Tíminn - 19.01.1949, Side 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 19. janúar 1949.
13. blað
'Jrá kafi til keila
í nótt:
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, simi
5030. Næturvörður verður í Inólfs
apóteki, sími 1330. Næturakstur
anast Hreyfill, sími 6633.
Útvarpið
f kvöld.
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.00 Fréttir. 20.30 Kvöldvaka a)
Oscar Clausen rithöfundur flytur
erindi: Þegar tuthúsið var reist í
Skólavörðuholti. b) Steingerður
Guðmundsdóttir leikkona les kvæði
eftir Einar Benediktsson. c) Upp-
lestur: Þjóðsögur. Ennfremur tón-
leikar. 22.00 Fréttir og veðurfregnir
22.05 Óskalög. 23.00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Esja fer frá Reykjavik kl. 20 í
kvöld vestur um land í hringferð.
Hekla er í Álaborg. Heröubreið er
væntanleg til Akureyrar í dag.
Skjaldbreið er í Reykjavík. Súðin
var á ísafirði í gær á suðurleið.
Þyrill er í Reykjavík. Hermóður
var. á Patreksfirði í gær á norður-
leið.-Sverrir er á Breiðafirði.
Einarsson & Zoega
‘ Foldin er væntanleg til London í
kvöld. Lingestroom er væntanlegur
til Færeyja annað kvöld. Reykjanes
er á Vestfjörðum lestar saltfisk til
Grikklands.
Sambandið.
Hvassafell er á Skagaströnd og
lósar timbur. Vigör fór til Ný-
fundnalands í gær.
undanfarna daga úr öllum sveitum
nema Mýrdal, en ekki frá ýmsum
einstökum bæjum.
Útkoma Tímans.
Blaðið gat ekki komið út í gær
vegna. rafmagnsleysis. Prentvélarn-
ar, sem allar ganga fyrir rafmagns
afli, stóðu kyrrar mestan hluta
dagsins í fyrradag og alltaf öðru
hvoru í gær. Var rétt með naum-
indum að tókst að ko|na þessu
blaði út.
Söngskemmtun.
Hinn dáði söngvari Guðmundur
Jónsson syngur í Gamla Bíó í kvöld
Hefst söngurinn kl. 7. e. h. og má
búast við að bekkir verði þétt
setnir eins og venjulega, þegar
þessi söngvari lætiu heyra til sín.
Landsdómarar.
Eftirfarandi hefir Tíminn verið
beðinn að birta:
„Að gefnu tilefni skal það tekið
íram að hér • á landi eru engir
landsdómarar í frjálsíþróttum lög-
legir, nema stjórn Frjálsíþrótta-
sambands íslands hafi staðfest þá.
Stjórn Frjálsíþróttasambands ís-
land“.
Að vestan.
íslendingarnir vestan hafs eru
duglegir að skrifa og gefa út bæk-
ur, þó að þeir séu ekki fjölmennir
og enskan herði að þjóðarbrot-
inu frá öllum hliðum. Sig. Júl. Jó-
hannesson segir frá í nýútkominni
Heimskringlu, að nú fyrir jólin hafi
komið út stór bók i Winnipeg (175
bls. í gríðarstóru broti), sem er
saga Álftavatns- og Grunnavíkurs-
byggðar, gefin út í tilefni af 60 ára
afmæli byggðarinnar. Bókin er rit-
uð af 25 mönnum með ágætum frá-
gangi og kostar aðeins tvo dollara.
Þeir eru segir landarnir vestra.
U. M. F. Njarðvíkur
er ekki i U. M. F. I. og ekki kunn
ugt um að það sé neitt í ætt við
venjuleg Ungmennafélög.
Flugferðir
FJugfélag íslands.
Guilfaxi var í Gander í gær. í
dag árdegis átti hann að fara til
Prestvíkur og Kaupmannahafnar.
hafi Gullfaxi ekki farið í nótt, þá
var ráðgert að Geysir færir í hans
stað þessa ferð til Prestvíkur og
Kaupmannahafnar með 40 farþega.
Árnað heilía
Hjónabönd.
Séra Bjarni Jónsson gaf saman í
hjónabanl um s. 1. helgi ungfrú
Guðnýju Sigfr. Jónsdóttur, Baldurs
götu 9 og Símon Þorgeirsson járn-
smið.
Einnig ungfrú Sigrúnu Pálsdóttir
Fóssvogsbletti 18 og Hjört Hjartar
son sjómann.
Séra Jakob Jónsson gaf saman í
hjónaband á sama tíma ungfrú
Ingibjörgu Þórðardóttur og Ingvar
Björnsson. Heimili Skeggjagötu 19.
Trúlofanir.
Nýlega hafa kunngjört hjúskap-
arheit sitt ungfrú Björg Einarsdótt
ir, Skipholti 27 Rvík. og Sigurður
Björnsson frá Búrfelli í Grímsnesi,
nú að Snorrabraut 22, Rvík.
Einnig hafa kunngjört hjúskap-
. arheit sitt ungfrú Guðrún Mganús
dóttir, Fálkagötu 14. Rvík. og Ás-
geir Ásgeirsson stud pharm. frá
Flateyri.
Úr ýmsum áttum
Nóg mjólk.
Búist er við að nóg mjólk veröi
á markaönum í dag. þótt snjór sé
nú orðinn allmikill víða og heiðar-
vegir ófærir.
Mjólkurbifreiðarnar komust næst
um óhindrað Krýsuvíkurveginn í
gær með mjólkina að austan. Voru
þær um fjóra klukkutíma á leið-
inni frá Selíossi til Reykjavíkur.
Var dálítill þæfingssnjór hjá Kleif
arvatni og Hlíðarvatni.
Austanfjalls heíir mjólkin náðst
A Lonely Heart's Club?
I Ytri-Njárðvík eru á hverju
laugardagskvöldi og oftar haldnar
skemmtanir, sem eru þjóðinni til
vansæmdar. Skemmtanir þessar
eru aðallega sóttar af erlendum
starfsmönnum af Keflavíkurflug-
velli og ungum stúlkum, sumum
vart" af barnsaldri. Þarna er aug-
lýst, að ölvun sé bönnuð, en samt
virðist vera þar gnægð bjórs og á-
I fengis, sem ekki er ættaö frá Á-
I fengisverzlun ríkisins, og margir
| gerast vel drukknir, er líður á
kvöldið. Enska er höfuðmálið
Gaddavírsgirðing, sem er um flug-
völlinn á blettum, hefir verið
rifin niður við samkomuhúsið, þar
sem þessar skemmtanir eru haldn-
ar, og planki lagður yfir skurð,
sem þar er. Nefnist þetta „the
women gate“, og hefir verið lagður
að því sérstakur vegur af aðal-
braut flugvallarins. Þegar skemmt-
unum lýkur halda hinir erlendu
menn með veiðifeng sinn í gegnum
„the women gate“, stíga upp í bíla,
er bíða innan við þaö, og fara með
hann til bækistöðva sinna til fulln-
aðarverkunar.
Þetta er útdráttur úr bréfi, er
bílstjóri sendi Tímanum og birtist
hér í þessum pistlum fyrir tíu dög-
um. Miklar sögur höfðu lengi geng-
ið af samkomum þessum, og voru
þær mjög á sama veg og lýsing
bílstjórans. Meginkjarni þessa orð-
’ róms og svo bréfs bílstjórans er sá.
'að þeir, er að þessum samkomum
1 standa, hafi í gróðaskyni efnt til
skemmtana, er byggjast fyrst og
fremst á því að koma á undirbún-
ingskynnum milli útlendinganna og
stúlkna, er fást til þess að
koma á þessar samkomur. Hefir
það fengið að vonum misjafna dóma
að gera sér slíkt að féþúfu, ekki
sízt þar eð tvö félög standa að þess
ari starfsemi, æskulýðsfélag og kven
félag, auk þess sem ýijiislegt fleira
þykir óviðkunnanlegt og sögulegt í
sambandi við þessar skemmtanir.
Nú hefir mér borizt bréf frá Ólafi
Sigurjónssyni, formanni Ung-
mennfélags Njarðvíkur, og Valgerði
Pálsdóttur af hálfu Kvenfélags
Njarðvíkur. En þessi félög eru það,
sem standa fyrir starfseminni í um
ræddu samkomuhúsi, „Krossinum",
sem svo er kallað. Birtist bréfið hér.
„Sem svar viS grein í blaði yðar
undir nafninu „Johny gamli er
voða krútt“. skal eftirfarandi
fram tekið. Fólk hér er mjög undr-
andi yfir því að nokkurt blað skuli
ljá slíkum tilhæfulausum róg-
greinum rúm.
Hinar raunhæfu orsakir fyrir
reiði bílstjórans munu vera þær að
félögin tóku þá ákvörðun að banna
áfengi jafnt gegn erlendum sem
innlendum mönnum. Þessu til ör-
yggis var um leið bannað að bíl-
stjórar gætu hindrunarlaust ráf-
að út og inn eftir að húsinu var
lokað, urðu þeir þá að lúta sömu
reglum og aðrir. Þessar ráöstafan-
ir höfðu þær afleiðingar að lítið
bar á áfengisnotkun. En líklegt þyk
ir að atvinnuskilyrði bílstjóranna
hafi reynzt erfiðari eftir þessar
ráðstafanir.
Þar sem segja má að hvert atriði
í bréíi bílstjórans sé ósannindi og
hinn illgjarnasti rógur í garð félag
anna er standa að Samkomuhúsi
Njarðvíkur og fólks hér yfirleitt.
Við sjáum okkur ekki annað fært
en að höfða mál gegn bílstjóranum
og gefa honum kost á að verja sinn
málstað fyrir dómstólunum."
„Segið ekki frá því í Gat, kunn-
gjörið það eigi á Askalon-stræt-
um,“ sagði Davíð konungur eftir
atburðina á Gilbóafjalli: — frjarð-
víkingar munu lika kjósa, að hljótt
sé um meðalgöngustarf sitt.
í bréfinu virðist einna helzt gefið
i í skyn, að hér sé aðeins um eins-
konar sakleysislegan „lonely heart’s
j club“ að ræða. En slíkar stofnanir
standa með miklum blóma í ýms-
I um stórborgum Ameríku og eru
1 einkum reknar til hagsældar og
j hugarhægðar öldruðum konum, er
' orðið hafa utan gátta í tilverunni.
i En vonandi verður seinna tæki-
1 færi til þess að kanna betur, hvor
aðilinn, bílstjórinn eða forsvars-
menn kvenfélagsins og ungmenna-
félagsins í Ytri-Njarðvík, hafa gef-
ið sannari lýsingu á ástandinu í
„Krossinum.“
Ég hefi gefið bílstjóranum kost
á að sjá svarið frá eigendum „Kross
ins“. Á þessu stigi málsins vill hann
engu við bæta frá sínu brjósti, öðru
en því að málsókn sé honum kær-
komið tækifæri til þess að leiða í
ljós ýmislegt, sem vert sé, að al-
þjóð viti um, og sumt hefir enn
legið í þagnargildi.
J. II.
BLANDAÐIR AVEXTIR
KVÚLDSÝNING
Vegna fjölda áskoranna verður sýning í Sjálfstæöis-
húsinu í kvöld, (miðvikudaginn) kl. 8,30.
Aðgöngumiðar seldir í Sjálfstæðishúsinu frá kl. 2 í
dag. Sími 2339. — Dansað til kl. 1.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiniuiimiiiiHmiiiiHiiimmiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiir
Guðmundur Jónsson bariion: \
+Söne^óh i
*em
mh
un
\ í Gamla Bíó miðvikud. 19. jan. kl. 7 síðd. stundvíslega. |
Við hljóðfærið: Fritz Weisshappel.
I Aðgöngumiðar í Bókabúð Lárusar Blöndal og Hljóð- 1
§ færaverzlun Sigríöar Helgadóttur. i
................iiiii...............................
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦$♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦$♦♦♦$♦♦♦♦♦}♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
'♦♦♦♦♦♦♦♦<
•♦♦♦♦♦♦
Skaftfellingafélagið í Reykjavík |
♦♦
í:
heldur skemmtifund að Röðli föstudaginn fyrstan í ♦♦
♦♦
:: Þorra 21. janúar n.k. — Skemmtiatriði: Félagsvist og «
♦♦ dans. — Húsið opnað kl. 20. Spilað frá 20.30 til 22.15. H
♦♦ JJ
:: Dans til kl. 1. — Mætið stundvíslega.
♦t H
:: Skaftfellingafélagið. ♦♦
Nokkrar konur
veröa ráðnar til starfa við barnaleikvelli Reykjavíkur-
bæjar. Umsóknir um starfið skulu sendar til garðyrkju-
ráðunauts Reykjavíkur, Hafnarstræti 20, fyrir 30. þ. m.
Viðtalstími kl. 1—2.30 virka daga, nema laugardag, og ♦
gefur hann allar nánari upplýsingar. ^
Borgarstjórinn í Reykjavílc. §
és
f *•
::
::
::
::
a
: ♦♦
:«
I ♦♦
::
REYKJAVÍK - NEW YORK
♦♦
♦♦
Flugferð verður til New York fimmtud. 27. janúar.
Væntanlegir farþegar hafi samband við skrifstofu «
- ♦♦
U
::
♦♦
♦♦
::
:t
::
vora sem fyrst.
::
♦♦
H
♦♦
::
♦♦
♦♦
8
::
♦♦
U
::
♦♦
H
::
♦♦
♦♦
::
1
Sími 81440.
EINARSSON & ZOÉGA
Reglubundnar hálfsmánaðar ferðir frá Genoa og Liv-
orno til Amsterdam. Næstu feröir s/s Luna 27. þ. m. og
s/s Thesens 10. febrúar.
Umboðsmenn í Genoa:
Christoforo David, pósthólf 445
Umboðsmenn í Livorno:
L. V. Ghianda, pósthólf 70.