Tíminn - 27.08.1949, Blaðsíða 8
„ESUÆXT YFIRLIT í DAG:
ttonunúnistaóttinn í JU. S. A.
33. árg.
Reykjavík
„A FÖRNIAI VEGI“ í DAG:
Bendinff til tffirvaldanna.
27. ágúst 1949 179. blaff
Sú var tíðin, aff Kínamúrinn var öflug landvörn, og mun
ekki annað land hafa verið betur búið varnarvirkjum í þann
tíff. Nú er lítil vörn aff slíku, enda styrjöldin, sem nú geysar
í Kína, borgarastyrjöld, sem á upptök sín innan frá.
Véiritunarstúlkunni, sem
varð drottning, vel fagn-
að af þegnunum
Ensk vélritunarstúlka Ruth Williams, hefir gifzt höfff-
ingja Svertingjakynflokks í Bechuanalandi í Afríku, Seretse
konungi, þrátt fyrir mótmæli ættingja sinna og tilraunir
brezku nýlendustjórnarinnar að koma í veg fyrir þaff.
Færeyingar binda
misjafnar vonir
við komu sendi-
■ nefndarinnar
dönsku
Koma danska innanríkis-
ráðherrans, Smörum, og
fjárhagsnefndar danska þings
ins til Færeyja hefir hlotið
misjafnar undirtektir. Full-
trúar og fylgismenn land-
stj órnarinnar færeysku, sem
stutt er af Sambandsflokkn-
um, jafnaðarmönnum og
flokksbroti Louis Zacharia-
séns, vilja gera veg gestanna
sem mestan og vænta sér
nokkurs góðs af komu þeirra.
En stjórnarandstaðan gerir
gys að Færeyjaförinni og
bendir á, að hingað til hafi
lítið flotið af því til gagns
fyrir Færeyinga, þótt sendi- I
nefndir hafi komið þangað |
frá Danmörku. Muni viðreisn 1
aráætlun stjórnarinnar litlu
nær því að verða að veruleika
fyrir þetta.
Hoffman ræðir
dollaraskort Breta
Paul Hoffman, fram-
kvæmdastjóri Marshallhjálp-
arinnar, ræddi við blaðamenn
í London í dag, um tilraun-
ir Breta til þess að sigrast á
dollaraskortinum. — Lét hann
svo ummælt, að það væri að-
allega tvennt, sem Bretar
gætu gert til þess að afla
sér meiri dollara. í fyrsta lagi
að fimmfalda framleiðslu
þeirra fyrirtækja, sem fram-
leiddu vörur, er hægt væri að
selja til dollarasvæðisins. f
öðru lagi að auka útflutning
Breta til dollarasvæðisins úr
600 milj. í 1800 milj. — Bret-
ar yrðu að fá Bandaríkja-
menn til þess að kaupa meira
af framleiðslu sinni, með því
að lækka framleiðslukostnað
inn og auglýsa vöru sína bet-
rætt í Strasburg
Almennar umræður um fé-
lagslegt öryggi urðu í dag á
fundi ráðgjafaþings Evrópu-
ráðsins í Strassburg. — Tóku
margír til máls, m. a. full-
trúar Breta, Frakka, Tyrkja
og Grikklands, en engar sam-
þykktir voru gerðar. — Brezki
fulltrúinn sagði, að nauðsyn-
legt væri að auka félagslegt
öryggi þegnanna í Vestur-
Evrópulöndunum, því það
væri bezta vopnið í barátt-
unni gegn kommúnismanum.
Hann sagði ennfremur, að
ekki komi til greina, að
Evrópulöndin minnkuð fjár-
veitingar sínar í því skyni,
þótt nokkrir hrokafullir valda
menn í Bandarikjunum mót-
mæltu því.
Hin hvíta drottning Bechu-
analands er nú kominn til
Afríku, og var henni ákaft
fagnað, er hún steig út úr
flugvélinni í Bamangwató.
Hinir væntanlegu þegnar
hennar sungu og dönsuðu
henni til heiðurs, þegar hún
ók brott af flugvellinum,
ásamt manni sínum, í gulum
amerískum bíl.
Höfuðstaður Bechuanalands
heitir Serewe, og eru þar um
30 þús. íbús/r. Flest húsin
eru •leirkofar, og búa skyld-
menni saman í kofahvirfing-
um, hver ættkvísl út af fyrir
sig. Það eru aðeins konungur-
inn, brezku embættismenn-
irnir og hvítir trúboðar, sem
Næturf rosf
í Svíþjóð
Mikill kuldi var í Dölunum
í Svíþjóð um síðustu helgi.
Féll kartöflugras og blóm í
næturfrostunum. Komst frost
ið sums staðar upp í fimm
stig, og muna elztu menn ekki
slíkan kulda á þeim slóðum
um þetta leyti árs.
búa í betri húsakynnum.
Vegir eru mjög.slæmir í
Bechuanalandi, og áhrif hinn
ar svokölluðu menningar hafa
lítt náð þangað. Samt sem
áður er kynþáttur sá, sem
þar býr, einn hinna fjölmenn
ustu og áhrifamestu í þess-
um hluta Afríku.
Hvorki mýs né rott-
nr á 8 færeysku
eyjanna
Færeysk blöð segja þær
fréttir, að í sumar hafi í fyrsta
skipti orðið vart við rottur á
Nólsey, sem er skammt fyrir
utan Þórshöfn. Áður hafa að
eins verið þar mýs.
Enn eru átta eyjar í Fær-
eyjum, þar sem hvorki eru
mýs né rottur, sumar fjöl-
byggðar. Eru þær Svíney,
Kqrlsey, Koltur, Tröllhöfði,
Tindhólmur, Skúfey, Stóra-
Dimon og Litla-Dímon.
í Fugley, Mykinesi og Hesti
eru aðeins mýs.
Skotiö á gríska her-
mertn frá Albaníu
Þjarmað að grískiim uppreisuarmönnum.
f herstjórnartilkynningu gríska hersins, sem birt var í
Aþenu í dag, segir aff skotiff hafi veriff á gríska hermenn frá
albönsku landamærunum og hafi allmargir særst. — Segir
ennfremur, aff lík 20 albanskra hermanna hafi fundist inn-
an grísku landamæranna og 7 albanskir hermenn hafi verið
handteknir rétt fmfian við grísku landamærin.
Tvíþætt sókn.
í tilkynningu stj.órnarinnar
segir og, að herjum hennar
hafi orðið mikið ágengt und
anfarið, í baráttunni við
skæruliða. Sókn þeirra hafi
aðallega verið tvíþætt.
Tvær hæffir teknar-
í fyrsta lagi hafi hún mið-
að að því að einangra upp-
reisnarmenn frá landamær-
um Albaníu, og háfi stjórnar-
herirnir í dag ná'ð'á sitt vald
'tveimur mikilvægum hæðum,
skahrmt frá landamærúnum.
í öðru lagi hafi svo verið haf-
in allsherj arsókn gegn aðal-
bækistöðvum uppreisnar-
manna í Grammosfjöllum.
Góður aíli á
nýju beituna
Bátar frá Raufarhöfn, sem
þorskveiði stunday hafa feng
ið góðan afla nú'.,úpp á síð-
kastið, og þótti - bregða til
batnaðar um aflábrögðin, er
bátarnir fengu níýja sild til
beitu.
Svipaða sögu er að segja
viðar af Norðausturlandi,
þar sem bátar gariga til fiskj-
ar. ';i'.
wV
----------------f~--------
Er Herta Kuusinen
fallin í ójsáð í
Moskvu?
Aðalmálgagn finnska jafn
aðarmannaflokkslns flytur
þá fregn, að Hertíia Kuusin-
en, foringi finngk’ra komm-
únista, sé falli'^ J ónáð í
Moskvu og eigi ‘að víkja úr
foringjasessinunkf. — Orsök
þessa sé, að k.ommúnistar
hafi farið halloka i stjórn-
málabaráttunni i~ Finnlandi
undanfarna májjuði.
Hertha Kuusinén var í
Búdapest í sumai: og gaf þá
í skyn, að hún vildi ef til vill
senn taka sér hyild frá póli-
tískum störfum...
Engin staðfesting hefir
enn fengizt á þessuri frétt.
Frjálsir Albanar
Tilkynnt var í París í dag,
að stofnuð hafi verið sam-
tök frjálsra Albana og myndu
aðalbækistöðvar þeirra verða
í New York. —' 'Samtök þessi
ætla að berjast-fyrir því, að
Albanía „endurhgimti sjálf-
stæði sitt“.
Afli ísfirzkra
trillubáta
í s. 1. viku veiddust um 100
tunnur millisíldar í Skötu-
firði. Lítið síldarmagn virðist
þó vera í Djúpinu. Fiskafli
trillubáta hefir verið ij^emi-
legur i sumar, og eru bát-
arnir, sem þessa veiði stunda
með flesta móti. Einn bátur
reyndi nýlega síldveiði í rek-
net í Djúpinu en fékk enga
veiði.
Þingslitin 1. og 2.
september
Missögn varð hér í blað-
inu í fyrradag í frásögn af
slitafundi Búnaðarþings, sem
halda á að Egilsstöðum fyrstu
dagana i september. Þar er
missagt, að fundurinn yrði 3.
og 4. sept., sem er fimmtud.
og föstudagur. Koma þing-
fulltrúar og gestir til Egils-
staða að kvöldi síðasta ágúst.
Hinn 3. sept halda þeir svo
aftur til Reykjahlíðar og hitta
þar fulltrúa á aðalfundi Stétt
arsambands bænda.
5 ára samningur
Þing Argentínu hefir nú
sámþykkt 5 ára viöskipta-
samning, varðandi sölu á kjöti
við Bretland. Urðu allheitar
umræður um samninginn,
áðúr en hann var samþykkt-
ur.
Inulend slökkvi-
tæki
(Framhald af 1. síðu)
staði t. d. í Þj óðleikhúsið og
einnig í ýms skip.
Handslökkvitækin.
Handslökkvitækin eru aft-
ur á móti mjög hentug í
heima húsum vegna þess hve
auðveld þau eru í notkun og
kraftmikil, en þau draga um
8 metra og er hægt að stýra
þeim á ákveðinn depil ef með
þarf. Handslökkvitækin eru
tvenns konar Natron-hand-
slökkvitæki og Kvoðu-hand-
slökkvitæki. Kvoðu-tækin eru
aðallega notuð á olíu- og
benzín-elda og aðra elda er
myndast í fljótandi vökvum.
Þessi tæki þurfa endurhleðslu
árlega og kostar hleðslan um
12 kr. og sér fyrirtækið um
það.