Tíminn - 29.07.1950, Síða 8
„ERLfcTVT YFIRLIT« I DAG:
Wrrffott Harris Walher
34. árg.
Reykjavík
„4 FÖR\IJM VEGI“ t DAGt
Kóloradóbjjallan
29. júlí 1950
163. blað
Vinna við hina nýju
Sogsvirkjun er byrjuð
| iwiinwMiinwimiiiiiiilwiiwnimnnnmfwiiHiiMH«i« I
; I Aflahæsta skipið í I
I síldveiðiflotannm |
Óþreytt lið Norður-
ICóreu herðir sóknina
Bvrjað er að byggja brú yflr »£
nauðisyiileg'a vegi tl! aðflntnin^a. Eiunig
er iiafin byg'giiag' liaisa
Sogsvirkjunin nýja er stærsla mannvirki, sem íslendingar
íáðast í til þessa. Ileildarkostnaður er áætlaður 113 milljónir
króna. Áætlaö er að verkinu muni Ijúka seint á árinu 1952.
Hin nýja stöð mun i'ramleiða 32 þúsund kw. sem koma til
viðbótar þeim 14300 kvv., sem Ljósafoss-siöðin framleiðir nú.
Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri, skýrði blaðamönn-
um frá því í gær, að sarnn-
ingar um framkvæmd verks-
ins væru þegar undirritaðir
og vinna hafin. Vélar og raf-
búnaður verða keypt af tveim
ban'darískum fyrirtækjum,
Westinghouse og Internati-
onal General Electric. Samn-
ingur um kaup á túrbínum
var gerður við sænskt fyrir-
tæki, Karlstad Mekaniska
Werkstad. Samningur um
byggingu neðanjarðarstöðvar
og neðanjarðarganga o. fl.
var gerður við þrjú fyrirtæki
í sameiningu, eitt danskt og
tvö sænsk, A. B. Gravmask-
inor, Östlunds Bygnads A.B.
og E. Phil & Son. Samning-
ur um byggingu tveggja í-
búðarhúsa fyrir starfsmenn
og eitt mötuneytishús var
gerður við byggingameistar-
ana Benedikt Sveinsson,
Gissur Sigurðsson og Stefán
Jakobsson.
Fjáröflun.
Til kaupa véla, rafbún-
aðar, vinnuvéla og annarra
áhalda hefir verið veitt lán
frá Marshail-stofnuninni að
yfir Suðvestur- og Suðurland.
urlandagjaldeyri að| upphæð
19,1 millj. kr. er gert ráð fyrir
að fá annað hvort frá
greiðslubandalagi Evrópu
eða frá Alþjóðabankanum.en
bráðabyrgðalán hefir verið
tekið í Danmörku og Sví-
þjóð vegna þeirra útgjalda,
sem til falla í ár. Innanlands
fjársöfnun er með þeim hætti
að Reykjavíkurbær leggur
fram 12 millj. króna til fyr-
irtækisins en tilætlunin er sú
að annað innlent fjármagn
verði fengið úr mótvirðls-
sjóði Marshallframlaga.
Mikil vinna.
Gert er ráð fyrir að 150 til
160 manns fái vinnu við virkj
unina þegar framkvæmdir
eru komnar í fullan gang. Nú
Bryggjugerð í
Vopnafirði
Tuttugu manns vinnur nú
að lengingu bryggjunnar á
Vopnafirði. Verður hún á
iengd um tíu metra fram, en
síðan sett þar á hana þver
álma og bryggjuhaus, tíu m..
Skapast þá tuttugu metra
viðlegupláss til viðbótar því,
er fyrir var.
Þessu verki á að ijúka í
haust.
í vetur má gera ráð fyrir að
50 manns verði þar i vinnu
og jafnmargir við húsbygg-
ingar, vega- og briiargerð.
Tala islenzkra verkamanna
vörubifreiðastjóra og iðnaðar
manna verður nokkurnveg-
in sú sama hverju tilboðinu
sem tekið hefði verið.
Aukin rafmagnsnotkun.
Heildar raforkuaflið, sem
Reykjavík hefir nu er um 25
þúsund kw. og er það langt
fyrir neðan þörfina. Með
nýju stöðinni verður orkan
um 57 þúsund kw. Gert er
ráð fyrir mikilli aukningu á
rafmagnsnotkun bæði á heim
ilum og til iðnaðar og má í
því sambandi geta um hina
væntanlegu áburðarverk-
smiðju.
Áætlað er að um 15% af
orku nýju stöðvarinnar fari
til sveitanna og nær kerfið
yfir Suður- og Suðvestur-
land.
Prestar vígðsr
Á sunnudaginn kemur
mun biskup landsins vígja
í dómkirkjunni í Reykjavík
þrjá guðfræðikandidata. Eru
það Gísli Kolbeins til Sauð-
lauksdals, Kristján Róberts-
son til Svalbarðsþinga og
Magnús Guðmundsson til Ög-
urþinga.
Vígslan hefst klukkan hálf
ellefu, og lýsir sér Halldór
Kolbeins vígslu. Ásmundur
Guðmundsson prófessor
þjónar fyrir altari, en hann
verður jafnframt vígsluvott-
ur, ásamt séra Einari Stur-
laugssyni, séra Pétri Sigur-
geirssyni og séra Sigurjóni
Þ. Árnasyni.
Brezkur sepiimað-
ur á fundi Títós
Starfsmaður í utanríkis-
ráðuneyti Breta, Ernest Dav-
ise að nafni, mun innan
skamms heimsækja Tító mar
skálk. Á sendimaður þessi
jafnframt að heimsækja for-
ustumenn í Austurrlki, ítal-
íu og Grikklandi.
Daily Telegraph skýrir svo
frá, að Davies muni hitta Ti-
tó í sumarsetri hans í Bled,
og verði einkaritari í för með
honum. Brezka stjórnin stað-
hæfir, að Davies takist þessa
ferð einungis á hendur i sum-
arleyfi sínu.
Lang aflahæsta skipið á |
í herstjórnartilkynningu frá McArthur í gær, segir að her
síldveiðunnm er Helga frá f
íteykjavík með um 3790 1
mál. Skipstjóri á henni er =
Ármann Friðriksson frá jj
Vestmannaeyjum.
Ilelg'a hefir verið meðai f
aflaliæstu skipanna á síld \
arvertíðuin aö undanförnu, f
og á þorskvertíðum hefir |
hún einnig skarað iram úr. f
Ilelga er Svíþjóðarbát- =
ur, 119 rúmlestir brúttó að f
stærð, og því með stærri f
sildveiðiskipunum. Hún er I
eign lilutafclagsins „Ingi-1
mundur," en aðaleigendur f
þess munu vera Sveinn f
Renetliktsson útgerðarmað \
ur og skipstjórinn, Ár- f
mann Friðriksson.
Héraðshátíð Fram-
sóknarmanna að
Hrafnagili
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri.
Hin árlega héraðshátíð
Framsóknarmanna á Akur-
eyri og í Eyjafirði verður
haldin að Hrafnagili á morg-
un. Verður hátíðin haldin
eins og undanfarin ár í félags
reit Framsóknarfélaganna að
Hrafnagili og hinum rúm-
góðu húsakynnum félagsins
að Hrafnagili.
Bernharð Stefánsson alþing
ismaður stjórnar samkom-
unni, en Steingrímur Stein-
þórsson forsætisráðherra, flyt
ur aðalræðuna. Aðrir ræðu-
menn verða Þorsteinn M.
Jónsson, skólastjóri og Árni
Björnsson, kennari. Á milli
ræðna syngur tvöfaldur kvart
ett úr karlakórnum Geysi.
Lúðrasveit Akureyrar leikur
undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar. Um kvöldið verður
dansað.
Norður-Kóreu tefli nú fram óþreyttu liði víðast hvar á víg-
línunni. í gær tók N.-Kóreu-herinn borgina Iladong af
Bandaríkjamönnum, en þeir höfðu áður tekið hana af Norð-
! ur-Kóreumöiinum.
Harðir bardagar geysa yfir
alla víglínuna og virðast N,-
: Kóreumenn leggja allt kapp
| á aö herða sóknina. Vígstað-
an í gær var þó víðast ó-
breytt nema hvað Noröan-
mönnum á einum stað að
koma fleyg í víglínuna á
milli Sunnanmanna og Banda
ríkj amanna.
Er talið, að þessi aukna
sókn stafi af því að afstaða
Rússa geti eitthvað breyzt
eftir að Malik tekur sæti aft
ur í öryggisráðinu n. k. þriðju
dag.
Reknetaveiðar frá
Keflavík
Þrír bátar vciða
bcltusíld «*í afla
Frá Keflavík stunda þrír
bátar reknetaveiðar, þegar
gefur á sjó. Eru bátarnir byrj
aðir veiðar fyrir nokkru síð-
an og hafa látiö reka nokkrar
nætur vestur í Jökuldjúpi.
Afli hefir verið heldur lítill,
en þó misjafn. í mörgum
lcgnurh hefir aflazt 30—50
tunnur á bát og mesti afli
sem fengizt hefi reru 90 tn.,
sem vélbáturinn Gunnar Há-
mundarson fékk fyrir um það
bil viku síðan.
Undanfarna daga hefir ekki
gefið á sjó vegna storma.
Síldin, sem veiðst hefir, er
fryst til beitu. Fleiri bátar
munu ætla að stunda rek-
netaveiðar frá Keflavík, þeg-
ar líður á sumarið.
Malik tekur aftur
sæti í Öryggisráðinu
Um næstu mánaðamót á
fulltrúi Rússa í öryggisráðinu
að taka þar forsæti. Hefir
Malik, fulltrúi Rússa, tilkvnnt
að hann muni aftur hefja
störf í öryggisráðinu. Boðar
hann til fundar á þriðjudag-
inn kemur.
Ýmsar getgátur eru uppi
um, hvað Rússar muni nú
hyggjast fyrir. Hefir þess ver
ið getið til, að þeir muni
krefjast viðurkenningar
handa fulltrúa núverandi
Kínastjórnar, beita neitunar-
valdi sínu í Kóreumálinu eða
leggja fram málamiölunartil-
lögur.
*
Oeirðir aukast
í Belgíu
Deilurnar í Belgíu harðna.
Verkföll breiðast út., og í gær
kom víða til óeirða og mik-
illa átaka. Lögreglumenn og
hermenn, er kvaddir voru á
vettvang, beittu kylfum,
byssuskeptum og táragasi, og
í nágrenni við konungshöll-
ina var skotið af vélbyssum.
Er látinn einn maður, er í
þeirri hríð lenti.i
Kapphlaup um
hráefnin
„Yndislegt, íslenzkt bros"
Frásögn „Politiken“ er Mar-
grét Guðmundsdóttir kom
til Kaupmannahafnar
„Hin ljúfa og: heillandi, unga, íslenzka flugþerna, ungfrú
Margrét Guðmundsdóttir, var í gær í Kaupmannahöfn í
fyrsta skipti, eftir að hún var í London fyrir tíu dögum
valin fiugþerna ársins 1950 úr hópi fulltrúa frá fjórtán þjóð-
um“, segir í danska blaðinu Politiken á miðviktidaginn. —
En dönsk stúlka, Birthe Lund, varö önnur í röðinni i þessari
keppni.
„Ungfrú Margrét var í hin-
um snotra einkennisbúningi
íslenzka flugfélagsins,“ segir
blaðið ennfremur, “og húfan
hallaðist fallega út í annan
vangann, er hún birtist bros-
andi í dyrum „Geysis“ eftir
lendinguna í Kastrup. Fín-
legt andlit með brún,
greindarleg augu hló við
blaðamönnunum og Ásbirni
Magnússyni, forstjóra.“
Siðan fer á eftir viðtal, er
blaðamaðurinn frá Politiken
átti við Margréti og lýsing á
verðlaunagripum þeim og
heiðursgjöfum, sem hún
hlaut.
Háttsettur maður í þjón-
ustu Bandaríkjastjórnar hef-
ir látið svo ummælt, að til-
laga Trumans um tveggja
miljarða dollara fjárveitingu
til kaupa á hráefnum, er
mikilvæg eru í hernaði, muni
leysa dollaravandræðin í öðr-
um löndum.
Vestur-Evrópulöndin muni
ná hagstæðum verzlunarjöfn
uði, því að Bandaríkin muni
kaupa öll hráefni, er þau fá,
svo að þau lendi ekki hjá
Rússum. Benti hann á það
sem dæmi, að í síðasta stríði
hefðu Bandaríkjamenn keypt
portúgalskar hrávörur til stál
iðnaðar við geypiverði, svo að
þær lentu ekki í höndum
Þjóðverja. Einkum er nú bú-
izt við, að mikið kapphlaup
um tin og gúm hef jist á heims
markaðinum.
Sennilegt þykir, að Vestur-
Evrópuríkin muni aftur, þeg-
ar gjaldeyrisástæður þeirra
batna, kaupa mikið af iðn-
aðarvörum frá Japan og
Þýzkalandi, og allar vörur til
herbúnaðar frá þessum lönd-
um munu Bandarikin tryggja
sér.