Tíminn - 23.09.1948, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.09.1948, Blaðsíða 6
TÍMINN, fimmtudaginn 23. sept. 1948. 299. blað •F fjatnla Síó tyja Sí6 ÁSTARÓÐUR (A Song of Love) Sýnd kl. 9 Beseinhernótt (Nuit de December) Hugnæm og vel leikin frönsk ástarsaga. Aaukamynd Fró Olympíuleikjunum. Sýnd kl. 9 Landamæra- róstur (Fighting Frontier) Amerísk cowboymynd með TIM HOLT Sýnd kl. 5 og 7 Börn innan 12 ára fá ekki aðgang SkriðtSýrió (Housc of Horrors) Dúlarfull og spennandi mynd með. Virginia Grey Rondo Hatton Bönnuð börnum yngri en 16 ára Sýnd kl. 5 og 7 Tjatwatbíó 7ripvli-b(ó Brothætt gler (The Upturned Glass) Eftirminnileg ensk stórmynd. James Máson Rosamund John Ann Stephens Bönnuð börnum yngri en 16 ára Sýningar kl. 5, 7 og 9 „Bernska mín“ Rússnesk stórmynd um æfi Maxim Gorki tekin eftir sjálfs- æfisögu hans. Aðalhlutverk Aljosja Ljarski Massalitinova Sýnd kl. 7 og 9 Kátir voru karlar (Hele Verden ler) Sprenghlægileg gamanmynd um söngvin hirði, sem tekinn er í misgripum fyrir frægt tón.- skáld. Sýnd kl. 5 Sími 1182 Jól í skógiiium (Bush Christmas) Hin ágæta barnamynd Sýnd kl. 3 Erlent yflrlit urkosinn, til ársins 1946. Lengst af þessa tíma var hann Kenjakffiiia (The Strange Womaa) Hedy Lamar George Sanders Bönnuð börnum innan 16 ára Sýnd kl. 9 Glettiim náangi Hin skemmtiiega hestamynd Sýnd kl. 5 Hljómleikar kl. 7 (Framhald af 5. síðu). ró’ni, er það líklegt, að Rússar niuni reyna að gei^ lausn þessa máls sem eríiðast fyrir Bandamenn. Ósennilegt er, að málið fái skjóta afgreiðslu á þingi sameinuðu þjóð- anna. M. a. munu Bandaríkjamenn telja æskilegt að afgreiðsla þessi verði ekki ráðinn fyrir forsetakosn ingarnar, svo að það blandist ekki að óþörfu inn í þær. Nokkur ©rð að lokuna. (Framhald af 3. siðu) trausti hornsteinninn undir gróðavonum Daníels af Hótel Hreðavatni nokkuð síginn í jörð. Og er nú danspallur Kans lokaður eins og hótel- in. HreðavatnSskálinn mun aft ur á móti verða_ opinn í haust, Daníel til ánægju (!), og ferðamönnum til fyrir- greiðslu. Margir þeirra hafa sýnt mér mikla tryggð og vin- semd á liðnum árum, en þó aldrei meiri en síðan óhróð- urs- og ádeilugreinarnar hóf- ust í Tímanum á mig og starf semi mína frá „velviljaða" hótelfrömuðinum að Hreða- vatni. Séra Ásgeir Ásgeirsson. (Framhald af 3. síðu) verzhinarviðskipta á félagsr svæðinu og hafa forgöngu um mikilvægar nýjungar í verzl,- háttum. — Það er ánægjulegt fyrir séra Ásgeir að hafa verið þessum félagssamtökum svo n|,kpminn á þróunarferli þeirra öllum og sjá nú hinn litla vísi vera orðinn blóí»rleg an meið, sem fest hefir djúp- ar rætur um breiðar byggðir. Séra Ásgeir var kosinn í stjórn Sparisjóðs Dalasýslu árið eftir að hann kom að Hvammi, og. síðan ávallt end - -'i formaður sjóðsins, en gjald- keri til 1942 var Bjarni Jóns- son í Ásgarði. Er víða kunn- ugt, hve vel sjóðurinn efldist undir stjórn séra Ásgeirs, og Bjarna. Hér verða ekki störf séra Ásgeirs í þágu héraðs síns rak in framar en orðið er, þó að margs mætti enn geta. Og í raun og veru er það svo, að þegar ég, sem um rúman ára- tug á fyrstu starfsárum mín- um var granni hans og sem starfsbróðir alltíður gestur á heimil hans, minnist forna kynna í tilefni af hinum merku tímamótum í ævi hans þá er mér annað ríkara í huga en það, sem hér að framan er getið. Afskipti séra Ásgeirs af félagslegum málefnum og framkvæmdum eru aðeins önnur hliðin á starfi hans eða einn sérstakur þáttur þess og sá, sem blasir bezt við sýn, eins og j afnan er um þau mál, sem. unnin eru á opinberum vettvangi. En þess ber hér einnig að minnast, að starfssvið vor presta er með þeim hætti, að oss gefst fremur en öðrum svo nefnd- um menntamönnum kostur á að kynnast því af eigin raun, að eigi aðeins „hver einn bær á sína sögu,“ heldur og hver einstaklingur, og það hlut- verk vort að vera þar jafnan nálægir, er þeir atburðir ger ast sem örlagaríkastir eru fyrir heimili og einstaklinga, jafnt í sorg og gleði. Það mun öllum fljótt skiljast, sem kynnast séra Ásgeiri, að hann hafi verið gæddur eiginleik- um til þess að verða vinsæll og vel metinn sem prestur, enda. var það svo alla hans tíð í Dölum. Ljúfmennska samfara festu í framkomu, óþreytandi atorka um að sinna embættisverkum í víð- lendu umdæmi og látlaus og virðuleg framkoma prest- legra athafna, allt þetta á- vann honum vinsældir, sem ekki munu fyrnast meðal sóknarbarna hans, heldur jafnvel sjást í skýrara ljósi, og störf og framkoma hans verða enn betur metin er frá líður, en var á hverri líðandi stundu. Ég, sem þetta rita, minnist þess glöggt, hve ljúfri kynningu ég átti að fagna hjá séra Ásgeiri, er ég gerðist starfsbróðir hans og nágranni fyrir 32 árum, nýkominn frá skólaboröinu. Þó að hann hefði þá meira en 10 ára starfsreynslu að baki, tók hann mér sem jafningja sín- um. Með þeim blæ og sanna bróðuranda hafa kynnin ver- ið ávallt síðan, alveg eins fyr ir það, þótt eigi hafi slcoðan- ir beggja ve-rið um allt á eina lund. Séra Ásgeir hefir verið gæfumaður í starfi, og þó enn þá fremur í einkalífi og heim- ilslífi. Er ekki hálfsögð saga hans, nema þess sé getið. — Hann kvæntist á afmælis degi sínum árið 1900 Ragn- hildi Bjarnadóttur frá Ár- múla, fágætlega mikilhæfri konu um gáfur, skapferli og látlausan virðuleik í fram- komu. Hún hefir lengi ævinn ar verið þjáð af vanheilsu, en þó. jafnan verið manni. sínum ómetanlegur styrkur í starfi hans, um leið og hún hefir gert heimili þeirra að- laðandi fyrir gesti og heima- fólk. Það ér og frábært, hve maður hennar hefir borið með henni þær byrðar, er á hana hafa verið lagðar. Yfir sambúð þeirra um nær hálfa öld hefir aldrei brugðið nein- um skugga. Margur heimilis- vinur þeirra, sem komiö hefir á heimiliö á þeim stundum, er frú Ragnhildur lá sjúk og þjáð, mun einmitt þá hafa uppgötvað skýrai'’ en nokkru sinni endranær þá heimilis- hamingju, sem bezt verður fundin. Kjördóttir séra Ásgeirs og konu hans er frú Ragnhildur, kona • Ófeigs Ófeigssonar læknis. Séra Ásgeir ber aldurinn ágæta vel, og mætti ætla hann góðum áratug yngri en almanakið segir. Hann er enn í fullu starfsfjöri og virð- ist hafa náð sér til full^ eftir erfiðan sjúkdóm, sem hann var þjáður af, um það leyti er hann lét af prestsskap. Það er ósk og von vina hans, að hann eigi enn langan starfsdag fram undan og megi lengi njóta heimilis- þeiiTar hamingju, sem hon- um hejur verið gefin. Jón Guðnason. GÖSTA SEGERCRANTZ: 10. dagur Jóharmes Elíasson. — Iöfffræðing:ur — Skrifstofa Austurstrætl 5, III. hæð. (Nýja Búnaðarbankahúsinu) Viðtalstími 5—7. — Sími 7738. irMgsSEs Svantesson hafði verið á þönum kringum Ginettu alla nóttina og reynt af fremsta megni að gera sig skilj anlegan, þótt franskan hans væri næsta bág- borin. Hinn sænski blaöamaöur hafði aldrei fyrirhitt stúlku, sem var eins llrífandi og Ginetta, og því leng- ur sem hann talaði við hana, þeim mun liprari varð hann í frönskunni. Þegar staðiö hafði verið upp frá borðum, höfðu eldri mennirnir setzt að spilum, á- samt Blaaken frá Osló. En Svantesson hafði dansað hvern danstnn af öðrum við Ginettu. Það lá við aö hann sundlaöi enn — af svo yndislegri mýkt hafði hún hjúfrað sig upp . að honum. Hann brosti með sjálfum sér, þegar Kpnum varð hugsaö til kvenfólks- áns, sem stundaði ' hláðamennsku i Stokkhólmi — þetta voru allt gaml»r og horaðar skrukkur. Og svo þóttust þær vera að. •skrjfa um tízku og yndisþokka, þótt þær bæru ekk^.; freir-fir skyn á slíkt en kyrki- slöngur á golf eða 'ténnls. — Ég vona, að mér leyfist að- aka ýður heim, sagði. Svantesson um leiö og hann snart hana var- lega eftir að hafa lagt hina dýru loðkápu hennar yfir axlir henni. — Oui, Monsieur — þetta var elskulega boðið, svar- aði hún. Ég bý svodangt úti í borg. — Þeim mun meiri ánægja, sagði Svíinn, sem fannst þegar eins og hann væri orðinn franskur markgreifi. Ginetta hló, lágt og eggjandi. Og svo settust þau hlið við hlið í bílinn ... Doktor Perckhammer hélt í mikilli hrifningu af stað með Gabríellu, og Axel Ancker hafði einnig orðið þeirra náðar aðnjótandi aö mega fylgja Yvu heim. Það fór allt eins og til hafði verið ætlazt. Fiskarnir, að maður segi þorskarnir sprikluðu á önglunum, og uppi í einkaskrifstofu Leporescus sátu vinirnir þrlr yfir whiskýi og sódá, hlæjandi og masandi, þvi að nú lá vel á þeim. Litlú síðar bjuggust þeir þó til brott- ferðar og hver.hélt til sinnar nýjustu vinkonu — það var varla, að bílstjórar þeirra könnuðust við heimilis- föngin. Bíll Svantessons brunaði út Ítalíustrætið. Það var komið fram undir dögun, götuljósin bliknuðu í morg- skininu, og gegnum opna bílgluggana streymdi fersk- ur og hressandi vorblær. — Er nokkuð eins yndislegt og ilmurinn af kastaníu trjánum, þegar þau eru að byrja aö springa út, kurr- aöi Ginetta — sérstaklega kastaníutrjánum í París? — Hann er yndislegur, yndislegur, hvíslaði Svants- son. — Hvernig leizt yður á Quignon? spurði hún litlu síðar. Það er yndislegur maöur, stórbrotinn maður, svar- aði Svantesson. Alveg eins og leikhússtjórar eiga að vera. — Hann er svín •— líkastur gömlum gelti, lirópaði Ginetta af mikium sannfæringarkrafti. Og hann hefir ekki meira vita á' leiklist en aflóga fress... Vitið þér, hvaða titill færi honum bezt? — Ég skil yður líklega ekki fullkomlega, tuldraði vesalings Svíinn. — Hann ætti aö stjórna hóruhúsi, sagöi Ginetta. Sáuð þér þessar fimmtán dansmeyjar, sem hann lét koma — hann hefir meira en hundrað af því tagi. Þær fá fjögur hundruð franka á mánuði... Svantesson ræsktj sig vandræðalega. Hann vissi ekki, hvernig hann ætti að víkja samræðunum inn á aðrar og heppilegri brautir. — Þér eruð þó ekki gift, tautaði hann — eða trú- lofuð, meina ég . . . — Nei, ek'ki eins og stendur,' sagði Ginetta og hló við. Ég get ekki þolað þessi föstu sambönd, allra sízt á vorin, þegar grózkan sprengir hvern brumknapp. En þér — eruð þér kvæntur? Svantesson hugsaðr sig um, eins og hann myndi það ekki fullkomlega. — Hefi verið það — hefi verið það, sagði hann svo. — Nú—nú, sagöi Ginetta hlæjandi og færði. sig nær honum. En með sjálfri sér hugsaði hún: Ef aulinn kyssir mig ekki núna, er þetta hrein mannleysa og ‘ekkert annað.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.