Tíminn - 04.05.1949, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.05.1949, Blaðsíða 7
88. blað TÍMINN, miðvikudaginn 4. maí 1949. 7 Stiórnm ■ (framh. aj 6 siöu.) um ákvarðaö verð fyrir afurð ir, sem út eru fluttar. Þetta gerði þá að forminu til hreyf- anlegt gengi, sem bankarnir mundu þó í framkvæmd setja fast í byrjun og láta annað laga sig eftir því. En hvor leiðin sem farin verður, niðurfærslan eða geng isbreyting og þótt framleiðsl- an verði sett á reksturshæfan grundvöll í dag, munu menn segja sem svo, að ekki sé þar með tryggt að þeim grund- velli verði ekki þegar raskað með því að gerð verði verk- föll. Vitanlega má búast viö verkföllum, en atvinnulífið verður þá að leita jafnvægis, með því að ríkið hlypi þá ekki til og borgaði sívaxandi halla, eins og nú er gert. Það væri þá heldur ekki úr vegi að segja við þá, sem vilja stöðva útgerðina: Gjörið svo vel, hér hafið þið, bæjarfé- lög eðá' samvinnufélög sjó- manna, beztu báta og togara, sem völ er á. þið fáið réttlát leigukjör, þið fáið allt til framleiðslunnar með hag- kvæmustu kjörum, þið fáið allan þann arð, sem duglegir sjómenn, góð skip og fiski- mið geta veitt, — meira get- ur þjcðfélagið ekki boðið. — Ég hygg, að það yrði ekki auðvelt að svara svona vinnu brögðum með verkföllum, þau mundu ekki haldast lengi. — Eitt af vinnubrögð- um hins nýja kerfis er að birta nákvæmar reksturs- niðurstöður framleiðslunnar, til þess að vekja skilning og áhuga þjóðarinnar á fram- leiðslunni. Það er eitt af hin- um slysalegu vinnubrögðum, hve sáralítið hefir verið gert að því. — Að framkvæma þetta er vitanlega erfitt; það eru ó- segjanlegir erfiðleikar á því að sigrast á afleiðingum hinn ar hraksmánarlegu fjár- glæfrastefnu fyrrverandi rík isstjórnar. En það verður þá heldur eklci gert, nema byrja einhverntíma á því. Það verð ur ekki gert með því að láta hrekjast lengra og lengra undan þeim miklu erfiðleik- um og fjármálaspillingu, sem hún hefir valdið. Hér eru settar fram tillögur um að hefja þessa baráttu og byrja á réttum enda — lækka lífs- nauðsynjar alþýðunnar. Þá og þá fyrst verður framhald- ið framkvæmanlegt, þótt torfærurnar séu miklar og margar. Og ég er ekki haldinn neinum vafa um það, að með þessu móti getur þjóðin rétt við furðu fljótt. Fram- leiðslutækin á hún, hún á miklar auölindir og hefir möguleika til að afla mikilla tekna ef rétt er stefnt. IX. Nú eða um seinan. Framsóknarflokkurinn hef ir verið mjög óánægður og í mörgum greinum mótfallinn núverandi stjórnarstefnu. En flokkurinn sagði sem svo nú fyrir áramótin, þegar fram- leiðslan var að stöðvast: Við verðum að láta okkar mál víkja, samþykkja dýrtiðarlög, sem við erum óánægðir með, heldur en að framleiðslan fari í strand. Sama er sagt nú við fj-árlagaafgreiðsiuna. Þótt viö séum óánægðir með | fjármálastjórnina, verðum við að hjálpa til þess, þrátt fyrir allt, að ríkið -sé ekki fjárlagalaust. — Látum svo vera. — En nú myndast svig- rúm eftir fjárlagaafgreiðsl- una. Við eigum að segja við j samstarfsflokkana: Nú er nóg komið. Þið hafið nú dýrtíðar- lög og fjárlög, sem þið hafið aðallega ráðið. Alþýðuflokk- urinn segist hafa ráðið dýr- j tíðarlögunum og Sjálfstæðis- flokkurinn ræður aðallega < fjármálunum. Nú hafa þess-I ir flokkar auðan sj ó og. geta j siglt skútunni eins og þeir hafa markað stefnuna og eiga því að bera ábyrgð. Við | eigum að ganga hreint til verks og segja: Ef samstarfs- flokkarnir vilja ekki breyta um stefnu, að þeim leiðum,1 sem við höfum krafizt, og raktar eru nokkuð hér að framan, ef þeir vilja halda áfram á sömu braut, eigum 1 við ekki samleið með þeim. 1— Það er sjálfsagt að gefa hæfilegan umhugsunarfrest og tíma til samtala og samn- inga; — en stefna okkar verð ur að vera ákveðin, áður en þingi er slitiö, þingmenn dreifast og vor- og sumarann ir hefjast. — Ef aðrir flokk- ar kjósa að stjcrna, án okk- ar, að sínum leiðum, til 1950, þá þeir um það. Við munum þá reyna að afla stefnu okk- ar fylgis með þjóðinni þann I tíma og hvenær sem kosning ar verða — og við eigum að | mínu áliti að berjast í stjórn- arandstöðu, fyrir sigri stefnu okkar, ef hún fæst ekki tek- in til greina í höfuðatriöum I við samninga um stjórn eft- i ir kosningar. Ef á stefnu okk ar verður hins vegar faliist í I aöalatriðum, erum við jafn fúsir til þess nú þegar, eins og síðar, að taka á okkur alla ábyrgð, sem framkvæmd hennar er samfara. I Ég hefi stundum álitið, að það stjórnleysi, sem nú er, yrði að ganga sér til húðar, til þess að opna augu þjóð- arinnar. En seinustu vikurnar hefir keyrt svo um þverbak um fjármálastjórnina o. f 1., að ég álít, að það sé of dýr fórn fyrir Framsóknarflokk- inn að sitja lengur á rekald- inu, þar sem sú fórn er ber- sýnilega færð þjóðinni til litils gagns i bráð — en til mikils tjóns í lengd. Þar sem aðvaranir okkar og sú stefna, sem við höfum krafist að tekin sé, er aö I engu höfð —- rekur stjórnar- skútuna jafnt upp í brimgarð inn, þótt við séum um borð. ! Eins og annarsstaðar, þar sem svona hefir farið og allt er komið í öngþveiti. vex of- beldis- og öfgaflokkunum fylgi hraðar en flesta grun- ar fyrirfram. í slíku ástandi er þeirra jarðvegur eins og gorkúlnanna á gömlum fjós- 1 haug. — Með áframhaldandi veru okkar í svona ríkis- stjórn stuðlum við óbeint að þessum vexti og þeim afleið- ingum, sem hann hefir. Þess óskar enginn Framsóknar- maður, því síður að taka þátt í öfgafylkingunum, sem báð- ar eru okkur ógeðfelldar. Þessvegna eigum við nú að jsetja stefnu okkar á odd í ; rikisstjórninni og gefa þjóð- inni tækifæri til að dæma um hana, til hvers sem það leið- ir. Með því einu getum við „ESJA" vestur um land í hringferð hinn 6. þ. m. Öllu lestarrúmi skipsins er þegar ráðstafað. Pantaðir farseðlar óskast sótt ir á fimmtudag. Höfum til alls konar vörur nýjar og not- aðar með mjög lágu verði svo sem, Klæðaskápa 1. 2 og 3 setta Stóla stoppaða og óstoppaða af öllum breiddum. Borð ýmiskonar, stór og smá Svefnbedda sundurdregna Bókahillur Sfcrifborð Keiðhjól Ferðafóna Útvarpstæki Karlmannafatnað Tjöld Svefnpoka o. m. fl. sem vont er að fá annars- staöar. Reynið viðskiptin Söluskálinn Klappastíg 11 Sími 2926 Uppboð Opinbert uppboð verður haldið á bifreiðastæðinu við Vonarstræti hér í bær, mið- vikudaginn 4. mai n. k. kl. 2 e. h. Seld verður bifreiðin R. 1335. Greiðsla fer fram við hamarshögg. Borgarfógetinn i Réykjavík Fasteignasölu- miðstöðin Lækjargötu 10B. Sími 6530. Annast sölu fastelgna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- fremur alls konar trygging- 1 ar, svo sem brunatryggingar, t innbús-, líftryggingar o. fl. i ! umboði Jóns Finnbogasonar hjá Sjóvátryggingarfélagl ís- lands h.f. Viðtalstími alla 1 virka daga kl. 10—5, aðra tima eftir samkomulagi. :: Eldurinn gerir ekki boð á undan sér! Þeir, sem eru hyggnir, tryggja strax hjá SamvLnnutryggingum :: :: :: AUGLYSING um skoðun bifreiða og bifhjóia í Gull- | ♦» bringu- og Kjósarsýslu og Hafnar- fjarðarkaupstað | ♦♦ ♦» Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með, að H hin árlega skoðun bifreiða og bifhjóla fer á þessu ári H fram sem hér segir: i: Föstudaginn 6. maí n. k. kl. 10—12 f. h. og 1—5 e. h. S ♦5 í Barnaskólahúsinu í Grindavík. Skulu þá allar bifreið :: ar og bifhjól úr Grindavikurhreppi mæta til skoðunar. :: ♦♦ ♦♦ Mánudaginn 9. maí og þriðjudaginn 10. maí n. k. kl. i: 10—12 f.h. og 1—5 e. h. við Vörubílastöðina í Sandgerði. H Skulu þá allar bifreiðir úr Miðness- og Gerðarhreppi ♦♦ ♦♦ mæta til skoðunar. S ♦♦ Miðvikudaginn 11. maí, fimmtudaginn 12. maí, föstu H daginn 13. maí, mánudaginn 16. maí og þriðjudaginn ♦♦ 17. maí n.k. kl. 10—12 f.h. og 1—5 e.h. á Keflavíkur- :: ♦♦ flugvelli. Skulu allar bifreiðar og bifhjól af Keflavíkur :: flugvelli, Njarðvíkurhreppi og Hafnarhreppi mæta til « skoðunar. ♦♦ ♦♦ ♦♦ ♦♦ Miðvikudaginn 18. maí, fimmtudaginn 19. maí og :: föstudaginn 20. maí n.k. kl. 10—12 f.h. og 1—5 e. h. að :: Brúarlandi. Skulu allar bifreiðar o°g bifhjól úr Mosfells H Kjalarness- og Kjósarhreppum, mæta þar til skoðunar. ♦♦ ♦♦ ♦♦ Máundaginn 23. maí n.k. kl. 10—12 f.h. og 1—5 e.h. H við Hraðfrystihúsið í Vogur fyrir bifreiðar og bifhjól í H Vatnsleysustrandarhreppi. :: Þirðjudaginn 24., miðvikudaginn 25., föstudaginn 27., H mánudaginn 30., þriöjudaginn 31. maí n. k., miðviku- ♦♦ ♦♦ daginn 1. júní, fimmtudaginn 2., föstudaginn 3. þriðju :: daginn 7., miðvikudaginn 8., og fimmtudaginn 9. júní H n. k. kl. 10—12 f.h. og 1—5 e. h. skulu allar bifreiðar og ♦.♦ ♦♦ bifhjól úr Hafnarfirði, Bessastaða-, Garða-, Kópavogs- H og Seltjarnarneshreppi mæta til skoðunar við Vöru- H bílastöð Hafnarfjarðar. ♦* ♦♦ ♦ ♦ ♦♦ Ennfremur fer þá fram skoðun á.öllum bifreiðum, H sem eru í notkun á áður tilgreindum stöðum, en skrá- *♦ settar eru annai-sstaðar. S ♦♦ ♦♦ Við skoðun skulu þeir, sem eiga tengivagna eða far- H þegabyrgi koma með það um leið og bifreiðin er færð a til skoöunar. - H $♦ Þá skulu ökumenn bifreiða leggja fram fullgild öku- •• ♦♦ skírteini við skoöun. H ♦♦ ♦♦ Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar H á réttum degi, verður hann látinn sæta ábyrgð sam- H kvæmt bifreiðalögum og bifreiðin tekin úr umferð af H lögreglunni, hvar sem til hennar næst. Ef bifreiðaeig- H vidi (umráðamaður) getur ekki af óviðráðanlegum á- H stæðum fært bifreið sína til skoðunar á réttum tíma, H ♦♦ ber honum að koma á skoðunarsað og tilkynna það. Til •♦ ♦♦ kynningar i síma nægja ekki. Bifreiðaskattur, sem féll H í gjalddaga þann 1. apríl s.l. (skattárið 1. apríl 1949 H — 31. marz 1950) skoðunargjald og iðgjöld fyrir vá- •♦ ♦♦ tryggingu ökumanns, verða innheimt um leið og skoð- H un fer fram. H ♦♦ ♦♦ ♦♦ Séu gjöld þessi ekki' greidd við skoðun eða áður, verð H ur skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til H gjöldin eru greidd. Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboð j| in vátrygging fyrir hverja bifreið sé i lagi. H gert skyldu okkar, því við trú um þvi, að sú stefna sé rétt. Á þessu hefir, ef til vill, orð- ið helzt til langur dráttur, en um það þýðir ekki að sakast. Hitt tel ég augljóst, að ef það verður enn dregið á langinn, sé það um seinan. En það skulum við ekki ; láta okkur henda. Athygli skal vakin á því, að umdæmismeki bifreiða skulu ávalt vera vel læsileg, og er þvi hér með lagt fyrir þá bifreiðaeigendur (umráðamenn), sem þurfa að endurnýja númeraspjöld á bifreiðum sínum, að gera það tafarlaust nú, áður en bifreiðaskoðunin hefst. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli, til eftirbreytni. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, sýslumaðurinn í Gull- bringu- og Kjósarsýslu 2. mai 1949. Guðm. í. Guðniundsson ::

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.