Tíminn - 08.11.1950, Síða 7
249. blaff
TÍMINN, miðvikudaginn 8. nóvember 1950.
■í
Höfum nýlega fengið sendingu
af lopa í flestum Iitum.
Kirkjustræti 8B
Rannsóknarlögregl-
an óskar aðstoðar
í fyrri nótt var stolið all-
miklu af miðstcðvarpípum frá
bragga við Skúlagötu 40. Voru
það um 11 metrar af þriggja
þumlunga pípum, 11 metrar
af tveggja og hálfs þumlungs,
25 metrar af tveggja og 13—14
metrar af eins og hálfs
þumlungs. Allar voru pípurn'
ar 41/2—6 metrar á lengd. j
Pípurnar voru svartar og
höfðu áður verið nötaðar.
Sýnt þykir að þær hafi verið
fluttar brott á bifreiðum. j
Rannsóknarlögreglan óskar
þess fastlega, að henni sé ’
gert viðvart, ef einhver getur
gefið vísbendingar um það,
hver sé valdur að þessum
þjófnaði.
Matarsýning Nátt-
úrulækningafél.
Nú næstu daga verður opn'
uð sýning á meðferð og
neyzlu matar, sem náttúru-
lækningamenn telja hollast-
an og bestan. I
Húsmæðrafélag Reykja-
víkur hefir sýnt NLFÍ þá vel- 1
vild að lána endurgjaldslauáit
til þess húsakynni sín að Borg
artúni 7.
Þangað eru allir velkomnir
og verður aðgangur ókeypis. I
Sérstaklega skorar Náttúru- I
lækningafélagið á húsmæður
og aðra, sem að matreiðslu- j
störfum vinna að koma og
kynna sér það, sem sýnt verð
ur. |
1200 nýir félagar
1200 manns gengu í Reykja
víkurdeild Rauða Kross ís-
lands á sunnudaginn.
Reykvíkingar tóku félaga-
söfnun Rauða Krossins á
sunudaginn ágætlega. Enn
eiga nokkrir þeirra, sem söfn
uðu félögum, eftir að gera
skil, en komnir eru 1200 nýir
félagar í deildina.
Síðar mun reynt að senda
í allmcrg hverfi bæjarins sem
ekki reyndist unnt að ná t’l,
en þeir, sem vilja gerast fé-
lagar eru beðnir að hringja
í skrifstofusíma R. K. í. 4658
og láta skrá sig sem félaga.
Reykjavíkurdeildin biður
blaðiö að færa unga fólkinu
besta þakklæti fyrir ágætt
starf og þakkar Reykvík ng-
um skilning á starfseminni.
Þessir skólar önnuðust félaga
söfnunina:
Hjúkrunarkvennaskóli ís-
lands, Húsmæðraskóli Reykja
víkur, Gagnfræðaskóli Vest-
urbæjar og Ljósmæðraskól-
inn.
Reykvíkingar sem- ekki náð
ist til á sunnudaginn var, til
kynnið þátttöku yðar í síma
Rauða Krossins 4658. eða kom
ið í skrifstofuna í Thorvald-
sensstræti 6.
TILKYNNING
Náttúrulækningafél.
í Súgandafirði
Hinn 15. október s. 1. var á
Suðureyri í Súgandafirði
stofnuð deild í Náttúrulækn
ingafélagi íslands, og kallar
félagið sig „Heilsuverndar-
félag Súgfirðinga“. Formaður
var kosinn Aðalsteinn Halls-
son, skólastjóri, og meðstjórn
endur séra Jóhannes Pálma-
*son, Kristján B. Eiríksson,
trésmiður, Salberg Guðmunds
son, vélsmiður, og frú Maria
Friðriksdóttir. — Ríkir mik-
ill áhugi meðal Súgfirðinga
um þessi mál, sem og cnnur
menningarmál. Stofnendur
voru 42.
NortNnieiin bjarl-
sýnnf s* loðdýraripkt
Formaður norska loðdýra-
ræktunarfélagsins skýrði frá
því i gær, að horfur i loðdýra
ræktinni væru nú heldur
betri en áður. Verð skinna
færi hækkandi á heimsmark
aði og eftirspunr ykist. Norð
menn áttu miklar birgðir
loðskinna frá fyrra ári, en
nú eru þær að mestu seldar
og góðar söluhorfur á þessu
ári. Búizt er við, að norska
loödýraræktin gefi á þessu
ári um 60 þús. minnkaskinn,
90 þús. silfurrefa- og platínu
skinn og 60 þús. blárefaskinn.
Gerist áskrifendur ab
JJímanum
Áskriftarsimi 2323 f|
8
Kynna sér fiskiðnað
1
í Bandaríkjunum j
Nýlega fcru þeir dr-. S'gurð- j
ur Pétursson, gerlafræðirigur,!
og dr. Þórður Þorbjarnarson,
forstöðumaður rannsóknar-
stofu Fiskifélags ílands, til 1
Bandaríkjanna. Mun dr. Sig- j
urður dveljast vestra í 8 mán j
uði og kynna sér gerlarann- !
sóknir m. a. í sambandi við
fiskiðnað. Dr. Þórður mun
dveljast í Bandaríkjunum í
3 mánuði og kynna sér ýmis
konar rannsóknir í þágu fisk-
lðnaðar.
För þeirra dr. Sigurðar og
Hér með er vakin athygli á tilkynningu Verðlags- «
stjórans frá 14. nóv. 1947, þar sem segir m. a.:
„Iðnaðarvörur skulu ávalt einkenndar með 8
nafni eða vörumerki iðjufyrirtækisins, þannig 8
að unnt sé að sjá hvar varan er framleidd“. H
♦♦
Þá segir einnig í sömu tilkynningu: g
B
♦♦
„Ennfremur varðar það sektum að hafa slík- Íl
ar vörur á boðstólum, ef þær eru ekki merktar, H
sem að framan greinir'S H
♦♦
Með því að það er til mikilla hagsbóta fyrir neyt- H
endur að geta séð, hver framleiðir hinar ýmsu vöru- H
tegundir, verður gengið ríkt eftir að áðurnefndri til- g
kynningu verði fylgt og verður tafarlaust kært til H
♦♦
verðlagsdóms, ef útaf er brugðið. H
Reykjavík 7. nóv., 1950 8
Verðgæzlustjórinn
VICiIVSIÁGASlRI TIMANIS Ell «130«
dr. Þórðar er einn liður tækm
legrar aðstoðar, sem efnahags
samvinnustjórnin í Washing-
ton veitir, og greiðir hún all-
an erlendan kostnað vegna
fararinnar.
mt
as
lagfasrir
orqeiin
Hið íslenzka
Biblíufélas
(Framhald af 4. síOu.)
í ársbyrjun 1949, sendi þessi
stjórn í sambandi við nýskip-
aðan biblíusunnudag ávarp
eða áskorun til landsmanna
um að ganga í Biblíufélagið.
Var því svo vel tekið, að nú
mun félagið telja um 800 með
liði víðsvegar um land. í vor
sem leið, var enginn biblíu-
félagsfundur haldinn í sam-
bandi við sýnódus. En nú á
að halda aðalfund í fyrsta
skipti með nýju félögunum,
sem geta komið við að mæta,
og þeim, sem félagsmenn
vilja verða á fundinum.
Hann verður haldinn í Dóm
kirkjunni kl. 8,30 á mánu-
dagskvöldið kemur. 13. þ. m.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður þar lagt fram
frumvarp að endurskoðuðum
lögum félagsins og væntan-
lega rædd mikilvæg framtíð-
armál. Magnús Már háskóla-
kennari mun og flytja erindi.
Vonandi verður þar margt
manna.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Alnioiina manntalið
(Framhald af 4. síðu.)
ið til sín taka. Eru likur til,
að svo verði viðast hvar, en
það er miklum vandkvæðum
bundið í löndum, þar sem
manntöl hafa aldrei áður far
ið fram eða aðeíns einstök
manntöl fyrir mörgum árum
siðan. Hér á landi er allt öðru
máli aö gegna, þar sem mann
töl hafa verið tekin á hálfa
þriðju öld, og í meira en eina
öld reglulega á 5 eða 10 ára
fresti. Manntöl eru hér því
engin nýlunda, sem fólk lief-
ir neinn beyg af. Það er því
íull ástæða til þess að vænta
þess, að manntal það, sem nú
er /yrir höndum, muni heppn
ast vel og að allir þeir, sem
að þvi vinm, hjálpist að því,
að svo megi verða.
Bók þessi geymir eina stórbrotnustu og drama-
tiskustu harmsögu, sem gerst hefir meðal íslend-
inga. Þetta er saga um óvenjulega skapfastan for-
ingja, og trúarhetju, sem lætur fátt vaxa sér í aug-
um og gengur ótrauður mót dauða sínum og sona
sinna í Skálholti 7. nóvember 1550.
TORFHILDUR Þ. HÓLM hefir kannað allar heim
ildir um ævi Jóns biskups Arasonar, og í þessari
sögulegu skáldsögu fylgir hún atburðarás nákvæm
lega. Auk þess hefir hún fléttað inn í söguna öll
ævintýri og munnmælasögur um Jón biskup Ara-
son, er gengið hafa mann fram af manni í marg-
ar aldir.
Jón biskup Arason er II.—III. bindið í ritsafni
Torfhildar Þ. Holm. — í fyrra kom út. I. bindið, en
það var Brynjólfur Sveinssen biskup.
JÓN BISXUP ARASON er í tveim
ur bindum, samtals 636 bls. — Verð
kr. 75,00 heft, kr. 135,00 í vönduðu
jskinnbandi.