Tíminn - 02.02.1951, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.02.1951, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarjlokkurinn 35. árgangur. Reykjavík, föstudaginn 2. febrúar 1951. Skrifstofur i Edduhúsinu Fréttasimar: 81302 og 81303 AfgreiÖslusími 2323 Auglýsingasítni 81300 Prentsmiðjan Edda 27. blað. Glitfaxi hefir farizt milli Álftaness og Keilisness Olíubrák á sjónum út af Hraunsnðsí, björgunar- belti á floti nokkru utar, tveir flekar úr gélfi flugvélarinnar út af Keilssnesi Það má nú telja víst, að flugvélin Glitfaxi hafi farið í sjó- inn einhvers staðar á svæðinu milli Álftaness og Keilisness, og allir, sem í henni voru farizt þar. Fannst á þessum slóð- um brak úr gólfi flugvélar og eítt björgunarbelti, og brák á sjónum út af Hraunsnesi. Virðist allt bcnda til þess, að slys- ið hafi borið mjög skjótt að og fólkið drukknað þegar í stað. Reköld finnast. Jóhannes flugstjóri Snorra- son kom fyrstur manna auga á brakið um þrjúleytið í gær, og tilkynnti þegar, að hann sæi á tveim stöðum eitthvað í sjónum, sem gæti verið fleki úr flugvélargólfi. Risi það á rönd upp úr sjónum, og sæi í nýlegt brotsár. Voru flök þessi út af Keilisnesi i stefnu frá Akrafjalli á Keflavík. Sendi Jóhannes svohljóð- andi skeyti: „Hef fundið brak á sjón- um. Það líki'st krossviðar- fleka, brotið á hliðum og upp úr því stendur eitthvað. Gæti verið hluti af gólfi úr flugvél." Varðskipið Ægir var þá statt í sex mílna fjarlægð, og kom það nú á vettvang. Kast- aði björgunarflugvél frá Kefla víkurflugvelli út fljótandi blysi til þess að merkja stað- inn, þar sem flökin voru. Fann Ægir brátt reköldin og auk þess eitt björgunarbelti. Kom hann með þetta til Reykja- víkur í gærkvöldi. Brakið tvímælalaust úr Glitfaxa. Þegar er Ægír var kom- inn að landi, var brakið, sem fundizt hafði, tekið til rannsóknar og varð nið- urstaðan sú, að brakið væri tvímælalaust úr Glit- faxa. Var um að ræða tvo gólffleka, um tveggja metra langa eða rösklega það, og var annar mun mjórri en hinn. Er talið, að annar hafi verið hægra megin úr gólfi flugvélarinnar, en hinn vinstra megin. Stæm flekinn var flagnaður og brotinn i annan endann og skein þar í hvítan balsavið. Við fleka þennan voru einnig brot af stólafesting- um, og hluti af áklæði af einum stólnum. Björgunarbeltið, sem fannst, var með órofnu inn siglí, og hafði því sýnilega ekki verið notað. Hluti þessa aila töldu flugvirkjar og flugmenn sig þekkja, að væru úr Glitfaxa, enda voru brot- sár á viði og málmi alveg ný, og ekki um brak úr Ljóslaus flugvél sást á Mýrura Vestur á Mýrum telur fólk á mörgum bæjum sig hafa orðið flugvélar varfc í fyrrak\öld. Heyrðist til vél arnir víða. Á einiEm bæ í Hraunlireppi. Laxárholti telur bóndinn sig hafa séð ljósiausa flugvél á ferð um klukkan hálf-scx. Segir hann, að flugvélin hafi flogið hægt og lieldiir lágt, borið yfir bæinn í vestur í stefnu á Kerlingarskarð. Vestur í Mýrasýslu og Hnappadalssýslu var víða leitað í gær og gerðir út margir leitarflokkar, er fóru upp um fjöll og dali. annarri flugvél að gera á þcssum slóðum. Umfangsmikil leit. Þegar brakið úr flugvélinni hafði fundizt, og sýnt þótti, að það væri úr Glitfaxa, voru leitarflokkar allir á landi kvadcjir heim, og skip og flug- vélar beðin að hætta leit. — Höfðu tólf flugvélar tekið þátt í Ieitinni, en auk þess mörg skip og bátar og fjöldi fóiks á landi allt umhverfis Faxaflóa. Var leitað allt frá sjávarmáli upp til fjalla. Fólkið, sem fórst. Eins og skýrt var frá í gær voru margir Vestmannaey- ingar meðal beirra, sem fór- ust með Glitfaxa. Páll Jóns- son skipstjóri var að koma hingað til þess að taka við bátnum Faxaborg, og var í för með honum sumt af mönnun- um, sem átti að vera á bátn- um. — Kona sú, sem í blaðinu í gær var samkvæmt farþega- listanum sögð heita Marta Hjartardóttir, hét María Hjart arson, og barn hennar var kornungt sveinbarn, aðeins fimm mánaða. Bræðurnir Magnús Guð- mundsson úr Reykjavík (rang lega sagður úr Keflavik í gær) og Guðmann Guðmundsson í Keflavík voru að koma frá arfaskiptum, sem farið höfðu fram eftir látinn bróður þeirra í Eyj um. Loks skal það leiðrétt, að Guðmundur bóndi í Arn- arholti var ranglega nefndur Guðbjörnsson i gær. Hann var Guðbjarnason. Flugstjóri á Glitfaxa, Ólaf- ur Jóhannsson, var sonur Jó- hanns Þ. Jósefssonar alþing- ismanns. Viðtal við Eirík Kristófersson skipherra á Ægi Tíðindamaður frá Tíman- um átti tal við Eirík Kristó- fersson, skipherra á Ægi, er hann kom í höfn í gærkvöldi með brakið úr Glitfaxa'. Fer frásögn hans hér á eftir: — Við vorum í þann veginn að leggjast í Vogavík um sex leytið í gær, er ég heyrði flug- vélardyn, að mér virtist. Vant aði klukkuna þá tvær eða þrjár mínútur í sex. Er klukk- an var fjórar eða fimm mínút ur gengin í sjö virtist mönn- um á þilfarinu þeir heyra aft- (FramhaUJ á 2. síðu. ‘ Uppdráttur þessi sýnir þær slóðir, þar sem Glitfaxi fórst. Innsti krossinn er skammt út af Hraunsnesi, þar sem olíu- brákin virðist koma upp úr sjónum. Næsíi kross sýnir hvar björgunarbeltið fannst á reki, en ysti krossinn er út af Flekkuvík og Iveilisnesi, og þar fundust flekarnir úr gólfi flugvélarinnar á reki með nokkur hundruð metra millibili Olíubrákin fannsf við geisla sfefnuvitans á Álftanesi Jóhannes Snorrason flaug í leitinni Glófaxa, sem er Da- kótavél, eign Flugfélags ís- iands. Byrjaði hann leitina í birtingu og leitaði á stóru svæði á landi og á sjó. Var meðal annars leitað um hæðadrög í nágrenni Reykja- víkur og Hafnarfjarðar og fjarlægari fjöll, um Bláfjöll og Reykjanesskaga, allt aust ur í Selvog. Olíubrák á sjónum. í leit sinni yfir Faxaflóa flaug Jóhannes Glófaxa eft- ir radlógeislanum í stefnu í suðvestur frá Álftanesi, þar sem líklegt mátti telja, að hin týnda flugvél hefði verið á ferð. Sá hann þá skömmu fyr- ir hádegi, í námunda við þenn .y ’ -t Glitfaxi — flugvélin, sem fórst í fyrradag. (Ljósm. G. Þ.) an geisla, oliubrák á sjónum út af Hraunsnesi. Eftir hádegið var aftur lagt upp í leit og þá ákveðið að at- huga nánar þessa olíubrák, ekki sízt vegna þess, að lítil flugvél hafði talið sig sjá eitt- hvað brúnleitt á reki á sjón- um í námunda við olíuna. Kom síðar í ljós, að það mun hafa verið björgunarbelti. Jóhannes flaug þessu næst víðar um þetta svæði og lengra út á sjóinn. Var liklegt vegna vindstöðunnar síðan flugvélin týndist, að brak, sem kynni að vera á floti, hefði rek ið í norðvestur. Rekald finnst úr flugvél. Eftir talsverða leit á þess- um slóðum fannst svo fleki á sjónum, sem nú er vitað, að er úr Glitfaxa. Er það vel af sér vikið að koma auga á þennan litla fleka úr flughæð, þar sem hann barst með öldunum og í bárubrotunum á gáróttum haffletinum. Eftir að búið var að athuga flekann nánar virt- ist honum, aö þarna gæti ver- ið um gólf úr flugvél að ræða. Þó að búið væri að finna flekann á sjónum, reyndist afar erfitt að fylgja honum eftir með augunum, svo að hann týndist ekki aftur. Flaug Glófaxi í hringi yfir staðnum um sinn, meðan Ægir var á leiðinni frá olíubrákinni út að flekanum. Meðan þessu fór fram kom (Framhald á 2. siðuJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.