Tíminn - 19.01.1949, Qupperneq 8
33. árg.
Reykjavík
19. jan. 1949.
13. blað
150 'pós. doliara 1 k
arastóls í ísle
30. ársþing Þjóðræknisfélagsins í næsta
mánisði
Þrítujasta ársþing Þjóðræknisfélags íslendinga í Vest-
ufheimi verður haldið í Winnipeg dagana 21.—23. febrúar
næstkoraandi. Mun verða efnt til sérstakra hátíðahalda í
sambanai við þetta þing af því tilefni, að stofnað hefir verið
til kennarastóls í íslenzkum fræðum við Manitóbaháskóla.
evin
rsiu m Paiestínumá
Slevin telnr eklii Iseppilegt að ræða íbsjsi inál
Biá en kveðst ræða fsan í næstn viku
Á fundi neðri deildar brezka þingsins í gær kvaddi Churc-
hill sér hljóðs og krafðist þess fyrir hönd stjórnarandstöð-
unnar, að Bevin skýrði þinginu frá gangi Palestínumálanna
síðustu dagana.
íslendingum í Vesturheimi
hefir lengi verið það mikið
áhugamál, að hafin yrði
kennsla í íslenzkum fræðum
við Manitóhaháskóla, og
munu þeir styrkja þessa starf
semi með 150 þúsund dollara
framlagi.
Thor Thors sendiherra og
frú hans hefir verið boðið að
verða heiðursgestir á hinu
þrítugasta ársþingi Þjóðrækn
isfélagsins og taka þátt í há-
tíðahöldunum vegna stofn-
unar kennarastólsins.
Þetta er Ibrahim Afcdel Hadi Pasha,
sem varð forsætisráðherra Egipta-
lands nýlega, er hinn fyrri var
myrtur.
Hollendingar viður-
kenna illa meðferð
á indónesískum
föngum
Hollendingar hafa játað, að
forustumenn indonesíska lýð
veldisins, sém handteknir
voru í byrjun innrásar hol-
lenzku hersveitanna, hafi
sætt óhæfilegri meðferð og
illum aðbúnaði.
Hins vegar kveðst Hollands
stjóm hafa skipað svo fyrir,
að sendir verði menn frá
Batavíu til eyjar þeirrar, þar
sem sjálfstæðishetjurnar ind-
ónesísku eru i haldi, og beri
þeim að sjá um, að búið verði
þolanlega að föngunum.
Eins og kunnugt er, eru nú
liðnar margar vikur síðan
öryggisráðið skipaði Hollend-
ingum að láta hina indónes-
ísku stjórnmálamenn lausa.
En það hafa þeir að engu
haft, líkt og fleiri fyrirskip-
anir þess, enda engum réfsi-
aðgerðum verið beitt gegn
þeim af hálfu S.Þ.
Góðar samkomu-
lagshorfur á
Rhodos
Á sáttáfúndi Egipta og Gyð
inga á Rhodos hefir nú náðst
fullkomið samkomulag um
það að senda heim 250 sjúka
og sára hermenn af hersveit
um þeim, sem Gyðingar hafa
haldið í herkví í Negeb. Verða
þessir hermenn sendir heim
á morgun og er undirbúning-
ur að því þegar hafinn.
Síld veiðist á Akur-
eyrarpolli
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri.
Þegar veður hefir leyft,
heíir Valtýr Þorsteinsson,
útgei’ðarmaður látið báta
sína leita síldar í Pollinum
við Akureyri, og hefir fundizt
þar nokkuð af millisíld. Veður
hefir þó oftast verið óhag-
stætt til veiða, þar sem skipzt
hafa á frosthörkur og þíður.
En síðan á föstudag hefir vél-
báturinn Garðar frá Rauðu-
vík stundað síldveiði á Poll-
inum innan við Oddeyrar-
tanga og hefir hann aflað
þessa daga 135 tunnur milli-
síldar. Er talið, að eitthvað sé
af síld þarna og verður reynt
að halda veiðum áfram.
Alfabrennu skáta-
félaganna frestað
Skátafélögin í Reykjavík
hafa ákveðið að efna til álfa-
hrennu á íþróttavellinum í
Reykjavik, eins og þau hafa
oft gert áður eftir áramótin.
Hafði verið ráðgert að brenna
færi fram í kvöld. Vegna
snjókomu og óhagstæðra veð
urskilyrða varð þó að hverfa
frá þessu, og mun brennan
verða jafnskjótt og veður
leyfir einhvem næstu daga.
Verður brennan þá auglýst.
Ákveðið er að Ólafur Magn-
ússon frá Mosfelli verði álfa-
kóngur, en hann hefir áður
gegnt því hlutverki. Álfa-
drottning verður Lillý Gísla-
dóttir. Álíabrennan mun
hefjast með leik Lúðrasveit-
Reykjavíkur kl. 8, en völlur-
inn verður opnaður kl. 7. Er
nauðsynlegt að fólk hafi
tryggt sér aðgöngumiða áður
til þess að .forðast troðning við
innganginn.
Bálkösturinn á að verða
stærri og efnismeiri en
nokkru sinni fyrr og þarna
koma fram álfar, hirðmenn,
fífl, púkar, grýla, leppalúði,
risi, jólasveinn o. fl. Kynnir
verður Guðbrandur Jónsson
prófessor.
Aðgöngumiðar verða seldir
á eftirtöldum stöðum: Verzl.
Halldórs Eyþórssonar, Víði-
mel 19, Bækur og ritföng,
Áusturstr. 1, Ritfangaverzlun
ísafoldar í Bankastræti,
Verzluninni Áhöld, Laugaveg
18, Skátaheimilinu, Snorra-
Stjórn Suður-Kóreu
viðurkennd
Lýðveldisstjórnin í Suður-
Kóreu hefir nú hlotið viður-
kenningu ýmissa ríkja fyrir
sjálfstæði landsins og eru
þar á meðal Bandaríkin og
Kína. Eru þessar viðurkenn-
ingar gerðar samkvæmt gerð-
um Öryggisráðsins og alsherj
arþings S. Þ.
Bevin svaraði því,_að brezka
stjórnin teldi ekki hepþilegt
áð ræða þau mál nú og bæri
einkum tvennt tii'. Annað
væri það, að sáttafundur Gyð
inga og Egipta stæði nú yfir
á Rhodos og virtis ætla að
gefa góðan árangúr, og það
gæti spillt samningum þar,
ef harðar deilur ættu sér stað
um Palestínumálin í brezka
þinginu nú. Einnig kvað hann
það hafa orðið samkomulag
Breta og Bandaríkj amanna
að láta uppgjör þessa máls
bíða, unz sáttafundinum á
Mænuveiki breiðist
ekki út á Húsavík
Mænuveikin hefir lítið sem
ekkert breiðzt út í Húsavík
að undanförnu. Aðeins er tal-
ið fullvíst um eitt tilfelli, en
sumir álíta þó, að um fleiri
geti verið að ræða. Veikinnar
hefir heldur ekki orðið vart
að neinu ráði í sveitum Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Samkomu
bann er þó í Húsavík, en skól-
ar starfa.
Veðurfar hefir verið frem-
ur umhleypingasamt þar und
anfarið en þó ekki mikil snjó-
koma. Bílfært er fram í
Reykjadal en ekki til Akur-
eyrar. Einnig var óbílfært upp
yfir Mývatnsheiði í gær, en
búizt við að það mundi lag-
ast bráðlega.
Ný sarabandslög
Í.S.Í.
Þessi félög hafa nýlega
gengið í íþróttasamband ís-
lands: Ungmennasamband
Vestur-Skaftfellinga (U.V.S.)
hefir nýlega gengið í í. S. í.
Formaður sambandsins er
Estra Pétursson, héraðslækn-
ir. Þessi félög eru í U.V.S.:
Umf. Meðallendinga, Meðal-
landi, Umf. Ósk, Hörglands-
hreppi, Umf. Óðinn, Hörg-
landshreppi, Umf. Ármann,
Kirkjubæjarhreppi, Umf. Blá
fell, Skaftártungu, Umf. Svan
urinn, Álftaveri. Félagatala
U. V.S. er um 130 félagsmenn.
Nú eru í Í.S.Í. 22 héraðssam-
bönd, með um 23150 félags-
menn.
braut 60, Ræsi h. f., Bóka-
búð Laugamess og ef til vilj
víðar. Verður tilhögunar og
miðasölu nánar getið þegar
ákveðiö hefir verið, hvenær
brennan fer fram.
Leikfélag Hafnar-
fjarðar starfar
: Svvar R. Kvaran ráð
iim leiðbemandi hjá
því
Leikfélag Hafnarfjarðar
hefir nú fyrir nokkru hafið
starfsemi sína. Hefir félagið
ráðið Ævar R. Kvaran til
þess að setja á svið tvö leik-
rit í vetur.
Fyrra leikritið, sem sýnt
verður, er „Gasljós" (Gas-
light), eftir enska rithöfund-
inn Patrick Hamilton. Er
þetta mjög þekkt leikrit, sem
sýnt hefir verið við geysi-
mikla aðsókn í Lóndon og
New York. Það hefir einnig
verið kvikmyndað og var sýnt
hér fýrir nokkrum árum með
Charles Boyer, Ingrid Berg-
man og Joseph Cotton í aðal-
hlutverkunum. Sömuleiðis
var leikritið sýnt hér í Tri-
poli-leikhúsinu á hernámsár-
unum af ameríska setuliðinu,
og lék frú Inga Laxness aðal
kvenhlutverkið. Leikurinn
var þá leikinn á ensku. Hefir
Inga Laxness einnig leikið
sama hlutverk í London.
Leikstjórinn, Ævar R. Kvar
an, fer jafnframt með eitt
aðalhlutverkið. Frú Inga
Laxness og Jón Aðils leika
einnig sem gestir hjá L. H. í
þessu leikriti. Aðrir leikendur
eru hafnfirzkir. Inga Laxness
hefir snúið leikritinu á ís-
lenzku.
Sýningar á „Gasljósi“ munu
sennilega hefjast um eða eft-
ir næstu mánaðamót.
Þá hefir L. H. í undirbún-
ingi sýningar á revýu eftir
Jón snara. Ér revýan ný af
nálinni, og þó elcki alveg full-
samin enn, eins og vera ber
um revýur. Gerist hún á þess-
um alsíðustu og beztu tímum
skömmtunar og svartamark-
aðs og tekur til meöferðar
ýmis fyrirbæri líðandi stund-
Rhodos væri lokið. Kvað hann
mikils að vænta af þeim
fundi.
Hins vegar kvaðst hann
mundi gefa þinginu skýrslu
um þetta mál í næstu viku
og svara þá um leið árásum,
sem beint hefði verið að
stjórninni í þessum málum.
.Churchill tók síðan til máls
og deildi hart á stjórnina fyr-
ir aðgerðir hennar í Palestínp
málunum. Þegar málið kæmi
fyrir þingið í næstu viku,
kvaðst hann mundi bera fram
fyrirspurn um það, hver bæri
ábyrgðina á því, að fimm
brezkar flugvélar týndust i
könnunarflugi við landamæri
Palestínu.
Bevin lýsti því yfir, að Bret
ar hefðu ekkert herlið sent
til Palestínu, en orðið að
senda hjálparlið til Trans-
j órdaníu vegna samninga
sinna við það ríki. Hins veg-
ar fullvissaði hann þingið um
það, að brezka herliðið mundi
aldrei taka þátt í árásarstríði
á Palestínu.
Olíuskip verður
fyrir áfalli
Oliuskipið Latia, er var á
leið tii landslns frá Suður-
Ameríku með olíufarm til
Shellfélagsins, varð fyrir á-
falli á sunnudaginn. Mun
stjórnpallur skipsins hafa
laskazt og stýrisbúnaður
skemmzt. Latis er enskt skip.
Það var væntahlegt til hafn-
ar í Reykjavík í nótt.
ar. Er þráðurinn sá, að frúin
hans Jóns gamla bónda er að
reyna að koma honum til fyr
irheitna landsins, Ameríku,
en það viil ganga brösótt, eins
1 og gengur. Annars fer leikur-
inn að mestu fram á sumar-
gistihúsi uppi í sveit, og kem-
ur þar margt til greina. Revý
unni hefir að vandlega at-
j huguðu máli verið valið nafn-
ið Gullni vegurinn.
Ævar R. Kvaran mun setja
revýuna á svið, en allir leik-
ararnir verða annars Hafn-
firðingar. Er þegar ráðið i öll
aðalhlutverkin, en stjórn leik
félagsins vill beina því til
ungs fólks í Hafnarfirði, sem
! áhuga hefir á leiklist, að enn
þá er óráðstafað í nokkur
aukahlutverk. Þarf þetta
unga fólk auðvitað að geta
sungið eitthvað, eða að
minnsta kosti raulað, því að
vitanlega er fullt af söngvum
í revýunni. Æfingar eru um
það bil aö hefjast.
Stjórn L. H. skipa nú: Sig-
urður Gíslason, formaður,
Stefán Júlíusson, ritari og
Hjörleifur Gunnarsson gjald-
keri.