Tíminn - 10.02.1951, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, laugardaginn 10. febrúar 1951.
34. blað
W~
Otá ha(i til heiía
ÍJívarpíð
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Söguþáttur: „Grasa-
konan við Gedduvatn“ eftir Ara
Arnalds (höfundur les). Enn-
fremur tónleikar. 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. — 22,10 Passíu-
sáimur nr. 18. 22,20 Danslög
(plötur). 24,00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Hull 8. 2. til
Reykjavíkur. Dettifoss er í Rvík.
Fjallfoss fór frá Seyðisfirði 4. 2.
kom til Bergen 9. 2., fer þaðan til
Frederikstad og Kristiansand.
Goðafoss fór frá New York 7. 2.
til Reykjavíkur. Lagarfoss fór
frá Reykjavík 5. 2. til Grimsby,
Hull, Bremerhaven og Hamborg
ar. Selfoss fór frá Amsterdam 8.
2. til Hamborgar. Tröllafoss kom
til New York 2. 2., fer þaðan
væntanlega í dag 9. 2. til Rvíkur.
Auðumla er í Hull, fermir vörur
til Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla var væntanleg til ísa-
fjarðar í gærkvöld á norðurleið.
Esja fer frá Reykjavík kl. 13 í
dag austur um land til Siglu-
fjarðar. Herðubreið er á Aust*-
fjörðum. Skjaldbreið er í Rvík.
Þyrill var á Akureyri í gær. Ár-
mann fer frá Reykjavík í dag
til Vestmannaeyja.
Sunnudagaskóli
Hallgrímssóknar (
er í gagnfræðaskólahúsinu við
Lindargötu kl. 10 f. h. Sýndar
verða skuggamyndir. Öll börn
velkomin.
Féiag íslenzkra rafvirkja.
Allsherjaratkvæðagreiðsla um
kosningu stjórnar og annara
j trúnaðarmanna Félags íslenzkra
rafvirkja, fer fram laugardaginn
* 10. og sunnudaginn 11. febrúar
n. k. Kjörfundur hefst kl. 1 e. h.
fyrri daginn og stendur til kl.
9 s. d. Á sunnudag heldur kosn-
ingu áfram frá kl. 2—10 s. d., og
er þá lokið.
Tveir listar hafa komið fram:
A-listinn borinn fram af trún
aðarmannaráði félagsins, og er
hann skipaður sömu mönnum
og verið hafa í stjórn félagsins
s. 1. ár, og B-listi lagður fram af
kommúnistum.
Flugferðir
Ur Fijótum.
Fréttaritari Tímans í Haga-
nesvík skýrir frá því, að heilsu-
far hafi verið sérlega gott í
Fljótum í vetur. Fljótamenn eiga
I læknissókn til Hofsóss, en þang
að eru 34 kílómetrar frá Haga-
j nesvík, og miklu lengra úr aust-
anverðum Fljótum. Eru læknis-
ferðir því oft mjög erfiðar á
' vetrum, því að snjóasamt er á
þessum slóðum. En í vetur hefir
læknir ekki þurft að fara út í
Fljót svo mánuðum skiptir.
I
Húnvetningafélagið
I heldur skemmtisamkomu í
Tjarnarkaffi á fimmtudaginn
■ kemur. Þar verðúr spiluð Fram-
| sóknarvist, erindi flutt og að
lokum dansað.
Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja
hefir opnað skrifstofu í Eddu
húsinu í Lindargötu 9 A, alla
þriðjudaga og föstudaga frá kl.
16 til 19, skrifstofusíminn er
3009.
Háskólafyrirlestur.
Sænski sendikennarinn frú
Gun Nilson flytur fyrirlestur í
I. kennsiustofu háskólans mánu
daginn 12. febr. um ljóðskáldið
Pár Lagerkvist. Fyrirlesturinn
hefst kl. 8,30 e. h. og er öllum
heimill aðgangur.
i Gjöf til orgelsjóð
Kvenfélags Hallgrímskirkju.
Frá organista og söngkór Hall
gíímskirkju kr. 2000, gefið til
minningar um frú Sigríði Bryn-
jólfsdóttur, Flókagötu 16. — Kær
ar þakkir f. h. f., Anna Bjarna-
dóttir.
Danska stjórn-
in í vanda stödd
Danska stjórnin mun verða
að láta af fyrirhuguðum
kreppuráostöfunum sínum
vegna þess, að radikali flokk-
urinn og jafnaðarmenn hafa
endanlega neitað að fallast
á, að dregið verði úr dýrtíðar-
uppbót launamanna.
Þetta mun færa dönsku
stjórn’nni að höndum auk-
inn vanda. sem ekki er séð.
hversu leysist.
SIC T
■ rli S
Eldrl dansarnir 1 O. T.-höstaiS
í kvöld kl. 9. — Húsinix lokaS kL
10.30.
Aðgöngumlðasala kl. 4—6. — Simi 3355. —
■♦•••♦•♦♦♦•♦•••♦•♦♦••«♦
••
n
Borgfirðingafélagið j
seldir kl. 5 í Listamannaskálanum. Ölvun bönnuð.
nýju dansarnir. Fréttakvikmynd og upplestur um Borg- ||
arfjörð: Jón Helgason, blaðamaður. — Aðgöngumiðar
seldir kl. 8 í Listamannaskálanum. Ölvun bönnuð.
Stjórnin.
Flugfélag íslands.
í dag er ráðgert að fljúga til
Akureyrar, Vestmannaeyja,
Blönduóss og Sauðárkróks. Á
morgun eru áætlaðar flugferðir
til Akureyrar og Vestmannaeyja.
Messur á morgun
Hallgrímskirkja.
Messa kl. 11 árdegis, séra
Jakob Jónsson. Ræðuefni: Frei§t
ingarnar og umhverfið. Klukk-
an 1,30 barnaguðsþjónusta.
Klukkan fimm síðdegis messa,
séra Sigurjón Þ. Árnason.
Nesprestakall.
Messað í kapellu háskólans kl.
tvö, séra Jón Thorarensen.
Lau garneskirk j a.
Messa klukkan tvö síðdegis,
séra Garðar Svavarsson. Barna-
guðsþjónusta klukkan 10,15 f.h.,
séra Garðar Svavarsson.
Kvenfélag Laugarnessóknar
efnir til merkjasölu á morgun
sunnudag. Hefir það unnið mjög
ötullega að málefnum sínum, og
er þess óskandi, að það hljóti nú
sem fyrr góðan stuðning bæj-
arbúa.
Revnivallaprestakall.
Messað að Saurbæ á Kjalar-
nesi kl. 2 e. þ. Sóknarpresturinn.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn.
Messa í Aðventkirkjunni kl. 11
f. h. Björn Jónsson stud. theol.
prédikar, séra Emil Björnsson
flytur ávarp og þjónar fyrir alt-
ari. Ræðuefni: Unga fólkið. Þess
ir sáimar verða sungnir: Nr. 18,
59,105 og 24. Séra Emil Björns-
son.
Úr ýmy-m áttum
Borgfirðingafélagið
heldur skemmtifund í Lista-
mannaskáianum í kvöld, og
hefst hann klukkan 8,30. Rétta-
kvikmynd verður sýnd, og Jón
Helgason blaðamaður les upp úr
síðustu árbók Ferðafélags ís-
lands um suðurhluta Borgar-
fjarðar.
CfHum Cecji:
Tillitsleysi — smekkleysa
Gísl.' Magnússon, bóndi í Eyhildarholti í Skagafirðri,
hefir sent Tímanum bréf um útvarpið, svohljóðandi:
„Óhætt er að fullyrða, að flugslysið mikla um daginn
hafi valdið þjóðarsorg. Sárastur harmur er að sjálf-
sögðu kveðinn að ættingjum og vinum þeirra, er fór-
ust. En þjóðin öil — þessi htla þjóð — á líka um sárt að
b'nda. Þetta sviplega og ægilega slys jafngildir mörg
hundruð manna líftjcni með stærri þjóð, — jafnvel
búsunda. Þegar þvílíkur atburður gerist, drúpir öli þjóð
in í tíiúpri sorg. Rödd ríkisútvarpsins, sem á að vera
rödd þjóðarinnar að öðrum þræði, má ekki rjúfa þá
harma-helgi. Slíkt er höfuðsynd gegn venzlamönnum
hinna íöllnu, gegn þjóðinni allri. En þessa synd drýgði
útvarpið skömmu eftir að slysið varð. Ég, sem persónu-
lega stóð fjarri öllum þeim, er fórust, varð furðu lostinn
og magnþrota af gremju, er dagskrá kvöldsíns — fyrir
síðari veðurfréttir — lauk með því, að sungnar voru lé-
legar gamanvísur — og siðan hófst frásögn af hinu
ægilega slysi. Hversu mun þá þeim hafa orðið við, er
■næstir stcðu hinum látnu!
★ ★ ★
— Þetta er meira en tiilitsleysi. Það er að fótumtroða
helgar tilfinningar. Það stappar nærri hreinni svívirðu.
Veit ég vei, að félag eitt stóð að dagskránni þetta kvöld.
Og að sjálfsögðu hef:r dagskráin verið undirbúin og
ákveðin fyrir sig fram. En slíkt er engin afsökun, þegar
svona stöð á. Gat ekki dagskrárstjórn útvarpsins tekið
í taumana, úr því að þeim, er að þessari sérstöku dag-
skrá stóðu, voru svo hörmulega mislagðar hendur. Gam
anvísurnar hefðu vissulega að ósekju mátt bíða betri
tima. Þögnin hefði verið þakkarverð — eins og á stóð.
★ ★ ★
Og íyrst ég fór að minnast á þessa óhæfu, er rétt að
drepa á annað, sem ég tel aðfinnsluvert og óheppilega
fyrirkomið í dagskrá útvarpsins. 2—3 kvöld í viku hefst
flutnmgur danslaga þegar að loknum lestri passíusálma.
Nú fer því f jarri, að mér sé illa við danslög, — þegar frá
er tekinn jazzinn, (sem raunar er ekkert ,,lag“). Þvert
á móti. En hver mundi kunna við að hefja dans eftir
grammófónmúsik í kirkju, þegar eftir guðsþjónustu-
gerð með sálmasöng! — Bezt fer á því, að hvaðeina sé
á sínum stað — einnig í dagskrá útvarpsins". .
★ ★ ★
Þetra mál hefir áður verið nokkuð rætt í blöðunum,
en ekki ástæða til annars en rödd hins ágæta, skag-
f.rziia bónda komi einnig fram.
J. H.
Innleysið póstkröfurnar ii
■ >
Enn eru þeir kaupendur mjög alvarlega á- < \
minntir, sem ekki hafa innleyst póstkröfur, sem bor-
izt hafa þeim frá innheimtu Tímans.
gnsiheimta Tímans
\ Op
num a morgun
fyrsta flokks FISKBÚÐ á Vitastíg 10.
---- Fljót og góð afgreiðsla. -------
Virðingarfyllst,
STEFAN A. PALSSON & Co.
Símar 3244 — 2644.
o
o
o
o
| Fiskhúðin Hafbjörgf s\mi 7226 ií
Þorskanetaslöngur
íyrirliggjandi. Verð mjög hagkvæmt.
! Barnavinaf élagið Sumargjöf
| TILKYNNIR
$ 15. þessa mánaðár verður opnað dagheimili í
húsi félagsins, Steinahlíð við Suðurlandsbraut.
+ — Nánari upplýsingar hjá forstöðukonuinni.
J — sími 3280.
Bændur
U Gætið þess að hirða og verka vel allar húðir og skinn,
♦ ♦
•: er til falla á búum yðar og afhenda þær kaupfélögun-
U um til sölumeðferðar.
♦♦
♦♦ ^
:: Reynslan mun hér eftir sem hingað til, færa yður
♦♦ **-
♦♦
jj heim sanninn um það, að með því móti fáið þér hag-
:: stæðast verð.
Samband ísl.samvinnyfélaga
::
:::::::
:f
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦•♦•♦•♦•♦♦♦♦♦♦♦♦«
♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦4♦♦♦♦««♦«♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
ÍÍfc'H-