Tíminn - 23.12.1949, Side 4
4
TÍMINN, föstudaginn 23. desember 1949
276. blað
Þegar tránabarmenn fólksins taka til máls um kugbarefni sín
hlustar öll jb/óðm með óvenjulegri athygli
kom í bókabúðir í gær með 30 ritgerðum eftir þjóðkunna íslenzka lækna
Engir menn hafa eins náin og persónuleg við-
skipti við fólk og læknarnir. Það má með mikl-
um sanni segja, að þeir séu trúnaðarmenn þess.
— Engir menn fylgjast eins vel með sorgum
fólks og áhyggjum í veikindum sem öðrum
raunum og engir menn hafa tækifæri til þess
að fylgjast eins vel með gleði þess og fögnuði.
Það er því ekkert undarlegt að fáum mönn-
um notast betur af hæfileikum sínum til rit-
starfa og læknum, enda má segja, að margir
kunnustu rithöfundarnir gegni eða hafi gegnt
læknisstörfum i lifinu.
íslenzkir læknar eru engin undantekning. —
í þeirra hópi er fjöldi manna, sem hafa vakið
alþj óðarathygli fyrir ritstörf sín.
Síðasta verk Guðmundar heitins Hannessonar
prófessors var að ganga frá formála að þessari
bók, sem hlotið hefir nafnið LÆKNABÓKIN
og eingöngu er skrifuð af læknum. — í þessari
bók kennir margra grasa, því að læknar skrifa
eklii aðeins um sjúkdóma, jáfnvel margir
hverjir miklu fremur um eitthvað annað, en
þekking* þeirra á manneskunum jafnt sjúkum
og heilum, kemur þeim að jafngóðu haldi, um
hvað sem þeir skrifa. Þetta er ekki bók gefin
út til þess að gefa í jólagjöf í staðinn fyrir
einhvern hlut, sem ekki fæst í svipinn.
Þetta er bók handa yður til að lesa á jólunum.
FALLEGAR BÆKUR GLEDJA GÓÐA VINI
GLÆSILEGT ÚRVAL HJÁ £Lr,