Tíminn - 18.08.1948, Side 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 18. ágx'ist 1948.
181. blað
I dag.
Sólarupprás var kl. 5.27. Sólar-
lag er kl. 21.33. Árdegisflóð er kl.
5.40. Síðdegisflóö er kl. 16.00.
í nótt.
Næturlœknir er í læknavarðstof-
unni, sími 5030. Næturvörður er í
Reykjavíkur apóteki. sími 1760.
Næturakstur annast bifreiðastöðin
Hreyfill, sími 6633.
Útvarpið í kvöld.
Pastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.30 Útvarpssagan: „Jane Eyre“
eftir Charlotte Bronte, XXVIII.
(Ragnar Jóhannesson skólastjóri).
21.00 Tónleikar: Strengjakvartett
op. 22 eftir Hindemith (endurtek-
inn). 21.25 Erindi. 21.50 Tónleikar
(plötur)/. 22.00 Préttir. 22.05 Dans-
lög (plötur). 22.30 Veðurfregnir. —
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Skip S. í. S.
Varg er á Akureyri, Vigör er á
leiö til Páskrúðsfjarðar frá Kaup-
mannahöfn, Hvassafell er í Vest-
mannaeyjum.
Ríkisskip.
Hekla er á Austf jörðum á suður-
leið. Esja fór frá Reykjavik kl.
22.00 í grerkvöldi til Glasgow. Súö-
in er í Reykjavík, og mun liggja
hér til viðgerðar um mánaðartíma.
Herðubreið átti að koma til Reykja
víkur i morgun frá Vestmanna-
eyjum. Skjaldbreið er á leið frá
Skagafirði til Akureyrar. Þyrill er
á Siglufirði.
Skip Eimskipafélagsins.
Biúarfoss er í Leith. Pjallfoss
kom til Reykjavíkur 15. ágúst frá
Hu’I. Goðafoss er í Reykjavík. Lag-
arfoss fór frá Akureyri siðdegis í
gær til Reykjavíkur. með viðkomu
á Siglufirði og ísafirði. Reykja-
foss kom til Kaupmannahafnar 15.
ágúst. Selfoss fór frá Reykjavík í
gærkvöldi til vestur- og norður-
landsins. Tröllafoss kom til New
York 14. ágúst. Horsa er í Leith.
Sutherland kom til Hull 14. ágúst
frá Reykjavík.
Úr ýmsum áttum
Heimilisritið.
nýtt liefti, hefir blaðinu borizt.
Eír.i m. a.: Smásögurnar.: Meöal
smyglara eftir Jón Björnsson, Tími
blómanna eftir H. M. Clamp, Vegna
íirmans eftir Elizabeth A. Loring,
Jarðarfarirnar eftir Halla Teits,
niðurlág sögunnar Sannleikurinn
eftir R. Kipling, (í þýðingu Sig-
urðar Benediktssonar). Ýmsar
greinar eru í heftinu, m. a. Pjölda-
morð í kvennabúrinu. Hárprúðu
systurnar sjö. Þá eru þrjú ljóð eft-
ir Stein Steinarr. Margt fleira er
til gamans og fróðleiks i ritinu. m.
a. getraunir, skritlur, framhalds-
saga o. fi.
Læknablaðið,
1. tbl., 33. árg., hefir blaðinu bor-
izt. Efni m. a.: Handlæknisaðgerðir
við ulcus duodeni, eftir dr. P. H.
T. Thorlaksson, yfirlækni við
Winnipeg Clinic, Winnipeg. Úr er-
lendum læknaritum, o. fl.
Guðlaugur Rósinkrans
yfirkennari er nýlega farinn til
He’singíors. Hann mun sitja þar
íulltrúafund norrænu félaganna.
Næsta sumar verður fulltrúafund-
urinn haldinn á íslandi.
GuIIfaxi,
Skymasterflugvél Plugfélags fs-
lands h.f., er væntanleg hingað frá
Prestwiik k'. 14.30 í dag.
Hjónaefni.
Ungfrú Guðrún Friðgeirsdóttir
frá Húsavík, stud. art., og Ari
Brynjclfsson, stúdent, Krossanesi
við Ai\reyri.
Fjórburarnir teknir að veði.
Það cr ekki spaug að vera
faðir fjórbura í Englandi. Þar
ber almenningur ekki fólk á
höiidum sér, þótt það slysist til
slíkrar fjöldaframleiðslu.
Kona landbúnaðarverka-
manns í grennd við Bristol ól
nýlega fjórbura. Mannauming-
inn fékk ckki nema fimm pund
í kaup á viku, svo að góðhjart-
að fólk ætlaði að safna handa
homirn 150 pundum. Minna gat
hann ekki komizt af með, ef
hann átti að geta staðiö í skil-
um með borgunina fyrir lækn-
ishjálpina, sjúltrahúsvistina og
hjúkrun börnunum til lianda
næstu mánuði, því að þau eru
mjög þróttlítil, auk þess sem
kaupa þurfti á þau föt, vöggur
handa þeim að sofa í og stækka
hús foreldranna, svo að þar yrði
rúm fyrir allt þetta nýja fólk.
En fjársöfnunin misheppnaðist
algerlega. Það fengust ekki
nema 60 pund, og nú vita for-
eldrarnir ekki, ltvað þeir eiga
til bragðs að taka. Forráða-
menn sjúkrahússins neita að
skila fjórburunum, fyrr en for
eldrarnir leggja fram tryggingu
fyrir því, að þeir geti ráðið til
sín hjúkrunarkonu, er veiti
börnunum fullnægjandi að-
hlynningu, því að ella geti lífi
þeirra verið hætta búin, og
greitt skuldir sínar við sjúkra-
húsið, er aukast frá degi til
dags. Og nú sitja forcldrarnir
heima í öngum sínum, en bless-
uðum börnunum er haldið
sjúkrahúsinu.
Minningarspjöld
/
HEILSUHÆLISSJÓÐS
NÁTTÚRULÆKNINGA-
FÉLAGS ÍSLANDS
fást hjá frú Matthildi
Björnsdóttur, Laugaveg
34 A, og hjá Hirti Hans-
syni, Bankastræti 11. —
íftímW Ysftiam
Verða maurar og býf!ugur
arfíakar mannanna?
Það liafa oft heyrzt urn það
raddir, að svo kuiiní að fara, að
mennirnir tortími sjálfum sér og
menningu sinni á næstu áratugum.
Þeir liafi á valdi sínu meiri tækni
cn þeir hafa þroska til að ráða
yfir, svo vel fari. Margir cru að
vonum bölsýnir — með kjarnorku-
sprengjur og önnur háskavopn
annars vegar, en skefja’ausa vaida-
streitu og fjandskap þjóða og stefna
á milli hins vegar.
Til cru þó þeir, sem líta á þcssi
mál frá öðrurn og hærri sjónarhóli.
Einn þeirra er saglifræðingurinn
Arnold J. Toynbee prófessor. Hann
lieíir skrifað bók um þessi mál,
Civilization on Trial.
Þessi prófessor áfellist menn fyr-
ir að líta of smáum augum á til-
vcruna — sjá eklci út fyrir naúða-
þröngan hring, er nienn hafa
markað sér. Jöröin okkar er ckki
nema sand.'corn í ómælanlega kerfi
hnatta, segir hann. Saga lífver-
anna á jörðinni er sennilega ná-
lægt 800 milljón ára gömul, menn-
irnir eiga að balci sér 600—1000
þúsund ár, og sú menning, sem nú
er við líði, er orðin sex þúsund
ára gömul. Menn vita deili á nítján
mik’um menningartímabilum. Allt
hefir þetta gengið yfir í bylgjum.
Nú er sögu okkar þar komið,
segir prófessorinn, að' annað
tveggja tortíma þjóðirnar sjálfum
sér eða þær verða að sameinast og
skapa jafnvægi milli þeirra ólíku
greina menningar og lífsviðhorfa,
sem til eru.
En þótt menning okkar hafi ekki
í sér fólgnar þror eigindir, er hún
þarf til þess að geta lia’dið áfram
að þróast og dafna. þá er hitt
jafnvíst, að hér rís upp ný menn-
ing. í fyrsta lagi er ólíklegt. að allt
mannkynið farist. Afskekktar þjóð-
ir, eins og Dverg-Svertingjarnir,
sem búa lengst inni í frumskóg-
um Afriku, væru líklegir til þess
að þrauka af ragnarök kjarnorku-
styrjaldar og tortímingar. Þá yrðu
þeir frumherjar og brautryðjendur
nýrrar menningar, sein vænta
mætti aö hæfist á næstu þús-
undum ára. Eö'a kannske yrðu það
Tibetbúar, Eskimóar, Indíánar í
fjalllönduin Suður-Ameríku eða
Malajar á afskelcktum Suðurhafs-
cyjum? Við töpuðum að vísu þvi,
sem unnizt hefir síðustu tíu þús-
und árin. En hvað er það í sam-
anburði við þær 600—1000 þúsund-
ir ára, er mennirnir eiga að' baki
sér?
En Toynbee próícssor telcur einn-
ig til íhugunar þann mögu’eika, að'
allt raannkyníð kynni að líöa und-
ir lok. Og jafnvel það' skelfir hann
ekki svo mjög. Þá myndi lífiö' bara
byrja á ný, þar sem það hófst
fýrir mörgurn niilljónum ára. Það
yrðu kannskc flugur cða vængjnð
skorkvikindi, sein erfou jörðina,
þetta i’iki, sem mennirnir liafa
eignað sér — t. d. skorkvikindi,
eins og maurar, er sennilega hafa
koinið á eins konar þjóðíélagshátt-
um hjá sér, löngu áöur cn menn-
irnir voru orðnir nógu þroskaðir
til þess. Kannske er það þeim búið
að drottna á þessari jörð, segir
prófessorinn.
Þannig hafa ýmsar lífverur
drottnað á jörðunni á undan
mönnunum, en síöan oröið að lúta
í lægra haldi. Einu sinni voru
brynjaðir risafiskar hinar drottn-
andi lífverur — þeirra blómaskeið
hefir ef til vill verið fast að 300
milljónum ára.
Það er þess vegna liugsanlegt. að
eftir milljónir ára verði jörðin
mauraveldi eð'a býflugnaheimur, og
í vitund þeirra vera verði drottn-
unarskeið mannsins Htils vert tíma
bil á löngu þroskaslceiði — stutt
stund óróa, hávaða og ribbalda-
skapar.
Svo segir Toynbee prófessor, hinn
mikli og lærð'i sagnfræðingur og
vísindamaður. Hitt er svo annað
mál, hversu almenningi kann að'
vera mikil huggun í þessum bolla-
leggingum hans um framhald og
þróun líísins á þessum hnetti
okkar.
J. H.
Faríuglar.
Perð á Kjalveg. Lagt af
stað á laugardag og ekiö
að Gullfossi, Hvítárvatni og á
Hveravelli síðan ekið norður i
Húnavatnssýslu að Blönduósi og
þaðan yfir Holtavörðuheiði til
Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar gefnar
í kvöld kl. 9—10 að V. R.
Ath. engin ferð í Heiðarból um
helgina. Stjórnin.
Miðvikudaginn 18. ágúst.
Frjálsíþróttanámskeiö K.
R. heldur áfram á íþrótta
vellinum í kvöld kl. 6. Drengir í
dag — stúlkur á morgun.
Fimmtudaginn 19. ágúst. Prjáls-
íþróttanámskeið o. s. frv. Stúlkur
í dag — drengir á morgun.
Föstudaginn 20. ágúst. Prjáls-
íþróttanámskeið o. s. frv. Drengir
í dag — stúlkur á morgun.
Laugardagurinn 21. ágúst. Prjáls-
íþróttanámskeiö o. s. frv. Stúlkur
í dag — drengir á morgun.
Meistaramót íslands og drengja-
meistaramót í frjálsum iþróttum
fara fram á íþróttavellinum í
Reykjavík dagana 28. til 31. ágúst.
Þátttökuti'kynningar skulu send-
ar til stjórnar Prjálsíþróttadeildar
K.R., eigi síðar en mánudaginn 23.
þessa mánaðar. Mótnefndin.
E.S. Sutherland
fermir nú í Hull. — SkipiZf
fermir í Antwerpen 19,—20.
ágúst.
E.s. Reykjafoss
fermir í Kaupmannahöfn og
Gautaborg 19.—26. ágúst.
E.s. Lagarfoss
fermir í Bergen um 30. ágúst
og í Kaupmannahöfn og
Gautaborg 9.—16. september.
H.F. EIMSKIPAFÉLAGS
ÍSLANDS. 1
i
(ekki mótornámskeið Fiskifélagsins).
Þeir, sem hyggjast stunda nám við skólann að vetri
komanda, sendi umsókn til skólastjórans fyrir fyrsta
september.
Um inntökuskilyrði, sjá lög. um kennslu i vélfræði
frá 23. júní 1936.
Þar eð aðeins verður hægt að veita einstökum nem-
endum heimavist í skólahiisinu, þarf að senda umsókn-
ir um sama til húsvarðarins fyrir 1. september. Þeir,
sem áður hafa sótt, verða að endurnýja umsókn sína
skriflega fyrir þann tíma.
Skólastjórinn.
|
f
(1
(>
< ►
(►
O-
(h
<►
(►
(►
*
lafíhidit 7r.
aðeins á jDriðjudögum kl. 1-3. |
I Lofíleiðir h.f. |
ltlimillllIlllltlltllH*HlllllllltltlHtlllllllttlMIIHIIIIIIIIIHIIIIIHIItlltll»ll*ltlltllllllll,>IHIIII*ll*>ll**HllllllllllllllllIWM*'
| Iðnskólinn í Reykjavík |
| i
Innritað verður í skólann mánudaginn 23. ágúst |
[ til og með þriðjudags 31. ágúst kl. 17—19, að undan- |
| skildum laugardegi og sunnudegi. Skólagjaldið, kr. |
| 500.00, greiðist við innritun. |
Vegna þrengsla í skólanum geta ekki aðrir en þeir, §
| sem koma á nefndum tíma, og greiða skólagjald um |
1 leið, búist við að fá skólavist. §
Undirbúningsnámskeið verða haldin í september |
i og verður innritað í þau á sama tíma. Námskeiðsgjald |
1 er kr. 50.00 fyrir hverja námsgrein. |
2 =
Skólastjérsim.
TMiiniiiiiiiiiiiiiiitiiitiiiiiuninninimiiiiiiiiiiiiiintMiiiiiiiiniiniiiiiuiiMiiiiMmiiiiiiiiiiiMiiiniiiiiiiiitiitiiiiiiiiiM*