Tíminn - 27.08.1949, Qupperneq 2
TÍMINN, laugardaginn 27. ágúst 1949
179. blað
'Jrá kafi til keiía
S.K.T.
Eldrl dansarnlr 1 G. T.-húsintf
í kvöld kl. 9. — Húslnu lokað U.
10.30.
í dag.
Sólin kom upp kl. 5,54.
Sólarlag kl. 21,02.
Árdegisílóð kl. 8,25.
Síödegisflóð kl. 20,47.
í nótt.
'Næturlæknir er i læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólanum,
sími i 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki^
sími 1330.
' Næturakstur annast bifreiða-
stöðin Hreyfill, símí 6633.
Útvarpið
Útvarpið í kvöld.
Pástir liðir eins og venjulega. Kl.
20,áo Leikrit: „Egmont“ eftir Jo-
hánn Wolfgang von Göthe, í þýð-
ingir Sörens Sörenssonar. (Leik-
stjóri: Þorsteinn Ö. Stephensen).
22P80 Préttir og veðurfregnir. 22,35
Danslög (plötur). 24,00 Dagskrá-
Jok.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss kom til Kaupmanna-
hafnar 25. ágúst, fer þaðan á morg
Ún til Gautaborgar, Leith og Rvik-
ur. Dettifoss fór frá Akureyri 23.
ágúst, væntanlegur til Kaupmanna
hafnar í dag. Fjallfoss fór frá
Reykjavik 22. ágúst tl London.
Goðafoss kom til Reykjavíkur 23.
ágúst frá Netv Yotk. Lagarfoss
kom til Hull 24. ágúst, fer þaðan
á morgun til Reykjavíkur. Selfoss
er á ísafirði. Tröllafoss fór frá
Reykjavík 17. ágúst til New York.
Vatnajökull fór frá Reykjavík 25.
ágúst til vestur og norðurlandsins,
lestar írosinn fisk.
Ríkisskip
Ésja fer frá Reykjavík kl. 13.00
í dag til Stykkishólms. Helka fer
írá Reykjavík kl. 20.00 á mánu-
dagskvöld til Glasgow. Herðubreið
er í Reykjavík. Skjaldbreið fór frá
Reykjavík í gærkvöldi til Breiða-
fjarðarhafna. Þyrill er á leið frá
Norðurlandinu til Reykjavikur.
Einarsson, Zoéga & Co.
Foldin er í Reykjavík. Linge-
stroom er á leið til Reykjavíkur
ráeð iviðkomu í Færeyjum.
urs, Hellu, Þingeyrar, Bíldudals og
Flateyrar.
Hekla er væntanleg frá Kaup-
mannahöfn og Prestvík milli kl.
17.00—18.00 í kvöld. Fer i fyrra-
málið kl. 8 til London, væntanleg
aftur um kl. 22.30 annað kvöld.
Geysir er væntanlegur frá Stokk
hólmi og Kaupmannahöfn milli kl.
17.00—18.00 í kvöld. Fer til New
York í kvöld kl. 21.00 fullskipaður
farþegum.
Árnað heilla
Hjónaband
( Á s.l. fimmtudag voru gefín sam-
an í hjónaband af séra Bjarna
Jónssyni, ungfrú Svanhildur Björns
dóttir, Þorfinnsgötu 2, og Ólafur
Ólafsson lögfræðingur, Skólabrú 2.
I
Hjónaefni.
Síðastliðinn sunnudag opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Helga
Sigbjörnsdóttir, kennari frá Rauð-
holti i Hjaltastaðaþinghá, og hr.
Guðjón Elíasson kennari, Njáls-
götu 74, Reykjavík, starfsmaður
hjá Hólaprent.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Ásdís G. Kjartansdóttir,
Hávallagötu 51, Rvík, og Gunnar
J. Björnsson, starísmaður hjá Flug
félagi íslands.
Úr ýmsum áttum
Ms. Esja fer með skemmti-
ferðarfclk til Stykkishólms.
M.s. Esja fer í dag með skemmti
ferðafólk til Stykkishólms og verð-
ur dvalið þar óg víðar við Breiða-
fjörð um helgina, en komið til baka
aðfaranótt mánudags. Lagt verð-
ur af stað um hádegi í dag og kom
ið til Stykkishólms kl. 20.00, og
verður dvalið þar um kvöldið. Á
sunnudag gefst fólkinu kostur á að
fara út í Breiðafjarðareyjar og
viðar um héraðið. Á sunnudags-
kvöld siglir skipið til Reykjavíkur.
Búizt er við mikilli þátttöku í
i ferðinni.
Ilraðkeppni kvenna.
j Hraðkeppni í handknattleik
kvenna i meistaraflokki verður að
| þessu sinni háð í Engidal við Hafn
arfjörð og fer fram dagana 3. og
4. september. Væntanlegir þátt-
takendur í mótinu eiga að gefa sig
fram við formann íþróttabanda-
lags Haínarfjarðar fyrir 1. sept.
Aðgöngumlðasala kl. 4—6. — Slmi 3355.
JÚLÍANA SVEINSDÓTTIR
opnar kl. 2 í dag
málverka og
Flugferðir
Flugfélag Islands.
Áætlað er að fljúga í dag til Ak-
ureyrar (2 ferðir), Vestmanna-
eyja, Keflavíkur (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Siglufjarðar og Blönduóss.
k morgun er áætlað fljúga til
Akureyrar, Sigluf jarðar, Vest-
mánnaeyja og Keflavíkur.
í gær var ílogið til Akureyrar
(2 ferðír), Vestmannaeyja, Kirkju
bæjarklausturs, Fagurhólsmýrar,
Hojngfjarðar^ Keflavíkur, Fáskrúðs
íj^^ar og Reyðarfjarðar. Einnig
var flogið frá Akureyri til ísafjarð
ar, Iíólmavíkur og Siglufjarðar.
Gullfaxi fór til Kaupmannahafn
ar í morgun og er væntanlegur til
Réýkjavíkur á morgun kl. ^17.45.
Loftleiðir
i gær var flogið til Vestmanna-
eyja (2 ferðir), ísafjarðar, Akur-
eyrar, Blönduóss. Frá Akureyri til
Ísaíjarðar. Frá Vestmannaeyjum
tií Hellu,
í dag er áætlað að fljúga til
Vesttriánnaeyja (2 ferðir), Akur-
eyrar; * ísafjarðar, Patreksfjarðar,
Siglufjarðar, Kirkjubæjarklaust-
Frá Fejrunarfélani
Reykjavíkur.
Eins og áður hefir komið fram i
blöðum bæjarins þá sýndu bæjar-
búar hug sinn til félagsins með
því að fjölmenna á skemmtanir fé
lagsins þ. 18. ágúst s.l. Ágóði af
skemmtunum félagsins í Tivólí og
Sjálfstæðishúsinu svo og merkja-
sölu varð samstals kr. 8.751.93. |
Alfred Andrésson, Karl Guð-
mundsson, dr. Páll ísólfsson, Er-
lendur Ó. Pétursson, Lúðrasveit
Reykjavíkur, lögreglumenn og
slökkviliðsmenn sýndu félaginu þá
vinsemd að aðstoða við skemmtan-
ir dagsins.
Einar G. E. Sæmundsson, skóg-
arvörður og Sigurður Sveinsson,
garðyrkjuráðunautur unnu mikið
og vandasamt starf við garðaskoð
un fyrir félagið í bænum fyrir 18.
ágúst. — Bæjarstjórn Reykjavikur
leyíði félaginu að hafa þennan
dag, sem er afmælisdagur Reykja-
víkur, til fjáröílunar og bæjaryfir- (
völdin gerðu daginn hátiðlegan
með því að skreyta Arnarhól og
Austurvöll með flöggum.
Félaginu hafa borizt 100 kr. að
gjöf frá N. N. — Loks hafa ýms {
fyrirtæki og stofnanir gerst styrkt j
armeðlimir félagsins með því að (
greiða 1000 króna árstillag, hvort ^
um sig. Nöfn þessara fyrirtækja
verða birt síðar. — Stjórn Fegrun-
arfélags Reykjavíkur þakkar öll-
rm þeui, sem á þennan hátt hafa
sýnt félaginu velvild og stróning.
vefnaðarsýningu
í Listamannaskálanum.
SÝNINGIN verður opin daglega kl. 11—11
NÝ VERZLUN
Kópavogsbúðin, Digranesveg 2 verður opnuð í dag,
laugardaginn 27. ágúst mjólkursala, brauðsala, ný-
lendvörur. — Sími 80480.
Guðni Erlendsson
Bending fil yíirvaldanna
Hinn röggsami .dómsmálaráö-
herra okkar heldur enn að sér
, höndum og virðist ekki koma auga
( á neinn, nema Kiljan, er hann
geti grunað um það, að eiga ólög-
mætar gjaldeyrisinnstæður erlend-
is. Meðan hann skoðar huga, sinn
| í þessu efni, skal lionum vinsam-
I lega bent á annað verkefni handa
^ rannsóknardómurum sínum.
j Á hverjum degi að kalla birtast ■
í blaði því, sem Morgunblað heit-
ir, eftirtektarverðar auglýsingar.
Þar eru boðnir til sölu isskápar í
| umbúðum, hrærivélar, þvottavél-
ar, gólfteppi af vönduðustu gerð-
um og ótal rnargt annað, sem ekki
liggur yíirleitt á lausu. Þetta eru
hinar svokölluðu svartamarkaðs-
auglýringar, og vörurnar eru seld-
ar margföldu verði. Sagan segir,
eð þær séu ýmist tluttar inn gegn
leyfum, er innflutningsyfirvöldin
hafa veitt mönnum, er fara með
varninginn beint á svarta mark-
aðinn, fyrir meðalgöngu Morgun-
blaðsins, eða um smyglvörur sé ’að
ræóa. — í gær voru fimm slíkar
auglýsingar í Morgunblaðinu.
Hér er rannsóknarefni fyrir rögg
söm yfirvöld, því að væntanlega
er lívort tveggja ólöglegt, að smygla
inn vörum og selja innflutnings-
vörur margföldu verði. Að minnsta
kosti sýndist sanngjarnt; að þeir,
sem þann gróðaveg stunda þyrftu
að telja verzlunartekjur sínar
fram til skatts.
Það virðist og sem auðvelt myndi
að komast að raun um, hverjir e.ð
þessum svarta markaðsauglýsing-
um standa.
Margir bíða þess með ofvæni,
að þetta fyrirbæri verði rar.nsak-
að til hlítar, svo að opínbert megi
verða, hverjir standa að svarta-
markaðsauglýsingum Morgunblaðs
ins og réttarþjónustan í landinu
fái ofurlitla uppreist.
Dcmsmálaráðherran setur það
væntanlega ekki fyrir sig, að
Morgunblaðið er hans eigið flokks-
blað og viðskiptavinir þess stuðn-
ingsmenn hans. Ef hann léti slík
sjónarmíð hafa áhrif á gerðir sín-
ar; væri það hlutdrægni, og hann
þjónn ranglætisins i stað réttlætís.
J. H.
UTBOÐ
Olíuverzlun Islands h. f. óskar eftir tilboðum í raf-
magnsvinnu við oliustöðina í Laugarnesi. Allt efni er
lagt til að verksala.
Tilboð óskast um fast verð samkvæmt útboöslýsingu,
sem afhent verður umsækjendum.
Þeir rafvirkjar, sem hafa hug á að bjóða í framan-
greint verk, gjöri svo vel að senda skriflega umsókn,
er greini fjölda starfandi rafvirkja hjá fyrirtækinu,
til skrifstofu B. P. í Laugarnesi fyrir næstkomandi
mánudag 28. ágúst.
Olíuverzlun íslands h.f.
íslenzkt smjör
fyrírliggjandi
Bögglasmjör (óskammtað)
Rjómabússmjör (gegn skömmtunarseðlum)
Frystihúsið HERÐUBREÍÐ
Sími 2678.
&
:: óskast til kaups. H
:s H
H Tilboð, er greini söluverð og væntanlega söluskil- ::
*♦ ' fj
H :mála, sendist í box 635 Rvik. fyrir 5. sept. n. k.
. ... .vw*. Í**w,r* ‘ .-.'V 'V.' • • • V' ■■•r- •. ■ I , J
M fj
rnrutm:Kr:úr::u:u:u:K:annr:u:::u::::iunuumu:::::::iti:i:i:{::i:::i::nuu