Tíminn - 17.12.1947, Side 4

Tíminn - 17.12.1947, Side 4
4 TSMINN, taigvikudaginn 17. des. 1947 235. blað er komin út .ítaiíða telpu- og unglingabókin í ár heitir Rebekka frá Sunnulæk eftir Kate D. Wigging, og hefir Freysteinn Gunnarsson þýtt hana. Rebekka hefir. komið út í 2,000,000 eintaka í Ameríku og verið þýdd á flest menningartungumál. Rebekka frú Sunnulæk er fögur og bráðskemmtileg bók, og því er ekki að efa, að Rebekka mun eins og Pollýanna, verða uppáhald allra ís- lenzkra barna. BókfeUsátgáfan. Jólasalan er bvrjuð og stendur nú yfir af fullum karfti, þó að hún hafi sennilega ekki náð hámarki ennþá. Verzlanirnar hafa tjaldaS því sem til er í búðarglugga sína og er þar margt að sjá. En hætt er við að ýmsum finnist, að þar sé hægt að gera mörg óhentug innkaup. Þar eru margir hlutir, sem lítið erindi virðast eiga inn í landið á skömmt- unartímum, ýmis konar skraut og glys. Það er auðvitað smekksatriði hvað fólki finnst um fegurðina á þessu, en nytsemina þarf ekki að deila um, og flestum mun finnast verðið hátt. En það virðist vera markaður fyrir þetta. Þjóðin beið með eftirvæntingu um síðustu helgi eftir fréttum af togarasjómönnunum brezku undir Keflavíkurbja,£gi. Ennþá hafa ekki borizt nema fremur óljósar og sund urleitar fréttir af björguninni, þar sem 12 útlendir strandmenn voru hrifnir úr dauðans greipum og borgið upp ókleifan hamravegginn. Það er margt, sem hjálpar til að þessi björgun gat tekizt. Fyrst er að sjálfsögðu að telja loftskeytaútbún- að skipanna, svo að þannig var hægt að koma fréttinni um strand- ið áleiðis. Þá er það slysavarna- félagið. Það hefir skapað björgun- arkerfi, sem nær um allt land, og þess vegna var til línubyssa og björgunarsveit á Látrum. En því aðeins var þetta þar, að þar voru til menn, — menn sem vildu búa í víkinni sinni, þó að afskekkt væri. Og það var símalínan út að Látr- um, sem geröi það mögulegt að ná sambandi við þessa menn. Nú tala allir um hreysti og ham- ingju þessara afreksmanna, sem björgunarstörfin unnu, og það er fyllilega réttmætt. Þeir hafa reynzt vel og þjóðin er stolt af slíkum sonum. En hinu trúum við, og það kastar engri rýrð á þessa menn eða þeirra afrek, að þeir hafi hér aðeins reynzt sannir íslendingar og út um allar býggðir landsins séu dreifðir menn, sem með svipuð'um drengskap, karlmennsku og fórn- fýsi, hefðu snúizt við sams konar atvikum. Þrátt fyrir allt, sem sagt er um úrkynjun og ómenningu, þá er þetta satt. Því auka svona at- burðir bjartsýni okkar og kjark og trú á þjóðina. En svo helji ég, að þessi björgun geti líka orðið til þess, að rífja upp einn þáttinn í þeim röksemdum, að það er ekki heppilegt, að þjóðin búi öll á Suöurnesjunum. Það veit enginn hvar skip strandar næst og hverjir þá eiga líf sitt eða sinna undir því, að til- tölulega nærri strandstaðnum búi vaskir menn, sem eru tengdir sam- göngukerfi landsins með síma og vegum og haf>-nauðsynleg hjálpar- tæki. Hér styður hvað annað á margan hátt og er fjöl))ættara en skammsýn stpfuhagfræðin ef til vill sér í fyrstu. Þegar dýrtíðarfrumvarp ríkis- stjórnarinnar var til fyrstu um- ræöu í neðri deild í fyrrinótt þótti mörgum sem þingmenn Sósíalista- flokksins mæltu fleira um en þörf væri á. Kom þá upp þessi vísa- undir ræðu eins þeirra: Lúðvík minn, hættu að þrefa og þvæla, til þarflegri hluta skal nóttina brúka, og fyrir hvert illyrði er mennirnir mæla þeir munu á kjördegi reiknings- skap lúka. Það er ekki um of þó aö þess- ar umræður verði fólki til skemmt- unar, eftir því, sem efni og ástæð- ur leyfa. Pétur landshornasirkill. Innilega þakka ég öllum, sem heimsóttu mig og færðu mér gjafir og sendu mér skeyti á sjötíu ára afmæli mínu, 22. október s.l. Björn Sigvaldason, Víðihóli. BDI urjoinun Skrá um aukaniðurjöfnun útsvara í Seykjavík í desember 1». á., liggur fraiumi í skrifstofu bæjargjaldkera til 31. |i. m. Kærufrestur til niðurjjöfuuuar- nefufilar er til bádegis hinn 31. des- einlier næstkomandi. Borgarstjórinn í Reykjavík, 15. desember 1947. Cunnar Thorodilsen. Króka Hrífandi verkalýðsskáldsaga eftir Vilhjálm S. Vifhjálmsson er komin út Bezta verkalýlSsskáldsaga, sem skrifuh hefir verið

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.