Tíminn - 22.01.1949, Blaðsíða 8
33. árg.
Reykjavík
22. jan. 1949.
15. blað
Kai-shek tekur
hvíld frá störfum
Fjögurra mamia nefud seiul tll sainninga
við uppreisHarmenit
í gær tilkynnti Chiang Kai-shek, forseti Kína, að hann
mundi taka sér hvíld frá störfum og leggja niður forseta- |
völd um stundarsakir. Varaforsetinn tekur nú við völdum, :
og hefir verið send fjögurra manna nefnd til samninga við
uppreisnarmenn.
Chiang Kai-shek hélt sér-
stakan ráðuneytisfund í gær
og tilkynnti stjórninni þessa
ákvörðun sína. Hann kvaðst?
þó aðeins leggja niður völd-
in um stundarsakir og væri
það tilraun sín til að gera
friðarsamninga við uppreisn-
armenn auðveldari og firra
þjóðina meira böli af völdum
borgarastyrjaldarinnar. Hann
gaf út ávarp til kínversku
þjóðarinnar þar sem hann
segist hafa barizt gegn inn-
rás Japana í Kína unz sigur
var unninn, en hann hafi ver
ið andvígur borgarastyrjöld
og vilji nú leggja sín lóð á
metaskálarnar til þess að
binda endi á hana.
í gærmorgun fór hann flug
leiðis til fæðingarbæjar síns
Fenghwa sem er um 100 míl-
ur frá Nanking og hyggst
dveljast þar um skeið.
Li Tsung-jen varaforseti
tekur nú við völdum og er að-
’alverkefni hans að leita um
sættir við uppreisnarmenn.
Sun Fo hefir og beðizt lausn-
ar fyrir ráðuneyti sitt og er
það gert til þess að gefa for-
setanum frjálsar hendur um
stjórnarval í samræmi við
stefnu þá, sem taka verður í
friðarsamningunum við upp-
reisnarmenn. Talið er þó víst
að ráðuneyti Sun Fo muni
starfa áfram.
Fjögurra manna nefnd hef
ir nú verið send af stað til
friðarsamninga við upppreisn
armenn, en líklegt er talið, að
kommúnistar vilji ekki semja
um vopnagrið fyrr en friðar-
ráðstefna er setzt á rökstóla.
Ný tillaga um Indó-
nesíumálm í Örygg-
isráðinu
Öryggisráðið hélt fund í
Lake Success í gær og ræddi
Indónesíumálin. Var þar bor-
in fram af nokkrum ríkjum
tillaga í þessum málum. Var
hún þess efnis að öryggisráð-
ið setti á stofn bráðabirgða-
stjórn í Indónesíu fyrir 15.
marz n. k. Skyldi sú stjórn
undirbúa frjálsar kosningar
til stjórnalagaþings, og færu
þær kosningar fram í okt. n.
k. Síðan yrði .gengið endan-
lega frá stofnun Bandaríkja
Indónesíu sem sjálfstæðu og
fullvalda ríki og yrið það stofn
að eigi síðar en 1. júlí 1950.
Þá kvað tillagan einig svo á,
Hollendingum skyldi skipað
að láta tafarlaust lausa alla
stjórnmálafanga Indónesa,
er þeir hafa nú í haldi.
Bretar fá ef tirstöðv-
ar dollaralánsins
í Kanada
Kanada hefir nú tilkynnt
Bretum, að þeir geti fengið
eftirstöðvar dollaralánsins,
sem Kanada lofaði þeim.
Neyddist Kanada til þess þess
að frysta eftirstöðvar lánsins
í fyrra, þar sem dollaraskort-
ur var þá orðinn í landinu
sjálfu. Eiga Bretar nú að fá
10 millj. dollara á mánuði
unz eftirstöðvar lánsins, sem
eru 275 millj. dollara eru all-
ar greiddar af hendi.
Finnur Jónsson
hættir í Fjár-
hagsráði
Finnur Jónsson eru um þess
ar mundir að hætt störfum
sínum í Fj árhagsráði, þar sem
Innkaupastofnun ríksins,
sem hann verður forstjóri fyr
ir tekur senn til starfa. í stað
Finns tekur Óskar Jónsson
sæti i Fjárhagsráði.
Jólin eru ekki haldin hátiðleg i
Moskvu, en í þess stað eru ára-
skiptin haldin hátiðleg með ann-
ars með því að búa til stóra jóla
sveina á götum úti eins og þessi
mynd sýnir, sem tekin er í Moskvu
Kári Sigurjónsson
hreppstjóri í Tjör-
neshreppi látinn
Á miðvikudaginn var lézt
að Hallbjarnarstöðum á Tjör
nesi Kári Sigurjónsson hrepp
stjóri og fyrrum alþingismað
um. Minntist forseti Alþingis
þessa mæta manns, er þingið
kom saman i gær. Kári var á
74. aldursári. Hann bjó allan
sinn búskap á Hallbj arnarstöð
um og þótti hinn mætasti
maður, margfróður og víðles-
inn. Hann var landkjörinn
þingmaður og sat á aukaþingi
árið 1933.
Ræða Trumans:
Bandaríkin munu beita sérí
fyrir eflingu S. Þ.
Efnahag'sleg viðreisii lýðræðisríkjanna
skilyrði f riðar í heiminnm
Truman forseti Bandaríkjanna vann embættiseið sinn í
Washington í- fyrradag. Voru mikil hátíðahöld í Bandaríkj-
unum þann dag og voru um 130 þús. manns viðstödd hátíða-
höldin í Washington en milljónir manna horfðu á þau í
sjónvarpi. Er Truman hafði unnið embættiseiðinn ávarpaði
hann þingið og ræddi einkum utanríkismál og stefnu Banda
ríkjanna í þeim.
Hann drap á fjögur megin-
atriði í ræðu sinni, er hann
sagði að Bandaríkin mundu
leggja áherzlu á. Hið fyrsta
var það að efla Sameinuðu
þjóðirnar eftir mætti og gera
þær að áhrifamiklu valdi í
þróun heimsmálanna. Hann
sagði einnig að Bandaríkin
mundu beita sér enn meir að
efnahagslegri endurreisn með
al lýðræðisþjóða Evrópu á
sama grundvelli og Marshall-
hjálpin markaði. Þá drap
hann einnig á varnir lýðræð-
isríkjanna og nauðsyn varnar
bandalaga þeirra er komið
gætu í veg fyrir styrjöld og
hindrað árásir á þau. Að lok-
um lagði Truman áherzlu á
það, að Bandaríkin hjálpuðu
þeim þjóðum, sem skemmra
væru á veg komnar í tækni og
iðnaði til þess að auka fram-
farir sínar 1 þessum efnum.
Truman ræddi einnig nokk
uð um utanríkisstefnu Rússa
Um 1000 bifreiðar nutu ið-
gjaldaafsláttar hjá Sam-
vinnutryggingum s.l. ár
Verðskuldaðat’ ha^shætur handa gætiinm
hifreiðarstjórum og' hvatning' til meira um-
ferðaöryíígis
Þegar Samvinnutryggingar hófu starf, tóku þær upp þá
nýbreytni að gefa afslátt af tryggingaiðgjaldi þeirra bif-
reiða, sem enga skáðabótaskyldu orsökuöu í eitt ár eða fleiri.
Á s.L ári fengu um 1000 bifreiðar afslátt samkvæmt þessu og
nam lækkun iðgjaldanna alls um 40 þús. kr.
Það lætur nærri að um 60%
þeirra bifreiða, sem tryggðar
voru hjá Samvinnutrygging-
um á s.l. ári nytu þessarar
lækkunar, og er hún hvort
tveggja í senn verðlaun til
þeirra bifreiðastjóra, sem
ekki orsaka neina skaðabóta-
skyldu á árinu og einnig á-
vöxtur af samtökum til hags-
bóta fyrir bifreiðastjóra
sjálfa. Það eru gætnu og ör-
uggu bílstjórarnir, sem hér
njóta verðugra hagsbóta, og
ætti það að hvetja til meiri
varfærni og skapa meira um-
ferðaöryggi.
Iðgjaldaafsláttur þessi er
framkvæmdur þannig, að bif
iiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiitiiiiiKiiiaiiiiiiiiiiMiiiiniMiiif
| Reykvíkingar |
! mega þakka Krýsu!
Ivíkurveginum ríf-|
| legri mjólkur- I
| skammt í dag I
1 Í gær komust mjólkurbíl i
! arnir úr sveitum austan \
1 aðeins eftir Krísuvíkurv. til!
| Reykjavíkur. Komu átta \
| bílar úr Ölfusinu með I
| 24000 lítra, svo að mjólkur |
| skammtur Reykvíkinga er í
1 nú rýhri í dag. Krísuvíkur I
| vegurinn var víðast hvar i
! greiðfær í gær og þurfti \
| hvergi að ryðja nema lítils 1
| háttar hjá Kleifarvafni. g
| Hjá Hlíðarvatni var nokk- i
1 ur snjór, en bílarnir kom- |
| ust þar um hjálparlaust. i
| Þó var snjórinn svo mik- 1
g ill í Ölfusinu, að bílarnir f
I urðu að láta snjóýtu ryðja |
| veginn á undan sér til I
i Hveragerðis og mjög erfið- |
i lega gkk að ná mjólk til i
i Flóabúsins af láglendinu i
| hvað þá úr uppsveitum. f
| Bæði Hellisheiði og Mos- \
\ fellsheiði eru nú ófærar og i
| er það því Krísuvíkurvegin i
í um að þakka, að Reykvík- \
i ingar eru ekki nær alveg i
i mjólkurlausir í dag. \
iiiiiiiiiiiiiiiii(Iiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin1111111111111
og aðfarir kommúnista í ýms
um löndum. Sagði hann að
kommúnistar virtust telja
deilumál þjóðanna óleysanleg
án styrjaldar og byggjúst þvi
við henni en lýðræðisþjóðirn-
ar tryðu hinu gagnstæða í
lengstu lög.
reið, sem ekki hefir orsakað
neina skaðabótaskyldu í eitt
ár fær afslátt, sem nemur 10
% fyrir fyrsta árið, en ef eng
in skaðabótaskylda orsakast
af völdum bifreiðarinnar
næstu ár, getur iðgjaldaaf-
slátturinn orðið 25% eftir 3
ár. Orsaki nú bifreið, sem hef
ir afslátt, bótaskyldan skaða,
fellur afslátturinn alveg nið-
ur, ef hún hefir haft 10%, en
hafi hún haft 25% lækkar
hann í 10%. Bifreið þessi hef
ir svo auðvitað tækifæri til
að vinna sig aftur upp á
næstu árum í hámark afslátt-
arins.
Þessi nýbreytni Samvinnu-
trygginga er hin merkasta og
til mikilla hagsbóta fyrir bif-
reiðastjóra, eins og árangur
síðasta árs sýnir gerla, og á
þó eftir að koma betur í ljós,
er Samvinnutryggingar hafa
starfað fleiri ár. Önnur trygg
ingarfélög hafa nú einnig
tekið upp svipað fyrirkomu-
lag, og er það fordæmi Sam-
vinnutrygginga að þakka.
Nú sem stendur eru um 2500
bifreiðar tryggðar á vegum
Samvinnutrygginga.
Skeramtifundur
Félag ungra Framsóknar-
manna heldur skemmtifund í
Eddu-húsi Lindargötu 9A í
kvöld kl. 9. Stefán Jónsson
fréttamaður mun flytja þar
ávarp, en auk þess vera mörg
ágæt skemmtiatriði.
Það er ekki að efa að þessi
skemmtifundur verður mjög
vel sóttur, og er því vissara
fyrir félagsmenn og gesti
þeirra að mæta stundvíslega.
Skíðamót íslands
fer fram á ísafirði
Ápsþing §kíðasam-
bandsins Iialdið um
leið
Ákveðið hefir verið, að
Skiðamót íslands 1949 fari
fram á ísafirði um páskana,
14.—18. apríl, og hefir Skíða-
ráð ísafjarðar verið falið að
stanáa fyrir mótinu. Formað-
ur Skíðaráðs ísafjarðar er
Guttormur Sigurbjörnsson.
Skíðaþingið, þ. e. ársþing
Skíðasambands íslands, mun
verða haldið á ísafirði í sam-
bandi við mótið.