Tíminn - 06.12.1947, Side 5

Tíminn - 06.12.1947, Side 5
226. blað TÍMINN, laugard^inn 6. des. 1947 5 6. des. E RLE NT YFIRLIT: Skipting Palestinu Verður ákverðim saiMeiimðsa fijúðauita til jþess eins að komaa af stað foorg’arastyrjjöld í laiidimi lielga? Eins og kunnugt er af blaða- j svæðinu á fætur öðru, en þar eru og útvarpsfréttum hefir verið mjög ! ein auðugustu olíulindasvæði í róstusamt í Palestínu síðan ákveðið : heimi. Arabar hafa líka verið var á þingi sameinuðu þjóðanna Bandaríkjamönnum hliðhollir, en Aukin saravinna í þágu útgerðarinnar Eitt af því, sem allir eru sam- mála um, er þa5, að eitthvað þurfi að gera til að hjálpa útveginum. Um það er eng- inn ágreiningur, þó að skoð- anir kunna að vera skiptar um aðferðir. Þjóðin veit öll, að hún get- ur ekki lifað stundinni leng- ur, nema hún beri gæfu til þess að halda atvinnuvegum sínum gangandi. Því er það víst, að eitthvað verður að gera, svo að útgerðin sé rek- in með eðlilegum hætti. En jafnframt því, sem þing og stjórn leitar ráða til að bjarga útveginum, verða út- vegsmenn sjálfir að stefna að því, að bæta rekst'ur sinn, svo að hann verði sem sjálf- stæðastur að orðið getur. Á undanförnum árum hefir dálítið þokast í þá átt, að útvegsmenn tækju upp nýja og betri siði í sambandi við rekstur sinn. Það hafa verið stofnuð lýsissamlög og olíu- samlög á nokkrum stöðum og rekin með góðum árangri. Þetta eru nokkrir fyrstu sigrar samvinnustefnunnar á sviði útvegsmálanna, en væntanlega munu margir áðrir á eftir fylgja. Á sama hátt þurfa útvegs- menn að hagnýta sér úrræði samvinnunnar til þess að afla sér sem ódýrastra nauð- synja til framleiðslunnar. — Það má gera bæði með því, að útvegsmenn komi sér upp eigin samtökum í þessu skyni eða taki upp samstarf við samvinnufélög, sem fyrir eru, um þessi mál. Útvegs- menn verða að sýna það í verki, að þeim sé ljóst, að verzlun með nauðsynjar þeirra á ekki að vera til þess að safna stórgróða á einstakar hendur utan við atvinnuveginn, og það jafn- vel, þegar reksturinn gengur sem verst. Útvegsmenn eiga að læra Þetta giidir þó. eiski sízt fyrir for- af þeirri reynslu, sem þeir setakosningar. 7 Porsetakosningar hafa þegar aflað sér, bæði fara fram í 'Bandaríkjunum á hvernig ekki á að skipa mál- um og hvernig á að skipa þeim. Og þeir lærdómar þurfa að bera ávexti í fram- kvæmdum þeirra. . Samtök útvegsmanna eiga að stefna að því, að taka í eigin hendur vinnslu úr hrá- efnum útvegsins og sölu á þeim. Það á ekki að ein- skorða við lýsið, heldur á það að verða hið almenna á þessu sviði, alveg eins og kaupfé- lög bændanna annast vúrk- un og sölu á framleiðslu þeirra. Það er eðlilegt að samtök útvegsmanna taki að sér rekstur hraðfrystihúsa, niðursuðu og fleira og starfi að þessu á samvinnugrund- velli, þannig að hagnaður skiptist eftir viðskiptum. Sama máli gegnir um þann iðnað, sem beiniínis er í þágu útvegsins, veiðarfæragerð alls konar, vélsmíði, skipa- smíði og viðgerðir. Það er miklu eölilegast að útvegs- menn eigi slík fyrirtæki í félagi. Enn er þetta líka eðlileg- að skipta landinu. Það eru Arabar, seip hafa staðið fyrir róstunum og undrar það engan. Arabar hafa verið aðalþjóðflokkur landsins í margar aldir eða frá því á 7. öld. Þegar flutningar Gyðinga hófust þangað eftir fyrri heimsstyrjöld- ina, voru þar um 70 þús. Gyðingar en 600 þús. Arabar. Nú munu Ar- abar þar vera um ein milj. en Gyð- ingar rúmlega hálf milj. Tilkall Araba til yfirráða í landinu virðist því vart umdeilanlegt. Það eykur svo gremju þeirra, að samkvæmt fyrirætlunum sameinuðu þjóðanna virðist eiga að haga skiptingunni þannig, að Gyðingar fái frjósam- asta hluta landsins og að i hinu nýja Gyðingalandi verði nokkru fleiri Arabar en Gyðingar, a, m. k. fyrst eftir skiptinguna, Afstaða Bandaríkjanna. Það hefir vakið undrun margra, að Rússar og Bandaríkjamenn skyldu sameinast um skiptingu Palestínu á þingi sameinuðu þjóð- anna, eins ósammála og þessi stór- veldi virðast annars um flesta hluti. Til pessa eru einkum taldar liggjá eftirgreindar ástæður. f Bandaríkjunum er búsettur mikill fjöldi Gyðinga eða um 5 milj. alls. 1 hópi þeirra eru ýmsir helztu auðmenn Bandaríkjanna. Mestu kann það þó að valda um áhrif Gyðinga ,í Bandaríkjunum, að þeir eru aðallega búsettir í stærsta fylkinu, New York fylkinu, en það kýs laugflesta kjörmenn á kjörþing það, se'm endanlega velur forseta Bandaríkjanna. Þannig eru í New York eihni ekki færri en tvær miljónir Gyðinga. Gyðingar geta því að mjklu leyti ráðið því, hvor af aðalflokkum Bandaríkj- anna fær kjöpmennina úr New York fylki, og ’þannig geta þeir lagt þyngsta Ipðið á vogina, sem ákvarðar þar, Jýypr flokkurinn fær forsetann. Af’ .þessum ástæðum sækjast báöir .stjórnmálaflokkar Bandaríkjanna , eftir fylgi Gyðinga. næsta ári og hafa því ýmsir þótzt sjá nokkurn uirdij-búning fyrir þær í því mikla oíurkappi, sem stjórn- málamenn Bandaríkjanna hafa lag't á framgang.þessa máls. Afstaða Rússa. Afstaða Rússa. þarf hins vegar ekki að stafa af því, að Gyðingar séu áhrifamiklir í landi þeirra. Rússar líta það hins vegar óhýrum augum, hve mjög Bandaríkjamenn hafa aukið itök - sín í arabisku löndunum seinustu árin og náð þar undir sig hverju olíulinda- hafa verið mjög andvígir komm- únismanum. Rússar gátu því ekki vænzt verulegs þakklætis, þótt þeir stöðvuðu skiptingu Palestínu. Hins vegar munu þeir ekki telja það spilla aðstöðu sinni, ef alverlega kastast í kekki milli Bandaríkja- manna og Arabaþjóðanna. Sam- kvæmt framansögðu telja Rússar sig ekki tapa neinu, þótt þeir stuðli að þessari skiptingu, en hins vegar getur hún gert aðstöðu Bandaríkj amanna stórum örðugri í sambandi við olíuvinnsluna í Arabalöndunum, en aðalóánægja Araba mun bitna á Bandaríkja- mönnum, þar sem þeir hafa haft forustu um skiptinguna. Afstaða Rússa í Palestínumálinu getur því verið klókt herbragð af þeirra hálfu, og er alveg eins líklegt, að undir niðri hafi Bandaríkjamenn helzt kosið, að Rússar kæmu í veg fyrir skiptingu Palestínu, og þeir hefðu þá getað afsakað sig við Gyðingana heima fyrir með því, að skiptingin hefði strandað á Rússum. Mikill áróður. Málið fór hins vegar á þann veg, að Rússar studdu skiptinguna, og Bandaríkjastjórn varð þá viljug eða naúðug að beita sér eindregið fyrir framgangi málsins, ef hún ætlaði ekki að skapa sér andstöðu Gyðinga heima fyrir. Málið var líka sótt af hennar hálfu af feikna kappi á þingi sameinuðu þjóðanna og er það talið stafa af áróðri Bandaríkjanna, að ýms smáríki sem ætluðu sér að verða á móti skiptingunni ellegar að láta hana afskiptalausa, snerust til fylgis við hana á síðustu stundu. Þrátt fyrir þennan mikla áróður greiddu þó 13 ríki atkvæði gegn skiptingunni og 10 sátu hjá. Má á þeim úrslitum sjá, að skoðanir hafa verið nokkuð skiptar um það, hvort hér væri fullkomið réttlætismál á ferðinni, Nægur meirihluti fékkst þó með skiptingunni, þar sem 33 ríki greiddu atkvæði með henni. Verður borgara- styrjöld? Þótt skipting Palestínu hafi verið samþykkt á þingi sameinuðu þjóð- anna, er enn langur vegur frá því, að hún sé komin í framkvæmd. Skiptinglri mun mæta öflugri mót- spyrnu Araba í Palestínu eins og þegar er komið á daginn, og Arabar í nágrannalöndunum hafa lofað þeim eindregnum stuðningi sínum. Bretar hafa lýst yfir því, að þeir muni engin afskipti hafa af skipt- ingunni, heldur fara með her sinn burtu, eins fljótt og þeir geta. Hafa Bretar taliö skiptinguna óráð, Vishinsky, sem átti drjúgan þátt í ákvörðun þings Sameinuðu þjóð- anna um Palestínumálið. nema hún væri gerð með sam- þykki beggja aðila. í landinu verður því ekki neinn aðili, sem hefir vald og aðstöðu til að framkvæma skiptinguna, þegar þar að kemur. Ef Gyðingar reyna á eigin spýtur að stófna ríki í þeim iandshlutum, sem þeim verður út hlutað, munu Arabar ekki hafa það að neinu. Reyni Gyðingar þá að framfylgja stjórn sinni með valdi, munu Arabar svara i svip- aðri mynt. Komi til borgarastyrj- aldar í Palestínu milli Araba og Gyðinga, eru ýmsar spár um það, hvernig hú ji muni fara, því að báð- í aðilum mun berast mikil hjálp frá ættbræðrum sínum annars staðar. Sennilegast er, að slík styrjöld Araba og Gyöinga geti orðið langvinn og þar geti oltiö á ýmsu, en einkum vejði þó beitt launvígum og skemmdar- verkum. Skipting Palestínu getur þannig kallað hina mestu óham- ingju yfir íbúa landsins og gert ástandið þar margfallt verra en það áður var. Getuleysi sameinuðu þjóðanna. Nú munu ýmsir ætla, að sa.mein- uðu þjóðirnar séu skyidugar til þess að skerast í leikinn, ef slíkt ógnará&tand hlytist af ákvörðun þeirra um skiptingu Palestínu. En það vantar einmitt í þá ákvöröun, að séð sé fyrir því, að skiptingin sé framkvæmd af einhverjum aðila, er hafi vald til að koma henni fram. Sjálfar ráða sameinuðu þjóðirnar ekki yfir neinum her og munu sennilega ekki gera það fyrst um sinn. Komið hefir til orða, að Bandaríkin taki að sér að sjá um skiptinguna, en ekki getur þó stjórnin sent her þangað, nema (Framhald á 6. siöu) asta leiðin riieð innkaup á útgerðai'vörunum. Það er allra hluta végna heppileg- ast, að þau fyrirtæki, sem það hlutverk annast, séu byggö upp. af útveginum sjálfum og lifi og starfi bein línis fyrir hann. Þannig mun samvinnu- skipulagið eyða tortryggni og hagsmunaandstæöum þeirra, sem saman eiga að vinna um þessi mál, og jafnframt festa hjá útveginum sjálf- um ærið fé, sem nú er illa og ómaklega af honurn dregið. Þetta verða útvegsmenn að skilja og vinna að þessari þróun, svo að betur notizt að því, sem nú verður gert til hjálpar. Og löggjöfin og rík isvaldið verður að hjálpa þeim til þess að flýta fyrir þeirri þróun, því að hún er réttlætismál útvegsmanna og öryggismál atvinnulífsins landinu. Hvers eiga íslenzku skipasmíðastöðv- arnar að gjalda? Á Alþingi hefir verið lögð fram þingsályktunartillaga um eftirgjöf á og niðurfell- ingu aðflutningsgjalda á inn- fluttum fiskiskipum. Um tillögu þessa er gott eitt að segja, en þá vaknar samhliða sú spurning, hvers íslenzku skipasmíðastöðvarn ar eigi að gjalda, að hafa þurft að greiða tolla af efni og vélum í skip þau og báta, sem hérlendis hafa verið byggð. Þótt eik til skipasmíða sé tollfrjáls, þá er það svo, að mikið af eikinni er flutt inn af öðrum en skipasmíða- stöðvunum, enda eikin minnst verðmæti þeirra hluta, er í Slippfélagið og Alþingi Fyrir Alþingi liggur m. a. þingsályktunartillaga þess efnis, að ríkið ábyrgist 2,7 milj. kr. fyrir Slippfélagið h.f. í Reykjavík. Tilagan er rök- studd með því, að fyrirtæki þetta ætli að koma upp drátt- arbraut og slipp, sem geti tekið skip allt að 1500 smál. þnuga, en skorti fé til þess, nema það fái umrædda ríkis- ábyrgð. Mál þetta hefir fengið at- hugun í fjárveitinganefnd og fengið þar þessi meðmæli; , „Nefndinni er fulljóst, að það er höfuðnauðsyn, að þessu mannvirki verði lokið sem allra fyrst, þar sem eng- in dráttarbraut er til í land- inu, sem tekið getur á Iand hin nýju skip, sem nú koma hvert af öðru til landsins og stærri eru en 400 smálestir, en slíkt ástand mundi skapa hreint öngþveiti í útgerðar- málunum, ef ekki yrði úr bætt á mjög skömmum tíma, og með því að verið er að koma þessu mannvirki upp til þess einmitt að bæta úr þessu máli, leggur nefndin til, að tillagan verði samþykkt ó- breytt.“ Það er áreiðanlega mikil nauðsyn, að komið sé upp mannvirki því, sem hér ræð- ir um. En fleira þarf einnig að taka til athugunar. Margt hefir verið rætt og ritað um þá þungu skatta, sem vél- smiðjurnar og skipaviðgerð- arverksmiðjurnar hafa lagt á útgerðina á undanförnum árum. Er það þá ré*t. af ríkinu fyrst það tekur á sig áhættu, vegna slíks mannvirkis að láta einkafyrirtæki, sem rekið er í gróðaskyni, sitja fyr ir aðstoðinni? Væri ekki rétt- ara að ríkið reyndi að styrRja samtök útgerðarmanna eða Reykjavíkurbæ til þess að koma slíku mannvirki á fót? En þætti nú alþingismönn- um frágangssök að styrkja samtök útvegsmanna eða bæjarféiag til slíkra fram- kvæmda, væri þá ekki athug- andi að setja Slippfélaginu einhver skilyrði fyrir ábyrgð- inni, t. d. að það seldi vinnu sína skaplegu verði og ríkið fengi aðstöðu til að fylgjast með rekstri þess? Við því er ekki nema gott að segja, að Albingi styrki einkaframtakið, þ'V sem það á við. En bá er farið yfir takmörkin, þegar Alþingi styrkir einkafyrirtæki til að fá einokunaraðstöðu, eins og hér myndi verða, því að ekki er líklegt að aðrar jafnstór- ar dráttarbrautir verði reist- ar hér fyrst um sinn. Þess vegna er ekki úr vegi, að AI- þingi íhugi þetta mál ofur- lítið betur. X4-Y. í skipin fer, en samkvæmt þar • um gerðri athugun, nema tollar og aðflutningsgj öld af efni og vélum og útbúnaði í skip byggð hérlendis 800 krónum á hvert burðar- magnstonn skipsins. Væri ekki smekksatriði af hálfu löggjafarvaldsins, að láta þó innlendar skipasmíð- ar sitja við sama borð og þær erlendu, og endurgreiða tolla af vélum og efni af skipum og vélum, sem farið hafa í skip og báta byggð innanlands á sama tíma og tolleftirgjöf er veitt' á þeim innfluttu. H. B.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.