Tíminn - 12.12.1947, Qupperneq 8
8
Reykjavík
12. desember 1947
231. blað
Skyr og rjórai að
norðan
Tanltlíifrei'ðiis reyn-
isí ágæílega
Síðan beinar bifreiðaferðir
til Akureyrar tepptust og
flutningar mjólkurafurða
þaðan hættu eftir þeim leið-
um til Reykjavíkur, hefir
Mjólkursamsalan fengiö dá-
lítið af rjóma og .skyri með
skipum, einkum þeim, er flutt
hafa síld til Siglufjarðar.
Mun svo verða á næstunni.
meðan þessar síldarsiglingar
haldast. Ætti því að vera
hægt að fá skyr og rjóma hér
í mjólkurbúöum öðru hverju.
Tank-bifreiðin, sem tekin
hefir verið í notkun til mjólk-
urflutnipga frá Mjólkurbúi
Flóamanna til Reykjavíkur,
hefir reynzt mjög vel. Flutn-
ingur mjólkurinnar þarhiig í
lokuðum geymi hefir að sjálf
sögðu í för með sér mjög
bætta meðferð mjólkurinnar
miðað við brúsaflutninginn.
Fleiri slíkir bílar munu verða
teknir í notlcun áður en langt
líður.
Síðasta póstferð til
Akureyrar fyrir jól
21. des.
Áður hafði verið ákveðið,
að síðasta póstferð norður til
Akureyrar með bil til Sauð-
árkróks en bát þaðan yrði á
Þorláksdag, þriðjudaginn 23.
des., en nú hefir þessi síðasta
póstferð fyrir jólin verið færð
fram og verður hún sunnu-
daginn 21. des.
Esja mun fara í strandferð
véstur og norður 18. des og
um.^ama leyti mun véiskipið
Valþór fara til Austfjarða.
Mun það vera siðasta póst-
ferð austur um land fyrir jól.
Áætlunarferðir héðan með
bifreiðum norður í land eru
riú tvisvar í viku, á þriðju-
dögum og föstudögum. Er
farið héðan með Laxfossi kl.
7.30. Bifreiðarnar fara til
Sauðárkróks, og hefir verið
farið þangað á einum degi,
en ferðin þó gengið seint
vegna mikilla snjóa. Á Sauð-
árkróki tekur vélbátur við
og flytur farþega og póst til
Akureyrar. Tekur sú ferð um
12 kl.st.
Prestskosning
í Grindavík
Préstskosningar fóru fram
í Grindavíkurprestakali síð-
astliðinn sunnudag. Talning
atkvæða fór fram í skrifstofu
biskups í fyrradag og varð
séra Jón Árni Sigurðsson,
prestur að Stað á Reykjanesi
vestra hlutskarpastur með
156 atkvægðum, og er þag lög
leg kosning. Emil Björnsson
cand. theol., fékk 117 at-
kvæði, og sérv, Þorsteinn
Björnsson, prestur á Þing-
eyri, fékk 8 atkvæði. Einn
seðill var ógildur. Á kjör-
skrá voru 332 kjósendur, en
af þeim neyttu 282 atkvæöis-
réttar síns.
SokkirLn. farkostur á Eyiarsundi
I>cUa er á
ingaleiðurn,
Eyrarsundi. Hið sokkna skip heitir „Jolanthe“ og er dan skt. En þarna er grunnsævi á sigl-
svo að reykháfur og sig-lutré skipsins standa upp úr sjónum. Unnið hefir verið að
björgun þessa skips að undanförnu.
Lítil síldveiði í
Hvalfirði
í gærdag og nótt var slæmt
veiðiveður í Blvalfirði, og lítið
af síld veiddistí þar. Fáein
skip fengu þó sæmileg köst í
gær og sum sprengdu nætur
sinar. Síldin virðist því vera
til staðar enn, ef veður leyfði
veiðar.
í gærkvöldi komu þessi skip
með síld til Reykjavíkur: Edda
með 1000 mál, Sídon 950,
Freyja 850 mál, Ágúst Þórar-
insson 1000 mál og Vonin 970
mál.
Banan kom að norðan í
morgun og byrjar að tak.a síld.
Bíða nú nokkuð yfir 20 skip
löndunar í Reykjavík, en ekki
er verið að landa nema úr
tveimur til geymslu.
Bretar og Rússar
gera stórfelldan við-
skiptasamning
Viðskiptasamningar hafa
nú tekizt milli Rússlands og
Bretlands. Láta báðir aðilar
hvor annan hafa mikið vöru-
magn. Bretar aðallega vélar
og kol, en Rússar landbún-
aðarframleiðslu.
John Strachey, matvæla-
ráðherra Breta hefir látið
svo ummælt, að vegna þeirra
kornbirgða, sem þeir koma til
með að fá frá Rússum, muni
þeir verða færir um að miöla
þurfandi þjóðum matvæium,
sérstaklega kornvörum frá
Argentínu, en þeir munu
hafa fest kaup á allmiklu af
þeim þaðan.
Sex komust af í flng-
slysinu á Labrador
Hj áiparsveitir hafa nú kom-
izt að Skymasterílugvélinni,
sem hrapaöi á strönd Labra-
dorskagans í fyrradagí Ileli-
kopterflugvél tókst aö lenda
með lækna og hjúkrunarlið
skammt frá slysstaðnum.
Björgunarsveitir höfðu einn-
ig lagt af stað til slysstaðar-
ins á hundasleða. Sex menn
voru liíandi af þeim 29, sem í
vélinni höfðu veríð. Staður-
inn, þar sem vélin hrapaði,
er mjög afskekktur og þar er
mikil fannkyngi.
Ójbo/a/irii aðbúnaður sjómanna
höfði sínu að halla í Reykjavík
'Tilfliaissoale^saF skojttofflr á IsIíSSaFfölíiagi
allt of MaaEBaasi* ksafflskaataasiíaas.*
Það er leitt til þess að vita, að sjómennirnir, sem ausa
miljónaverðmætum upp úr sjónum við síldveiðarnar í Hval-
íírði, skuii ekki hafa viðunandi aðbúnað við störf sín. En
langt er frá að sy-> sé. Þeir verða m. a. að standa blautir og
kaldir í frostunum við störf sín, vegna þess að hlífðarföt
tru ófáanleg, og þegar í land kemur, eiga þeir, sem aðkomnir
eru, hvergi höfði sínu að að halla, nema, í knæpunum niðri
við höfnina. Er ekki mál á að þessu verði kippt í lag?
Erfið störf unnin
við vosbúð og kulda.
Síldveiðarnar í Hvalfirði
hafa fært mikinn og óvænt-
an auð i þjóðarbúið. Veiðin
þar nálgast nú óðum að verða
helmingur á við sumarsíld-
araflann, og þó gæti það
verið mun meiri, ef ekki hefði
staöið á löndun síldarinnar.
Það er alkunna, aö störf
sjómanna eru erfið og volk-
söm. Eru vetrarsíldveiðar í
frostum og illviðrum þar sízt,
undantekning. Það er kald-
samt starf að hima í blaut-
um nótabátunum og bíða
þess, að kastað sé, þegar það
bætist svo við, að sjómenn-
irnir verða að standa blautir
í fæturna, vegna þess að ekki
hafa verið flutt inn næg
hlífðarföt handa sjómönnun-
um. Oft verða menn svo að
vaka nótt og dag við hin erf-
iðu störf, þvi að enginn tími
er gefinn til hvíldar eða mat-
ar. Síldin bíður nefnilega
ekki.
Ekki einu sinni kaffi
til að hita sér á.
Á .síldveiðiskipunum er að
öllu jöfnu drukkið meira
kaffi en víðast hvar annars
.staðar. Þegar lítill tími er til
að matast, láta menn það oft
nægja að skreppa andartak
frá vinnunni á þilfari eða í
bátum til þess að fá sér heit-
an kaffisopa að hressa sig
í kuldanum. Á þetta ekki sízt
við, þegar unnið er á nótt-
unni. Það er því fullkomin
ástæða til, að sjómennirnir
fái nóg kaffi, þó að það sé
skammtað öðrum lands-
mönnum.
Nú hafa skömmtunaryfir-
völdin að vísu látið bátunum
í té örlítinn aukaskammt af
kaffi, en hann er svo lítill að
það munar sáralitið um
hann.
.Virðist það vera í meira
lagi ósanngjarnt, að síldveiði
menn fái ekki margfalt meiri
aukaskammt af kaffi en fólk,
sem situr við stofuhita í skrif
stofum. En fjöldamörgum
skrifstofum og fyrirtækjum
er veittur aukaskammtur af
kaffi og sykri eins og kunn-
ugt er. Væri nær að afnema
þann skammt með öllu og
skipta honum milli síldar-
bátanna.
ÓfuIInægjandi
sjómannastofa.
Hvað bíður svo sjómanna,
þegar komið er í land? Hvar
er sjómannaheimili höfuð-
borgarinnar?
Niðri við höfn er lítið og
lágreist hús, sem einu sinni
var kallað Dalakofinn og var
versta knæpa bæjarins. I,ög-
regluheimsóknir og ólæti
voru þar daglegt brauð. Loks
sáu yfirvöldin ekki annað
fæí-t en loka samkomuhúsi
þessu, og var það þá ónotað
um skeið.
Alls ékkert sjómannaheim-
ili hefir verið í Reykjavík
nokkur undangengin ár, þar
til bæjaryíirvöldin tóku sig
til fyrir rúmu ári síðan og
styrktu góðgerðastofnun til
þess að koma upp vísi að
sjómannastofu í fyrrnefndu
húsi. Þar hefir sjómanna-
stofa verið rekin tæpt ár við
algerlega þfullnægjandi skil-
yrði, en mikla aðsókn. Hús-
næði þetta er aðeins eitt
herbergi. Herbergin þyrftu
a. m. k. að.vera þrjú, þar_sem
sjómenn gætu skrifað bréf,
hlustaö á útvarp og lesið sér
til afþreyingar. Er það ekki
vanzalaust fyrir höfuðborg-
ina að hafa ekki myndarlegri
sjómannastofu en þetta.
Knæpan þegar komið
er í land.
Eins og málum er þvi hátt-
að, eiga aðkomusjómennirn-
ir, sem oft þurfa að bíða hér
marga daga eftirir löndun,
hvergi höfði sínu að að halla,
nema í knæpunum í Hafnar-
stræti, svo vistlegar sem þær
eru. Ef gott sjómannaheimili
væri hins vegar í bænum,
myndu margir fara þangað,
og það verða þeirra annað
heimili, á meðan þeir eru í
höfn. Verður þetta líka þess
valdandi að fjöldamargir sjó-
menn leiðast út í óreglu og
svall, enda hafa talsverð
brögð verið að því undan-
farna daga, að sjómenn hafi
í landlegum blótað vínguðinn
fullmikið. Er það vel skilj-
anlegt og ekki til að hneyksl
ast á, þegar aðstæðurnar eru
athugaðar.
Um tíma lágu um 90 síld-
arskip hér í höfninni. Lætur
nærri, að áhöfn þeira hafi
verið um 1500 manns, og
langflestir þeirra heimilis-
lausir hér í bæ.
Kaffikvöld F.R.
á mánudaginn
Næsta mánudagskvöld efn-
ir Framsóknarfélag Reykja-
víkur til kaffikvölds í Breið-
firðingabúö.
Pálmi Hannesson segir þar
frá Heklugosinu og sýnir
skuggamyndir, en að því
loknu sýnir Vigfús Sigur-
g eirsson Heklukvikmynd
sína.
Félagsmenn mega taka
með sér gesti, og eru þeir
beðnir að tilkynna þátttöku
sína sem fyrst í skrifstofu
Framsóknarflokksins i Eddu-
húsi eða í síma 6066.
Bnn reknr Ϛrg
tundurdufl í hverj-
um mánuði
Það er nú orðið langt síðan
stríðinu lauk, en þó fer því
fjarri, að sjórinn sé orðinn
hreinn af þeim morðtækjum,
sem í hann voru látin á ófrið-
arárunum. Það er enn algengt
að sjá tundurdufl á reki hgr
við land eða finna þau rekin
í fjöru.
Síðustu mánuði þessa árs
hafa átta tundurdufl verið
gerð óvirk hér við land. Helgi
Eiríksson á Fossi á Síðu gerði
tvo óvirk, annað á Þykkva-
bæjarfjöru, hitt á Efri-Eyjar-
i fjöru á Meðallandi. — Skarp-
: héðinn Gíslason á Vagnsstöð
|um í Hornafirði gerði eitt ó-
J virkt í Mýrabug. — Jón Gunn-
! laugsson á Siglufirði gerði
þrjú óvirk — eitt í Skinnalóni
, á Sléttu, annað í Héðinsfirði
og hiö þriðja í Dalvík. — Har-
aldur Guðjónsson i Reykjavík
gerði loks tvö óvirk —- annað
hjá Broddaaaisá við Hrúta-
fjörð, hitt hjá Hvalsá.