á Hvalfjörð a. m.
i k. í bili. Mun þetta vera
■ hryggðarefni mörgum þeim,
j sem oft þurfa að fara leiðina
fyrir Hvalfjörð.
j Annað mál er það svo,
hvort heppilegt hefir verið
að kaupa þessi skip, til þess
að annast þetta hlutverk, en
um það eru skiptar skoðanir
eins og gengur. Úr því að
horfur eru á að hætt verði við
þessa framkvæmd, er athug-
andi hvort ekki væri mögu-
legt, að fá mjög hraðskreytt
skip til ferða milli Akraness
og Reykjavíkur, sem gæti
'flutt nokkra bíla í hverri
ferð. Mundi mikil samgöngu-
bót verða að slíku skipi, og
mundi það gera ferðalög
mun auðveldari milli Reykja-
víkur og Norðurlands.