Tíminn - 04.04.1951, Blaðsíða 3
75. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 4. apríl 1951.
3,
/slerLdingaJpættir
Sextugur: Jón G. Ólafsson
Jón G. Ólafsson er fæddur
að Hólum í Dýrafirði 29. marz
1891, sonur hjónanna Sig- !
-ríðar Kristínar Jónsdóttur og
Ölafs Guðmundssonar bónda
þar. Faðir hans var ættaöur
úr Dýrafirði, góður og gegn
búþegn, en móðir hans, Krist
ín, var ættuð úr Önundar-
firði, var hún ljósmóðir langa
æfi, frábær gáfukona og skáld
mælt. Gaf hún út ljóðmæli
sín á efri árum sínum.
£ Jón Ólafsson ólzt upp í for-
bldrahúsum við dagleg störf
til sjós og lands.. Stundaði
hám í skóla sr. Sigtryggs á (
Núpi 1910—«12, og var þar|
framarlega f-hópi góðra nem- j
enda. Vann síðan á búi for-
eldra . sinna og fluttist með .
þeim til Þíngeyrar og stund- '
aði þar sjósókn á þilskipum.
Nam hann slátraraiðn hjá
Sláturfélagi Suðurlands, er j
komið hefir héraðinu að
góðu haldi.
Árið 1916 kvæntist hann á- j
gætri konu: Ágústu Guð- J
mundsdóttur frá Brekku í,
Dýrafirði. Keyptu þau þá
jörðina Minni-Garð í Dýra-
firði og fluttust yfir fjörð-
inn og fóru foreldrar Jóns
til' bús með þeim og dvöldust
hjá þeim til æfiloka.
Vorið 1920 fluttust þau að
Gemlufalli og hafa búið þar
síðan. Gerðist Jón þá jafn-
framt ferjumaður yfir Dýra-
fjörð, þvi Gemlufall hefir ver-
Ið ferjustaður lengi. Var það
oft ónæðissamt og erilsamt
starf og olli miklum frátöf-
um frá daglegum heimilis-
störfum, þar sem sinna þurfti
flutningum nótt sem nýtan
dag.
Jón er prýðilega gefinn
maður, gjörhugull og víðförli
í hugsun og grundar dýpstu
rök tilverunnar. Einkum hef-
ir hann aðhyllst mjög kenn-
ingar Helga Péturs. Jón er
einnig einlægur trúmaður og
lætur sig kirkju og kristin-
dómsmál miklu varða. Hann
hefir lengi setið í sóknar-1
nefnd og verið safnaðarfull- |
trúi. Hann hefir tekið góðan 1
þátt í menningarmálum j
sveitar sinnar, mikið fengizt
við barnakennslu, bæði með j
því að taka börn á heimili j
sitt og sem barnaskólakenn-'
ari.Hann hefir verið kjöt- og(
ullarmatsmaður lengi og
kenndi mönnum hér slátrun
og kjötverkun.
Þá hefir hann um alllangt
skeið verið símstjóri og póst- j
afgreiðslumaður. Heimili
þeirra hjóna hefir því verið
mjög gestkvæmt og oft gest-
um og gangandi að sinna.
Börn eiga þau sex og eru
fimm þeirra á lífi, og einn
fósturson eiga þau, er hjá
þeim dvelur. Elst barna þeirra
er Sigríður Kristín, kona sr.
Eiríks J. Eiríkssonar á Núpi,
þá Jónína ógift heima, Elín,
gift Oddi bónda Andréssyni ú
Hálsi í Kjós, Ingibjörg Ijós-
móðir, gift Gísla hreppstjóra
bróður Odds, og Guðmundur
trésmiður, heima ásamt
Skúla, fóstursyninum.
Ágústa, kojna Jóns, átti
sextugsafmæli 1. ágúst s.l.
Þessara tímamóta í lífi þess
ara merkishjóna, vina minna
og nágranna um 30 ára skeið,
vil ég minnast með innUegu
þakklæti fyrir ágæt samskipti
og marga ánægjustund, er
ég hef hjá þeim átt.
Á ég þá einlægu ósk nú, að
við sveitungar þeirra hjóna
fáum enn lengi að njóta
þeirra.
Jóhannes Davíffsson.
UTAN ÚR HEIMI
Samvaxnir tvíburar
tii sýnis.
í Los Angeles er nýlega
byrjað að sýna samvaxna tví-
Bura gegn aðgangseyri. Höfuð
þeirra eru vaxin saman. Móð-
. ir þeirra .er svertingi og hefir
maður hennar nýlega skilið
við hana. Tvíburarnir þurfa
sérstaka aðhlynningu og er
framfærzla þeirra talin kosta
5 þús. kr. á dag. Móðir þeirra
telur sig þurfa að afla fjár
til framfærzlunnar með fram
angreindum hætti.
II Tvíburarnir, sem eru stúlk-
ur, eru nú tveg'gja ára gamlir.
Þeir eru þegar farnir að tala
allmikið og virðast hinir skyn
ugustu. Samkomulagið er yf-
irleitt gott, en þó kemur það
fyrir, að Yvonne, sem er
stærri og sterkari, stjórnar
Yvelle allóþyrmilega, ef hún
vill ekki fylgja með.
★
Athafnasamur
fjölkvænismaður.
Nýlega hefir lögreglan í
Kairo handsamað mann, sem
heitir Seadek Ahmed. Hann
hefir játað á sig að hafa gifzt
42 konum seinustu 15 árin, án
þess að hafa skilið formlega
við nokkra þeirra.
— Ég er ákaflega gæflyndur,
sagði hann fyrir réttinum, og
falli mér illa við konu, vil ég
heldur skilja við hana en ríf-
ast við hana.
★
Fertug kona á 21 barn.
í Veroqua í Wisconsin er
kona, sem heitir Freda Scho-
ville. Hún er rétt fertug að
aldri, en átti nýlega 21. bam
sitt. Aldrei hefir hún þó átt
tvíbura. Hún átti fyrsta barn-
ið, er hún var á 16. árinu.
Þess skal getið, að sami mað
ur er faðir að öllum börnun-
um.
★
Dýrt handtak.
Sá atburður gerðist nýlega
í Sönderborg í Danmörku, að
kona missteig sig og greip í
hendina á karlmanni nokkr-
um í fallinu. Handtak þetta
virðist hafa verið nokkuð ó-
venjulegt, því að maðurinn
fór úr axlarliðnum. Hann hef
ir nú fengið frúna dæmda til
að greiða sér nær 3000 kr. í
skaðabætur.
Ferfaldur munur.
Samkvæmt skýrslu frá efna
hagsdeild S. Þ. nam stálfram-
leiðsla Sovétríkjanna og lepp-
ríkja þess 36 millj. smál. á s. 1.
ári, og er það 6 millj. smál.
meira en árið áður. Stálfram-
leiðsla Vestur-Evrópulandanna
nam á s. 1. ári 53 millj. smál.,
og er það einnig 6 millj. smál.
meira en árið áður. I Banda-
ríkjunum nam stálframleiðsl-
an 87,7 millj. smál.
Stálframleiðsla lýðræðisríkj-
anna nam þannig 140 millj.
smál., og er því næstum fjór-
um sinnum meiri en fram-
leiðsla Sovétríkjanna og lepp-
ríkja þeirra.
BIFREIÐAEIGENDUR!
Hafið þér athugað að á hverju ári verða allmörg slys, sem bæta verður
með meiru fé, en flestir hafa tryggt fyrir. Á síðastliðnu ári önnuðumst vér
t. d. uppgjör tjóns, sem bætt var með kr. 126.000.00 Tryggt var fyrir kr.
30.000.00. Eigandi bifreiðarinnar greiddi kr. 96.000.00. A síðastliðnu ári
voru einum manni dæmdar bætur sem námu kr. 135.000.00. Greiðsluskyldan
á því, sem er fram yfir tryggingarupphæðina, hvilir á yður. Fleiri dæmi
mætti nefna, en verður ekki gert hér. Aðeins skal lögð áherzla á það, að þessi
áhætta er meiri, en menn almennt gera sér grein fyrir og fer vaxandi,
vegna vaxandi dýrtíðar. Þannig bættum vér i byrjun ársins 1950 t. d. eitt
tjón með kr. 29.140.00. Miðað við verðlag nú, ættu bætur, vegna samskonar
tjóns, að vera kr. 37.130.00.
Vér viljum benda á, að fyrir þessari áhættu er hægt að tryggja, gegn
iðgjaldi, sem er mun lægra, en menn almennt álíta. Iðgjöld fyrir nokkra
helstu áhættuflokkana eru, sem hér segir:
Á 1. áhættusvæði: Bifreiðar skrásettar í Reykjavík, Hafnarfirði, Gull-
bringu- og Kjósarsýslu og Keflavík.
Ábyrgffartrygging allt að
Kr. 30.000.00 Kr. 100.000.00 Kr. 200.000.00
Iðgjald: Iðgjald: Iðgjald:
Einkabifreið ... kr. 500.00 kr. 650.00 kr. 750.00
Leigubifreið kr. 1.175.00 kr. 1.527.50 kr. 1.762.50
Jepp-bifreiðar . kr. 600.00 kr. 780.00 kr. 900.00
Vörubifreið til afnota eingöngu einka- kr. 600.00 kr. 780.00 kr. 900.00
Vörubifreið notuð við at- vinnurekstur og sendif. kr. 1.000.00 kr. 1.400.00 kr. 1.600.00
Vöru-leigubifreið kr. 1.000.00 kr. 1.400.00 kr. 1.600.00
Á 2. áhættusvæffi: Bifreiðar skrásettar í Árnes- og Rangárvallasýslum,
Akureyri og Eyjafjarðarsýslu.
Ábyrgðartrygging allt að
Kr. 30.000.00 Kr. 100.000.00 Kr. 200.000.00
Iðgjald: Iðgjald: Iðgjald:
Einkabifreið ... kr. 375.00 kr. 487.50 kr. 562.50
Leigubifreið kr. 875.00 kr. 1.137.50 kr. 1.312.50
Jepp-bifreið ... Vörubifreið til einka- kr. 475.00 kr. 617.50 kr. 712.50
afnota kr. 475.00 kr. 617.50 kr. 712.50
Vörubifreið notuð við at -
vinnurekstur og sendif. kr. 675.00 kr. 945.00 kr. 1.080.00
Vöru-leigubifreið kr. 800.00 kr. 1.120.00 kr. 1.280.00
Kr. 30.000.00 Kr. 100.000.00 Kr. 200.000.00
Iðgjald: Iðgjald: Iðgjald:
kr. 300.00 kr. 390.00 kr. 450.00
kr. 725.00 kr. 942.50 kr. 1.087.50
kr. 450.00 kr. 585.00 kr. 675.00
kr. 450.00 kr. 585.00 kr. 675.00
kr. 550.00 kr. 770.00 kr. 880.00
kr. 625.00 kr. 875.00 kr. 1.000.00
Á 3. áhættusvæði: Bifreiðar skrásettar annarsstaðar á landinu.
Ábyrgffartrygging allt aff
Einkabifreið . kr.
Leigubifreið . kr.
Jeep-bifreið . kr.
Vörubifreið til einka
afnota .................... kr.
Vörubifreið notuð við at-
vinnurekstur og sendif. kr
Vöru-leigubifreið ......... kr.
Frá ofangreindum iðgjöldum dregst iðgjaldsafsláttur 15—20% verði
ekkert tjón af notkun bifreiðarinnar 2, 3 eða fleiri ár í röð. Mismunur á ið-
gjaldi fyrir 30 þús. króna tryggingu og 200 þús. króna tryggingu verður kr.
112.50 hjá þeim sem iðgjöld greiða samkvæmt lægsta áhættuflokki og eiga
rétt á 25% bónus, og hjá þeim, sem iðgjöld greiða samkvæmt hæsta áhættu-
flokki og eiga rétt á 25% bónus, kr. 450.00.
Vér erum að byrja á endurnýjun næsta tryggingaárs, 1. maí 1951 til 1.
maí 1952. Ef þér hafið áhuga á að auka öryggi yðar með því að hækka
trygginguna, þá hringið til vor eða skrifið og látið oss vita, sem fyrst.
Sjóvátryggingarfélag Islands h.f.
— Bifreiðadeild —
I t:
H
r: