Tíminn - 18.06.1948, Síða 1
SÍcrifstofur l Éd&úhúsinu
Ritstjórnarstmar:
4373 og 2353
Afgreiðslu- og auglýs-
ingasími 2323
Prentsmiðjan Edda
' —-—-—±
4
32. árg.
Reykjavík, föstudaginn 18. júní 1948.
133. blaS
Ilaaiksir Claíiseaa seíii siýíí ísleuzkt ssaeí
í .290 fisseira Esisifispa.
GiEiBiiar IlHseljy kastaði kálnniai 15,26 sií.
17. júní mótið hófst á í-
þróttavellinum í gær kl. 15,45
Veður var hið ákjósanlegasta,
sólskin og hiti, sem eflaust
hefir átt sinn þátt í því, hve
góður árangur náðist í mörg-
um greinum. Forseti í. S. í.,
Benedikt G. Waage setti mót-
ið með ræðu. í upphafi máls
síns beindi hann orðum sín-
um til forseta íslands, sem
er verndari íþróttasambands-
ins, og færði honum að gjöf
skjöld með útskornu skjald-
armerki Í.S.Í. sem þakklætis-
vott frá íþróttamönnum.
Ræða forseta Í.S.Í.
Benedikt G. Waage kom
víða við í ræðu sinni. Eink-
um var honum tíðrætt um
hin fyrirhuguðu íþróttamann
virki í Laugadal og taldi, að
ónógir íþróttavellir stæðu í-
þróttunum mjög fyrir þrif-
um. í ræðu sinnf gerði hann
samanburð á sundkeppninni
við Norðmenn og knatt-
spyrnukeppninni við Svía, og
taldi hann sigur íslendinga
í sundinu að þakka góöum
skilyröum til sundiðkana, en
ósigrinum við Svía að kenna
vöntun grasvalla. Með þess-
um samanburði viidi hann
sanna, að brýn nauðsyn sé
að hefjast þegar handa um
aö reisa fyrirhuguð iþrótta-
mannvirki í Laugadalnum.
Einnig drap forseti Í.S.Í. á
það í ræðu sinni, að 40 ár
væru liöin, síðan íslendingar
sendu í fyrsta sinn flokk á
Olympíuleikana.
Hástökkið.
Keppnin hófst á hástökk-
inu. Keppendur votu 3. Úr-
slit voru þessi: Sigurður Frið-
finnsson, F.H., stökk 1,75 m.
2. varö Kolbeinn Kristinsson,
Selfossi, stökk 1,70 m. 3. varð
Halldór Lárusson, Ums. Kjal-
arnes, stökk 1,70.
Sigurður Friðfinnsson er
mjög efnilegur hástökkvari,
aðeins 17 ára. Hann mun ef-
laust verða í hópi beztu há-
stökkvara okkar innan
skamms, ef hann nýtur góðr-
ar tilsagnar.
200 m. lilaup.
Haukur Clausen bætti met-
ið sitt um einn tíunda úr sek.
Úrslit urðu þessi: Haukur
Clausen í. R. á 21,8 sek., nýtt
íslenzk met. 2. varð Trausti
Eyjólfsson K.R. á 22,4 sek.
3. varð Ásmundur Bjarnason
K.R. á 22,5 sek og 4. Reynir
Sigurðsson K.R. á 23,0 sek.
Haukur sigraði þetta hlaup
mjög glæsilega og bætti fyrra
met sitt eins og áður segir.
Sérstaklega er þetta góður
árangur, þegar tillit er til
þess tekiö, hve litla keppni
Haukur fékk. Kæmi það ekki
á óvart, þó að Haukur bætti
tíma sinn til mikilla muna
á Olympíuleikjunum í sumar.
Trausti og Ásmundur voru
nokkuð jafnir og mátti lengi
ekki á milli sjá, hvor hlyti
• annað sætið.
4 keppendur köstuðu kúl-
unni yfir 14 m.
Kúluvarpið hófst skömmu
eftir 200 m. hlaupið.
Úrslit urðu bessi: Gunnar
Huseby K.R. kastaði 15,26 m.
2. varð Sigíús Sigurðsson,
Selfossi, kastaði 14,76 m. 3.
varð Vilhjálmur Vilmundar-
son K.R. kastaði, 14,52 m. og
4. Friðrik Guðmundsson K.R.
kastaði 14,23 m. Þetta er í
fyrsta sinn, er 4 menn kasta
yfir 14 m. í kúluvarpi. Er því
þetta sönnum um mikla fram
för í kúluvarpi nú á síðustu
árum. Eftír þessari lceppni
að dæma má búast við, aö
fljctlega kasti þeir Sigfús og
Vilhjálmur lcúlunni yfir 15
m. Svo stórstígar hafa fram-
farir þeirra verið nú í vor.
800 m. lilaup.
Úrslit uröu þessi: 1. Óskar
Jónsson Í.R. á 1:59,2 mín. 2.
varð Pétur Einarsson Í.R. á
2:3,0 mín., 3. Hörður Hafliða-
son Ármann á 2:3,2 mín. og
4. Örn Eiðsson Í.R. 2:4,1 mín.
Óskar Jónsson Í.R. sigraði
þetta hlaup mjög glæsilega.
Óskar hefði eflaust náð mun
betri tíma, ef hann hefð'i
fengið meiri keppni.
Spjótkast.
Yfir spjótkastinu var ó-
venjulega dauft að þessu
sinni, enda vantaði íslands-
meistarann, Jóel Sigurðsson
Í.R. Úrslit urðu þessi:
1. Hjálmar Torfason Ums.
Þing., kastaði 53 31 m. 2. varð
Halldór Sigurgeirsson Árm.
kastaði 49,35 m. og 3. Gísli
Kristjánsson Í.R. kastaði 48,
60 m.
Tveir gáfust uppp í 5000
m. hlaupinu.
Skráðir voru 5 keppendur,
sem allir mættu til keppni,
en aðeins þrír héldu hlaupið
út. Úrslit urðu þessi: Þórður
Þorgeirsson K.R. á 16 :6,8 mín.
2. varð Stefán Gunnarsson
Ármann á 16:24.2 mín. og
3. Njáll Þóroddsson Ármann
á 16:30,2 mín. Þórður Þor-
geirsson K.R. sigraði hlaup-
ið mjög glæsilega, var langt
(Framhald á 2. síðuj
TÍMINN
Af sérstökum ástæðum kem
ur næsta blað Tímans ekki
út fyrr en á mánudag.
Gústv Svíakonungur átti níræSisafmæli á laugardaginn var og fóru
fram mikil hátíðahöld í Stokkhólmi í tilefni af því. Myndin, scm
hér fylfir af konunginum, var tekin nokkrum dögum fyrir afmælið.
Hátíöahöldin í Reykjavík voru
egustii
Veður var liið fegursta í Reykjavík í gær, bjart og siillt
og fóru hátíðahöld dagsins hið bezta fram. Fjölmenni var
svo mikið samankomið í miðbænum, að slíkt hefir aldrei
verið áður, ncma ef vera kynni 18. júní 1944.
Almenn skrúðganga hófst
frá háskólanum klukkan hálf
tvö. Voru fánar ýmsra félaga-
samtaka bæjarins bornir í
fylkingarbrjósti og gekk liðið
niður á Austurvöll.
Klukkan tvö hófst messa í
dómkirkjunni. Sr. Jakob Jóns-
son talaöi, en Sigurður Skag-
field söng v!ð guðsþjónustuna
Að messu lokinni gekk for-
seti íslands að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar og lagði
blómsveig á fótstall hans, en
mannfjöldinn laust upp marg
földu húrrahrópi og hyllti for-
seta landsins. Lúörasveit
Reykjavíkur lék þjóðsönginn.
Síðan flutti Anna Borg Reu-
mert leikkona ávarp Fjallkon-
unnar til þjóðarinnar af svöl-
um Alþingishússins og Stefán
Jóhann Stefánsson forsætis-
ráðherra flutti ræðu.
Að þessum fyrsta þætti há-
tíðahaldanna loknum var
gengið frá Alþingishúsinu
suður á íþróttavöll og blóm-
sveigur frá bæjarstjórn
Reykjavíkur lagður á leiði
Jóns Sigurðssonar í leiðinni,
en kórarnir i Reykjavík
sungu: Sjá roðann á hnjúk-
unum háu.
Eftir þetta hófst mót íþrótta
manna, sem sagt er frá ann-
ars staðar í blaðinu.
Klukkan 8 í gærkvöldi hófst
útiskemmtun á Arnarhóli.
Þar lék Lúðrasveit Reykjavik-
ur, Karlakór Reykjavikur og
karlakórinn Fóstbræður og
þjóðkórinn sungu, auk þess
söng Sigurður Skagfield með
undirleik lúðrasveitarinnar.
Auk þess flutti Gunar Thor-
oddsen borgarstjóri ræðu.
Eftir þetta hófst svo dans á
götunum. Kljómsveit Bjai'na
Böðvarssonar lék fyrir dansi á
Lækjartorgi, en hljómsveit
Templarahússins lék fyrir
gömlu dönsunum uppi við
Ingólfsstræti og Lindargötu,
þar sem fólkið dansaði. Lúöra-*
sveitin Svanur gekk á milli
og hvíldi hljómsveitirnar eftir
því, sem ástæða þótti til. Grúi
manns tók þátt í þessum döns
um og er þetta sjálfsagt mesta
danssamkoma í sögu íslend-
inga.
Samkvæmt frásögnum lög-
reglunnar fóru hátíðahöldin
og skemmtanirnar í gær og
nótt fram með hinni mestu ró
og spekt. Nokkrir menn voru
að vísu teknir úr umferð sök-
um ölvunar og fáeinum eftir-
legukindum þurfti lögreglan
að smala í hús eftir að
skemmtunum var lokið, en til
beinna vandræða kom hvergi.
Danir sigra Finna
í knattspyrnu
Siöastl. þriðjudag fór fram
i Helsingfors keppni í knatt-
spyrnu milli danska B-Iands-
liðsins og A-landsliðsins
finnska. Danir unnu með 3:0.
Sama danska liðið tapaði fyr-
ir norska landsliðinu i Osló á
laugardaginn var.
Forseti Araerican-
Scandianavian
Foundation
heimsækir ísland
í fyrradag kom hingað til
Reykjavíkur Lithgow Os-
borne, forseti American
Scandinavian Foundation.
Mun Osborne fara héðan á
morgun áleiðis il Bandaríkj-
anna.
Áður hefir verið skýrt frá
markmiði og starfsemi þessa
menningarfélags hér í blað-
inu, svo að óþarfi er að fara
út á þá braut á ný. Lithgow
hefir að undanförnu ferðazt
um Norðurlönd á vegum fé-
lagsins til þess að efla menn-
ingar- og vináttubönd Norð-
urlanda og Bandaríkjanna.
Hér á landi mun hann vinna
að hinu sama göfuga starfi og
gera sér jafnframt far um að
kynna sér starísemi íslenzk-
ameríska félagsins, sem er
ein grein af American-Scand-
inavian Foundation. Hefir það
félag starfað i sára-litlum
blóma að undanförnu.
Osborne tjáði blaðamönn-
um í fyrradag, að hann von-
aðist til þess að geta aukiö til
stórmuna skipti íslands og
Bandaríkjanna á námsmönn-
um, einkum þeirra, sem leggja
stund á tæknisleg efni. Kvað
hann íslenzka námsmenn
myndu njóta ýmissa hlunn-
inda í Bandaríkjunum. Þá gat
Mr. Osborne þess, að banda-
ríska fornleifafélagið myndi
á vegum American-Scandin-
avian Foundation hefja bráð-
lega rannsókn á fornminjum
í Newport á Vínlandi, sem tal-
ið er að niuni vera af norræn-
um uppruna. Mun þetta verða
einkum gert í því skyni að
kanna ferðir norrænna vík-
inga til Vínlands.
Sláttnr hafinn hjá
Ræktunarfélagi
Norðurlands
Siðastl. þriðjudag hófst
túnasláttur á búi Ræktunar-
félags Norðurlands hjá Akur-
eyri. Spretta er orðin svo góð
þar, að slættinum verður hald
ið áfram. Ekki hefir frétzt
um, að túnasláttur sé haíinn
annars staöar, enda hefir
sprettu yfirleitt seinkaö vegna
kuldanna undanfarið.
Flugfélag íslands
kaupir Skymaster-
flugvél
Fregnir hafa borizt um þáð
vestan um haf, ao Flugfélag
íslands hafi fest kaup á Sky-
masterflugvél i Texasfylki i
Bandarikjunum.