Tíminn - 29.07.1950, Síða 2
TIMINN, laugardaginn 29. júlí 1950
163. blað
Orá kafi til heiia j
40*' ronu—rr-j-i r
í nótt.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs
apóteki, sími 1330.
Útvarpið
Útvarpiff í kvöld.
Fastir liðir eins og venjulega
Kl. 20,30 Leikrit: „Eftir þriðju
heimstyrjöldina“ eftir Leslie
Tabi. — Leikstjóri: Brynjólfur
Jóhannesson. 20,45 Tónleikar
(plötur). 21,00 Upplestur: Smá-
saga (Edda Kvaran leikkona).
21,25 Danslög (plötur). 24,00
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Hekla er í Reykjavík. Esja er'
í Reykjavík. Herðubreið fer frá J
Reykjavík.í dag til Snæfells-
nes- og Breiðafjarðarhafna.
Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyr- '
ill fór frá Raufarhöfn í gær á
leið vestur um land til Reykja- j
víkur. Armann fór frá Reykja-
vík í gærkvöld til Vestmanna-
eyja.
Eimskip.
Brúarfoss er í Kiel. Detti-
foss fór í gærkvöld frá Hafnar-
firði til írlands og Rotterdam.
Fjallfoss fer frá Reykjavík á
morgun vestur og norður. Goða
foss er á Akureyri. Gullfoss fer
frá Reykjavík kl. 12 í dag til
Leith og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss er í Reykjavík. Sel-
foss fór frá Leith 27. júlí tii
Lysekil í Svíþjóð. Tröllafoss er
á ieið til New York.
Skipadeild S. 1. S.
Arnarfell er væntanlegt til
Reykjavíkur í dag. Hvassafell
er í Stykkishólmi.
Árnað heilla
Hjónaband.
Á laugardag 29, júlí verða
gefin saman af prófessor Sig-
urbirni Einarssyni ungfrú Sig-
ríður Ársælsdóttir frá Eystri-
Tungu, Landeyjum og Marteinn
Davíðsson, múrarameistari.
Heimili ungu hjónanna verður
á Hólsveg 17.
15. júlí s.l. voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Árelíusi
Níelssyni ungfrú Málfríður
Benediktsdóttir frá Nefsholti í
Rangárvallasýslu og Jóhann
Hannesson Stóru-Sandvík, Ár-
nessýslu.
Úr ýmsum áttum
Happdrætti Stíganda.
Dregið hefir verið í happ-
drætti Hestamannafélagsins
Stígandi og komu þessi númer
upp: Nr. 206 brúnn hestur, 3
brúnn hestur, 5 grár hestur,
138 skjótt hryssa og 147 skjótt
hryssa. Vinninganna sé vitjað
hið fyrsta til Sigúrðar Óskars-
sonar, Krossanesi.
Áheit
til Jóhanns Kristmundsson-
ar frá Goðdal kr. 100,00.
Áheit á Strandakirkju.
Frá V.J. kr. 20, Guðbjörgu 100,
G. G. 150, z 104 100, T.M. 25 og
H. P. 10.
Gott hjartalag og
kristileg skylda.
Út af bréfi séra Jakobs Jóns-
sonar, sem birt er á öðrum stað
í blaðinu vill viðkomandi frétta
ritari blaðsins, að tekið sé fram
eftirfarandi, í fullri vinsemd:
Ekki voru tök á því vegna rúm-
leysis, að birta umrædda ræðu
alla í blaðinu þó góð væri. Varð
því að grípa til styttrar endur-
sagnar, þar sem þau atriði, er
settu mestan svip á ræðuna
voru tekin með, en öðrum
sleppt. Slíkur útdráttur verður
sjaldan gerður svo að tveimur
líki og aldrei svo að öllum líki,
því að sitt sýnist jafnan hverj-
um. Séra Jakob segist ekki hafa
talað um það í ræðu sinni að
starf slysavarnafólksins byggð-
ist á hjartagæzku. En í upp-
rifjun hans af ræðunni stendur
orðrétt þannig á einum stað:
„Þá myndi það koma í ljós, að
enginn teldi sig hafa gert meira
en kristileg skylda hans bauð
og fyrir það bæri þeim engin
sérstök laun“. Ef kristileg skylda
og gott hjartalag eru orðin al-
gjörlega óskyld hugtök, þá hefir
útdráttur blaðamanns Tímans
af ræðu séra Jakobs verið í veru
legur atriðum rangur, annars er
ekki um neinn eðlismun að
ræða. gþ.
Menntamálaráff fslands
hefir nýlega veitt eftirtöldum
stúdentum námsstyrk til fjög-
urra ára (fjárlög 14. gr. B. II. a):
Bjarna Bjarnasyni til náms í
heimspeki í Svíþjóð, Eyjólfi
Kolbeins Halldórssyni til náms
í grísku í Danmörku, GunnaTi
Hermannssyni til náms í húsa-
gerðarlist í Danmörku, Gunn-
laugi Elíassyni til náms í efna-
fræði í Danmörku, Stefáni Aðal
steinssyni til náms í búnaðar-
vísindum í Noregi, Sverri Júlíus
syni til náms í hagfræði í Nor-
egi. Þóreyju Sigurjónsdóttur til
náms í þýzku í Noregi og Þor-
steini Þorsteinssyni til náms í
náttúrufræði í Danmörku.
Áheit á Hallgrímskirkju.
Frá S.V. Holtum kr. 40, H.P.
10 og H.S. 40.
Kona breytist í
karlmann —
En varð aftur
kona
Norræna læknablaðið skýr-
ir nýlega frá einkennilegu fyr
irbæri. Kona, 44 ára gömul, er
lengi hafði verið gift, varð
skyndilega taugaveikluð, og
þar kom, að henni lá við
sturlun. Jafnframt breyttist
útlit hennar og sköpulag, unz
hún líktist meira karlmanni
en konu. Hún fékk skegg, rödd
in varð dimm og djúp, vaxt-
arlagið breyttist og kven-
skapnaður hennar hvarf.
Læknar töldu orsökina
skemmd í móðurlífinu. Var
hún skorin upp og skemmdin
numin brott. Við það breytt-
ist hún aftur og fékk fulla,
andlega heilsu.
Læknarnir dr. J. Fabricius-
Möller og dr. V. Oram skýra
frá þessu.
— Konan mín er nú aftur
orðin eins og hún var, áður
en hún veiktist, sagði eigin-
maður hennar nýlega við
blaðamenn í Danmörku.
Illlll'II1111111111111IIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIlll■llllllllllllllllllllllll■fIIIIIllllllllllllllllllllllllll■llllllllllll■llll■lll■
Tilkynning um
I atvinnuleysisskráningu |
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvæðum laga
nr. 57 frá 7. maí 1928, fer fram á Ráðningarstofu
Reykjavíkurbæjar, Bankastræti 7 hér í bænum, dag-
ana 1., 2. og 3. ágúst þ. á., og eiga hlutaðeigendur, sem
óska að skrá sig samkvæmt lögunum, að gefa sig fram
á afgreiðslutímanum kl. 11—12 árdegis og 1—5 síðd.,
hina tilteknu daga.
Reykjavík, 28 júlí 1950
Borgarstjórinn í Reykjavík
lllll■llllllllll■llllnllnlllllllllllllllllllllllll■lmlllll■■llllM
Fyrirliggjandi:
örnum vecj,i
KóloradóbjaBlan
Tilkynningarnar um framrás
Kóloradóbjöllunnar verða æ tíð-
, ari í Evrópu. Frásagnir af út-
I breiðslu hennar og skemmdar-
verkum sjást vikulega í blöð-
um álfunnar.
Þessi kynsæli skemmdarvarg
ur, sem gereyðileggur kartöflu-
ekrurnar. sækir fram og leggur
undir sig löndin, er miskunnar-
i lausari en nokkurt herveldi.
Það er erfitt að heyja styrjöld-
ina við hana.
Enda þótt einni kynslóð sé
útrýmt, blundar sú næsta í
jarðveginum og rís upp eins og
Fönix úr ösku sinni,. gráðugri
en nokkru sinni. Sleppi eitt
kvendýr óskaddað í eyðingar-
herferðunum, er innan skamms
kominn á fót nýr her, er end-
urreisir bjölluveldið á ekrum
bændanna. Það á nær 1000 egg,
sem að þremur vikum liðnum
eru orðin að jafn mörgum gráð-
ugum lifrum.
Það var árið 1847, að Kóloradó
bjallan lagði af stað í hina tor
tímandi herför sína úr eyði-
lendum þeim í Vesturheimi, þar
sem hún hafði átt óðöl frá upp-
hafi vega. Síðan hafa fleiri ráð-
stefnur verið haldnar um hana
en nokkurn sjúkdóm, er hrjáir
mannkynið. Það hefir verið
unnið af kappi í prentsmiðjum
landanna við að setja og prenta
skýrslur og greinargerðir og vís-
indarit um Kóloradóbjölluna,
og gegnum póststofurnar hafa
streymt miljónir bréfa. Á síð-
ustu og verstu tímum hefir hún
komizt inn í heimspólitíkina,
því að Rússar hafa sakað
Bandaríkjamenn um það að
hafa stráð bjöllunni yfir kar-
töflulendurnar í rússneska her-
námshlutanum í Austur-Þýzka-
landi.
Kóloradóbjallan hafði meira
að segja á sínum tíma áhrif á
tízkuna, því að þegar hún kom
fyrst fram á sjónarsviðið í
bygðu landi, hugkvæmdist ein-
um tízkuteiknaranum að gera
kjól í líkingu við búnað hennar.
Og sennilega hvílir sú teikning
álíka þungt á honum í öðrum
heimi og bjallan sjálf er nú mik-
ill skaðvaldur í kartöflum, sem
fátækir menn og hrjáðir eru
að reyna að rækta til þess að
seðja sig og sína.
Nautakjöt
Kýrkjöt
Ærkjöt
Folaldakjöt.
Samband ísl. samvinnufélaga
Sími 2678.
♦
<►
G
i ►
i ►
<►
<►
<►
<►
<►
<►
<►
<►
<►
< ►
<►
<►
<►
<►
<►
< ►
ininintnninKitffltinffimtthssHgmnmntfflmunimmmnwiiitnnmfrni
Manntalsþing
Hið árlega manntalsþing Reykjavíkur
verður haldið í tollstjóraskrifstofunni í
Hafnarstræti 5, mánudaginn 31. þ. m., kl.
4 eftir hádegi. —
Falla þá í gjalddaga skattar og önnur
þinggjöld fyrir árið 1950. —
Tollstjórinn í Reykjavík
28. júlí 1950.
Torfi Hjartarson.
Feröir frá Feröaskrif-
stofunni á sunnudaginn
1. Hringferð um Borgarfjörð. — Ekið norð-
ur Kaldadal um Hvalfjörð til baka. —
2. Ferð í Þjórsárdal.
3. Hringferð um Krísuvík og Hellisheiði. —
4. Ferð á Álfaskeið.
FERÐASKRIFSTOFAN
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS