Tíminn - 21.09.1949, Síða 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 21. september 1949
200. blað
<sf~
Þórurm S. JóhanrLsdóttir:
'Jrá hafi ti'I heiía Ji
Píanó-hljómleikar
í dag.
Sólin kom upp kl. 7.07.
Sólarlag kl. 19.33.
Árdegisflóð kl. 5.30.
, Síðdegisf lóð kl. 17.48.
I nótt.
Nœturlæknir er í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólan-
um, sími 5030.
Næturvörður er í lyfjabúðinni
Iðunn, sími 7911.
Næturakstur annast bifreiöa-
stöðin Hreyfill, sími 6833.
Útvarp'ið
Ú.tvarpið í kvöld.
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20.30 Útvarpssagan: „Hefnd
vinnupiltsins" eftir Victor Cher-
buliez; XIII. lestur (Helgi
Hjörvar). 21.00 Tónleikar: Kvint
ett í Es-dúr op. 44 eftir Schu-
rnann (plötur). 21.35 Frásögu-
báttur: Guðni gamli; sjúkrasaga
(Ingólfur Gíslason læknir). 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.05
Danslög (plötur). 22.30 Dag-
skrárlok:
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Hekla er í Álaborg. Esja fór í
gærkvöldi kl. 21.00 vestur um
land til Akureyrar. Herðubreið
fór kl. 21.00 i gærkvöldi austur
um land til Vopnafjarðar. Skjald
breið er í Reykjavík. Þyrill er í
Faxaflóa.
Sambandsskip.
Hvassafell kemur til Reykja-
víkur í kvöld.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Kaupmanna
höfn 18. sept. til Reykjavíkur.
Dettifoss er í Kaupmannahöfn.
Fjallfoss kom til Leith 18. sept.,
fór þaðan 19. sept. til Kaup-
rnannahafnar. Goðafoss kom til
Reykjavíkur 15. sept. frá IIull.
Lagarfoss fór frá Reykjavík 17.
sept. til London, Antwerpen og
Rotterdam. Selfoss fór frá Rvík
14. sept. austur og norður um
land, var á Húsavík í gær. Trölla
foss kom til Reykjavíkur 18. sept.
frá New York. Vatnajökull kom
til Reykjavíkur 17. sept. frá
Leith.
Einarsson & Zoéga.
Foldin kom til Reykjavíkur í
gærmorgun. Lingestroom er í
Amsterdam.
og eru sýningar hafnar aftur í
Sjálfstæðishúsinu og'verður sýn
ing í kvöld og næstu kvöld.
Í.R. vann Reykjavíkur-
boðhlaupið.
S.l. mánudag fór fram boð-
hlaupið umhverfis Reykjavík og
fóru leikar þannig að sveit í.R.
varð hlutskörpust og hljóp á
17:05,2 mín. Næst varð sveit K.
R. hljóp á 17:30,0 og þriðja varð
sveit Ármanns 18:26,0. Þetta er
í þriðja sinn er Í.R. vinnur hlaup
ið í röð og vann því verðlauna-
gripinn til eignar. I sveit Í.R..
voru: Pétur Einarsson, Örn Eiðs
son, Stefán Sörensson, Svavar
Gests, Garðar Ragnarsson, Jó-
; hann Guðmundsson, Þorsteinn
Löve, Þorsteinn Friðriksson, Þor
valdur Óskarsson, Kristinn Vil-
helmsson, Finnbjörn Þorvalds-
son, Reynir Sigurðsson og Ósk-
ar Jónsson.
Haustfermingarbörn
Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík komi til viðtals
við prófessor Ásmund Guðmunds
son í Fríkirkjunni, fimmtudag-
inn 22. sept. kl. 5 e. h. — Safn-
aðarformaður.
Ilaustfermingarbörn
komi til séra Bjarna Jónsson-
ar í dómkirkjuna í dag kl. 5 e. h.
og haustfermingabörn séra Jóns
Auðuns komi í kirkjuna kl. 5 e.
h. á fimmtudag.
Málverkasýning •
Harðar Ágústssonar.
Mikill áhugi er fyrir málverka
sýningu Harðar Ágústssonar í
Listamannaskálanum og hafa
um 600 manns skoðað sýning-
una og 30 myndir hafa selst. Er
þetta óvenjulega góð aðsókn og
' sala hjá jafn ungum málara og
Hörður er. Að sýningunni lok-
inni fer Hörður utan aftur til
framhaldsnáms. Sýningin er op-
jin daglega frá 10—23.
Þórunn Jóhannsdóttir
píanósnillingur
kom til Reykjavíkur s.l. sunnu
^ggiuia
dag frá London ásamt foreldr-
um sínum og munu þau dveljast
hér um þriggja vikna skeið.
Átta kennarar
hafa verið ráðnir við gagn-
fræðaskólana í Reykjavík. Kenn
ararnir eru þessir: Jón Guðjóns-
son og Sigurður H. Sigurðsson
við gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar; Lilja S. Kristjánsdóttir,
Helga Þórðardóttir og Gunnar
Bergmann við gagnfræðaskól-
ann við Lindargötu, og við gagn-
fræðaskólann við Hringbraut.
Ragnar Georgsson, Jón ísleifs-
son og Finnur Einarsson.
|
Ný farþega-afgreiðsla F. í.
1 Flugfélag íslands hefir komið
farþegaafgreiðslu sinni á Reykja
víkurflugvelli fyrir í nýjum húsa
. kynnum. — Var bækistöð fé-
| lagsins áður suðvestan til á vell-
j inum og kvörtuðu margir und-
I an því, að erfitt væri að rata
þangað, enda var leiðin ómerkt
og talsvert löng. Nú er ekið að
nýju farþegaafgreiðslunni frá
Njarðargötu, fyrir sunnan Tívoli
Slysavarnafélagi íslands
hefir borizt kr. 1.100,00 pen-
ingagjöf frá fólki í Borgarfirði
í Austurbæjarbíó, fimmtudaginn 22. sept. kl. 7,15
Aögöngumiðar seldir hjá Eymundsson, Ritfanga-
verzlun ísafoldar og hjá Lárusi Blöndal.
Flugferðir
eystra, og fylgdi gjöfinni eftir-
farandi bréf:
„Við undirrituð leyfum okkur
hér með að senda Slysavarnafé-
lagi íslands kr. 1.100,00 að gjöf,
sem er ágóði af samkomu er við
hinn 4. september gengumst fyr
ir að haldin yrði hér til styrktor
og eflingar slysavarnarmálum
i þjóðar okkar, sem okkur er afar
kært málefni, og við svo
lítum á, að beri að styrkja og
efla. En Slysavarnafélag íslands
I teljum við hinn fyrsta og rétta
j aðilja um þau mál. — Með vin-
! semd. — Anna Jóhannsdóttir,
Þórhalla Sveinsdóttir, Guðrún
Þorleifsdóttir, Óli Jóhannsson,
Sigmar Ingvarsson, Sigursteinn
Jóhannsson, Sigursteinn Hall-
grímsson og Bjarni Steins.“
Sýnikenslunámskeið
Húsmæðrafél. Reykjavíkur
byrjar 26.—27. sept. Kennt verður Kalt borð, Græn-
metisréttir, Smurt brauð, bakstur o. fl.
Kennari verður frú Sigríður Haraldsdóttir.
Allar nánari upplýsingar í síma 4740 — 5192 —
1810 — 5236 — 4442 — 80597.
N. B. Þátttaka óskast tilkynnt hið allra fyrsta.
Forstöðunefnd
Þakka* innilega hinar mörgu vinarkveðjur, heim- |
sóknir og gjafir á sjötugsafmæli mínu.
STEFÁN BJÖRNSSON |
Akurseli
UllltllltllltlllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIM
Allsherjarþingið
sett
Allsherj arþing S. Þ. kom
saman til fundar í New York
í fjórða sinn í gær. Forseti
þingsins 'var kjörinn Carlos
Romulo forseti Filippseyja. —
Aðalmál þingsins verða eins
og fyrr hefir verið skýrt frá
ástandið á Balkanskaga og
ráðstöfun fyrri nýlendna í-
tala. Þá á einn'ig að kjósa ful!-
trúa í öryggisráðið i stað full-
trúa Kanada, Argentínu og
Ukraínu.
Lítil síldveiði
Sæmilegt veiðiveður var á
síldarmiðunum norðaustan
lands í gær, en litlar sem eng-
ar fregnir bárust um veiði. —
Nokkuð var þó saltað s.l. sól-
arhring og var það síld, sem
barst í fyrrinótt. Söltunin á
öllu landinu nemur nú nær 67
þús. tunnum.
Blöndunariæki — blandið verð
Loftlciðir.
1 gær var flogið til ísafjarðar,!
Patreksfjarðar, Akureyrar Vest-
mannaeyja, Ingólfsfjarðor.
í dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja (2 ferðir), Akur
eyrar, ísafjarðar, Siglufjarðar, j
Kirkjubæjarklausturs og Fagur-
hólsmýrar. Einnig frá Hellu tíl
V estmannaey j a.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Vestmannaéyja (2 ferðir),
Akureyrar, ísafjarðar, Patreks-
fjarðar, Bíldudals og Sands.
„Hekla“ er væntanleg um kl.
17.00 í dag.
„Geysir" er væntanlegur frá
New York í dag.
Úr ýmsum áttum
BÍáa Stjarnan
er lcominn aftur til Reykja-
víkUr, eftir förina til Akureyrar
Verðlag á ýmsum varningi hér
í tænum. og sennilega víðar,
kemur fólki stundum einkenni-
lega fyrir sjónir — jafnvel á því,
sem þó er selt fyrir opnum
tjöldum.
Um skeið fengust ekki blönd-
unartæki í baðherbergi. Nú er
hins vegar komið allmikið af
slíkum tækjum í margar búðir.
En þá bregður svo við. þótt þess-
ar vörur hafi alls staðar komið
fram í íslenzkt dagsljós um
svipað leyti, að verð á þeim er
harla mismunandi — sums stað
ar tvöfalt hærra en annars stað-
ar, og meira en það. Öll eru
þessi tæki þó svipuð, svo að ó-
fróður almúginn sér þar engan
mun á, og allar segja verzlan-
irnar hið sama, ef talið berst að
verðinu: Tækin eru frá ítalíu.
og þess vegna eru þau svona dýr.
En spurning almennings er:
Ilvers vegna eru þau svo mis-
jafnlega dýr, eftir því i hvaða
búð er?
Og nú kemur hér verðlistinn
— að vísu aðeins frá 4 eða 5
verzlunum. í Héðni kosta þessi
tæki 268 krónur, hjá Málmey á
Laugavegi 306,80, hjá Á. Einars-
son & Funk 370 og hjá Slippfé-
laginu hvorki meira né minna
en 611 krónur.
í Kaupfélagi Þingeyinga í
Húsavík munu slík tæki hafa
fengizt í sumar fyrir nokkuð yfir
200 krónur.
Hvernig víkur þessu við? Svo
spyrja fróðleiksfúsir menn. Og
margir myndu vafalaust fúsir til
þess að aka verðlagsstjóranum
milli búðanna, svo að hann gæti
kynnzt þessu, að vísu ekki ein-
stæða, en samt athyglisverða
fyrirbæri.
J. H.
„Sex í bíl” sýna
Candidu í Rvík
Annaö kvöld kl. 8,30 hefir
leikflokkurinn 6 í bíl fyrstu
sýningu hér í Reykjavík á
Candidu eftir Bernhard Shaw.
Eins og skýrt hefir verið
frá áður hefir flokkurinn
verið á ferðalagi víða um
land í sumar. Lagt var upp
í fjögra vikna ferð 9. júli og
farið um Norðurland og Aust-
urland. Síðan var skroppið til
Vestfjarða og sýnt þar á
fimm stöðum. Auk þess hefir
verið farið um helgar og
hafðar sýningar í nágrenni
Reykjavíkur.
í flokknum eru 6 leikarar:
Gunnar Eyjólfsson, sem er
(leikstjóri, Lárus Ingólfsson,
|sem jafnan sér um útbúnað
á sviði, Jón Sigurbjörnsson,
sem var bílstjóri, Þorgrímur
Einarsson, Hildur Kalman og
Guðbjörg Þorsteinsdóttir.
. Hvíslari er enginn með flokkn
jum.
Leikendurnir láta hið bezta
yfir ferðalagi sínu. Þeim var
hvarvetna vel tekið og fólk
kom oft langan veg á sýning-
ar þeirra. Alls hafa þeir haft
45 sýningar á 31 stað og eru
þá taldar með sýningar í Krist
j nesi og á Vífilstöðum, þar sem
'aðgangur var ókeypis.
Átján ríki . . .
Framhald af 8. síðu.
jafns við pundið. Franska
stjórnin feldi gengi frankans
um 27% eða lítið eitt minna
en pundið. Búizt er við að
ítalia muni fella gengiö til
jafns við pundið, þótt ekki
hafi verið tekin ákvörðun
um bað, enn.
Ríkisstjórnir Póllands, Aust
urríkis og Ungverjalands hafa
Itilkynnt, að þær muni ekki
,lækka gengið.
I
jÞýzka markið að
líkindum fellt
Adenauer lcanslari Vestur-
Þýzkalands hélt ræðu í gær
í tilefni af skipim stjórnar
sinnar. Ræddi hann fyrstu
verkefni stjórnarinnar og að-
aliega viöhorf til gengisfell-
ingarinnar i Evrópu. Kvað
hann það líklegt að óhjá-
kvæmilegt reyndist að láta
markið fylgja pundinu, þótt
það væri ekki ákjósanlegt
tilhugsunar.
Niðurgreiðslur
í Svíþjóð
| Erlander forsætisráðherra
^Svía lét svo um mælt í gær,
|að Svíar mundu gera ýmsar
jráðstafanir til þess að koma
1 í veg fyrir aukinn framfærslu
j kostnað vegna gengisfellingar
innar. Hann sagði, að hann
i mundi að líkindum hækka
. um 1—2% og ef til vill mundi
jverða gripið til niðurgreiðslu
til þess að halda framfærslu-
kostnaði í sama horfi. Til þess
mundi þurfa 150 millj. kr. á
| ári og tekjuafgangur ríkis-
^sjóðs þyldi það vel.