Tíminn - 12.08.1949, Page 4
TÍMINN, föstudaginn 12. ágást 1949
168. blaffi
Niðurlag.
Ganialt og nýtt
Þegár komið var í það ó-
efrii, sem lýst var í fyrrihluta
bessarar greinar, gafst fyrrv.
stjórn upp nokkrum vikum
eftir að gumað hafði verið yf-
:!r kosningasigrinum. — Þegar
'purfti að hefja hina erfiðu
glímu við afleiðingar fyrr-
verandi stjórnarstefnu höfðu
stríðsgróðamennirnir eitt
markmið. Markmið þetta var
að koma þunga afíeiðinganna
a bak almennings, en vernda
sinn eigin ránsfeng og bæta
við hann eftir föngum.
Til þess að þetta tækist,
þurfti að búa til nýjan háv-
aða til að fylla hugi fólks-
ins. Áður var endurnýjun at-
vinnutækj anna kölluð „ný-
sköpun". Sá hávaði hafði
reynst íhaldsmönnum mjög
xengsæll. Nú var búinn til háv
aði um kommúnistahættuna.
í hátt á þriðja ár hafa verið
birtar 2—3 greinar í hverju*
blaði Morgunblaðsins. Alþýðu
blaðsins og Vísis — og endur-
teknar fréttir notaðar, til
þess að sannfæra þjóðina um,
að borgaraflokkarnir ættu að
eins að hugsa um eitt: Kom-
múnistahættuna. Það yrði að
gæta þess að hugsa ekki um
neitt annað, gefa engu öðru
gaum, en þessum „glæpa-
mönnum" og „landráðamönn
um“. Við Framsóknarmenn
erum sammála hinum flokk-
unum um nauðsyn þess að
berjast gegn kommúnisman-
um. en óumræðilega ósam-
mála þeim um aðferðina.
Þessi hávaði virtist líka
gerður í annarlegum tilgangi
og öruggu trausti þess, að til
sé nægilega mikið af einfeldn
ingum. Sérhver hugsandi mað
ur sér, að þessi hávaði er
alvörulaus. í tvo áratugi hafa
þessir sömu flokkar gripið til
þéss sama ráðs með engu
minni gífuryrðum. Á þessu
sarna tímabili hafa þeir tví-
vegis setið með „landráða-
mönum“ þessum og „utan-
garðsmönnum" í ríkisstjórn,
síðast í tvö ár samfleytt og
þá voru þeir ágætir. Sjálf-
stæðisflokkurinn hafði í mörg
ár svo náið samstarf við „land
ráðamennina" í verkalýðs-
félögunum, áð þeir vissu
naumast hvorum flokknum
ýmsir verkamenn tilheyrðu —
hvort þeir voru „landráða-
menn“ eða Sjálfstæðismenn.
Þegar samstarfið slitnaði
1946, tóku kommúnistar fund
arhús af Sjálfstæðismönnum,
ráku Ólaf og Bjarna út,
börðu þá og hárreittu Ólaf,
stökktu þeim á flótta inn í
landsímahúsið, þaðan sem
þeir komust undan út um
bakdyr. Ólafur hélt þinginu
þrátt fyrir þetta aðgerðar-
lausu á annað hundrað daga,
til þess að biðja kommúnista
að koma aftur með sér í
stjórn. —
Þegar Stefán Jóhann byrj-
aði á stjórnarmyndun, sneri
hann sér hátíðlega til komm-
úniáta og bað þá að vera með
séí-í'stjórn.
- Síðan þetta skeði hefir aldr
ei_ hnnt árásum í Morgun-
blaðinu og Alþýðublaðinu á
kommúnistana fyrir það, að
þeir skuli hafa hlaupið úr
stjórninni í stað þess að
sitja áfram og fást við erf-
iðleikana.
í. lok síðasta þings sam-
fy.ljfíi allur Alþýðuflokkur-
inn og hálfur Sjálfstæðis-
flokkurinn með kommúnist-
um.. í einu stærsta fjárhags-
máli þingsins.
Ög loks myndar Alþýðu-
Enn tala verkin
Eftir Hermann Jónasson
flokkurinn meirihl. með „land
ráðamönnunum" í bæj ar-
stjórn Vestmannaeyja ■ og
stjórnar þar gegn íhaldinu,
en Sjálfstæöisflokkurinn
myndar meirihluta með kom-
múnistum í bæjarstjórn ísa-
fjarðar og stjórnar með
þeim þar. Og svo sem til að
kóróna þá fyrirlitningu, sem
dómgreind almennings er
sýnd með þessum skrifum,
skreppur Sigurður alþingis-
maður frá Vigur vestur á
ísafjörð svona einu sinni í
mánuði til bróðurlegs sam-
starfs« við „landráðamenn-
ina“ um málefni ísafjarðar.
— Þar er Sigurður forseti
bæjarstjórnar, af náð „land-
ráðamannanna“, og aðalfor-
vígismaður samstarfsins við
þá.
En síðasta verkið, sem Sig-
urður frá Vigur, meðritstjóri
Morgunblaðsins, vinnur áður
en hann fer vestur og fyrsta
verkið, sem hann vinnur þeg-
ar hann kemur til baka, er
að skrifa greinar í Morgun-
blaðið um það, að það eina,
sem þjóðin eigi að hugsa um,
sé kommúnistahættan!
Til hvers er þessi
skopleikur
Sjálfsagt er rnikið til af
einfeldingum, sem ekki sér í
gegnum þessar blekkingar,
einkum þegar þar eru næst-
um eins innihald þriggja stór
blaða samfleitt í næstum
þrjú ár. — En hugsandi menn
munu spyrja: Til hvers er
þessi hávaði, þessi pólitíski
skopleikur? Frá hverju á
hann nú að draga athygli al-
mennings?
Því er auðsvarað, hvað
þessi skrif eiga að fela. Þau
eiga fyrst og fremst að draga
athyglina frá verkum fyrr-
verandi stjórnar og afleið-
ingum þeirra. En svo er það
líka annað. — Innflutning-
urinn hefir dregist saman, en
heildsalarnir og braskararn-
ir, sem sprutfu upp eins og
gorkuíur í tíð fyrrverandi
stjórnar, heimta að halda
tekjum sínum. Þetta er ekki
auðvelt. — En reyna má það.
Fyrst setti Sjálfstæðisflokk-
urinn það að skilyrði fyrir
stuðningi við jafnaðarmenn,
að þeir fengju öll lyklavöld
í verzluninni: Formann Fjár-
hagsráðs, viðskiptanefndar,
verðlagsstjóra og skömmtun-
arstjóra. Síðan hefir meiri-
hlutavaldið, sem þessir flokk
ar hafa á Alþingi, í ríkis-
stjórn, í öllum nefndum, verið
notað til þess að taka helm-
ing þess innflutnings, sem
kaupfélögunum ber og af-
henda heildsölunum til að
græða á. — En vegna minnk-
andi innflutnings dugar ekki
lögleg álagning öllum þess-
um sæg. Þótt vörur séu flutt-
ar inn fyrir tugi milljóna,
sést lítið af þeim í verzlun-
um. Þær eru seldar með okri
í leyniholum og settar í svarta
markaðsbrask. Þetta veldur
almenningi óbærilegri dýrtíð.
— Með þessum hætti hefir
Skapazt í þessu landi verzl-
unareinokun, vöruokur, svarti
markaður, sem á ekki sinn
líka í neinu nálægu landi.
Það veitir ekki af að reyna
að fela þetta athæfi o. m.
fl. þvílíkt með einhverjum
hávaða. — Hvaða ráð sjáið
þið betri til þess?
Um hvað er
ágreiningur?
Skarpur ágreiningur hefir
orðið og stöðugt dýpkað milli
Framsóknarflokksins annars-
vegar og Alþýðuflokksins
og Sjálfstæðisflokksins hins-
vegar. Framsóknarflokkur-
inn hefir krafizt og krefst,
að ófremdarástandið, sem ég
lýsti, sé lagfært á kostnað
auðmanna og okraralýðsins.
Samstarfsflokkar hans segja:
Nei. —
Þegar Framsóknarflokkur-
inn krefst þess, að lagður sé
stóreignaskattur á þá, sem
eiga t. d. hálfa milljón eða
meira, þegar hann krefst þess
að húsabrask og húsaleigu-
okrið sé stöðvað með harðri
hendi og vöruokri og svarta
markað gerð sömu skil, þá
segir Sjálfstæðisflokkurinn
og Alþýðuflokkurinn í einum
kór: Nei, — og aftur nei.
Við Framsóknarmenn höf-
um barizt fyrir þessum breyt-
ingum á ástandinu í ríkis-
stjórn, miðstjórn flokksins
gert um það ýtarlegar sam-
þykktir, frumvörp verið lögð
fram á Alþingi um flest atr-
iðin. —-Þau hafa ýmist ver-
ið feld eða svæfð.
En opinberlega eru svör
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks-
ins ýmist þau, að Framsókn-
armenn hafi aldrei lagt fram
neinar tillögur, eða að hann
ætli sér að rjúfa einingar-
baráttuna gegn kommúnist-
um og formaður hans að
hefja samstarf við þá.
Tillögur okkar er reynt að
fela fyrir almenningi með
því að ræða þær alls ekki.
Þrátt fyrir þetta er ágrein-
ingurinn, sem barist er um,
augljós.
Við Framsóknarmenn segj
um: Fyrst afnemum við verzl
unareinokunina, misskifting-
una í innflutningi, svarta
markaðinn, vöruokrið, leyfum
framleiðslunni að kaupa
nauðsynjar milliliðalaust, slá-
um niður húsabraskið og húsa
leiguokrið, leggjum eigna-
skatt á þá sem eru auðugast-
ir, til að greiða niður ríkis-
skuldir, lækkum reksturs-
kostnað þess opinbera. Um
þetta eru okkar tillögur og
framlögð frumvörp.
Þegar þetta o. fl. hefir ver-
ið gert, — þegar ríkisstjórn-
in hefir gert hreint fyrir sín-
um dyrum og létt þeim dráps
klyfjum af almenningi, er
þetta ástand veldur, — vilj-
um' við koma til almennings
og krefjast þess að hann
fórni, — leggi hart aö sér
um skeið til þess að skapa
þjóðinni örugga framtíð.
Tillögur AlþýSusam-
bandsins
Nýlega hafa verið birtar til-
lögur, sem Alþýðusambandið
hefir sent ríkisstjórninni um
dýrtíðar- og kaupgjaldsmál.
Tvennt vekur þar athygli.
Rikisstjórnin hefir leynt þjóð
ina því, að þessar tillögur
hafi komið fram. í öðru lagi
vekur það athygli að tillóg-
ur Alþýðusambandsins eru
svo til samhljóða tillögum
Framsóknarflokksins. Þess-
um tillögum, að ráðast fyrst
gegn verzlunareinokuninni
nýju, svarta markaðs brask-
inu, vöru- og húsaleiguokri,
hafnaði meirihluti ríkisstjórn
arinnar. Heldur en að skerða
hagsmuni okraranna varð
kaupið og launin að lækka.
Sjálfstæðis- og Alþýðu-
flokkurinn vilja engar breyt-
ingar á stefnunni og það væri
ekki rætt um þær í ríkis-
stjórninni ef Framsóknar-
flokkurinn gerði ekki endur-
teknar kröfur um það.
En framhald á stefnu Sjálf
stæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins, með dýrtíðarstökk-
inu, sem varð, Vegna launa-
og kauphækkunar í vetur og
vor, þýðir enn stóraukið fjár-
mála„öngþveiti“ og hnignun
fjármála oltltar á öllum svið-
um, atvinnuleysi fyrir verka-
lýðinn og um leið markaðs-
tap fyrir bændur.
Undanhald — eða sókn
Stefna okkar Framsóknar-
manna er, að í stað vaxandi
undanhalds sé nú hafin sókn
gegn erfiðleikunum. f stað
áframhaldandi hnignunar,
hefjist nú viöreisn, þar sem
almenningur er með í brátt-
unni. Við erum sannfærðir
um, að þessi sókn, þessi við-
reisn, er fyrirfram dæmd til
að mistakast, nema þjóðin
taki þátt í henni, og við álít-
um að eina leiðin til þess að
fá þjóðina til að leggja að
sér og ganga með einhug,
karlmennsku og áhuga í við-
reisnarbaráttuna sé að í stað
þess ranglætis og misréttis
milli þegnanna, er nú ríkir,
komi réttlæti og jafnrétti
þegnanna. — Þá og þá fyrst
verður þjóðin með í barátt-
unni.
Það er hægt að setja þenn
an ágreining milli Sjálfstæð-
is- og Alþýðuflokksins ann-
arsvegar — og Framsóknar-
flokksins hinsvegar fram i
stuttu máli. —
Á að halda áfram að vernda
ránsfeng stríðsgróðabraskar-
anna og tryggja það, að þeir
bæti við bann á kostnað al-
mennings — eða á að koma
í veg fyrir þetta og stjórna
fyrir hagsmuni allrar þjóðar-
innar?
Hin fyrri stefna hefir ver-
ið og er stefna Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokksins — unöir
herópinu: Borgaraleg eining
gegn kommúnistum — eins
og hjá hinni sáluðu kuoming-
tangstjórn í Kína. — Hin
stefnan er stefna Framsókn-
arflokksins fyrir alhliða sókn
og viðreisn — og að sigra
kommúnistana með heil-
brigðri stjórnarstefnu.
Um þetta er nú barist. Uœ
þetta verður kosið.
Einfalt val
Það sem spurt verður um
er einfalt og ljóst.
Þeir sem vilja að núver-
andi ástand haldi áfram:
Verzlunareinokun, misskift-
ing innflutnings, þar sem
níðst er á kaupfélögunum,
svartur markaður, vöruokur,
milliliðasgróði á framleiðsl-
unni, húsabrask, húsaleigu-
okur, verndun á stóreignum
stríðsgróðamanna innanlands
og utan o. s. frv. — Þeir
kjósa Sjálfstæðisflokkinn og
Alþýðuflokkinn.
Þeir sem vilja afnema þetta
eins og Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðusambandið liafa
gert tillögur um, og hef ja síð-
an á þeim grundvelli sókn
til viðreisnar, þeir kjósa með
Framsóknarflokknum, til þess
að veita honum sterkari að-
stöðu á Alþingi til að knýja
mál sitt fram.
Framsóknarflokkurinn hef
ir verið og er fús til þess að
sitja áfram í stjórn — ef
orðið er við þeim kröfum
hans, sem ég hef rakið í fá-
um dráttum.
Ef Framsóknarflokkurinn
fer nú úr stjórn, er það vegna
þess að hann vill ekki styðja
eða bera ábyrgð á stefnu
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks-
ins, sem ég hefi lýst, stefnu
sem þjóðin hefir reynslu af
í þrjú ár, stefnu, sem hann
fær ekki breytt með núver-
andi aðstöðu sinni á Alþingi.
— Enda hafa samstarfsflokk
arnir rofið stjórnarsáttmál-
anna í vaxandi mæli, ofan á
allt annað, jneð því að synja
tillögum Alþýðusambandsins í
vetur og vinnubrögðum í
lok þingsins, sem er algert
brot á grundvallarstefnu
stjórnarinnar — stöðvun og
lækkun, og er hún afleiðing
af undanlátsseminni við okr-
arana, sem almenningur er að
reyna að bjarga sér undan í
bráð með örvæntingar kaup-
hækkunarbaráttu, eftir að
meirihluti ríkisstjórnarinn-
ar hafði hafnað Alþýðusam-
bandinu um að þrengja að
okrurunum.
Andstæðingarnir segja, að
Framsóknarflokkurinn sker-
ist úr leik. Hann skerst að-
eins úr þeim leik að styðja
núverandi stefnu Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokksins. — Hann
telur sér það hvorki heimilt
né rétt gagnvart þjóðinni. Til
hennar áfrýjar hann úr-
skurði meirihluta ríkisstjórn-
arinnar, Sjálfstæðis- og Al-
þýðuflokksins. Hann biður
þjóðina um vald til að
hnekkja þessum úrskurði,
breyta stefnunni, — hefja til
sigurs merki þeirrar stefnu,
sem hann hefir markað og
leggur fyrir þjóðina.
Selskinn -
r m ■
Kaupi hæsta verði: Selskinn, kálfskinn, kýrhúðir og
hrosshúðir.
Þóroddur E. Jónsson
heii'dverzlun - Hafnarstræti 15
Reykjavík - Sími 1747.