Tíminn - 09.12.1947, Blaðsíða 8
I
Reykjavík
9. desember 1947
228. blað.
Rússnesk herskip í búlgarskri höfn
\
■ '
Rússar hafa öflug-an flota á Svartahafi, og hcimsóknir herskipa þeirra til grannlandanna, sem liggja
a'ö Svartahaíi, eru tíðar. Hér á myndinni sjást rússnesk hcrskip koma í „kurteisisheimsókn tii búlgarskr-
ar hafnar.
Fjölþætt starfsemi Norræna
félagsins a þessu ári
Frásögsi Graðlaugs SSósiuiki^anz, ritara fé-
lagsins
Starfsemi Norræna félagsins mun verða með svipuðu
sniði i vetur og að undanförnu. Mun félagið halda skemmti-
fundi, eftir því sem ástæða þykir til, en auk þess mun það
fitja upp á ýmsu nýju. Tíðindamaður Tímans hefir snúið
sér til Guðlaugs Rósinkranz, hins ötula ritara Norræna fé-
lagsins, og spurt hann um félagssíarfið. Fórust honum
orð á þessa leið:
Luciuhátíðin á föstu-
daginn.
’ Norræna félagið geng.st
fyrir Luciuhátíð í ár ein.s og
í fyrra, en það er þjóðarsið-
ur á Norðurlöndum, einkum
í Svíþjóð og í Finnlandi, að
halda upp á Luciudaginn,
sem er þann 13. des. Luciu-
hátíðin verður haldin um
kvöldið þann 12. des. í Sjálf-
stæðishúsinu, og verður með
svipuðu sniði og undanfarið.
Hinn nýkomni sendiherra
Svía S. H. Pousette heldur
ræðu, sjö stúlkur, skrýddar
hvítum kyrtlum og með
krans alsettan logandi kerta-
Ijósum á höfðinu syngja
Luciusönginn, Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur norræn
lög og loks verður dansað.
Norræn jól, fjölbreytt
að vanda.
„Norræn jól“ koma út ein-
hvern næstu daga, falleg og
fjölbreytt að vanda. í ritið
skrifa meðal annarra að
þessu sinni Stefán Jóhann
Stefánsson forsætisráðherra,
formaður félagsiias, er skrif-
ar ávarp, Helgi Hjörvar skrif-
ar langa og góða grein um
hinn fræga norska listamann
GustáY Vigeland og fylgja
þeirri grein fjöldi ágætra
mynda af listaverkunum,
grein er um sænsk sveitajól
eftir Jöran Forslund rithöf.,
skemmtileg frásaga eftir Al-
bert Engström með teikn-
ingum eftir hann, ágæt smá-
saga er eftir Friðrik Á Brekk
an o. m. fl. Eggert Guðmunds
son listmálari hefir teiknað
forsíðumynd og myndir með
kvæði eftir frú Glatved-
Prahl, er hún flutti á Ásólfs-
stöðum í sumar á Snorrahá-
tiðinni og vakti mikla hrifn-
ingu allra áheyrenda. Fé-
lagsmenn fá „Norræn jól“
ókeypis en auk þess verða
þau seld í bókaverzlunum.
Ncrrænum stórmennum
boðið hingað.
Um önnur verkefni Noræna
félagsins má geta þess að það
hefir boðið norska skáldinu
Arnulf Överland að koma til
íslands í sumar til þess að
halda fyrirlestra .og lesa upp
úr kvæðum sínum. Skáldið
hefir þegið boðið og mun
koma með vorinu, fyrr getur
hann ekki komið sökum
annríkis, en hann er nú á
stöðugu ferðalagi um Noreg
og jafnvel til hinna Norður-
landanna til þess að flytja
fvrirlestra og vekur jafnan
mikla athygli.
Útgáfa úrvalsbók-
mennta.
Á næsta ári hefir félagið
ákveðið að hefja útgáfu
norrænna bóka í hlenzkri
þýðingu. Fyrsti bókaflokkur-
inn mun heita „Úrval nor-
rænna nútímabókmennta."
Fyrsta bókin, sem út kemur
í þeim bókaflokki verða smá-
sögur eftir Arnulf Överland,
síðar koma bækur eftir Jó-
hannes V. Jensen, Hjalmar
Bergman, Joh. Falkberget,
Joh. Linnankoski, Sigfrid
Siwertz og fleiri merka nú-
tímahöfunda. Helgaíell sér
Danskir bændur eru hirtnari
og þnfnari en þeir íslenzku
tJr bréff frá Ólafi Sigwðssyni frá Hcllti-
landi.
Ólafur Sigurðssón, ráðunautur frá Hellulandi, dvelur um
þessar mundir hjá Skúla Guðjónssyni, prófessor í Árósum.
Ilefir hann í bréfi til Gísla Kristjánssonar, ritstjóra Freys,
greint frá ýmsuy sem fyrir augu og eyru hefir borið, og
meðal annars eftirfarandi, sem birt er með leyfi bréfritara
og viðtakanda:
um útgáfu þessa fyrir félag
ið. — Þá hefir félagið í |
hyggju að bjóða á hverju ári1
hingað til lands minnsta
kosti einum Norðurlandabúa,
sem skarar fram úr á sviði
lista eða vísinda, til þess að
halda hér fyrirlestra eða lesa
upp úr verkum sínum. 7ænt-
um við, að það verði vel séð
og til gagns og sóma fyrir
þjóðina.
Myndarleg sam-
koma F.U.F. í Fljóts-
hlíð
Laugardaginn 6. des. hélt
F. U. F. í Fljótshlíð skemmt-
un í samkomuhúsi hreppsins.
Kjartan Ó. Bjarna.son sýndi
þar íslenzkar kvikmyndir,
meðal annars hina vinsælu
Heklukvikmynd. Þá flutti
þar ræðu Þráinn Valdimars-
son. Var ,svo dansað langt
fram eftir nóttu af hinu
mesta fjöri. Skemmtunin var
öll hin glæsilegasta og munu
hafa sótt hana á þriðja
hundrað manns. Komu marg
ar áskoranir til stjórnar fé-
lagsins um að gangast fyrir
slíkri skemmtun síðar í vet-
ur.
Starfsemi þessa félags hef-
ir verið og er enn öðrum fé-
lögum til fyrirmyndar og því
sjálfu til sóma. Fyrir um 8
árum bjó það sér trjágarð a
fallegum stað í Hlíðinni og
eru trén nú orðin á aðra
mannhæð. Þá hefir félagið
lagt fram 10.000.00 kr. í fé-
lagsheimilið. sem nú er langt
komið með að reisa í hreppn-
um. Ennfremur hefir þaö
gengizt fyrir skemmtiferð-
um, t. d. var farið til Heklu
í vor. Sýnir þetta að íéiög
geta, brátt fyrir fólksfæð
sveitanna, starfað með sóma,
ef samhugur og kjarkur fara
saman.
Stjórn félagsins skipa þess-
ir menn: Böðvar Gíslason,
Butru, formaður, Albert Jó-
hannsson, Teigi, ritari,
Guðni Jóhannsson, Teigi,
gjaldkeri.
— „Eg hefi farið nokkra
túra út á meðál bændanna
hér í nágrenninu, og meðal
annars tvo sunnudaga til
veiða í veiðiskógi, sem Skúli
prófessor hefir á leigu. Er
hann rúmlega 30 km. frá
Árósum. Við skógarjaöarinn
er ungur duglegur bóndi, sem
þar býr og á 50—60 hektara
lands og 44„ mjólkandi kýr.
Þetta er vinur Skúla, og þar
borðuðum við miðdagsmat,
en vorum annars á göngu um
merkur og skóga myrkranna
á milli. Hvar sem ég fór um
var alls staðar verið að
vinnu, verpa hálmi og mold
yfir rófurnar, plægja og búa
undir vorið eða þrífa til
heima við. Sýndist mér þó
afarlítið um rusl og lausa-
dót, sem oft vill brenna við
hjá okkur bændunum, svo
sem timburdrasl, tunnu-
garma og. fleira. Þessi bóndi
átti 6 hesta og lét plægja
alla daga. Ég spurði hann
um kaup og vinnutíma. Hann
sagði, að byrjað væri kl. 6V2
að morgni að gefa hestunum
og brynna, og síðan lagt á
þá, en kl. 8 væri byrjað að
plægja og unnið þá til kl. 12.
Þá er borðað, og svo unnið
aftur frá 1—5, og kaupið var
6 krónur á dag, án fæðis.
Allir þ-cir, sem unnu hjá hon-
um, bjuggu þar í grennd cg
borða heima hjá sér.
Allþungt er að ganga hina
leirblönduðu jörð allan dag-
inn á eftir plógnum. Ég komst,
í kynni við að ganga ný-
plægða akrana í leit eftir
hérunum, sem bæla sig þar,
þótt nálægt bæjum sé.
Það hefir aldrei legið ljós-
ar fyrir mér, hvílík nauðsyn
okkur bændaefnum væri á
því að vinna á bændabýlum
í einhverju nágrannaland-
anna, t. d. þó ekki væri nema
sept.—nóv.mánuði. Það ætti
að vera skilyrði til fullkom-
ins prófskírteinis búfræðings,
eins og læknanem^rnir okk-
ar þurftu á sínum tíma að
vinna í fæðingarstofnun úti,
áður en þeir fengu lækna-
prófsskírteini. Ég veit þú
þekkir þetta allt, en þetta er
bara rödd hins ókunnuga
bónda, sem þó hefir augun
opin.“ ....
Það má taka undir það
með Ólafi, að gott og gagn-
legt mundi það mörgum ís-
lenzkum heimaalningum að
kynnast annarra .starfsað-
ferðum, en hvort það skuli
gert að skilyrði fyrir því að
öðlast nafnbótina „búfræð-
ingur“ má um deila. Margir
góðir íslenzkir bændur hafa
þó öðlazt erlendis nokkurt
veganesti, er síðar kom að
góðu gagni í búskap þeirra.
Mætti einnig svo verða fram-
vegis.
Samið m leigu á þrem síor-
utn skipum ti! sífdarflutninga
Liiudiiii á Kcykjsívík g©Big'Mr mi g'B,eið!eí‘‘a
Eimskipafélagið er nú að semja um leigu á þrem stór-
um skipum af Knot-gerðinni fyrir atbeina ríkisstjórnar-
innar. Eru það skipin Salmon Knot og Knob Knot. Auk
þess er í ráði, að True K’not fari aðra ferð.
Löndun síldar í Reykjavík
heldur stanzlaust áfram, og
er sildinni ekið á bifreiðum
frá skipshlið út á knatt-
spyrnuvöll „Fram,“ en þar
hefir verið gert „plan“ til síld
argeymslu. Stjórn síldar-
verksmiðjanna greiðir 25 kr.
fyrir máli af þessari síld kom
ið á bíl við skipshlið. Lönd-
unin gengur vel og hefir þeg-
ar verið landað 25—30 þús.
málum.
Þá er verið að semja við
Bandaríkjastjórn um leigu á
skipunum Salmon Knot og
Knob Knot til síldarflutn-
inga, og einnig um það, að
True Knot fari aðra ferð.
Hvert þessara skipa ber um
35 þús. mál.
True Knot mun enn liggja
á Patreksfirði, en verið er að
færa síldina til í Skipinu og
er búizt við, að það muni
bráðlega geta haldið áfram.
Síldavaflinn í Hvalfirði er
nú kominn yfir 400 þús. mál.
Nokkur skip hafa losnað í
gær og nótt, og eru nú komin
á veiðar.
Jólaeplin skömmtuð
Ákveðið hefir verið að jóla
eplin verði skömmtuð. Verð-
ur stofnauki nr. 16 lögmæt
heimild til kaupa á þremur
kílóum. Mega menn leggja
hann strax inn í þær verzl-
anir, er þeir kjósa að skipta
við, þegar eplin koma.