Tíminn - 27.08.1949, Qupperneq 1
----------------------------
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
- ^---------------------j
Skrifstofur í Edduliúsinu
Fréttasímar:
81Z02 og 81303
Afgreiöslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, laugardaginn 27. ágúst 1949
179. blaí'i
Enn reytingsafli
á Langanessvæðinu
Sjómenn telja, að enn sé
mikil síld á svæðinu kringum
Langanes. En hins vegar veð-
ur síldin mjög lítið, svo að
Jítið verður úr afla.
Nokkur skip komu til hafn-
ar með talsverðan slatta, bæði
til Raufarhafnar og verk-
smiðjustaðanna við Eyja-
fjörð í gær.
Dálítið hefir verið Saltað
síðustu dægur í allmörgum
síldarsöltunarstöðvum. Mest
var þó saltað á Raufarhöfn í
gær og var þar unnið að sölt-
un allan daginn.
Alls hefir nú verið saltað í
fimmtíu þúsund tunnur.
Utflutningsverð-
mætið 70 miljón-
um króna minna
en í fyrra
Á þessu ári fram til júlí-
loka voru fluttar út síldar-
afurðir fyrir hálfa aðra millj.
króna. Á sama tíma árið 1948
voru fluttar út sildarafurðir
fyrir 87,6 millj. króna.
Heildarútflutningurinn varð
70 millj. króna minni fyrri
hluta ársins í ár, en fyrri
hluta ársins 1948.
Mest af útflutningsafurð-
um hafa Bretar keypt, og þar
næst koma Þjóðverjar. Kaup
Bandaríkjamanna, Tékka,
Hollendinga og Dana á vör-
um héðan hafa minnkað um
meira en helming, og sumar
þessara þjóða hafa aðeins
keypt af okkur þriðjung, mið-
að við það sem var árið áð-
ur, og sala íslenzkra afurða
til Rússlands, Póllands og
Finnlands hefir algerlega
fallið niður, en nam hátt á
fimmtándu miljón fyrri hluta
árs í fyrra.
Aftur á móti hafa Portú-
galar keypt hér talsvert í ár,
og afurðasalan til Ítalíu hef-
ir aukizt mikið.
45 nauðungarupp-
boð í Reykjavík
auglýst
í síðasta Lögbirtingablaði
eru auglýst 45 nauðungarupp
boð til lúkningar opinb. gjöld
um. Er það stórum meira en
venja er til, enda þótt inn-
heimta opinberra gjalda
standi fyrir dyrum, og bendir
eindregið til þess, að allmörg-
um veitist nú erfitt að standa
skil á þeim álögum, sem þeim
hefir verið ætlað að bera.
Flest er þetta menn úr al-
þýðustétt, sem uppboð eru
auglýst hjá.
Car Wood nefnist kappsiglingarnaður nokkur í Englandi,
sem fundið hefir upp nýja skipagerð og báta. Hér sézt
nnlend framleiðsla
á slökkvitækjum
Ií.©lsýru5ilcðslaii s.f. fraissleiðir bæði lian** j
slökkvstaeki ©g' eldvarnarkerfi.
Nýlega er hafin hér á landi framleiðsla á handslökkv».«
tækjum og eins eldvarnarkerfum, sem hafa verið sett fi
verksmiðjur og skip og fleira, með ágætum árangri. Vegná
aukins öryggis þeirra húsa er slík kerfi hafa verið sett íi
hafa tryggingarfélögin gefið eftir 15% af iðgjöldunum,
Steinar Gíslason, framkvæmdastjóri Kolsýruhleðslan s./íí
skýrði blaðamanni frá Tímanum frá tækjunum og fram-
leiöslunni. -----------------------------
mynd af einu slíku skipi og gengur það 26 mílur. Höfuð-
kostur þessa skipslags er sá, að það er mjög jafnskreitt og
veltur aldrei, hvernig sem viðrar. Er talið að nær óhugsandi
sé, að menn verði sjóveikir í slíku skipi. Gegnum endilangt
skipið er gangur opinn í báða enda og er talið, að súgur-
inn gegnum þennan gang valdi mestu urn það, hve það er
stöðugt í sjó- Skip það, sem sést hér á myndinni er 188
feta langt og 40 feta breitt.
Ný og afkastamikil vatns-
leiðsla tekin í notkun
á ísafirði
Aðalleiðslan er sex km. löng ©g g'erð úr
sex þmnlnnga stálpípmn.
Frá fréttaritara Tímans á ísafirði.
Að undanförnu hefir verið unnið að lagningu nýrrar
og afkastameiri vatnsleiðslu fyrir ísafjarðarkaupstaö, og var
það verk hafið í fyrrasumar. Fyrir fáum dögum var leiðsl-
an tengd við aðalvatnsgeyminn.
Eldvarnarkerfin hafa komið
að góðum notum.
Eidvarnarkerfin saman-
standa af mörgum geymum,
sem eru staðsett á ákveðn-
um stöðum í húsinu, en leiðsl-
ur eru lagðar frá þeim á
ýmsa staði. Komi eldur upp
í húsinu er skrúfað frá geym
unum en kolsýran dreyfist þá
um húsið og slekkur eldinn.
í Málningarverksmiðjunni
Hörpu, en þar voru slík eld-
varnarkerfi sett fyrst, hefir
þrisvar kviknað í siðan tæk
in voru sett þar. En tækin
hafa komið þar af góðum not
um og slökkt eldinn svo að
segja á svipstundu. Einnig er
það mikill kostur að kolsýr-
an skemmir hvoiki vélar, á-
höld, tré, póleringu eða ann-
að sem hún kemst í snerting
við, en slekkur eldinn mjög
auðveldlega og örugglega, sér
staklega ef kviknar i út frá
olíu, benzíni, spiritus og öðr-
um fljótandi efnum og eins
frá rafmagnseldum, þar sem
hægt er að beita henni hættu
laust. Nú er verið að setja
slík eldvarnarkerfi á ýmsa
(Framhald á 8. síðu)
Haukur Jörundsson
frambjóðandi Fram
sóknarmanna í
Borgarfjarðarsýslii
Það hefur verið ákveðið, atl
Haukur Jörundsson, kennari
við bændaskólann á Hvanr,-
eyri, verði í framboði af hálfu
Framsóknarmanna í Borgar-
fjarðarsýslu við kosningarnar
í haust.
Vatnsgeymirinn er í svo-
nefndri Stórurð. Leiðslan er
6 km. löng úr 6 þuml. víðum
stálpípum. í fyrrasumar var
um það bil helmingur verks-
ins unninn og var leiðslulagn
ingin hálfnuð, þegar snjóar
lögðust á í haust sem leið.
Leiðslan er lögð meðfram
svonefndum Seljalandsvegi,
og var vegurinn breikkaður
um leið. Þessi nýja vatnsæð
flytur % smálest af vatni til
bæjarins á hvern íbúa á dag,
eða um 2000 smálestir alls.
Aðalvatnsgeymirinn í Stór-
urð tekur um 100 smálestir
og við hann er steypt tví-
hólfa inntaksþró til þess að
taka við óhreinindum úr vatn
inu og minnka straumþung-
ann. Tólf þumlunga yfirfalls
leiðsla liggur frá geyminum í
frárennslisæð við Seljalands-
veg, því að vatnsmagnið er
mun meira en notað er dag-
lega.
Högh Nielsen, verkfræðing-
ur, er dvaldi á ísafirði i fyrra
og hafði yfirumsjón með verk
inu, gerði teikningar að vatns
veitunni og annaðist undir-
búning verksins.
Ógurlegur fjárfellir _
í Grænlandi |
SaeiSfjárstofiiluu grænlenzki er af ís-
lenzknm nppruna.
Ellefu þúsund ær féllu úr hor og hungri í héruðunum
við Julianehaab í Grænlandi síðastliðinn vetur og vor. Er
það helmingur alls sauðfjár þar um slóðir.
Allmikil stund hefur verið
lögð á að kenna Grænlend-
ingum sauðfjárrækt. Var með
al annars á sínum tíma flutt
fé héðan af íslandi til undan
eldis í Grænlandi, og er út
af því komin sauðfjárrækt
arstofn Grænlendinga.
Síðastliðið haust settu sauð-
fjáreigendur í aðalsauðfjár-
ræktarhéruðunum umhverfis
Julianehaab um 22 þús. ær
á vetur. En vetur varð harður
og kaldur, og gróður lifnaði
mjög seint vegna íss og kulda,
svo að ógurlegur fellir varð.
Misstu sumir allan sinn fén-
að, svo ekki stendur ein kind
uppi af búfjáreigninni.
Lambadauði var mjög mik
ill í vor, og er ekki búizt við,
að dilkar til frálags í haust
nái þremur þúsundum.
Sjo farast í Ishafimi
Sjö menn létu lífið, er
bandarískur kafbátur sökk í
íshafinu í gær. Sprenging
varð í kafbátnum og kvikn-
aði í honum út frá henni.
Haukur Jörundsson er fædd.
ur árið 1913. Hann stundaðí,
ungur nám í íþróttaskólar-
um í Haukadal og héraðsskól-
anum á Laugarvatni. Síðan
lauk hann búfræðinámi ao
Hólum í Hjaltadal, fór að því
búnu til Noregs og lauk prófi
í allmörgum greinum vic
menntaskólann að Hamri. Eft
ir það hóf hann nám í lana-
blúnáðarháskólanum að Ási
og lauk þaðan kandidatsprófi
1936. Árið 1937 fór hann náms
för um Norðurlönd, Hollantí
og Þýzkaland, og síðar dvaldi,
hann um skeið við nám í
Englandi. — Kennari at
Hvanneyri gerðist hann áric
1936.
Haukur Jörundsson er
glæsimenni mikið, ágætlega
menntaður og sérstaklega un.,
allt, er að búfræðilegum efr..
um lýtur, hinn öruggasti og
ötulasti til allra starfa og
mjög vinsæll af öllum, sen..
kynni hafa af honum. Er það
ánægjuefni að fá til fram-
boðs í Borgarfirði ungaii.
mann, sem slikum kostum er
búinn sem Haukur Jörunds-
son.