Tíminn - 28.12.1949, Síða 4
4
TÍMINN, miðvikudaginn 28. desember 1949
278. blaff
Verzlunareinokun og
samvinnurekstur
Það er kunnara en frá
þurfi að segja, að verkalýðs-
hreyfingin og sósíalistar
leggja þann skilning í hug-
takið arðrán, að það þýði
fyrst og fremst, að verkamað-
urinn fái ekki. sannvirði fyr-
ir vinnu sína, að vinnuveit-
andinn greiði honum aðeins
lítinn hluta af verðmæti
vinnu hans.
En það er til tvenns kon-
ar arðrán. Hið fyrst er vinnu
launaarðránið, hið síðara
milliliðaarðránið. Þessa hafa
alþýðustéttir bæjanna á ís-
landi ekki gert sér nógu góða
grein fyrir. Enskir verka-
menn og alþýðustéttir ýmsra
annara þjóða, svo sem eins
og Svíþjóðar, Sviss og Belgíu
hafa hins vegar haft augun
hjá sér varðandi báðar teg-
undir arðránsins. Þeim skilst,
aö það er eins auðvelt að arð
ræna þær með milliliðaokri á
verzluninni eins og það er
auðvelt að arðræna þær af
vinnunni einni saman. Þess
vegna leggja alþýðustéttir
þessara þjóða nú engu minni
áherzlu á starfrækslu sam-
vinnufélaga en verkalýðs-
félaga.
fslendingar hafa séð mörg
augljós dæmi verzlunararð-
ránsins. Þjóðin varð að þola
embættislega verzlunarein-
angrun um áratugi. Síðan
tók við arðrán selstöðukaup-
manna og arftaka þeirra.
Þar við tók verzlunararðrán
íslenzkra og hálfdanskra
braskara, sem ráku verzlanir
í ýmsum héruðum landsins
og seldu hart nær allar vöru-
ur á einouknarverði. Sama er
að segja um fyrstu innlendu
verzlaninrar í Reykjavík. Það
var ekki fyrr en samvinnu-
félögin fóru að mega sin ein-
hvers í landinu, að milliliða-
arðránið minnkaði verulega.
Milliliðaarðrán skapast
vegna einokunaraðstöðu.
Milliliðaarðránið skapast
fyrst og fremst vegna ein-
okunaraðstöðu kaupmanna.
Kaupmannsarðránið er í því
fólgið, að leggja óhóflega
mikla álagningu á innkaups
verð varanna. Þannig verður
hver króna alþýðustéttanna
smærri, þegar þær fara að
verzla við kaupmenn. Áður
hafði kaupkrónutalan verið
færð eins mikið niður og frek
ast var hægt vegna vinnu-
launaarðránsins. Þannig
verða alþýðustéttirnar að
þola hið tvöfalda arðrán.
Einokunaraðstaða kaup-
manna takmarkast oft eitt-
hvað vegna samkeppni þeirra
i milli. Þó gætir samkeppn-
innar næsta lítils, ef einungis
kaupmannaverzlanir eru við
lýði í landinu. Kaupmenn
hafa haft lag á að stofná
kaupmannafélög og þar hafa
þeir tryggt sér einokunarverð
fyrir vörur sínar, enda þótt
þeir í orði kveðnu þykist
fylgja frjálsri samkeppni og
þykist reka verzlun sína í
samkeppni við aðra kaup-
kaupmenn.
Aðferðin, sem kaupmenn
nota til þess að drepa heil-
brigða samkeppni, er sú, að
þeir stofna félög, sem á yfir-
borðinu eru ósköp sakleysis-
leg. Undir niðri eru þessu fé-
lög hins vegar eins konar ein
.okunarhringar.. Þannig eru
Eftii* Haimes Jóusson félagsfræðing.
félög eins og t. d. Félag mat-
vörúkaupmanna, Félag vefn-
aðarvörukaupmanna og Fé-
lag stórkaupmanna. Þau
vinna í orði kveðnu að
frjálsri samkeppni en í raun
og veru vinna þau fyrst og
fremst að því að skapa kaup-
mönnum sem hæzt verð fyrir
vörur sínar, þ. e. skapa þeim
óhóflega háa álagningu og
oft einokunarverð.
Heilbrigð samkeppni getur
því ekki þróast, ef einungis
kaupmenn ráða verzlunarmál
unum. Félagssamtök þeirra
sjá um að skapa einokunar-
verð og drepa þar með heil-
brigða samkeppni.
Það er ekki fyrr en verzlun
arfélög utan kaupmannafé-
laganna eru stofnuð og starf
rækt, að heilbrigð sam-
keppni getur átt sér stað.
Þau fél&j, sem örugglegast
hafa unnið að því að við-
halda heilbrigðri samkeppni,
eru samvinnufélögin. Án
þeirra og verðlagseftirlitsins,
sem gildir til bráðabirgða;
væri einokunarverð á hverri
vörutegund í landinu vegna
leynisamþykkta kaupmanna-
félaganna.
Söguleg dæmi um ein-
okun kaupmanna.
Hér skulu nú tilfærð nokk
ur dæmi til staðfestingar því,
sem sagt hefir verið um ein-
okunarverð og kaupmanna-
félög.
Höfundur þessarar greinar
var sendisveinn, afgreiðslu-
maður og verzlunarstjóri við
Vesturgötuútibú Silla og
Valda um þriggja og hálfs
árs skeið. Þetta var á þeim
árum. sem Kron var að hefja
starfsemi sína.
Áður en Kron stofnsetti
verzlun sina á Vesturgötu 33,
var nokkurn veginn sama
verð á öllum vörum hjá kaup
mönnum í Vesturgötuhverf-
inu. Væri einhver kaupmað-
ur að brölta með lægra vöru-
verð en hinir, þá var algengt,
að annar kau.pmaður úr
hverfinu hringdi til for-
manns Matvörukaupmanna-
félagsins, segði honum af
„óþekkt“ viðkomandi kaup-
manns og færi fram á, að
stjórnin tæki i lurginn á hon
um. Afleiðing þessa var venju
legast sú, að kaupmaðurinn,
sem þjóna vildi frjálsri sam-
keppni, varð að hækka vöru-
verð sitt, ella var hann rek-
inn úr Matvörukaupmanna-
félaginu.
Einstakir kaupmenn úr
Vesturgötuhverfinu áttu það
til að vera „óþekkir“ við Mat-
vörukaupmannafélagið.' Einn
þeirra var Runólfur Sigurðs-
son, sem verzlaði á Vestur-
götu 52. Annar var Dagbjart
ur Sigurðsson, sem um langt
skeið verzlaði á Vesturgötu
42. Báðir þessir menn voru
mjög illa séðir af félagi mat
vörukaupmanna, og að lok-
um fór svo, að Dagbjartur
Sigurðsson og 4 aðrir kaup-
menn í Reykjavík urðu svo
óánægðir með matvörukaup-
mannafélagið, að þeir stofn-
uðu hið svokallaða „Litla
verzlunarbandalag. Seldu
þá almennt á lægra vöruverði
en kaupmenn. Siðar fóru þeir
aftur í Matvörukaupmanna-
félagið. En þeir hafa alltaf
verið illa þokkaðir af kaup-
mönnum höfuðstaðarins
vegna þess, að þeir sýudu í
verki vilja sinn til að við-j
halda frjálsri samkeppni í
bænum. i
En Litla-bandalagið olli
Matvörukaupmannafélaginu
ekki mikilla áhyggna. Óttinn
við hið lága vöruverð Kron
á fyrstu árum þess var hins
vegar eitur í beinum Matvöru
kaupmannafélagsins. Kaup-
menn vissu, að tíminn mundi
smátt og smátt draga með-
limi Litla bandalagsins aftur
inn í Matvörukaupmanna
félagið. Hins vegar voru þeir
fullvissir um, að þeir gætu al
drei fengið Kron i félag sitt. ]
Þess vegna yrðu þeir að
keppa við þetta félag neyt-
enda. Þeir sáu því fram á, að
dagar einokunar matvöru-
kaupmannafélagsins væru
taldir nema því aðeins hægt I
væri að drepa samvinnufélag 1
neytenda í bænum.
Baráttan viff Kron.
Kaupmenn ákváðu, að eina
varanlega tryggingin fyrir
einokunaraðstöðy sinni væri
að drepa Kron. Gerðu þeir
allt, sem þeir gátu til að
koma hinu unga neytenda-
félagi alþýðunnar í Reykja-
vík fyrir kattarnef. Þeir
rægðu það fyrir viðskiptavin
um sínum dags daglega, köll-
uðu það einokunarfélag,
svindlfyrirtæki; sogðu það
hafa lélegar vörur og verra
starfslið og njóta þar fyrir
utan bæði skatta og innflutn
Sveinn frá Fossi talar við okk- Svo hefir það alltaf verið með
ur hér í baðstofunni í dag um mennina — og er likast til bezt
gamalt og nýtt. í þessu lífi.
ingsfriðinda. Fólk hlýddi á
raus kaupmanna í búðunum
og margir trúðu áróðri
þeirra.
En kaupmenn voru ekki á-
nægðir með árangurinn.
Kron hélt velli. Þess vegna
fóru kaupmenn brátt að nota
nýtt vopn í baráttunni við
Kron. Þetta var að lækka
vöruverðið niður í kostnað-
arverð á einstöku vöruteg-
und, sem lítið seldust, benda
síðan á verð þessarar vöru
hjá sér og Kron, slá svo fram
kattarröksemdum eins og
þeim, að úr því að verð á
þessari vörutegund væri
hærra hjá Kron, þá væri vöru
verð kaupfélaga almennt
hærra en vöruverð kaup-
manna.
Kaffibætisgrýlan-
Höfundur þessarar greinar
man sérstaklega eftir fram-
kvæmd þessa herbragðs í sam
bandi við kaffibætissölu. Verð
á kaffibætisstönginni hafði
verið kr. 0.75 í Vesturgötu-
hverfinu, allt þar til Kron
stofnsetti verzlun sína. Kron
seldi stöngina hins vegar á
kr. 0.70. Nokkrir viðskipta-
menn kaupmanna kvörtuðu
yfir að þurfa að kaupa þessa
vörutegund dýrari hjá þeim
en Kron. Málið var rætt af
nefnd kaupmanna. Sú ákvörð
un var tekin að lækka sölu-
verð kaffibætisins niður í kr.
0.65. Síðan átti að fylgja þess
ari lækkun þannig eftir að (
benda á kaffibætisverð Kron
og kaupmanna í hvert skipti, I
„Gestrisni íslendinga hefir
verið viðbrugðið, og má það til
sanns vegar færa, þó þar hafi
alltaf verið mismunur á með
menn og heimili, eins og í sjálfu
sér er eðlilegt. En nú á síðustu
árum hafa samgöngutækin
breytt þessu mjög, og menn
stofnað hótel og greiðasölur víða
um landið, og má segja, að þess-
ar stofnanir séu búnar að taka
við móttöku gesta, af búendum,
síðan að bílarnir komu til sög-
unnar og flugvélarnar, og fólk-
ið þar með hætt að ferðast á
hestum, eins og kunnugt er.
Allt er þetta til bóta og hagn-
aðar fyrir fólkið, sem þarf að
ferðast, bæði að losna við vötn-
in og að rölta á hestum hvernig
sem viðraði, oft misjafnlega út-
búið til að mæta illviðri, roki
og slagveðri. Líka er þetta gott
fyrir búendur, sem eru í gests-
götu, að losna við umferðina,
sérstaklega að vetrinum til
vegna heyja, sem víðast er ekki
of mikið af, eins og eðlilegt er,
enda þótt nú sé orðið hægara
með öflun þeirri en áður var,
vegna tilbúna áburðarins.
Ég, sem þessar linur skrifa,
þekkti þá tíma vel, þegar ferðast
var einungis á hestum eða gang-
andi. Sjálfur bjó ég lengi í gests
götu, og ferðaðist mikið, oft með
marga hesta. Ég hygg, að enginn
skóli í lífinu hafi verið að vissu
leyti eins góður fyrir unga menn
eins og að ferðast, og kynnast
fólkinu og þeim heimilum, sem
bezt voru með alla rausn og
myndarskap, hvort sem gesti bar
að á nótt eða degi, og alla
þá lipurð, alúð og nærgætni bæði
við menn og hesta. Svona ein-
læg og elskuleg gestrisni hlaut
alltaf að verða til lærdóms ung-
um og gömlum, sem ferðuðust,
og gera þá að betri mönnum en
þeir hefðu kannske annars orð-
ið. Líka mátti læra af þeim
mönnum og heimilum, sem ekki
kunnu að taka svona vel á móti
gestum, og þó sérstaklega ferða-
hestum. Á þessu hefir alla tíð
verið mikill munur, sem í sjálfu
sér er ósköp eðlilegt, því að öðr-
um er gefið þetta og hinum hitt.
Þegar menn voru á ferðalagi
á sumrum þá var varla hægt að
stoppa á bæjum nema þar, sem
hægt var að fá haga handa hest-
unum nálægt bænum, en til voru
bændur, sem bjuggu í gesta götu
og höfðu til þess vissa bletti þar
heima við og jafnvel í túnvarp-
anum, en hinir voru fleiri, sem
ekki athuguðu það. Þetta var
með lausríðandi fólk, en lesta-
menn höfðu vissa áningarstaði
eða haga handa þeim hestum.
sem þeir voru með, og var sá
hagi vanalega nokkuð langt frá
bæjum, enda voru lestamenn
með tjöld og nesti. Eftir að sím-
inn kom í kringum landið voru
mikil þægindi að honum fyrir
ferðamenn og gestgjafa.
I þeim hreppum, sem síminn
er kominn á hvert heimili, hafa
búendur af því mikil þægindi og
geta ráðið ráðum sínum með eitt
og annað innan hrepps og spar-
að margar sendiferðir á milli
bæja, og ef að þarf að sækja
eða senda éinhvern hlut á milli
bæja þá geta menn komið sér
saman um að senda frá báðum
bæjunum. Þar sem er mjólkur-
sala geta menn pantað það, sem
þarf úr búð og fengið það sent
með mjólkurbíl heim í hlað. Allt
er þetta hægt í gegnum símann
og því þyrfti hann að komast
sem fyrst á hvern einasta bæ í
landinu, og þó fyrr hefði verið.
I
Eins og kunnugt er, hafa bænd
ur verið að eignast búvélar eða
vinnuvélar, hver um annan þver
an þessi síðustu ár, og er það
vel farið, og vinnuvélar þurfa
að koma sem fyrst á hvert sveita
heimili í landinu ,en jafnframt
því er alveg eins nauðsynlegt
fyrir bændur að eignast skýli yf-
ir vélarnar að vetrinum til. Góð-
um bændum hlýtur að þykja
eins vænt um vélarnar sínar eins
og hestana sína, enda koma þær
í þeirra stað, og þurfa eins góða
umhirðu ef vel á að Véra. Munið
það, bændur góðir.“
Svo verður þá annað efni að
bíða til morguns.
Starkaður gamli.
Þökkum innilega sýnda samúð viff andlát og jarffar-
för móður okkar og tengdamóður
ÖNNU JÓNSDÓTTUR,
Hól, Landeyjum.
Guffrún-Brynjólfsdóttir. Ársæll Brynjólfsson
Arndís Helgadóttir. Jón Sveinsson.
sem neytendur Jcvörtuðu við
kaupmenn um hærra vöru-
(Framhald á 7. síOu)
Jarðarför föffur míns
SIGFÚSAR GÍSLASONAR
frá Hofströnd
fer fram fimmtudaginn 29. desember og hefst frá
Dómkirkjunni klukkan 11 árdegis. Athöfninni verður
útvarpað.
Halldóra Sigfúsdóttir
Flókagötu 27.