Tíminn - 23.09.1948, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.09.1948, Blaðsíða 3
299. blað TÍMINN, fimmtudaginn 23. sept. 1948. 3 Eftla* Vigfaks <9&iðuiimclss4m. þar sem veitingastarfsemi með bjóövegum sýnir sig nauö synlega eins og mín starf- semi (aö dómi, fjölda ferða- manna) he'íir veriö um mörg ár, þá skiptir hún áuðvitaö j.l menning verulegu. Aftur. á móti skiptir litlu hvort ég vinn einhvern hluta úr árinu S.IÖ-T UG U R • frá Hvammi i Dölum Þaö var ekki ætlunin að gegna Daníel Kristj ánssyni meira og skal það líka gert sem allra minnst. Þriðja áróö ursgrein hans um mig og starfsemi mína hefir nú birzt í Tímanum og er þar ekkj um framför að ræða. Ég gat þess um fyrstu grein hans, að í henni hefði hann sagt ósatt sextíu sinn- um. Hefi ekki talið saman hin mörgu ósannindi i þessari sið ustu grein, en sem sýnishorn ætla ég að taka upp úr henni eina 10 línu klausu: . „Um aðgangseyrj að dans- leikjunum á Hótel Hreða- vatni, er Vigfús greinir £rá, eru tilefnislaus ósannindi. Sjálfur hélt hann dansleiki í skúr við skála sinn i sumar ■og seldi nákvæmlega með sama verði og tíðkast á Hótel Hreðavatni og ágóðinn rann í hans eigin hatt eða vasa.“ Andsvar mitt við þessu er þetta: 1. Að ég hafi aldrei, til þessa greint í greinum mínum frá hver aðgöngueyrir að dans- leikjum Hótel Hreðavatns er. 2. Sagði því engin ósann- indi um það. 3. Ég hefi aldrei haldið dansleiki í sumar. Um tvær helgar voru dans- leikir í mínum húsum og héldu þá í annað skiptið hljómsveit Braga Hlíðbergs, en í hitt skj.ptiö hljómsveitin „Kátir piltár.“ 4. Dansað var í húsi, með miklu og bröttu risi. Slík hús veit ég ekki til að séu kölluö skúrar.. 5. Ég seldi auðvitað ekki sama verði aðgang og Hótel Hreðavatn, þar sem ég hélt aldrei neinn dansleik og að- gangur í húsi mínu, sem ég lánaði hljómsveitunum, var langt fyrir neðan 20 krónur og ekki selt fram til klukkan hálf tvö að nóttu eins og nóg vitni eru til að bera, að hefir verið gert að Hótel Hreða- vatni. 6. Ágóði af dansleikjunum rann heldur. ekki í minn „hatt eða vasa.“ Gjald það frá hljómsveitunum, sem mátti ganga til mín, gekk beint í menningarsjóð, sem er almenningseign. Það er nokkuð vel að verið að segja sex sinnum ósatt í tíu línum. En svona eru skrif Daníels frá upphafi til enda, alveg sérstakur ósannindavað all, atvinnurógur og níð, t. d. eins og slúðrið í síðustu grein hans um gólfþvottavatnið, gælurnar við vitleysur verð- lagsstjóra og bruðl og ráð- leysj „nýsköpunarmanna“ í Fornahvammi, rányrkju mína í sveitunum, margra ára gamla Morgunblaðsá- reitni í minn garð, sem hann er að japla á, o. s. frv. Sannast að segja hafði ég aldrei trúað því, að Daníel værj slíkur maður eins og kemur fram í þessum grein- um hans, þótt ýmsir nágrann ar hans voru búnir að segja mér sitthvað svipað. Hafði ég áður talið hann góðkunn- ingja minn og ekki ódreng. Þó að gangj ekki vel hótel-. reksturinn fyrir þeim félög- um, þá er það auðvitað þeirn sjálfum fyrst og fremst aö kenna. Og varla ástæða til að hatast við mig, að ég „þrengi þeirra kosti,“ þó að ég reyni að halda veitingarekstri á- fram, sem ég hefj nú stundaö j um langt skeið. Einnig ætti Ðaníel að t skilja, að eftir því. sem hann úthúöar mér og veitinga rekstri mínum meira, eftir' því er ennþá . neyöarlegra fyrir hann, að þola dóm þann,! sem ferðamenn almennt eru nú þegar búnir að fella um1 veitingahús okkar beggja. Það er aðallega eitt atriði, sem veldur því, að ég tók mér [ penna í hönd í þetta sinn. | Það er sú hlið þessarra deilu 1 Daníels, sem snýr að Tíman- | um. Það hafa margir ágætir unnendur Tímans látið í ljós undrun sína á því, að blaðið skyldi birta þessar ritsmíðar Daníels. — Þegar fyrsta grein hans barst blaðinu hringdi einn aðalráðamaöur þess. til mín og sagði mér frá grein- inni. Lagði ég þá strax til að birta hana til þess að D. fengi að koma fram sínu sjónar- miöi. Vildj ég þá eins og jafn- an áður láta Tímann sýna að hann væri frjálslynt blaö, sem fúst væri að birta ólíkar skoðanir manna, er skrifuðu undir fullu nafni. Bjóst ég ekki við svona léle,gum skrif- um frá Daníel, eins og nú er kornið á daginn. Umræðuefn- ið var reyndar staðbundið og skipti mest fáeina menn. En í Reykjavík, úr því mér hefr verið gert ókleift að reka veit ingahús mitt að vetrinum, sem mér hefði þó verið kær- ast að gera. Daníel hefir nú fengið aö skrifa þrjár ádeilugreinar á- einn blaöstjórnarmann Tím- ans og er nú búinn að ;sýna áhugamál sín, rithátt og inn- ræti, Borgfirðingar og aðrir þekkja nú betur en áður hver hálauha embættismaöurinn á Hreðavatni er. Og ferðamenn, sem fara. hjá „hótelum“ Dan- íels eru búnir aö gefa sitt svar, svo að D. hefir séð sér vænst að loka þeim báðum,.! eftir að Helgi kennari Hannes son var m. a. búinn að’skrifa I um annað þeirra í fjöllesið, blað aö „það værj ekki mönn j um bjóðandi.“ „E'ns og þessi staður er rekinn er hann, þjóðarskömm," segir Helgj í sumar hafa laugardags-r kvölda-,,böll“ Daníels oft ver- ið mjög fjölsótt og hefir hann þá ,,mckað“ saman fé á þeim, a. m. k. að einhverju leyti upp í hallann á veitingarekstrin- um. En nú síðast brá svo við (eftir miklar auglýsingar og aðstoð ríkh.stofnunar einn- ar), að aðein.s 14 mann.s feng- ust til að' kaupa aðgang á „böll“ hans, reyndar fyrir 20 kr. hver. Og stóð ballið dál. stundarkorn inni á ísköldum og hálfmyrkum þalli. Er nú Daníel jafnvel fárinn að sjá að það er líka hægt að of- bjóða fölki, sem þykir gam- an að^ dansa. Og virðist þá (Framhald á 6. siðu). Séra Ásgeir Asgeirsson, fyrrv. próíastur í Hvammi í Dölum, var sjötugur í gær. Séra Ásgeir er fæddur að Arngerðareyri við ísafjarðar- djúp, sonur Ásgeirs, bónda og hreppstjóra þar, Guðmunds- sonar, og fyrri konu hans, Margrétar Jónsdóttur frá Breiðadal fr.emri í Önundar- firði, Indriðasonar. Nákomn- ir ættingjar séra Ásgek’s' í föð urætt hans voru þeir Jón A. Hjaltalín skólastjóri og Ás- geir Sigurðsson kaupmaður, c igandi verzlunarinnar Bdin- borg. Er Ásgeirs7nafnið mjög algengt í þessari ætt og hefir haldizt þar a. m. k. frá því á 17. öld, en sá forfaðir ættar- innar, sem þá bar nafnið, Var Ásgeir lögréttumaður Arnörs son í Ljárskögum, sem var sjötti maður í beinan karl- legg frá Lofti ríka Guttcrms- syni á Möðruvöllum. Séra Ásgeir lauk stúdents- prófi vorið 1900 og embættis- prófi í guðfræði við presta- skólann vorið 1903. Árið 1905 var hann vígður prestur að Hvammi í Dölum og þjónaði þar til vors 1919, er.hann var lcosinn prestur í Stykkis- hólmi. Gegndi hann þó þjón- ustu i tveimur sóknum (af þremur) síns gamla presta- kalls næsta ár, en sótti þá aítur urn Hvamm og þjónaði siðan því prestakalli, unz hann lét af prestsskap vor- ið 1944 og fluttist til Reykja- DANÁRMINNING hón.di á Hallgilsstöðum Guðmundur Björnsson bóndi á Langanési ándaðist í sjúkra húsi á Akureyri 20. júlí s.l., að loknum uppskurði, 56 ára að aldri. Hann var jarðsung- , inn í Sauðaneskirkju 30. júlí,! og var jarðarförin fjölmenn, svo sem vænta mátti. , Hann var fæddur á Hall- gilsstöðum 10. jan. 1892, son- ur hjónanna Halldóru Sigr^rð ardóttur og Björns Guðmunds sonar, Björnssonar bónda í Laxárdal í Þistilfirði, en þeir feðgar, Björn og Guðmund-1 ur eldri, bjuggu báðir á.Hall- i gilsstöðum. Stundaði Guðm. búnaðarnám í Hölaskóla á ár unum 1909—11. Hinn 4. júlí 1914 gekk hann að eiga Mar- gréti Halldórsdóttur frá Syðri Brekkum á Langanesi, af- bragskonu, sem nú lifir mann sinn. Bjuggu þau síðan á Hall gilsstöðum, að undanteknum nokkrum árum, er þau stjórn uðu búi í Eyjafirði. Voru þau hjón mjög samhent í starfi og komu vel skapi saman, enda bar heimilisbragurinn þess ljósan vott. Var þar glaðværð jafnan og gott að koma. Bæöi gestrisin, og oft mann margt á heimili þeirra. Ekki varð þeim -barna auðiö, en ólu upp tvær fósturdætur og gengu þeim í for&ldrastað. Á jörðinni gerði Guðmund- ur miklar umbætur í búskap- artíð sinni; reisti þar íbúð- arhús, gripahús og hlöður, sléttaöi tún og jók til mikilla muna. Hann var útsjónarsam ur og verklaginn, og allar framkvæmdir hans og búskap arhættir báru vott um snyrtí- mennsku og smekkvísi. Hann mun hafa verið einn af fyrstu bændum í sinni sveit til að .eigna'st sláttuvél, og yf- irleitt var hann urn sína daga góður liðsmaður framfara og framsóknar í sveit sinni og héraði. Guðmundur var prýðilega greindur rnaður og hafði yndi af ijóðum og söng, endá sjálfur vel hagmæltur. Gleði maður góður, fyndinn í orði og fór þó vel með. Hestamað- ur ágætur, og var hestum oft komiö til hans til tamning- ar. Hafði hann mikla ánægju af því viðfangsefni, einkum, ef um baldin ungviði var að ræða, og varð oftast vel á- gengt með lipurð og þraut- seigju. Útá við var hánn að eðlisfari fremur hlédrægur, framkoman hæg og stillileg á mannamótum, en álits naut hann jafnan og trausts í sveit sinni, enda meðal vin- sælustu manna og oft að góðu getið. Átti hann um skeið sæti í hreppsnefnd Sauðaneshrepps og stjórn Kaupfélags Langnesinga. — Hann var rösklega meðalmað ur á hæð, glæsilegur að vall- arsýn. vel að manni, svipur- inn djarfmannlegur og alvar legur, en bjó þó .yfir glettni og gamansemi, sem kom í ljós, þegar honum þótti við eiga. „Viður hlýjan vorsins baðm varð mér hljóður strengur, þegar hneig í foldar faðm , friður, góður drengur", | kvað einn af samferðamönn- 1 um Guðmundar við útför ' hans. í hinni fámennu sveit, • sem jörðina erjar, verður í tómlegt eftir, þegar bóndi er ' hrifinn á brott frá óloknu i starfi og miklum viðfangsefn um. En gesturinn óboðni, sem i alla sækir heim fyrr eða síð- 1 ar, kveður dyra, þegar honum | sjálfum sýnist, einnig í' gró- | anda sumarsins og ársins : mestu önn. Nábúar, vinir og kunningj ar harma vaskan i mann og góöan dreng. Nán- ' ustu aðstandendum verður þó missirinn sárastur. En minn- ing góðs manns er gjöf, sem lengi endist. G. G. víkur. Jafnframt prestakalli sínu þjónaði hann einnig Staðarhólsþingum í nær 25 ár alls, þar af óslitið síðustu. 15 ár prestskapar síns. Eru þessi tvö prestaköll víðáttu- mikil mjög, ná yfir strand- lengjuna alla leið frá „tánni“ í botn Hvammsf j arðar út fyr- ir Klofning, um eyjar þar úti og á Gilsfirði og síðan inr. með Gilsfirði, um Saurbæ, inn fyrir botn Gilsfjarðar og út með honum að norðan, að' mörkum Geirdals og Reyk- hólasveitar. Viða á þessari. löngu leið er allerfitt ýfirferð ar á vetrum og seinfarið, og var það að visu einnig á .sumn til skamms tíma. Það kom sér því vel, að sér Ásgelr var fré, bærlega ötull ferðamaöur æðrulaus og úrræðagóður, hvernig sem veöur og færð' var. Lét hann jafnan sem ekk. ert væri, þó að hann fengi. hverja erfiða ferðina á .fæt- ur annarri. Átti’hann Qg,.jafi. an góða hesta og kunni .a’ei með þá að fara. Árið 1920 var séra Ásgeiv skipaður prófastur í Ðaia prófastdæmi og gengdi hanr.. því starfi síðan meðan hani. þjónaði í embætti. Mörg störf hlóðust á,:sén- Ásgeir, auk preststarfs'ns. Ei' .þar sérstaklega til að neín.a. að hann gerðist forvígismuð ■ ur um samvinnumál í héraði Formáður og framkVæmda- stjóri Kaupfélags Hyamihs- fjarðar -var hann 1910—-191* *9. 'en endurskoðandi þess 1921 .—1944. Árið 1920 .gekkst ham fyrir stofnun Kaupfélags Stykkishólms og var formað- ur- þess fyrstu 5 árin. Kom þv. ,í hans hlufc- brautryðjánda- starfið með hinum marghatv. uðu erfiðleikum, sem 'öhja- kvæmilega eru samfará bkr- áttunni fyrir þvi að koma vu tækum hagsmunamáium' „1- ■ men'nings í fast og örúggv. horf skipulags og íram- kvæmda. Verður þá oít að' sigla milli skers og bárö, er- meðal þeirra, sem ekki háld.a um stjórnvölinn sjálfir. vih. oft, sem vonlegt er. bresta á. um skilning á því, hversu vandfarin leiðin.er. En -sáíji-* vinnumálum Breiöfirbingv fylgdi sú gæfa, að erfiðiéik- arnir. reyndust él ein. ■ Eelágs samtök þeirra unnu bug! á toi færum byrjunarstigsihs' og" stóðust harðar raunir kreppu áranna. Nú eru kaupfélögin £ Búöardal og í Stykkishólmi öflug fyrirtæki, sem annasi; mikinn eða mestan hluU, (Framhald á 6. síðu). p

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.