Tíminn - 23.09.1948, Page 1
t'mm m mmmmm-mmm-mmmmmmmm.'J
Rltstjóri:
* Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgejandi:
Framsóknarjlokkurinn
L-----------------------
---------------------------
Skrijstofur í Edduhúsinu
Ritstjórnarsímar:
4373 og 2353
AJgreiðslu- og auglýs-
ingasími 2323
Prentsmiðjan Edda ,
32. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 23. september 1948.
299. blað
Verið að setja
klnkku í turn
Matthíasarkirkj-
unnar
Um þessar mundir er verið
að setja klukku mikla í turn-
inn á Matthíasarkirkjunni á
Akureyri. Kristján Halldórs-
son úrsmiður á Akureyfi pant
aðj þessa klukku frá Svíþjóð
árið 1944, og er hún nú ný-
komin á ákvörðunarstað.
Skífa klukkunnar er tveir
metrar í þvermál og upplýst.
Leikur hún við tímaskipti
lag eftir Björgvin Guðmunds
son, og mun heyrast til henn-
ar um allan Akureyrarbæ.
Flugvélar Loftleiða
báðar í förum fyrir
aðrar þjóðir
Flytja isiisflytjeiíel-
Bis* frá Evrójsulönd-
iiin vesíitr nm !saf.
Skymasterflugvélar Loft-
leiða eru nú báðar í langferð
um til að afla gjaldeyris-
tekna. Eru flugvélarnar Geys
ir og H'ekla í ferðum vestur
um haf við flutninga inn-
flytjenda þangað frá Evrópu.
Geysir fór í fyrramorgun
með 43 innflytjendur til Ame
ríku, sem flugvélin kom með
frá París kvöldið áður. Flug-
vélin er væntanleg hingað
aftur að vestan í dag, en fer
strax á morgun að sækja ann
an farm af útflytjendum til
Parísar. Verða þerr einnig
fluttir sörnu leiðina um
Reykjavík, vestur um haf til
Nevv Ycrk.
í gær fór flugvélin Hekla
til Finnlands, en þangað sæk
ir hún fólk, sem ætlar að
setjast fyrir vestan haf. Fer
flugvélin með þetta fólk um
flugvöllinn hér í Reykjavik á
leiðinni til New York.
Stjórn sænska jafn-
aðarmannaflokks-
ins á fundi
Stjórn Jafnaðarmanna-
flokksins í Svíþjóð kom sam-
an á fund í gær til þess að
ræða viðhorfið eftir kosning-
arnar. Erlander 'forsætisráð-
herra hélt þar aðalræðuna.
Kvað hann Jafnaðarmanna-
flokkinn ekki þurfa neinu að
kvíða, því að hann hefði auk-
ið fylgi sitt í kosningunum
um nær 300 þús. atkv. og
mundi nú kappkosta að
standa við kosningaloforð
sín. Að ræðunni lokinni gekk
Erlander á fund konungs, en
fundurinn hélt áfram störf-
um.
Hér hvíla þcir áflíkbörunum. Bernadotte grcifi og Serot. höfuðsmaður
inn frariski, sem Gyðingar myrtu ásamt honum í Jerúsalem. Ofan
á kistu Bernadotte greifa liggur skátahattur hans.
Rætt um dagskrá alSsherjar-
þings S. Þ. í gær
Tryggve Lie I»er frasit tlllög'ii eibm lífvörfS
iutMla erindrektmt Sastieinisðii þjúðanna.
í gær var rætt um dagskrána á allsherjarþingi S. Þ. í
París. Tryggve Lie hefir ritað allsherjarnefnd þingsins bréf,
sem felur í sér tillögu um það, að S. Þ. komi á fót einskonar
varnariiði til þess að verja líf erindreka S. Þ.
Allsherjarnefnd þings S. Þ.
í París ræddi í gær dagskrá
þingsins ásamt formönnum
sex fastanefnda, sem starfa á
þinginu.
Fulltrúi Argentínu hefir
lagt fram til’afjgu um það, að
breyta skilyrðum fyrir upp-
töku nýrra þjóða í S. Þ. á
þann veg, að meðmæli sjö
ríkja skuli koma til, ef nýtt
ríki æskir upptöku.
Tryggve Lie hefir ritað alls
herjarnefnd þingsins bréf,
þar sem hann ber fram til-
lögu þess efnis, að komið
verði á fót föstum lífverði
innan vébanda S. Þ. og hafi
hann það hlutverk að gæta
öryggis þeirra erindreka, sem
sendir verða á vegum S. Þ.
til sáttaumleitana til þeirra
landa, þar sem S. Þ. skérast
í leikinn til þess að koma á
Umferðarsiys á
Akureyri
Á laugardaginn var varð
umferðarslys á Akureyri. Jón
Jónsson vélsmiður varð fyrir
bifreið og féll á götuna af
bifhjóli, sem hann var á.
Meiddist hann á höfði, og
liggur hann enn í sjúkra-
húsi.
friði og sáttum, eins og nú
hefir átt sér stað í Palestínu.
Hefir þessi tillaga mælzt vel
fyrir og er taliö líklegt, að
hún muni verða samþykkt á
þinginu.
Háseíahlutur á
Gylfa frá Rauðuvík
átta þúsund krónur
á síldveiðunum í
sumar
Talið er, aö vélbáturinn
Gylfi frá Rauðuvík sé sá síld-
veiðibátur, er orðið hafi einna
hlutarhæstur á síldveiðunum
fyrir Norðurlandi í sumar. Á
hann veiddust um 4000 mál
síldar, og voru á honum tíu
menn. Verður hásetahlutur
um átta þúsund krónur.
Á síldveiðunum í Hvalfirði
í fyrravetur fékk Gylfi 14500
mál og hásetahlutur eftir þá
vertíð varð átján þúsund
krónur.
Skipstjóri á Gylfa er Bjarni
Jóhannesson frá Flatey, en
eigandi bátsins er Valtýr
Þoii'steinsson útgerðarmaöur
í Rauðuvík við Eyjafjörð.
Lýðræði kom.mánista í framkvæmð:
Stjórn Alþýðusambandsins
neitar vörubílstjórafélagi
Suður-Þingeyinga um
upptöku
£itt focllibra^ð komsm'mista til aÖ reyna
að Iialda völdaui í samfeandiiiu.
Núverandi stjórn Alþýðusambands íslands hefir neitað
vörubílstjórafélagi Suður-Þingeyinga um upptöku í Alþýðu-
sambandið. Félag þetta var stofnað í vor og nær yfir álla
— i. ...
sýsluna ásamt Húsavík og er hreint stéttarfélag þeirra, er
atvinnu hafa af akstri vörubifreiða í sýslunni. Er þetta eitt
bellibragð kommúnista tii bess ao reyna að halda meirihluta
sínum í Alþýðusambandinu.
Tildrög málsins.
Snemma í vor voru stofn-
uð tvö félög vörubílstjóra í
Suður-Þingeyjarsýslu í þeim
tilgangi að gæta hagsmuna
vörubílstjóra í sýslunni. Náði
annað yfir vesturhluta sýsl-
unnar, en hitt yfir austur-
hluta hennar. Um sama leyti
stofnaði erindreki Alþýðu-
sambands íslands vörubíl-
stjóradeild í Verkamannafé-
lagi Húsavíkur, og máttu að-
eins vera í henní sjálfseign-
arbílstjórar, og urðu þeir auk
þess að vera i Verkamanna-
félaginu. í henni gat því ekki
verið nema nokkur hluti vöru,
bílstjóra á Húsavík og engir
bílstj órar í sveitum héraðsins.
Skömmu síðar tilkynnir svo
formaður þessarar . deildar
hinum bílstjórunum í sýsl-
unni, að meðlimir vörubíl-
stjóradeildarinnar í V. H. eigi
einir rétt á allrj vinnu við
vega- og brúargerðir í hérað-
inu samkvæmt vinnulöggjöf-
inni og lagði fram skeyti frá
Alþýðusambandinu máli sínu
til sönnunar. Var sveitabil-
stjórum þó boðið að ganga í
vörubílstjóradeildina á Húsa-
vík sem annars flokks félag-
ar, og fengju þeir þá að sitja
að þeirri vinnu, er aöalíélag-
ar deildarinnar gætu ekkj
annað. Var þeim auk þess
boðið málfrelsi og tillögurétt-
ur á fundum, en ekki atkvæð
isréttur.
Sveitabílstjórarnir neituðu
þessu „kostaboði", enda höfðu
bæði bílstjórafélögin í sýsl-
unni þá sótt um upptöku í
Alþýðusambandið, en ekki
fengið svar. Varð af þessu all
hörð deila um vega- og brú-
arvinnu í sýslunni.
Alþýðusambandið neitar
um upptöku.
Þegar svar barst ekki að
þrem vikum liðnum, tóku fé-
lögin það ráð ráð að senda
fulltrúa til Reykjavíkur. Fór
sami fulltrúinn fyrir bæði fé-
lögin. Hafðí hann skriflegt
umboð beggja félaganna til
þess að breyta lögum þeirra
til samræmingar lögum Al-
þýðusambandsins, svo og sam
eina félögin, ef þurfa þætti.
Eftir allmikið þóf neitaði
stjórn Alþýðusambandsins al
gerlega að veita félögunum
inngöngu og bar við ýmsum
tyllisökum.
Hálfum mánuði síðar kom
svo forseti Alþýðusambands-
ins noi'ður til þess að kynna
sér málavexti í þessari deilu,
og var þá boðað til fundar á
Fosshóli með öllum vörubíl-
stjórum í sýslunni. Þar var
vörubílstjóradeiidinni í Verka
mannafélagi Húsavikur boðið
að ganga til stofnunar eins
vörubílstjórafélags, sem næði
yfir alla sýsluna. Því neituðu
meðlimir hennar og Alþýðu-
sambandsforyetinn studdi
mál þeirra. í öðru lagi var
sú miðlunartillaga fram bor-
in, að bílstjórar sætu fyrir
vinnu hver í sinni sveit, en
bílstjórar af Húsavík sætu
fyrir um þá vinnu, sem þeir
gætu ekki annað. Virtist
þessi tillaga fullkomlega sann
gjörn og í fullu samræmi við
CFramhald a- 7 síðuJ
Réttindi Indverja í
S.-Afríku skert
Stjórnin í Suður-Afríku
hefir- borið fram frumvarp
um það að svipta Indverja
kosningarrétti til bæjar-
stjórna og þings. Höföu Ind-
verjar þar í landi hlotið tak-
markaðan kosningarrétt áð-
ur. Dr. Malan sagði í fram-
söguræðu um máliö, að þetta
væri nauðsynlegt vegna þess,
að önnur þjóðabrot í Suður-
Afríku mundu heimta sömu
réttindi, ef Indverjar hefðu
kosningarrétt áfram. Búizt er
við, að frumvarpið mæti mik-
illi mótspyrnu í þinginu. —
Hafa þá engir aðrir íbúar
landsins kosningarrétt en
þeir, sem komnir eru af
Noröurálfumönnum.