Tíminn - 09.12.1947, Page 2
2
TÍMINN, þriðjudaginn 9. des. 1947
228. blað
deg,i tií da.
I dag:
Sólin kom upp kl. 10.08. Sólarlag
kl. 14.32. Árdegisflóð kl. 3.05. Síð-
degisflóð kl. 15.25.
í nótt:
Næturakstur annast Litla bíl-
stjöðin, simi 1380. Næturlæknir er í
læknavarðstofunni í Austurbæjar-
skólanum, sími 5030. Næturvörður
er í Reykjavíkur apóteki sími 1760.
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.00 Fréttir. 20.25 Tónskáldið
César Franck. — 125 ára minning.
a) Formálsorð. b) Tónieikar: Sym-
fónía í d-moll. 21.15 Erindi: Frum-
byggjar jarðar IV. Fyrstu Evrópu-
mennirnir (dr. Áskell Löve). 21.40
Tónleikar (plötur). 21.45 Spurn-
ingar og svör um íslenzkt mál
(Bjarni Vilhjálmsson). 22.00 Fréttir
22.05 Húsmæðratími (frú Dagbjört
Jónsdóttir). 22.15 Djassþáttur (Jón
M. Árnason). 22.40 Dagskrárlok.
Skipafréttir:
Brúarfoss kom til London 6. des.
frá Fáskrúðsfirði. Lagarfoss fór frá
Gautaborg 4. des. til Reykjavíkur.
Selfoss fór frá Siglufiröi 8. des til
Reykjavíkur. Fjallfoss fór frá Sig'.u-
firði 8. des til Reykjavíkur. Reykja-
foss kom til Siglufjarðar í gær, fór
þaðan sama dag til Gautaborgar.
Salmon Knot kom til New York 30.
nóv. frá Reykjavík, lestar í New
York um 12 des. til Reykjavíkur.
True Knot er á Patreksfirði á leið
frá Reykjavík til Siglufjarðar.
Knob Knot fór frá New York 5.
des. til Reykjavíkur. Linda er í
Halifax. Lyr.gaa kom til Reykja-
víkur 5. des. frá Siglufirði. Horsa
kom til Reykjavíkur 6. des. frá
Leith. Farö kom til Antwerpen 1
gær 7. des.
Konur skora á Reykjavíkurbæ
,að gera betur í heilsuverndar-
málum barna.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavik haldinn 27. og 28. nóv.
1947 skorar á bæjarstjórn Reykja-
víkur að hraða sem mest endur-
skoðun heilbrigðissamþykktarinnar
og gera nú þegar nauðsynlegar ráð
stafanir til þess að heilbrigðisfull-
trúi geti hafijý starf sitt að endur-
skoðuninni lokinni.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík beinir þeirri cjsk til
'bæjarstjómar Reykjavíkur að
I. Öllum börnum í barnaskólum
bæjarins veAi tryggt lýsi daglega,
og fái þau börn aðeins undanþágu,
sem skv. læknisvottorði þola ekki
Jýsi, eða hafa með sér yfirlýsingu
íoreldra um, að þau fái lýsisgjafir
á heimiiunum.
II. Að komið sé á fót víða í bæn-
um ljósastofum, sérstaklega í út-
hverfum bæjarins, svo að börn, sem
ekki njóta lý^sbaða í barnaskólun-
um, geti. si'V. læknisráði fengið
ljósböð á þessum stöðum. Enn-
fremur telur fundurinn nauðsyn-
legt að auka. ijósböð í barnaskól-
unum.
Dvalarleyfi ekki nauðsynlegt
í Belgíu.
Um máneðamótin féll niður vís-
umskylda íslenzkra ríkisborgara,
em ferðast vilja til Belgíu og gagn
kvæmt, enda sé eigi um lengri dvöl
áð ræða en t.yo mánuði.
Bókmenntakynning Helgafells,
sú þriðja í röðinni, var haldin í
Austurbæjprbíó síðastl. sunnudag.
Þar las Guðbrandur Jónsson próf-
essor upp úr skáldsögu Jóns
Björnssonar um Jón Gerreksson
biskup í Skálholti, en Lárus Páls-
son leikari las upp úr kvæðasafn-
inu ísland þúsund ár, kvæði eftir
Davíð Stefánsson, Tómas Guð-
mundsson, Halldór Kiljan og Stein
Steinar.
StjórrLmáiarLámskeLð
S. U. F.
Næsti fundur verður ann-
£$ð kvöld kl. 8,30. Vilhjáímur
I?ór, forstjóri, flytur þar er-
ijndi um samvinnumál.
Aríðandi að allir þátttak-
endur mæti.
Árnað heilia.
Gefin hafa verið saman
í hjónaband:
Ungfrú Laufey Tómásdóttir,
Bergþórugötu 23 í Reykjavík, og
Björgvin Halldórsson Ránargötu
29. Séra Jakob Jónsson gaf brúð-
hjónin saman.
Ungfrú Guðrún Árný Magnús-
dóttir frá (%ngu í Tálknafirði og
Níels Pálsson frá Suðurey. Heimili
ungu hjónanna er á Öldugötu 30A
í Reykjavík. Séra Jakob Jónsson
gaf brúðhjór/'i saman.
Hjúskrjþarheit sitt hafa
gert kunnusd;:
Ungfrú Gróa Axelsdóttir, Borg í
Sandgerði, og Birgir Jónsson sjó-
maður, Öldugötu 55 í Reykjavík.
Bergur Jónsson
héraðsdómslögmaður
Málflutningsskrifstofa Lauga
veg 65, sími 5833. Heima:
Hafnarfirði, sími 9234
Svo bar tii
Bar vel í veiði.
í Cleveland er kvenlögregluþjónn,
sem heitir Betty Anthony. Hún er
28 ára gömul. Henni þótti bera sér-
staklega vel í veiði núna í haust,
þegar hún gómaði mann, sem um
langt skeið hafði svikizt um að
greiða fráskilinni konu sinni lög-
skipað m^ðlag ’ til framfærslu
börnum þeirra. — Konan, sem
hann hafði prettað svo lengi, heitir
Betty Anthony, lögregluþjónn í
Cleveland.
Tak sæng þína og gakk.
Lúsíana Gallipani á heima í Genúa
á Ítalíu og er orðin tuttugu og
fimm ára. Hún fékk lömunarveiki,
þegar hún var unglingur, og síðan
hefir annar fótur hennar verið
máttlaus. En nú fyrir skömmu fékk
hún bct meina sinna á einkenni-
legan hátt.
Svo er máímeð vexti, að Lúsíana
Gallipani ra£_ dálítil viðskipti á
svörtum markaði, eins og nú er
eliki svo fátítt um bezta fólk í
ýmsum löndum Norðuxálfunnar.
Dag einn var hún að selja sígar-
ettur. Þá sá hún tvo lögregluþjóna
koma, og hún sá ekki betur en þeir
stefndu beint til hennar. Þá varð
hún dauðhrædd og tók til fótanna.
Og viti menn — fóturinn, sem
hafði verið henni ónýtur í herrans
mörg ár, dugði henni hið bezta.
Nú kemur Lúsíana Gallipani dag-
iega til fundar við Maríu mey í
kirkju sinni í Genúu og færir henni
þakkarfórnir, því að hún þakkar
hinni heilögu jómfrú þetta krafta-
verk.
Félagslíf
Undir þessum lið verða
birtar örstuttar tilkynningar
frá ýmsum félögum.
Ödýrar auglýsingat
Aðalfundur
Framsóknarfélags Reykjavíkur
verður í Breiðfirðingabúð kl. 8,30
n. k. miðvikudagskvöld.
SKI^UTG€RÐ
RIKISINS
M.b. „Sæhrímnir”
til Bíldudals, iÞngeyrar og
Flateyrar. Vörumóttaka ár-
degis í dag.
IIcrbeFgi
Kjallaraherbergi til leigu. Upp-
lýsingar í síma 4800.
Dívanar
ýmsar stærðir
VERZLUN INGÞÓRS
Selfossi. — Sími 27.
/Evisaga
Benjamíns Franklín fæst í
Bókabúðinni Laugaveg 10.
Farmall,
ásamt sláttuvél og reimskifu, til
sölu. Sá, sem getur látið nýlegan
jeppa, gengur fyrir.
Upplýsingar sendist í bréfi til
afgreiðslu Tímans, merkt „Far-
mall“.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Reykjavíkur,
verður haldinn í Breiðfirðingabúð miðvikudaginn 10.
þessa mánaðar og hefst kl. 8,30 e. hád.
FUNDAREFNI:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Stjórnmálahorfur: Þórarinn Þórarinsson ritstj.
hefir framsögu.
3. Önnur mál.
STJÓRNIN.
Á förnum vegi
Gamall ungmennafélagi hefir
sagt vlð mig: ■
— Þegar ég var ungur fór vakn-
ingaralda um landið. Ungir menn,
sem þekktu þrældóminn að baki,
risu upp, reiðubúnir til þess að
skapa nýja öld. Þeir sáu í hilling-
um fagra framtíð og bjarta tíma
og voru reiðubúnir til þess að
leggja líf og starf til þess, að sú
sýn mætti verða að veruleika.
— Ég efast um, að okkur hafi
dreymt djarfari drauma um efna-
lega viðreisn og atvinnuumbætur
heldur en nú eru orðnar að veru-
leika, hélt þessi maður áfram. En
þó er það samt svo, að flest er aö
öðru leyti á annan veg heldur en
fyrir okkur vakti fyrir fjörutíu ár-
um. Sá andi, sem hreif okkur upp
úr eymdar-lognmollu og dofasvefni
, vanans, og átti að verða líftaug
þjóðfélagsins og akkeri þess og
kjölfesta í róti og umbrotum, er
gleymdur og dáinn. Að minnsta
kosti verður hans lítið vart.
1 Þegar ég er nú á gamals aldri
að skygnast um í þjóðfélagi okk-
ar, þar sem menntun er óneitan-
lega orðin svo góð, fólkið búið að
| fá yfirleitt í hendur svo góð tæki,
| að vel er sambærilegt við það, sem
sést meðal hinná fremri þjóða
heimsins og ríkulegir möguleikar
| virðast til hinnar beztu afkomu á
allan hátt, er það einmitt þessi
kjölfesta, er mér virðist vanta. Það
er hinn samstillti vilji til þess að
skapa gott þjóðfélag, _ löngunin til
þess að keppa að háleitu marki,
andinn, sem gerir menn sterka og
djarfa.
Það er til nóg af mönnum, sem
sjá hinar ytri meinsemdir — menn,
sem tala um að gera þurfi at-
vinnureksturinn í landinu sam-
keppnisfæran við atvinnurekstur
annarra þjóða, menn, sem tala
um að lækna verði meinsemdir
verðbólgu og dýrtíðar, menn, sem
tala um, að þessir eða hinir verði
að fórna á altari þjóðarhagsmun-
anna til þess að tryggja framtíö
sína og annarra. Gott og blessað
og hárrétt. En þessir menn eru ut-
an garna í lífinu og skilja ekki
rök tilverunnar. Öll lagaboð og
fyrirmæli eru lítils virði, þótt unnt
sé að knýja þ4au fram, ef hin innri
skilyröi eru ekki fyrir hendi. Þess
vegna er það, _að okkur vantar
fyrst og fremst menn til þess að
glæða og skapa það hugarástand
með þjóðinni, sem gerir kaldan
lagabókstaf að lifandi veruleika.
Okkur vantar menn, sem eru
gæddir andagift, lífi og krafti til
þess að endurvekja þann anda,
sem einn getur orkað því að lyfta
þjóðinni til samstilltrar meðvit-
undar um sjálfa sig og framtíö
sína, skapað fórnarlundina og
viljann til átaka, og þá kemur hitt
á eftir. En sé byrjað á öfugum
enda, held ég að aðeins verði erf-
iðara um vik að bræða saman
brotalamirnar á þjóðfélaginu.
Rödd þessa manns er dálítið frá-
brugðin því, sem oftast heyrist, og
er mér það ánægja að koma skoð-
unum hans á framfæri. J. H.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
SKÁLHOLT
i
U
o
o
o
o
o
<►
i > Aðgöngumiðasala í dag kl. 3—7 og á morgun frá kl. 2,
o
O
sögulegur sjónleikur eftir
GnðiiHmd Eamliau
Sýning auaiaS kvöld kl. 8.
sími 3191.
I
i
F J AlAKÖTTFKSrW
sýnir gamanleikinn
S 0 I B ■■ II (
«
::
:8
„Orustan á Hálogalandi”
í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar frá kl. 2 i dag.
Aðalfundur
Byggiiagsafélags Alfíýðas í SSssfiiarflrði
verður haldinn föstudaginn 12. desember næstkom-
andi í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði og hefst stundvís-
lega kl. 8,30 siðdegis.
Síagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
\ 3. Önnur mál.
Félaggsstjjárnin.
«
H
♦♦
♦♦
H
♦♦
H
♦♦
::
II
H
::
♦ ♦
::
♦♦
♦♦
::
!::
I«
►♦♦♦
►♦♦♦
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
Góður trésmiður eða húsgagnasmiður
| getur íengið atvinnu hjá oss mí þegar;
Sími 1680
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦■»♦♦♦♦♦ ♦♦ ♦»♦♦♦♦ ♦ »♦♦♦♦