Tíminn - 18.06.1948, Side 4
4
TÍMINN, föstudaginn 18. júní 1948.
133. blað
-ÓO!
SVAR VIÐ KVITTUN
í 109. tbl. Tímans má líta
grein eftir Halldór Stefáns-
. son. Hann kallar grein þessa
„Kvittun fyrir ritdómi", og er
þetta svar við grein, sem ég
skrifaði í 93. og 94. tbl. Tím-
ans.
Rétt er það, að þetta er að-
eins kvittun, því ekkert er ]
þar hrakið af því, sem ég
skrifaöi um þessi landa-
merkjamál, sem við nú deil-
um um.
En betra hefði verið fyrir
Halldór, að þessi kvittun
hefði verið styttri, því inn í
hana hafa slæðst furðu
margar villur eða rangfærsl-
ur. Hann segir, að dóms-
ástæður séu ekki þau „helgi-
vé, sem ekki megi leiða þuga
að og álykta um“. Gott er
það, að hann hefir góða sam-
vizku af því, að hafa ekki
gengið lengra í því að draga
taum annars málsaðilans,
þegar hann skrifar um þetta
mál, en sæmandi er fyrir
sagnaritara. Ég læt lesend-
unum eftir að dæma milli
okkar. Síðan segir hann:
„Þyki Metúsalem dómsástæð
urnar standa höllum fæti
gagnvart athugasemdum og
ályktunum mínum, fæ ég
ekki við því gert“. Þessu snýr
Halldór alveg við, því öll mín
rök hníga að því að sanna,
að það er Halldór Stefáns-
son, sem stendur höllum fæti
gagnvart dóminum og dóms-
ástæðum.
í sambandi við dóminn
segir H.: „í tilfærðum orð-
um míftum er ekki heldur
' innt einu orði að réttdæmi
eða rangdæmi í málum þeim,
sem síðar voru hafin. Og þar
sem í orðum mínum tilfærð-
um er ekkert innt að því,
hvort dómurinn væri réttur
eða rangur, þá fellst því síð-
ur í honum neinn sleggju-
dómur um látna heiðurs-
menn“.
Það þarf nokkuð mikla
dirfsku til að slengja því
framan í þá, sem lesið hafa
skrif hans um þetta mál, að
þar sé „ekkert innt að því,
hvort dómurinn væri réttur
eða rangur“. Ef Möðrudæl-
ingar hafa átt Kinnar- og
Gestreiðarstaðaland, eins og
Halldór slær föstu, en sem
dómendurnir dæmdu Bustar-
felli, þá hefir dómurinn ver-
ið rangur. En það er einmitt
þetta, serrJ H. er að leitast
við að sanna, í riti sínu, þó
hann nú þykist saklaus af
þvi. Þá þykir honum það
sanna sitt mál, „að nýbýla-
stofnendur leituöu leyfis til
ÍÆöðrudalsbænda til býla-
stofnananna“. Eins og oftar,
í þessu máli, veður Halldór
þarna reykinn, því enginn
veit nú, hvort þessir nýbýla-
stofnendur hafa beðið Möðru
dæliQga um leyfi til að
byggja þarna upp. Því alveg
eins mætti ætla, að Möðru-
dælingar hefðu boðið þeim
að byggja þarna, til að reyna
að festa sér landið, sem dóm-
endurnir segja, að um mörg
ár hafi verið ágreiningur um,
eða þrætuland, milli Bustar-
fells og Möðrudals.
Halldór tekur upp fyrri
hlutann af eftirfarandi í orð
um mínum: „Aufeætt er, að
verjandi Möðrudals hefir
ekki treyst sér til að neita
því, að landamerki Möðru-
' dals, að austan, lægju um
Efiir Mcthúsalem Mcthúsalcmsson,
Bustarfelli.
Eyktargnýpur. En þá finnur
hann upp á því snjallræði að
flytja Eyktargnýpu til og tel-
ur hana vera suður á Þrí-
vörðuhálsi. Höf. virðist á-
nægður með að staðsetja
hana þar, eins og lesa má á
bls. 252, þar sem hann talar
um „hæð eina, eða nýpu,
litla um sig, á Þrívörðuhálsi“.
Enda,er það eini möguleik-
inn til að geta eignað Möðru-
dal Kinnar- og Gestreiðar-
staðaland og stórt landsvæði
þar fýrir innan, sem Arnórs-
staðir og Víðihólar eiga“.
Þegar ég í þessari máls-
grein tala um verjanda
Möðrudals, þá læzt Halldór
ekki skilja, við hvern ég á, og
hrópar: „Hann á við mig“.
Nei, ég á ekki við þig. Allir
aðrir munú skilja, að ég á
við verjanda Möðrudals í
þessum umtöluðu málaferl-
um. Því þó trú H. á hið forna
Möörudalsveldi sé sterk, þá
flytur sú trú aldrei fjöll. En
það er einmitt þessi trú, sem
fipar þennan greinda sagna-
ritara. Annárs ætla ég ekki
hér að ræða um staðsetningu
Eyktargnýpu. Það hefi ég áð-
ur gert og það verður ekki
hrakið.
Enn segir Halldór: „Um
eitt atriði erum við sammála.
Landamerkjalína dómsins
1892 er ósennileg — bara
vitleysa“ orðar hann það eft-
ir kunnugum manni og fellst
á það sjálfur — ef hún skyldi
falla^um Gestreiðarstaðadal-
inn líkt því, sem ég hefi lýst“.
Ég get vorkennt H. þennan
ranga lestur á grein minni.
í riti sínu segir H., að Gest-
reiðarstaðaland sé örmjór
speni,. „um 100 m. um Gest-
reiðarstaðabæinn og annars-
staðar ýmist mjórri eða breið
ari nokkuð". Það er þessi
hlægilega og fjarstæða mæl-
ing Halldórs, sem ég sagði,
að væri bara vitleysa.
Ég sé ekki ástæðu til að
eltast við fleira af þessu tagi
í Jíissari grein H., þar er allt
skrifað í þessum dúr.
Að lokum stingur H. upp á
því, „að við mælum okkur
mót _Qg förum á vettvang“.
Ég er þessu samþykkur og
skaltu verða velkominn í
Bustarfell, eins og ævinlega
áður. En þar sem þetta er
svona nálægt mínum bæjar-
dyrum, þá finnst mér sjálf-
sagt, að ég leggi til nestið í
leiðangurinn. En þar eð þú
átt uppástunguna að þessu
ferðalagi, þá finnst mér
sanngjarnt, að þú leggir til
farkostinn.
Svo vil ég nota tækifærið
til að leiðrétta eina prent-
villu í grein minni. Þar er
talað um Fremri-Svið, en á
að vera Fremri-Snið.
Bustarfelli 6. júní 1948
Þá er nú mikil hreinlætisvika1
liðin hjá og ekki meira gert í henni, j
nema hún verði framlengd. En ein ,
hvernveginn hefir það faiist fyrir :
að hreinsa burtu bréfaruslið, sem ]
safnast hefir meðfram trjáplöntun
um á blettinum kringum Safnahús
ið. Er þó fjölfarin leið þar með
fram, og sjá því þetta margir. En
það <:r eins og lóðareigandinn hafi
hvorki heyrt eða séð fyrirmæli, og
svo hefir láðst að hreinsa þetta á
hans kostnað. Og þó að þessi litli
blettur hafi hér verið nefndur, af
því að hann er í miðjum bæ, þar
sem margir fara, kann að vera að
víðar hafi hreingerningin farizt fyr
Beinamjölsverksmiðjan á Köllun
arkletti hefir víst áreiðanlega ekki
tekið til og hreinsað á sinni lóð.
Það er annars rétt aö skjalfesta
dálitla lýsingu á því, sem þar má
sjá, og fróðlegt gæti það verið að
fara smáferöir þangað inneftir, til
að kynnast dýrðinni. Verksmiðjan
hefir flutt að sér ógrynni af fisk-
beinum til aö vinna úr. Eitthvaö
af þessum beinum hefir veriö kipp
að og hengt upp á trönur. En megin
hlutinn hefir verið látinn 1 kös.
Blautum beinunum eins og þau
koma úr fiskinum er hellt í haug,
meira en metra á þykkt og þekur
sú breiða mörg hundruð fermetra
lands. Þá þarf nú ekki mikiö ímynd
unarafl til að hugsa sér þá rotnun
og ýldu, sem þarna fer fram, þó
að erfitt sé að hugsa sér til fulls
með réttum sanni, þann viðbjóð,
sem rotnunarlyktin úr þessari helj-
arkös er.
Bæjarráð bannaði vcrksmiðjunni
/Comið að Keldum
Nýlega kom ég að Keldum
og leit í kring um mig þar.
Áður kom ég þar fyrir ára-
tug síðan, — en naumast
með ijopnum augum.
Þegar komið er vestan
sandipn, kirkjugötuna að
Keldum, blasir við sjónum
hár og kollflatur hóll og all-
mikil grjótvarða efst á hon-
um miðjum. Það, sem eink-
um leiðir athyglina að hóln-
um, eru hliðar hans, reglu-
legar með jöfnum halla^ins
og hlaðnar væru af miklum
byggingamanni. Og einmitt
eru þær orðnar til á þann
veg. — Hæðin heitir Hóla-
völlur og er leifar af langt
um stærri velli, sem horfinn
mundi nú með öllu, ef af-
skiptalaust hefði yerið látið.
Áratugum saman háði
Keldnatúnið harðan leik við
landnyrðing og foksand, er
sóttu í bölmóði á það þer-
skjalflað, austan til og norð-
an, og surfu af því sí og æ.
í þrjár áttir frá bænum lá
blásvört eyðimörkin svo langt
sem augað eygði. Sú hríð virt
ist varla mundu enda nema
á eina leið: Með örfoki og
auðn hins forna, fagra býl-
is. —
Þá byrjaði búskap á Keld-
um vaskur og vitur maður.
Hann bjóst til baráttu við
sandýyi, og hugkvæmdist
það herbragð, sem honum
dugði, til varnar því, sem eft
ir var af túntorfunni. Hann
stakk niður margra mann-
hæða há moldarbörðin, gaf
þeim góðan fláa, og hlóð því
næst og þakti neðan úr urð
og upp á brún. Hann hlóð
auk þess grjótgarða ýti í
hrauninu, sem bægðu sand-
burði frá sjálfu túninu.
Sandi, sem settist í tjinið,
ellegaj barzt heim að bæn-
um, ók hann burtu árum
saman. Jafnvel veggjafullar
traðirnar tæmdi hann oftar
en einu sjnni. — Enginn veit
tölu y^irra dagsverka, er það
tók, að aka burt öllum þeim
þrotlausa sandi.
Slíkt var starf og umönn
Skúla karls á Keldum, —
unnið af látlausri elju og ævi-
langri ást á býli, bæ og minj-
um, er hann tók í arf frá
eldri og genginni kynslóð. —
En nú er Skúli fallinn frá,
og bæ^ hans auður og mann-
laus. — Þjóðminjasafn ís-
lands á nú bæinn og marga
gamla muni geymda þar. —
Hin prýðilega portbygging
hans Skúla, skemmur hans
og „skálinn“ forni skulu
geymd. Sagir, kistur og ker-
öld, byrður og fleiri búsáhöld,
forn og fallin úr tízku, skulu
einnig geymd í gömlu húsun-
um, framtíðinni til fróðleiks,
um forna og merka menn-
ingu.
Hversu lengi munu svo hús-
in á Keldurn haldast í þvi
horfi, er Skúli skildi þau
eftir? Það verður varla lengi,
nema ný ráð komi til og auki
endiBg þeirra. Mygla og fúi
vinna verk sín fljótt á um-
hirðulitlum eyðibæ, og eru
nú sezt að iðju sinni á Keld-
um. — Hið eina örugga ráð
til verndar viðum bæjarins,
mundi vera mikil og sífelld
upphitun. En upphitun yrði
(Framhald á 6. sIðu)
að starfa þar sem ekki var sýndur
neinn viöbúnaður til aö eyða hinni
hvimleiðu bráðabirgðalykt. Til þess
átti að koma fyrir tækjurn, sem
kældu reykinn og þéttuðu gufuna,
svo að lyktin bærist ekki út með
henni. Er sagt að þessi útbúnaður
þyrfti ekki að kosta nema 5—6
þúsund krónur.
Hitt er svo annað mál, að þarna
mun hafa átt að kæla með vatni,
en til þess þarf rennandi vatn, en
eftir reynslu úr næstu húsum mun
vera lítið um það á þessum slóðum,
þó að bæjarfélagið innheimti sinn
skatt af þurrum krönum. En hvað
um það. Verksmiðjan var stöðvuð
og bæjarráð fir.nur enga bráða-
bráðabirgöalykt á fundum sínum
en þeir, sem búa í kringum verk-
smiðjuna og vonuðu að óþefurinn
tæki eiijþvern tima enda, sjá nú
ekki fram á annað en hin rotnandi
breiða eigi að geymast þarna um
aldur og ævi og leggja þeim var-
anlega fyrir við þefjan sína.
Þetta mál hefir verið rætt svo
mikiö manna á milli, að það er á-
stæða til að reyna að komast til
botns í því. Stöndum við svo illa
að vígi í sjálfri höfuðborginni. að
ekki sé hægt að vinna úr fiskbein
um nýjum, almennilega vöru, en
þau þurfi endilega að liggja og
rotna niður á almannafæri, borg-
inni til varanlegrar skammar og
háðungar? Eða viljum við í raun
og veru hafa þetta svona?
Það er gott, að bráðabirgöalyktin
hefir minnt menn á þessa hluti og
vakið borgina til umhugsunar.
Kannske að leiði eitthvað gott af
þeirri vakningarstarfs£jpi.
Pétur landshornasirkill.
INNILEGAR ÞAKKIR færi ég öllum þeim, nær og
fjær, sem glöddu mig á áttræðisafmæli mínu með
heimsóksum, gjöfum og vinarkveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
BJÖRN SIGURÐSSON,
frá Hákonarstöðum.
Eigum til nokkur stykki ásamt tilheyrandi benzin-
hreyfli eða rafhreyfli, fyrir 32 volta og 220 volta
straum. Vélarnar bæði færanlegar og eins fyrir
fastar lagnir.
Varahlutar og sótthreinsunarefni
fyrirliggjandi.
O I? lltill