Tíminn - 25.10.1949, Síða 6
6
TÍMINN, þriðjudaginn 25 október 1949
228. blað
TJARNARBID
I i
C Z
s :
Auga fyrir anga i
(Gunfighters)
Afar spennandi ný amerísk |
mynd í eðlilegum litum.
Bönnuð börnum.
y |
:
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
uimimiiii
N Y J A B I □
■
Neð báli og brandi i
(Drums Along the Mohawk) |
Sö'guleg stórmynd um frum-1
byggjalíf í Bandaríkjunum. — |
Myndin sýnir á stórfelldan hátt I
baráttu landnemanna gegn árás i
um villtra Indíána. Aðalhlutv.: |
Henry Fonda
Claudette Colbert
Bönnuð börnum yngri en 14 ára f
§
| Sýnd kl. 5, 7 og 9.
| j
liliiiliiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiinimmvimiiiiiiiiiii
Hafnarf jarðarbió
Járntjaldið
= i
| Amerisk stórmynd um njósn- f
f irnar miklu í Canada 1946.
Aðalhlutverk:
Dana Andrews
Gene Tierney
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9249.
I
Slæðingur
I Topper kemur aftur!
f Bráðskemmtileg og spennandi
= amerisk gamanmynd. — Dansk-
f ur texti. Aðalhlutverkið, Topp-
| er, leikur
ROLAND YOUNG,
f sem einnig lék sömu hlutverk í
I tveim Topper-myndunum, er
f bíóið sýndi s.l. vetur.
É Önnur hlutverk:
Joan Blondell,
Carole Landis
f Bönnuð börnum innan 12 ára. i
Sýnd kl. 5, 7 og 9. j
uiiiiinininniraiiiiiiiiiiiiiHiiiiinmfiniinumiiniiuuiii
ViO
SKÚLAfiOTU
Spaða*
drotíningin
(The Queen of Spades)
Sýnd kl. 7 og 9.
Feiti I*ór
sem glæpamaður
| (Tykke Thor sem Gangster)
Sýnd kl. 5.
fTiUr'i
Drottning
listarinnar
Fögur og heillandi mynd úr lífi i
hins mikla tónsnillings Franz |
Schubert og konunnar, sem!
hann sótti verk sín til. Tónlst- i
in er úr verkum Schuberts. — i
Danskur texti. Aðalhlutverk: i
lloma Massey
Alan Surters
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA B I □
Herlæknirinn
(HOMECOMING)
Tilkomumikil og spennandi ný |
amerísk kvikmynd.
:
CLARK GABLE
LANA TURNER
ANNE BAXTER
JOHN HODIAK
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 14 ára fá ekki
aðgang.
IIIISIIIIIIIIIItllUIIHUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
aiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiuiHiiiuiiiiiiiiiiuiiuiiuuiit
1111 IIIUUUIMlll'IIHIIIIIIIIUIUUIIHItHUUIHIIIIUIItvllllllllll
BÆJARBID
I HAFNARFIRÐI |
Olbogabörn
: Efnismikil og mjög vel leik- f
5 in sænsk kvikmynd, er hlotið I
: hefir mikið#2of.
Aðalhlutverk:
Adolf Jahr
Britta Brunius
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9184.
I__ __ _
«*MMiuillHUIlliuiiiliii3HiitiicinnntHiiir»«*fiimifiiiiii.
TRIPDLI-BÍD
Konungur
sláttunnar
(The Dude Goes West) f
:
Afar spennandi, skemmtileg og f
hasarfengin, ný, amerísk kú-1'
rekamynd. Aðalhlutverk:
Eddie Alberts
Galo Storm
Glibert Roland
Barton McLane
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Myndin er bönnuð börnum |
yngri en 16 ára.
Sími 1182.
UIIIIIHIIIHIIHHIIUIIIIIIIIIHIIHIIIIIIHIIiaUIIHlllliruUHI
Vátrygging ríkis-
skipanna
(Framhald at 4. síðu).
að hugsanlegt er, að annar
aðili komist á þá skoðun af
ókunnugleika. eða bjartsýAi,
að hægt sé að reka trygg-
ingarnar fyrir lægra gjald en
Samábyrgðin telur sig þurfa
að taka. Og hvað á þá að
gera. Á að láta hinn nýja
aðila taka að sér tryggingarn
ar eða leyfa Samábyrgðinni
að ná sér upp á þeim? Á und-
anförnum 20 árum hefir fyrri
aðferðin verið höfð og talin
samrýmanlegust hagsmunum
kaupanda trygginganna. Það
hefir líka áður komið fyrir,
að Samábyrgðin hafi misst
viðskipti af nefndum sam-
keppnisástæðum, og skal i því
sambandi bent á eftirfarandi
dæmi:
Fram til 1934 hafði Sam-
ábyrgðin haft á hendi vá-
tryggingu Ægis, og höfðu ið-
gjöldin farið hækkandi vegna
tjóna. Við endurnýjun vá-
tryggingarinnar nefnt ár taldi
stofnunin sig þurfa að fá árs-
iðgjald að upphæð kr. 41.250.
00, en var ófáanleg til þess
að ábyrgjast áhættu skipsins
í sambandi við bjarganir
strandaðra skipa, og virðist
þar með viðbúið, að sú starf-
semi yrði að leggjast niður,
þó að hún hefði þá og síðan
oft reynzt mjög arðvænleg.
En þá tókst Skipaútgerðinni
að fá Ægi vátryggðan annars
staðar en hjá Samábyrgðinni
fyrir ársiðgjald kr. 27.546.75
með sömu tryggingarupphæð
(900 þús. kr.) og vátryggingar
skilmálum og Samábyrgðin
bauð, en með ótakmörkuðu
leyfi til björgunarstarfsemi.
Var þetta mikill mismunur
á þeim tíma.
Vér höfum þá gert máli
þessu þau skil, er ættu að
nægja til þess að sýna, að
aðdróttanir til vor í umræddri
blaðagrein eru algerlega út
í bláinn.
Með þökk fyrir birtinguna.
Skipaútgerð Ríkisins,
Pálmi Loftson
Fasteignasölu-
miðstöðin
Lækjargötu 10B. Síml 6530.
Annast sðlu fastelgna,
skipa, blfrelða o. fl. Enn-
fremur alla konar trygglng-
ar, svo sem brunatrygglngar,
innbús-, llftryggingar o. fl. I
umboðl Jóns Flnnbogasonar
hjá Bjóvátrygglngarfélagl ís-
lands h.f. Viðtalstíini alla
vlrka daga kl. 10—5, aðra
t.tma eftir samkomulagl.
Eldurinn
gerir ekkl boð á undan sér!
Þelr, sem eru hyggnlr,
tryggja straz hjá
Samvirmutryggmgum
—----
39. dagur
Gunnar 'Widegren:
Greiðist við mánaðamót
, verð að skrifa Georg. Það eru vanalega fjórir tímar
og sjö arkir, og ég léttist um tvö pund.
Murran kemur inn. Nýtt heimboð. Hún er líka í önn-
um. En í þessu ber Löngu-Bertu að, og hún er fús á
að koma, þótt enginn mælist til þess.
— Ef Stella er orðin svona hrædd við að vera ein,
skal ég styrkja hana með návist minni. Hvað gerir
maður ekki fyrir vini sína? sagði hún sjálf, þegar
hún seldi aðgöngumiðana fyrir málarann. Það er mikill
sannleikur í þeim orðum! Leggið þau á minnið. Um
hvaða leyti dags tekur ungfrúin á móti gestum?
— Velkomin klukkan hálf-sjö. segir Stella rauna-
mædd. Löngu-Bertu hefði hún sízt viljað fá heim til
! sín. Það veit enginn, hverju hún kann að ljóstra upp.
— Hálf-sjö, segir hún. Það er betra, finnst mér, að
ég fari heim með þér og borði með þér — ja, ég get
borgað hálfan kostnaðinn og þvegið diskana, svo að
ekki verði sagt um mig í eftirmælunum, að ég hafi
niozt á félögum mínum.
— Velkomið, ef þú vilt þaö heldur, segir Stella and-
varpandi.
Það þarf ekki að kvarta yfir matnum. Þær sjóða
kálsúpu, brúna kartöflur og svo gæddu þær sér á
eplaköku sem þær keyptu á heimleiðinni.
Stella veltir þvi sífellt fyrir sér, hvernig hún eigi að
búa Löngu-Bertu undjr komu Karls Uggeholts. Hún
verður að fara gætilega í sakirnar, því að Langa-
Berta var alltaf Langa-Berta.
Auðvitað ber sitt af hverju til tíðinda, áður en Stella
hefir ráðið við sig, hvernig hún á að hefja atlöguna.
Það er alltaf eitthvað að gerast kringum Löngu-Bertu.
Hún hafði til dæmis farið inn á undan Stellu, því að
hún fann sem var, að hún var gesturinnn. Á gólfinu
í forstofunni liggur bréf — með herstimpli. Langa-
Berta er búin að þrífa það, áður en Stella áttar sig.
Hún aðgætir undir eins hver sendandinn er.
— Það er frá grifflinum þínum, segir hún. Jú — þó
það væri nú. Ef þú vilt, þá skal ég fara undir eins, svo
að þú getir lesið það í næði. Svo verður Jóhanna auð-
vitað í öðrum lieimi það sem eftir er kvöldsins....
— Blessuð vertu — ég er ekki eins forvitin og þú
heldur, svarar Stella og stingur bréfinu niður í skúffu.
Langa-Berta horfir forvitnisaugum á eftir því
— Ég get ekki að því gert — ég verð alltaf forviða,
þegar fólk opnar ekki bréfin sín undir eins, segir Langa-
Berta í hjartans einlægni. Það er alltaf svo æsandi að
vita, hvað í bréfum stendur. Þau varða heill og ham-
ingju og líf og dauða, og svo stingurðu því niður í
; skúffu! Eins og þetta sé götóttur sokkur!
Stella er enn að hugleiöa, hvernig hún á að búa vin-
konu sína undir komu málarans, er síminn hringir.
Hún svarar. Þetta er stúlka, sem biður afsökunar og
segist hafa hringt i skakkt númer. En nú flýgur Stellu
ráð í hug. Hún sleppir ekki heyrnatólinu — lætur eins
og hún sé að tala við einhvern.
— Nei, komdu sigursæll! Málverkin hans pabba....
þú ættir að gera það — svo lengi hefir það staðið til..
Um sjöleytið — það væri ágætt.... Auðvitað þakkar
maður fyrir og verður feginn, fyrst þú stingur upp á
því.... Vertu velkominn.... En heyrðu....!
— Hann er farinn, segir hún og rennir augunum til
Löngu-Bertu ásakandi.
— Gott og vel! Ég get farið, ef þörf krefur. Hvaða
griffalsstautur er þetta eiginlega, sem nú er kominn
í spilið?
— Það er ekki neinn griffill, svarar Stella kuldalega.
Bara málarinn, sem ég hjálpaði. Þú heyrðir erindið
hans. Og auðvitað verðurðu kyrr.
— Ja — annars veiztu, að ég er ekki vön að vera vin-
stúlkum mínum til óþæginda, þegar þær eru í einhverju
stússi, segir Langa-Berta, og svo kemur buna af spurn-
ingum um málarann. Stella getur furðanlega svarað
flestum þeirra, því að málarinn hefir sagt henni meg-
inhlutann af ævisögu sinni. Og svo matast þær Langa-
Berta og setjast aö því búnu við prjóna.
Langa-Berta hefir helzt aukatekjur af því að prjóna.
Margir panta hjá henni ýmsar flíkur, svo að hún hefir
cftast nóg að gera. Nú er hún að prjóna græna peysu