Tíminn - 25.10.1949, Side 1
I Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
i------,-
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
------------------------------
33. árg.
Reykjavík, Imðjudaginn 25. október 1949
228. blað
Þingkosningar í höfuðstaönum færa Framsóknarflokkn-
um sigur í fyrsía skipti
Rnniivcig l»orsíeÍMsdóttsr kosin með
2996 atkvíeðnm
Úrslit kosninganna í Reykjavík urðu þau, að Alþýðu-
flokkurinn fékk 4420 atkvæði, Framsóknarflokkurinn 2996,
Sósialistaflokkurinn 8133 og Sjálfstæðisflokkurinn 12990
atkvæði. Kjörnir voru Haraldur Guðmundsson af A-Iista,
Rannveig Þorsteinsdóttir af B-lista, Einar Clgeirsson og
Sigurður Guðnason af C-lista og Bjarni Benediktsson, Björn
Ólafsson, Jóhann Hafstcin og Gunnar Thoroddsn af D-lista
— Árið 1946 fékk Alþýðuflokkurinn 4570 atkvæði, Framsókn-
arflokkurinn 1436, sósíalistar 6990 og Sjálfstæðismenn 11580.
Framsóknarmenn hafa því meira en tvöfaldað fylgi sitt, en
Alþýðuílokkurinns stórtapað, sniöað við fjölgun kjósenda í
bænum. Það er og athyglisvert, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefir einnig tapað hlutfallslega í höfuðstaðnum, auk þess
sem geysilega mikið var af útstrikunum og breytingum á lista
hans, svo að segja má, að flokkurinn sé margklofinn.
Rannveig Þorsteinsdóttir
Framsóknarflokkurinn nær tvöfaldar
fylgi sitt í kaupstöðum landsins
Sósíalistar og Alþýðuflokkurinn tapa.
Finnur og Emil ná kosningu með naumindum
Kosningu varl Iokið í öllum sýslum landsins um kl. 9
i gærkvöldi og um kl. 10 hófst talning .atkvæða í kaup-
staðakjördæmum og Borgarfjarðarsýslu laust eftir mið-
nættið. í kaupstaðakjördæmunum hefir Framsóknarflokkur-
inn aukið fylgi sitt mjög. I síðustu kosningum fékk hann !
þar samtals 2685 atkvæði en nú um 4660 atkvæði. Alþýðu-
fíokkurinn hefir tapað miklu, og þjéðin hefir þar með for-
dæmt samstöðu hans i flestum málum við Sjálfstæðisflokk-
inn í stjórnarsamvinnunni. Athyglisverðast í þessu sambandi
er það, að tveir af fremstu forystumönnum flokksins, Finn-
ur Jónsson á ísafirði og Emil Jónsson í Hafnarfirði, sem
samhentastir hafa verið Sjálfstæðisflokknum, skriðu með
naumindum inn á þing, og Finnur aðeins á landlistaat-
kvæðum. — Sósíaiistar hafa tapað í öllum kaupstöðum og
sums staðar mjög mikið, svo sem á Akureyri.
Hafnarfjörður.
í Hafnarfirði, þar sem um
langt skeið hefir verið eitt
höguðvígi Alþýðuflokksins,
náði Emil Jónsson viðskipta-
málaráðherra kosningu með
litlum meiri hluta. Hlaut
hann 1058 atkvæði og 48 á
landlista, samtals 1106 at-
kvæði. 1946 fékk hann 1126
atkvæði.
Stefán Jónsson fékk 78 at-
kvæði, Magnús Kjartansson
390 og Ingólfur Flygenring
1002. Árið 1946 fékk Jón Helga
son 47 atkvæði, Hermann Guð
mundsson 410 atkvæði og
Þorleifur Jónsson 688. Fram-
sóknarmenn og Sjálfstæðis-
menn hafa því aukið fylgi sitt
hlutfallslega til mikils muna,
en kommúnistar tapað.
ísafjörður — Finnur fékk
færri persónuleg atkvæði
en Kjartan.
Á ísafirði var kosinn Finn-
ur Jónsson, og kemst hann á
þing á landlistaatkvæðum.
Hann fékk 579 otkvæði og 49
á landlista, samtals 628. Jón
á. Jóhannsson fékk 67 og
tvöfaldaði nærri fylgi Fram-
sóknaimanna, Aðalbjörn Pét
ursson fékk 115 atkvæði, en
Kjartan Jóhannesson fékk
616 atkvæði.
Árið 1946 fékk Finnur Jóns-
son 713 atkvæði, Kristján
Jónsson 35 atkv., Sigurður
T’noroddsen 153 atkv. og Kjart
an Jóhannesson 564 atkv.
Sósíalistar og Alþýðuflokks-
menn hafa því tapað, en
Sjálfstæðismenn unnið á,
auk Framsóknarmanna.
Áki hélt velli í
Siglufirði.
í Siglufirði var kosinn Áki
Jakobsson með 564 atkv., Jón
Kjartansson fékk 133, Erlend
ur Þorsteinsson fékk 500 og
Bjarni Bjarnason fékk 418.
Árið 1946 fékk Áki 601 at-
kvæði, Jón 129, Erlendur 463
og Sigurður Kristjánsson 330.
Sjálfstæðismenn og Alþýðu-
flokkurinn hafa því unnið á,
en sósíalistar tapað. Fram-
sóknarmenn unnu örfá at-
kvæði.
Sjálfstæðirmenn sigruöu
á Akureyri.
Á Akureyri var kosinn Jón
as Rafnar með 1292 atkvæð-
um, Kristinn Guðmundsson
fékk 1072 atkvæði, Steindór
Steindórsson 439 og Steingrím
ur Aðalsteinsson 709 atkv.
Árið 1946 fékk Sigurður
Hlíðar 961 atkvæði, Þorsteinn
M. Jónsson 844, Steindór 579
og Sceingrímur 931.
, Framsóknarmenn hafa því
unnið verulega á, þótt það
nægði ekki til þess að tryggja
dr. Kristni þingsætið. enda
töpuðu bæði Alþýðuflokkur-
inn og sósíalistar.
(Framhald á 2. síðu).
Ráðherrar Framsóknar- |
flokksins leggja sennilega |
fram tausnarbeiöni sína |
í dag
Ráðherrar Framsóknarflokksins tilkynntu, er |
þeir féllust á að sitja í ríkisstjórninni fram yfir kosn- |
ingar, að þeir myndu leggja fram lausnarbeiðni ssna, |
þegar að þeim afstöðnum.
Er nú gert ráð fyrir því, að lausnarbeiðni þeirra |
I verði afhent forsætisráðherra í dag. Lýkur þar með af |
1 hálfu Framsóknarflokksins, eins og tilkynnt hafði |
| verið fyrir kosningar, stjórnarsamvinnu þeirri, sem f
f hófst veturinn 1947.
^.llllMlimimMIIMIIIMMMMIMmuilllMIIIIMIimillWMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIIIIIIMMIIIimiHlimiimiMIIHMH ««•«•«
Bóndi í Kjós fellur niður
stiga og bíður bana
Var aS Icggja af stað heimleiðis af
kjörstað
Það sorglega slys varð á kjörstað í Kjósinni á sunnu-
daginn, að Jón Ólafsson, bóndi að Vindási, féll niður stiga,
með þeim afleiðingum, að höfuðkúpan brotnaði, og and-
aðist hann í sjúkrahúsi í gærmorgun.
Kosning fór fram í hinu
nýja skólahúsi sveitarinnar,
norðan Laxár, skammt frá
Laxárbrú. Er hús þetta ekki
enn fullgert, vantar handrið-
ið á stigann og ekki tókst að
koma ljósum í lag fyrir kjör-
daginn. Hins vegar var Jón
kunnugur í húsinu, og er gizk
að á, að hann hafi fengið að-
svif.
Jón var í þann veginn að
leggja af stað heim til sín, er
slysið varð. Klukkan var orð-
in nær átta, og orðið skugg-
sýnt. Stiginn er í tveimur á-
föngum, og var Jón í efstu
þrepunum. er hann steyptist
iniður, og féll niður i neðri
Iþrepin, rétt viö fætur tveggja
m'anna, sem gengið höfðu nið
ur á undan honum.
Þegar var símað eftir
lækni frá Reykjavík, og var
Jón síðan fluttur í Landakots
spítalann í Reykjavik. Þar
; andaðist hann klukkan hálf-
sjö í gærmorgun.
I Gert er ráð fyrir, að lík
Jóns verðl flutt heim í dag.
i Jón var maður hálf-fimmt-
tugur. góður búþegn og mæt-
! ut- maður. Hann lætur eftir
Jsig ekkju, Kristínu Jónsdótt-
ur frá Sandi, og tvö ung börn.
pilt og stúlku.
Rauði Krossinn
25 ára
Hinn 10. desember n.k eru
liðin 25 ár síðan Rauði Kross
íslands var stofnaður. í til-
efni af því hefir þótt viðeig-
andi að láta tímarit hans,
Heilbrigt líf, koma út nálægt
afmælinu, öll heftin í einu
lagi.
Af þessu tilefni hefir út-
koma tímaritsins dregist
nokkuð, og eru kaupendur
beðnir að virða til betri veg-
ar.
Reynt hefir verið að vanda
til ritsins eftir föngum. Af
þeim ritgerðum, sem væntan
lega birtast í þvi að þessu
sinni, mætti nefna: Tennurn
ar og fæðan, eftir Valtý Al-
bertsson lækni, Vandræða-
börn og vangefin. eftir Bald-
ur Johnsen héraðslækni, Of-
drykkja er sjúkdómur, eftir
Alfreð Gíslason lækni.
Komi ekkert óvænt fyrir,
sem tefur útkomu ritsins,
kemur það væntanlega út í
næsta mánuði.