Tíminn - 12.06.1951, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.06.1951, Blaðsíða 2
 TÍMINN, þriðjudaginn 12. júní 1951. 128. blað. 2. Utvarpið Útvarpið í kvöld: Fastir 'liðir eins og venjulega. Kl. 20,20 Tónleikar (plötur). 20,50 Erindi: Gáfnafar og náms háttur; síðara erindi (dr. Matthías Jónasson). 21,20 Tón leikar: Tónverk eftir Hallgrím Helgason (plötur): a) Sónata nr. 2 fyrir pianó (höfundurinn leikur). b) Tvö fiðlulög: Man- söngur og Rammislagur (Börge Hiifred og höfundur leika). 21,40 Upplestur: „Salt í kvikunni“ smásaga eftir Indriða G. Þor- steinsson (höfundur les). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Vinsæl lög (plötur): 22,30 Dag- skrárlok. Hvar eru. skipin? Sambandsskip: Ms. Hvassafell er væntanlegt til Ibiza á morgun frá Piraeus. Ms. Arnarfcll er í Ibiza. Ms. Jökulfell er í Guayaguil í F.cua- dor. Eimskip: Brúarfoss er í Hamborg. Detti foss er í Reykjavík. Goðafoss er á Bíldudal, fer þaðan í dag 11. 6. til Patreksfjarðar. Gullfoss fór frá Reykjavik 9. 6. til Leith og Kaupmannahafnar. Lagar- foss fór frá Hamborg 10. 6. til Rotterdam, Antverpen og Hull. Seifoss er í Reykjavík. Tröllafoss fór frá New York 8. 6. til Halifax og Reykjavíkur. Katla fór frá Gautaborg 9. 6. til Reykjavíkur. Hans Boye er í Reykjavík. Ríkisskip: Hekla er i Glasgow. Esja fer frá Reykjavík í kvöld austur um land til Siglufjarðar. Herðu breið er á Austfjörðum á suður leið. Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyrill er Norðanlands. Ármann er í Reykjavik. Flugferðir Flugfélag Islands: Innanlandsflug: í dag er á- ætlað að fljúga til Akureyrar, Vestmannaeyja, Blönduóss, Sauð árkróks og Siglufjarðar. Á morg un eru ráðgerðar flugferðir til Akureyrar, Vestm.eyja, Sauð- árkróks, Hellissands og Siglu- fjarðar. Millilandaflug: Gull- faxi fór í morgun til London og er væntaniegur aftur til Rvikur kl. 22,30 í kvöld. Árnað heiiia Iljónaefni: Nýlega hafa opinberað trúlof un sína ungfrú Steinunn Jónas- dóttir frá Bíldudal og Björn L. Jónsson, Framnesveg 20 A, Rvík. Úr ýmsum átium Ákvörðun flugmálaráðherra um útgáfu sérleyfa til flug- ferða innanlands og utan hefir verið frestað um vikutíma, með tillití til þess, að nefnd sú, er nú hefir til athugunar samein- ingu flugfélaganna, kynni þá að hafa lokið stðrfum. Útivist barna. Sumkvæmt lögreglusamþykkt Reykjavíkur mega börn yngri en 12 ara ekki vera á almannafæri seinna en kl. 22 á tímabilinu 1. maí til 1. október, nema í fylgd með fullorðnum. Börn frá 12—14 ára mega ekki vera á almannafæri seinna en kl. 23 frá 1. maí til 1. október, nema í fylgd með fullorðnum. Ilappdrætti háskólans. Dregið var í sjötta flokki í 'happdrætti háskólans í gær. Voru vinningar 500 talsins, en að upphæð 257500 krónur. 25 þúsund króna vinningur Ikom á 1968, fjórðungsmiða selda hjá Carli Tulinius í Reykjavík. 10 þúsund króna vinningur kom upp á 21087, hálfmiða selda hjá Maren Pétursdóttur og 5 þúsund króna vinningur á 10817, fjórð úngsmiða selda hjá Bókum og ritföngum*óg Pálínu Ármann í Reykjavík. (Birt án ábyrgðar). Húnvetningaféiagið hefir í hyggju að efna til hóp ferðar til Þingvalla og víðar, sunnudaginn 24. júní n. k., Jóns messudag, ef næg þátttaka fæst. Gert er ráð fyrir að haldið verði erindi á Þingvöllum um staðinn j og hann skoðaður undir leið- Sögn sögufróðs manns. Húnvetn ingar! takið þátt í ferðinni og fjölþiennið. — Þátttalca tilkynn ist í síma 5730 fyrir 20. þ. m. Ferðaféiag Islands fer tvær Heiðmerkurferðir í þessari viku til að gróðursetja trjáplöntur í landi sínu. Farið á miðvikudagskvöldið kl. 7 og á laugardaginn kl. 1,30 frá Aust urvelli. Ferðirnar eru ókeypis. Áríðandi að félagsmenn fjöl- menni og taki með sér kunn- ingja sína. — FFerðafélagiö hef ir tekið 20 hektara landspildu, sem það vill gera að fegursta staðnum í Mörkinni. — Kvákmymlatakan (Framhald af 1. síðu..- að handriti, sem fylgt verður við kvikmyndatökuna. Er ætl- ast til, að mikill hluti mynd- arinnar verði tekinn hér, en hltt að vetrarlagi í Arizona. Kunnir, bandarískir leikarar munu fara með hlutverk. Norðlendingafjórðung, Sigurð ur Greipsson, Haukadal fyrir Sunnlendingafjórðung, Þórar inn Sveinsson, Eiðum, fyrir Austfirðingafjórðung og /Vnjílýsið í Tímannm. Grænleink bi>rn (Framhald af 8. síðu.) arma. Fyrst verða þau hálft ár í barnaheimili skammt frá Fakse, en seinna munu dönsk heimili taka þau í fóstur. Dönsk kona annaðist börn- in á leiðinni til Danmerkur, og voru þau öll við beztu heilsu og horfðu forvitnisaugum á það, sem við þeim blasti, er þau stigu á land í Kaupmanna ! höfn. FsilHríiiikosiiing (Framhald af 8. síðu.) ar til búnaðarþingskosninga. Var annar listinn studdur af sjö fuH’trúum á fundinum, og eru á honum Ásgeir Bjarna- son, bóndi í Ásgarði aðalmað- ur, en Þórclfur Guðjónsson, bóndi í Fagradal, varmaður.1 Hinn listinn var studdur af 62 félagsmönnum og á hon- um eru Þorsteinn Þorsteins- éon sýslumaður í Búðardal, aðalmaður, og Sigtryggur Jónsson bóndi á Hrappsstöð- j um varamaður. Búnaðarþingsfulltrúar voru! kosnir árið sem lefð, en eins j og kunnugt er var kosningin ■ kærð, og Búnaðarþing skyld- ! aði sambandið til að eridur- j taka hana vegna smávegis formgalla, sem nú eru leið- réttir og fer því fram sér- kosning, þar sem tilskilinn meirihluti félagsmanna er því samþykkur. Kosið verður síðar í sumar á milli fram- komínna lista. Úr stjórn sambandsins átti að ganga Þórólfur Guðjóns- son bcndi í Fagradal og var, hann endurkjörinn, en aðrir í stjórn eru þeir, Þórður Jóns- j son bóndi i Hjarðarholti og Ásgeir Bjarnason bóndi i Ás- garði, sem er formaður sam- bandsins. 4 ptmm Veyi: Radiomaðunarstöðvar í nýútkominni árbók Slysavarnafélagsins rekur Henry Hálfdanarson baráttu sjómanna íyrir því, að komið yrði upp radíó-miðunarstöðvum hér á landi til öryggis fyrir skip og báta við strendur landsins. En þau mál eru nú að færast í það horf, sem var vilji sjómanna fyrir meira en tuttugu árum, er Slysavarnafélag íslands var stofnað. Það tók þetta mál upp hvað eftir annaö, en fékk ekki þær undirtektir, að horfið yrði að byggingu slíkra stöðva til öryggis fyrir sjófarendur. ★ ★ ★ Fyrsta radíómiðunarstöðin er tekin var í notkun tii ör yggis fyrir fiskibátana, var á Akranesi, að undanskilinni tilraunastöð, sem Slysavarnafélagið hafði í turni hafnar hússins í Reykjavík, en kom ekki að fullum notum vegna slæmra skilyrða. Næstu stöð kom Slysavarnafélag ið upp að Kirkjubæjarklaustri og síðan kom þriðja stöð- in á Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Og nú á ein að koma i sambandi við vitavarðarbústaðinn á Garðskaga. ★ ★ ★ í niðurlagi greinar sinnar segir Henry Hálfdanarson frá því, að á þessum sama tima og barizt var fyrir radíó- miðunarstöðvunum, hafi sjötíu skip farizt við Faxaflóa, fjöldi manna drukknað og gífurleg verðmæti orðið að engu. ★ ★ ★ Þessi saga er ekki rifjuð hér upp neinum til dómsá- fellis, og vafalaust hafa allir aðilar farið í þessu máli eftir því, er þeir töldu skynsamlegast og héldu sig vita réttast. En þetta er samt lærdómsrík saga um það, hvað menn geta verið lengi að átta sig, og hve stundum mega sín lítils reynsla og röksemdir þeirra, sem eru á stríðsvettvangi hinnar dagiegu annar. J. H. V.V.V.V.’.VV.W.V.V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.'.V \ H.f. Eimskipafélag íslands j! !AUKAFUNDIRÍ Aukafundur í Hlutafélaginu Eimskipafélag íslands, verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja- vík, laugardaginn 17. nóvember 1951 og hefst kl. 1V2 e.h. DAGSKRÁ: 1. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 2. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaunasjóðs H.f. Eimskipafélags íslands. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf- um og umboðsmönnum hluthafa í skrifstofu félagsins í Reykjavík dagana 14. og 15. nóvémber næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn í aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 6. júní 1951. STJÓRNIN. .V.V.V.V.V.VJ .V.V.V.V.V.V.V.V.V.W. .v.v.v.v.v.vv.v.v.v.v. Ný ECristiriii E. E v | a n bók Andrésson hvíta NÝ BÓK, EYJAN HVÍTA, eftir Kristin E. Andrésson, sanna yður heilbrigt verðlag innlendra nið Eru þar saman teknar nokkrar helztu ritgerðir, sem birzt hafa eftir höfundinn í tímaritum og blöðum, en auk þess eru í bókinni nokkrar ritgerðir, sem ekki hafa verið prentaðar áður, t. d. um skáldin Þorstein Erlings son og Guðmund á Sandi. EYJAN HVÍTA er 20 arkir að stærð í Skírnisbroti og gefin út i tilefni af fimmtugs afmæli höfundarins. Hún er prentuö í 500 tölusettum og árituðum eintökum og verður aðeins seld áskrifendum. Nokkur eintök af bókinni fást ennþá, og geta þeir, sem gerast vilja áskrifendur, hringt til Einars Andrés- sonar (Hjallavegi 27, sími 80351), eða i Bókabúð Máls og menningar (sími 5055). ÚTGEFANDI L" ■ B ■ VW.VAVWa-.V.’.V/.V.V.VAV.VAVAV.VAV.V.V.V I Kaupfélög Kaupfélög f Höfum fyrirliggjandi hænsnafóður: Blandað korn og varpmjöl. i Samband ísl.samvínnufélaga ;■ \\W^AV-,AV.VV.V.V.V.VAV.V.V/A,.V.VAV.V.V.%VJ Til sölu •: Ford-langferðabifreið 22 farþega. Til sýnis við Leifs ;■ styttuna frá klukkan 1—6 í dag. *■ .V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V/.V.V. ■I Rannveig Gísladóttir, ] •I Urriðafossi. [ I* i V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAV.V.V.'. v.v.v.v.v.v.v.v.v.v

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.