Tíminn - 22.12.1947, Síða 6

Tíminn - 22.12.1947, Síða 6
6 TÍMINN, mánudaginn 22. des. 1947 239. blað GAMLA BIÓ NÝJA BlÓ Fvrir vestan lög Afturgöngurnar og réíí (Thc Times of their Lives) (West of the Pecos) Nýjasta og ein allra skemmti- Spennandi og skemmtileg kú- legasta mynd hinna vinsælu skopleikara: rekamynd eftir skáldsögu Zane Greys. —Sýnd kl. 3 og 5. Börn innan 12 ára fá ekki aðg. BUD ABBOTT og LOU COSTELLO. STUND HEFNDARINNAR ^ýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sýnd kl. 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. TRIPOLI-BIÓ TJARNARBIÓ Örlög I konuleit (Destiny) (Follow That Woman) Afar spennandi og tilkomumik- il amerísk mynd. Aðalhlutverk: Gamansöm amerísk lögreglu- Gloria Jeam saga. William Gargan. Nancy Alam Curtis Frank Craven Kclly. — Bönnuð innan 12 ára. Sýning kl. 5, 7 og 9. Grace McDonald. Sýnd kl. 5, 7 og 9. /Evintýri Clricos Sala hefst kl. 11 f.h. Ævintýri mexílcanska drengsins Bönnu ðinnan 12 ára. méðal dýranna í skóginum. — Sími 1182. Sýnig kl. 3. Sala hefst kl. 11. Carnegie Hall Stórkostlegasta músíkmynd, sem gerð hefir verið. Margir frægustu tónsnilling- ar og söngvarar heimsins koma .fram. Sýnd kl. 6 og 9. Síðasta sinn. Sími 1384. Ná er gott að gerast kaupandi Tímans Áskriftasími 2323 Jltft tif acf ciaLci ctnœ^una GLEÐILEG JÓL! Heima glaður ég skalj una fekir sent með hlut- um fæ, mættu þeir auka á-j nægjuna ijllum, heima’ á hverj-4 um bæ. Þökk fyrir við- skiptin á liðna ár- inu, gott og far-$ sælt komandi ár. Málarasíofa og verzlun INGÞÓRS, Selfossi — Sími 27 Jólaleikrit Leikfé- lags Reykjavíkur Leikfélag Reykjavíkur mun hafa frumsýningu á annan i jólum á ævintýraleiknum „Einu sinni var“, eftir skáld- ið Holger Drachmann. í leiknum er mikil og fög- ur músík eftir Lange-Múller. Leikstjóri er Lárus Pálsson, hljómsveitarstjóri er Þórar- inn Guðmundsson. Aðalhlutverkin leika: Alda Möller, Ævar R. Kvaran og Lárus Pálsson. Leikarar, söngvarar og dansfólk, alls 44 manns, og tólf manna hljómsveit. Einsöngvarar eru Guð- munda Elíasdóttir, Birgir Halldórsson og Pétur Á. Jóns son. Balletmeistarinn Kaj Smith hefir æft dansana og dansar sjálfur mjög skemmtilegan „sígauna“-dans. Mjög er vandað til allra búninga og leiktjalda. Lárus Ingólfsson hefir málað leik- tjöldin. Þessi fagri og fjörugi ævin- týraleikur Drachmanns, með hinni yndisfögru músík Lange-Múllers, á geysimikl- um vin.sældum að fagna um öll Norðurlönd og víðar, enda leikinn, víðsvegar á hverju ári, t. d. verður hann sýndur nú í vetur á konunglega leik- húsinu í Kaupmannahöfn og í Bergen, og stutt er síðan að hann var leikinn í Stokk- hólmi. Árið 1925 sýndi Leikfélag- ið „Einu sinni var“ undir stjórn Adams Poulsens, sem lék þá hlutverk prinsins. — Var leikið 9 kvöld í röð, allt af fyrir húsfylli og við mikla hrifningu, en oftar var ekki hægt að leika þá vegna þess að Poulsen gat ekki dvalið hér lengur. VINNIÐ ÖTULLEGA AÐ ÚTBREIÐSLU TÍMANS Ráð undir rifi hverju Það er kunnara en frá burfi að segja, að Alþingi og ríkisstjórnir hafa um langt skeið iðkað þá íþrótt með snilli að afla mikils hluta ríkisteknanna með áfengis- sölu. Hafa hinir ölkæru'dand- ar vorir hvergi sparað eitur- kaupin, og brennivínsokrið verið rekið með „ágætum“ árangri. Nú um hríð hefir gerzt nokkur þröng í búi hjá ríkis- sjóði. Öllu alvarlegar horfir þó um gjaldeyrismálin út á við. En gifta þjóðarinnar er mikiL Hún hefir valið sér þingmenn, sem sannarlega hafa ráð undir rifi hverju. Og sjá! Ráðið gegn gjald- eyrisskortinum er þetta: Bruggum áfengt öl og seljúm úr landi. — Og þar að auki: Hinn blessaði áfengisgróði ríkissjóðs mun enn vaxa. „Heill ykkur, hvatnings- menn þroska og þarfa!“ Vilhjálmur Hjálmarssoií. Bergnr Jónsson hér aðsdómslögmaður Málflutningsskrifstofa Lauga veg 65, sími 5833. Heima: Hafnarfirði, sími 9234 - A. J. Cronin: Þegar ungur ég var Klukkurnar óma og messan hefst. Ég fylgist með öllu af athygli og samvizkusemi og les viðeigandi bænir í hljóði, cn ég bíð með óþreyju þess, 'sem gera mun þessa guð- þjónustu ólíka öllum guðþjónustum öðrum. Tíminn er fijótur að líða. Ég skelf af eftirvæntingu. Svo hljóma hin máttugu orð: „Herra, ég er þín ekki verður!" Loks — loks. Ég ber mér á brjóst þrívegis — rís svo upp og geng við hlið Angelos og telpnanna að grátunum. Allt hringsnýst fyrir augum mér, þegar ég sé föður Roche nálgast í skrúða sín- um með kaleikinn í hendinni. Ég reyni árangurslaust að muna bænina, sem ég á að hafa yfir. Ég vona innilega, að ég geri allt rétt. Svo loka ég augunum, lyfti höfðinu og opna munninn, eins og móðir Elísabet Jósefína hefir kennt mér að gera, og hvísla lágt þetta eina orð: „Jesús“. Oblátan reynist ööruvísi en ég hafði búizt við. Mér finnst hún svo stór og þurr, þegar hún er komin upp í mig. Ég átti von á, að hún væri safamikil og dásamleg í munni. Mér gengur illa að leysa hana upp í skrælþurrum munnin- um, og mér tókst ekki heldur að kingja henni, fyrr en ég er seztur á bekkinn aftur. Ég sótroðna og grúfi mig niður. Það hefir ekki neitt gerzt, ég finn ekki neina dásamlega strauma líða um mig, og ég finn ekki nein umskipti eiga sér stað í sál minni. Ógurlegt vonleysi leggst yfir mig. Hefi ég þá ekki verið þessarar altarisgöngu verður? — Nei — ég vil ekki hugsa um það, grúfi mig yfir bænabókina og reyni r.ð hrinda þesum hugsunum frá mér. Og loks rekst ég á þakkargerð, sem fangar hug minn og friðar sjúka sál mína. Þegar ég lít upp, sé ég, að Angelo horfir á mig, og á vörum hans hvílir blítt og angurvært bros. Afi ræskir sig fyrir aftan mig. Og allt í einu fer um mig heitur straumur. Ég byrja að lesa lokabænina með söfnuðinum. Það var. sólskin úti, og þegar nunnurnar höfðu rennt hönd gegnum hár mitt og brosað framan í mig, föðmuðu afi og Antonelli-hjónin mig að sér. Afi var orðinn virkta- vinur þessa ítalska fólks, sem var ákaflega hrifið — að ég segi ekki heillað — af honum. Hann kynnti mig fyrir hjón- unum og uppkominni dóttur þeirra, sem hét Klara, og Vita- liano, föðurbróður Angelos — manni um fimmtugt, dökk- um á brún og brá og fjarrænum á svip, ekki ólíkt því, sem altítt er um heyrnarsljóa menn. Þau brostu öll framan í mig og kona Antonellis, holdug kona, dökkhærð með litla eyrna- hringi úr gulli, Ijómaði af móðurlegri umhyggju og sagði hvað eftir annað: „Ég get ekki hugsað mér betri félaga handa honum Angelo okkar“. Antonelli var einnig dökkur yfirlitum, en ekki eins mikill á velli og kona hans og búinn að fá skalla. Hann sló allt í einu saman krepptum hnefun- um og leit á afa stórum, spyrjandi augum, sem voru ná- kvæmlega eins og augu Angelos, nema hvað neðan við þau voru dökkir pokar. „Gow“, hrópaði hann. „Ég má víst ekki biðja yður að gera okkur þá sæmd að borða með okkur? Drengirnir eru nú orðnir svo samrýmdir .... Ef þér gætuð lotið svo lagt ... “ Afi þáði boðið undir eins, og Antonelli-hjónin urðu ákaf- lega glöð. Svo örkuðum við öll af stað. Við Angelo hlupum á undan, en hin komu á eftir. j Antonelli-fólkið bjó á hæðinni uppi yfir sölubúð sinni, 1 íallegri búð með logagylltum spjöldum. Uppi í búðinni var ! cinnig mikil litadýrð. Á gólfunum voru skrautlegar ábreið- ur, og gluggatjöld og dyratjöld voru fagurgræn. Litaðar I helgimyndir héngu um alla veggi, því að Antonelli var mjög guðhræddur maður, og á arinhillunni voru tvær myndir af veraldlegu tagi — önnur af Kaprí, hin af Napólí. Uti í einu skotinu var mynd af Vesúvíusi gjósandi, og á hillu yfir henni var lítil, broshýr brúða í hvítum og ljós- rauðum búningi. Ég hafði aldrei komið í hús, sem kom mér eins ókunnuglelga fyrir sjónir og þetta. Og svo var andrúmsloftið svo einkennilegt. Ilerbergin voru full af angan af bakningum, aldinum, hvítlauk, svita, bráðinni íeiti, sætri vanillu og sögguðu sagi. Ég þandi út nasirnar og saug þessa margháttuðu angan að mér. Ég þóttist vita, að hún væri neðan úr herbergjunum inn af búðinni. Klara og móðir hennar báru fram margar afsakanir og flýttu sér svo að reiða fram matinn. En Angelo tók í hönd mér og leiddi mig fram í ganginn. Þar nam hann staöar og benti mér inn í hálfopið herbergi, sem ég komst síðar að raun um, að var vistarvera frænda hans. Hjarta mitt tók kipp i brjóstinu á mér, þegar ég rak augun í stóran lírukassa við vegginn. En átti þó eftir að verða enn meira undrandi. „Nikolo, Nikolo,“ sagði Angelo lágt. Api í rauðum jakka stökk fram úr rúmi, er var út við

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.