Tíminn - 28.12.1949, Blaðsíða 8
.ERLEJXT YFfRLIT“ f DAG
Rússneshi einræSisherrann
,,Á FÖRWM VEGi“ í DAG:
Eru að verða straunthvörf?
C3. árg.
Reykjavík
278. blað
28. des. 1949
z
ÁSKORUN TIL REYKVÍKINGA |
Frásögn Tímans af því, hvernig raunverulega er á- I
statt í braggahverfum Reykjavíkur og öðrum bústöðum I
hinna snauðu, hefir vakið mikla eftirtekt meðal bæjar- |
búa. Fjöldi fólks liefir rætt þetta mál við mig síðustu I
daga, og margir hafa látið af hendi rakna ýmsar gjaf- |
ir til þessa örsnauða fólks nú um jólin.
Slík afstaða er virðingar- og þakkarverð og sýnir I
glöggt, hversu margir eru reiðubúnir til þess að leggja I
nokkuð á sig til hjálpar þeim, sem í nauðir hafa rekið. =
En til þess að breyta hinu óviðunandi ástandi þarf þó \
stærra átak. Fyrir því skora ég á Reykvíkinga hvern \
og einn, að kynna sér ástandið í braggahverfunum, og I
taka þetta mál til umræðu í félögum og á mannfúnd- [
um og vinna að því á allan hátt að skapa það almenn-
ingsálit, sem knýi fram róttækar aðgerðir og viðunandi =
Iausn. Það ástand, sem nú ríkir, er blettur á þjóðinni, I
ranglæti gagnvart nauðstöddu fólki, sóun á andlegum I
ag líkamlegum þroska borgaranna og þjóðfélagslegt f
afbrot, sem mun hefna sín á komnndi tímum.
Þessari áskorun beini ég til allra borgara Reykja- I
;[ víkurbæjar, en vænti sérstaklega aðgerða af hálfu f
presta bæjarins, lækna og kennara og þeirra, sem hafa |
með liöndum hjálparstarfsemi og mannúðarmál.
Reykjavík 27. desember 1949,
Jón Helgason.
..........................
dálfstæði Indónesíu
viðurkennt
Stórkostleg sýning
í London 1951
Júlíana Hollandsdrottning
ai alaði sér formlega við há-
tíðlega athöfn í Amsterdam
\ ldum yfir Indóneslu og
h lland viðurkenndi þar með
itndóneslu sem sjálfstætt lýð-
veZdi. Dr. Hatta forsætisráð-
ne ra Indónesíu var viðstadd
vir er drottningin ritaði und-
r ; firlýsingu um valdaafsal-
6 c g þakkaði fyrir hönd lands
;;íns. Hann óskaði þess einn-
g i 6 góð sambúð og vináttu-
,engsl héldust milli þessara
ianda. í gær voru svo mikil
íatióahöld í höfuðborg Indó-
nesra, þar sem fullveldinu
var fagnað og lýst yfir sjálf-
. tæöi Bandaríkja Indónesíu.
Bretar hafa ákveðið að
efna til mikillar sýningar ár-
ið 1951 og verður hún haldin
í London. Hefir þingið þegar
samþykkt mikla fjárveitingu
til hennar, svo mikla, að tal-
ið er eins dæmi, að ríki leggi
fram svo mikið fé í slíku
skyni. Sýningin verður bæði
almenn vöru- og framleiðslu-
sýning og menningarlegs eðl-
is. Verður þar lögð höfuð-
áherzla á að kynna brezka
list. Sýningin á að standa frá
því í maí til septemberloka.
Verður henni komið fyrir á
auðum svæðum fram með
Thems-fljóti, en slíkar eyður
mynduðust margar á stríðs-
árunum við sprengjuárásir
Þjóðverja, og hefir ekki verið
byggt í þær enn. Mörgum öðr
um þjóðum verður boðið að
taka þátt í sýningunni og verð
ur þetta því alþjóðleg sýning
að ýmsu leyti.
Jólasveinn á kvik-
myndasýningum
Stjörnubíó tók upp þá ný-
i breytni á annan í jólum, er
það sýndi barnakvikmynd, að'
láta jólasvein koma fram á
leiksviðið í hléinu og skemmta
börnunum með leik, söng og
dansi. Kunnu börnin vel að
meta þessa nýbreytni sem von
jlegt var og fögnuðu jólasvein-.
. inum ákaft.
Piltur og stúlka
leikin á Ákureyri
Taft-efnið, sem er í þessum
únfalda en fallega samkvæm-
skjól þykir bæði fallegt og
j ientugt. Snið kjólsins er nýj-
asta tízka frá París.
Leikfélag Akureyrar er ný-
lega byrjað að sýna leikritið
Pilt og stúlku eftir Emil Thor-
oddsen. Leikstjóri * er Jón
Norðfjörð. Var leiknum ágæt-
lega tekið á frumsýningu.
Eins og kunnugt er, sýnir Leikfélag Reykjavíkur Bláu káp-
una í Iðnó um þessar mundir við ágætar viðtökur. Er þetta
í annaö sinn, sem Bláa kápan er sýnd hér, í fyrra sinnið
1938. Efri myndin sýnir Birgir Halldórsson, Sigrúnu Magn-
úsdóttur og Guðmund Jónsson i leikatriði í 3. þætti núna.
Neðri myndin sýnir hins vegar Arnór Guðmundsson, Pétur
Jónsson og Sigrúnu Magnúsdóttur í sama atriði 1938. —
Bláa kápan er sýnd í kvöld.
|
Verklegar fram-
kvæmdir fram
eftir vetri
Víðast hvar á landinu var
einmuna tíð fram í desember
svo að fé gekk úti og bænd-
ur gátu unnið að margs kyns
framkvæmdum. Úr Bárðardal
er skrifað, að tíð þar hafi
verið einmuna góð, og hafi
það bætt mjög fyrir hart vor
og stutt og slæmt sumar. Fé
gekk úti fram í desember og
var þess mikil þörf, þar sem
hey eru víða með minna móti.
Mikill fóðurbætir var keypt-
ur í haust og fé þó fækkað.
Á s. 1. vori varð að fresta
ýmsum brýnurn framkvæmd-
um vegna harðindanna og
hefir nú verið reynt að bæta
úr því í haust. Unnið hefir
verið að byggingum og land-
broti til ræktunar með jarð-
ýtu og dráttarvél og höml-
uðu frost ekki þeirri vinnu
fyrr en komið var fram í nóv-
ember. Einnig var unnið að
Viðskiptasamningur
Breta og Júgóslava
Viðskiptasamningur milli
Júgóslava og Breta var undir-
ritaður í Belgrad fyrir nokkr-
um dögum og gildir hann
næstu fimm ár. Bretar selja
Júgóslövum allmikið af iðnað
arvörum og vélum, en fá í stað
inn allmikið af timbri og
málmum. Einnig var um líkt
leyti undirritaður samningur
um brezkar eignir í Júgóslav-
íu og ráðstafanir þeirra.
Egill Jónasson
fimmtugur
Egill Jónasson hinn kunni
hagyrðingur á Húsavík varð
fimmtugur í gær. Vísur Egils
og kvæði, einkum af gaman-
toga, eru nú landsfleyg, enda
er fyndni Egils og hagmælska
með afbrigðum.
byggingum hér og þar fram
undir desemberbyrjun.
*
Anægðir með
síldveiðina
Norsk blöð birtu um fyrrl
bánaðamót heildarniðurstöð-
una af síldveiðum Norð-
manna hér við land á s.l.
sumri. Samkvæmt opinberum
skýrslum nam veiðin alls
223.760 tunnum. Norsku veiði
skipin hér við land voru 254
talsins og að auki eitt flutn-
ingaskip. Samtals fóru skipin
261 ferð milli Noregs og ís-
landsmiða. Flotinn hafði
280.000 tunnur- Er það 2%
meira en árið á undan og
82% af því magni, sem Sví-
ar reiknuðu með að fá. Verð-
mæti síldarinnar er 4 millj.
sænskra króna.
Rekstrarkostnaður
S.Þ.
Talið er að kostnaður við
rekstur og starfrækslu á veg-
um Sameinuðu þjóðanna
muni verða minni á komandi
ári en á því, sem nú er að
líða. Stafar það sumpart af
gengisfellingunni í Evrópu og
eru útgjöld S. Þ. áætluð 37,1
millj. dollara árið 1950. Við
þá upphæð verður þó að
leggja áætlaðan kostnað við
alþjóðastjórn í Jerúsalem,
sem samþykkt var eftir að
fjárhagsáæthm næsta árs var
gerð og munu heildarútgjöld-
in því nema um 44,6 millj.
dollara.
Námskeið Í.S.Í.
%
Axel Andrésson sendikenn-
ari í. S. í- hefir lokið nám-
skeiðum við eftírtalda skóla:
Hólaskóla. — Þátttakendur
voru úr íþróttafél. Hólaskóla
og Umf. Hjaltá. 48 alls. Nám-
skeiðið stóð yfir frá 17. nóv.
til 11. des. í lo'k námskeiðsins
þreytti blandað lið úr ofan-
töldum félögum kappleik á
Sauðárkróki við kapplið úr
Umf. Tindastóll. Leikurinn
fór svo, að Hólamenn og
Hjalti unnu með 3:2. Eftir
leikinn sátu keppendur í boði
Tindastóls kaffisamsæti, sem
haldið var á Hótel Tindastól-
Við gagnfræðaskóla og
barnaskóla Sauðárkróks. Þátt
takendur 164.
Við Hvanneyrarskóla. Þátt-
takendur 85.
Á öllum námskeiðunum var.
mikill áhugi og árangur góð-
ur.
YFIRLÝSINÍG.
Eg lýsi því hér með yfir, að
ég hefi ekki óskað eftir leið-
réttingu þeirri, sem höfð er
eftir mér í dagbók Morgun-
blaðsins þ. 21. þ. m. og hlýtur
þessi frásögn því vera á mis-
skilningi byggð. Hinsvegar
hefi ég skrifað stutta athuga-
semd undir fUllu hafni þ. 20
þ. m. og sent Morgunblaðinu
og Alþýðúblaðinu til birting-
ar.
Sigríður Eiríksdóttir.