Tíminn - 30.06.1951, Síða 4
4.
144 blað,
TÍMINN, laugardaginn 30. júní 1951.
Árbókin og Valtýr Stefánsson
Árbók landbúnaðarins og
Valtýr Stefánsson.
Árbók landbúnaðarins er
nýlunda nokkur í bókaröðum
íslendinga, enda hefir hávað
inn látið hana að mestu í friði
í auglýsingum og ’umtali.
Þessu veldur sennilega efni
hennar: landbúnaðarmál ís-
lendinga, en á þau þykir
mörgum miklum mönnum
nóg að skakkblína augunum,
og vitna svo um þekkingu sína
á málinu og hjartans trú-
festi sínu við þennan æru-
verða öldung. íslendingar
hafa nú lengi reynt að lifa
án allrar hagfræði nema
þeirrar sem login hefir verið
i þá eftir tækifærum í svindli
og braski og hefir bókagerð
þeirra sniðgengið að mestu
það bókmenntasvið þeirra
sem heyrir til hagrænu lífi
og starfi.
Árbók landbúnaðarins er
nýlundarleg í þessu efni, því
hún er fyrsta tilraun til þess
að gera sér hagfræðilega grein
fyrir öðrum og hinum æðri at
vinnuvegi þjóðarinnar bæði i
sögulegum og menningarleg-
um skilningi. Árbókin reynir
að svara flestum spurningum
um landbúnað á íslandi,
eins og hann er nú á tímum.
Hvert er ástand hans i dag?
Hvaða launakjör veitir hann
þeim sem hann stunda? Hve
mikil er framleiðslan, ásig-
komulag hennar og fjöl-
breyttni? Við hvaða aðstæður
býr hann frá þjóðfélaglnu
lánakjör og lánsfé? Hvað hef
ir hann af tækni og þægind-
um? Og hver eru markaðs-
skilyrðin og markaðshæfni
framleiðslunnar.
Og siðast en ekki sízt.
Hverju veldur misærið og
landshlutamisvægið um af-
komu hans? Þetta mikla mál,
sem sumum finnst eðlilegt að
nota í stryk til þess að draga
yfir hann allan. Auk þess er
svo gert ráð fyrir því, að ræða
þurfi um ýmsar niðurstöður,
sem Árbókin sýnir um ýmsa
liði, á ýmsa lund og við ýmis
sjónarmið, sem eru landhlut-
arleg eða almenn.
Þessi atríði væri að visu
eðlilegt að tekin væru til um
ræðu á almennum blaðavett-
vangi sem þýðingarmikil þjóð
mál, en þar sem það virðist
að blaðamenn hafi ekki kom
ið auga á not þeirra í hinum
pólitíska skarkala, hefir það
ekki orðið ennþá, og háttvirt
ir blaðamenn hafa haft Ár-
bókina í draumgjafa í værðar
voðum á þjöðfélágslegum
svefndýnum; og enda ekkert
lagt illt til hennar, enda er
það von til að hún beri vel í
drauma. Þvílík sem yfirlýst
ást þeirra er á landbúnaði.
Hér ber þó að undanskilja
Valtý Stefánsson, sem látið
hefir sér annt um það þjóð-
hagslega efni, sem Árbókin
er ofin af; og fylgist með at-
hygli með því starfj. sem ligg-
ur til grundvallar Árbókinni
og virðist skilja vel hvað mikla
þjóðfélagslega þýðingu það
hefir að vinna það verk, sem
hún er risin af. Hinn 3. júní
s. 1. minntist hann á Árbók-
ina í Reykjavíkurbréfi Morg-
unblaðsins, en þá var komið
út. I. hefti þessa yfirstand-
andi árgangs. Eru ummæli
hans hin vinsamlegustu, án
þess að rekja efni bókarinn-
ar til neinnar hlýtar. En þetta
hefti hafði að geyma áætlun
um fj ármagnsþörf landbúnað
arins til uppbyggingar og
Eflir Benedikt Gíslason, llofteigi.
ræktunar og varð hún að upp
hæð 1000 m'lj. króna. Hafði
Bergur Sigurbjörnsson við-
skiptafræðingur samið þessa
áætlun eftir fyrirlagi og í
samvinnu við formann Stétta
sambands bænda, Sverris
Gíslasonar, en Stéttasamband
ið hafði ákveðið að láta vinna
þetta verk o. fl. Hér var þaðj
sem Valtý Stefánssyni varð
að orði, það sem máli skiftir
um framtíð landbúnaðarins,
og upplýsir nokkuð hver er
aðstaða landbúnaðarins, þeg
ar út á hinn almenna vett-
vang kemur sem heitir trú
manna á land sitt, enda virð-
ist Valtýr Stefánsson bera
fyrir sig vöntun á þeim hlut-
um, sem Árbókin er að upp-
lýsa, og mun upplýsa. Til eru
að visu þeir menn, sem án allr
ar Árbókar, þurfa ekki að
spyrja sjálfa sig, né aðra, að
þvi hvort landbúnaður á ís-
landi beri sig, eða hvort ó-
hætt sé að hætta í hann fé,
án þess því sé á glæ kastað
því það er það sem Valtý
Stefánssyni þykir ósannað
mál vera, þegar um það sé að
ræða að leggja honum til 1000
millj. króna til uppbyggingar.
Þetta mál er tviþætt og verð
ur annar þáttur þess aldrei
tekin fyrir í Árbókinni, en það
er þjóðmenningarhliðin og
svo er þriðji þátturinn á bak
við hina báða, en það er sag-
an. íslendingar hafa um alla
sögu til næstliðins tíma lifað j
á landbúnaði, en ef það ekki
borgar sig að stunda land-'
búnað, hefir það ekki borgað
sig fyrir þessa þjóð að lifa, og'
væri nú svo komið að ekki j
borgaði sig að lifa á land-
búnaði, þá er það dauðadóm-
ur yfir þjóðinni. En hafi þjóð
in lifað á landbúnaði án rækt
unar og bygginga, sem sagan
sannar að hún hefir gert, þá
mætti það mikið vera að ekki
borgaði sig að rækta landið
og byggja það upp og þarf í
rauninni engar tölur að nefna
í slíku sambandi. Þjóðin get-
ur á engan hátt betur varið
fjármunum og vinnuafli, en
rækta og byggja upp sitt land.
En hér er það sem er komið
eins og við kaun á lifandi
holdi, því kaupstaðirnir hafa
gjörst svo atga.ngsfrekir um
fé og atvinnuaðstöðu við þjóð
félagið að skaþast hefir slíkt
atvinnumisvægi, að það er
verra í rótum sínum en hið ill
ræmda misvægi í náttúrufari
landsins. Og það er undan
því kauni á þjóðarlíkaman-
um sem velviljuðum manni
verður það, á að stanza snögg
lega þegar nefndar eru 1000
j milj. litlar íslenzkar krónur
til þess að byggja upp og
rækta stórt land, sem getur
1 fóstrað mikinn fjölda manna,
og hefir að allra skynbærra
manna dómi ágætan jarðveg
og notandi veðurfar (klima),
og er þó ekki búið að athuga
1 á hve margan gagnlegan hátt
má nota klima landsins tii
ræktunar eða matarfram-
le'ðslu. (Hinn dýrmæti heið-
j argróður).
j Stéttasambandið lét vinna
að þessum áætlunum á hag-
I fræðilegum grundvelli. Það
I var byggt á reynslu timans á
verðlagi og vinnuafköstum,
sem í framkvæmdinni þarf að
leggja, og af góðum skilningi
á því hvaða hluti þarf til
þess að fullnægt sé lægstu
Kröfum um alla aðstoð til lífs
og framkvæmda í svelitum
landsins. Engir varanlegir
hlutir í þessum framkvæmd-
um eru til staðar, sem hefðu
áhrif á það, að þetta kostaði
meira en eðlilegt má telja og
sambærilegt í öðrum löndum.
En þyki upphæðin há, er það
skýr bending um það, að búið
sé að færa þjóðfélagið svo úr
skorðun, að nú sé það orðinn
dauðadómur fyrir þessa þjóð,
sem áður var lífsgildi, og er
þá réttara að snúa sér að því
máli, og eru rætur þess ann-
arsstaðar en þar sem gjörðar
eru áæflanir um fjármagns-
þörf landbúnaðarins.
Og það er víst, að þeir, sem
stóðu að samningu þessarar
áætlunar, voru við því búnir
í trú sinni á landið að birta
hána hiklaust, enda var ekki
farið frekar í kröfurnar, eða
meira á eftir rekið, en að
þetta væri tiu ára fram-
kvæmdaáætlun eða 100 milj.
á ári, og skal ég með glöðu
geði hækka hana um helm-
ing.
Það slær óhuga á alla við
athugssemd um það að verja
fé til landbúnaðarins á ís-
landi þegar í fyrsta sinn er
reynt með rökfastri áætlun
áð gera sér grein fyrir fram-
kvæmdunum og hvað þær
muni kosta, og í fyrsta sinn
kemur út upphæð sem þó
ætti að skýra málið harla vel
ef um er hugsað.
fslenzk bændastétt er ekk-
ert óvön þessu. Úrtölur og
hangs og einskonar hrekkir
hefir verið einkennandi fyrir
stjórnmálasttarflð í landinu
viðvikjandi landbúnaðinum.
Sagan um litla barnið á hung
urskeiði þjóðarinnar hefir
endurtekið sig í skiftum rikis
vaídsins við þennan höfuðat-
vinnuveg og menningargrund
völl þjóðarinnar, og skal
hvert dæmið öðru telja ef
þessu verður ekki þegjandi
kyngt. Þó er sagan af tófunni
sem bauð spóanum 1 veizíuna
enn betra dæmi. Tófan bjó til
graut á pönnu og bauð spóan
um að borða með sér. Tófan
sleikti með sinni breiðu tungu
grautinn upp á augabragði en
spóinn með sínu mjóa nefni
náði í næsta lítið. í slíka
veizlu hefir ríkisvaldið boðið
landbúnaðinum æ ofan í æ,
og haft svo stór fréttir að
færa af rausninni. Frægasta
dæmi um þetta er rafmagns-
mál sveitanna. Lög um raf-
veitur! Allir sveitabæir fá
rafmagn! Mikil er vísinda-
dýrðin! Sannleikur hinsvegar
sá, að 1700 sveitabýli, eða
25,4% af sveitabýlunum fá
aldrei rafmagn eftir þessum
lögum en 69^ár líða áður en
hin fá það öll. En allir kaup-
staðir í landinu þykir sjálf-
sagt að fái rafmagn til allra
hugsanlegra nota, auk heldur
hugsaðra fyrirtækja, enda
ekki nema sjálfsagt mál, bara
ef tófan vildi haga sér hæ-
versklegar í veizlunum. í
slíka spóaveizlu hjá tófunni
er landbúnaðinum boðið í
þessu máli, og það væq gott
ef veizlustjórarnir gætu bent
á einhverja veizlu, sem ekki
væri þessari lík í megindrátt
um, í landbúnaðarmálunum.
En sagan er ekki nema hálf
sögð spóinn gerði líka veizlu
fyrir tófuna. Nú ber hann súp
una fram í flösku. Ofan í hana
náði nef hans, en tófan bara
(Framhalrt á 6. slðu.)
Nú er Pétur Jakobsson fast- ]
eignasali kominn í baðstofuna
og hefir kvatt sér hljóðs. Hefir
hann nú orðið:
Skattskrá Reykjavíkur, fyrir
árið 1951 er komin út. Bók þessi J
er mikið lesin þessa dagana.
Flestir Reykvíkingar kvíða fyrir
útkomu hennar. Hún segir sína'
sögu um skuldir þær, sem skatt- ]
borgarar Reykjavíkur eru komn 1
ir í við borgina og ríkið. Það,
eru fæstum gleðitíðindi, sem
hún flytur. Hún segir frá þvi,1
að skattborgarar Reykjavíkur
séu nú að þessu sinni 22500. [
Skráin segir líka, að niðurjöfn-
uð útsvarsupphæð sé kr.
64.700.000,00. Með öðrum orð-
um segir niðurjöfnunarskrá
Reykjavíkur, að álögð útsvars-
upphæð sé kr. 3000,00 — þrjú
þúsund — krónur á hvern gjald
skyldan mann í borginni. Hún
segir, að verkamaðurinn þurfi
ca. sex vikur úr árinu til þess
eins að vinna fyrir útsvarinú',
til jafnaðar. Hún segir líka, að
á s. 1. ári voru gjaldendur í
Reykjavik 21700, en þá hafi ver
ið jafnað niður kr. 56,7 millj-
ónum. Útsvarsskráín segir, að
gjaldendum hafi fjölgað um
1800 frá í fyrra, en á þessa menn
séu lagðar 8 milljónir króha.
Skráin segir líka, að s. 1. ár
hafi niðurjöfnunin verið kr.
2.600,00 á hvern gjaldanda.
Útsvarsskráin segir, að alltaf
þyngist ánauð sú, sem gjald-
endur Reykjavíkurborgar verði
að þola. 1 blaðaviðtali, lýsir for
maður niðurjöfnunarnefndarinn
ar önn nefndarinnar við þessi
störf sín. Ekki skal ég efa það,
að rétt sé frá skýrt. Það mun
mála sannast, að í niðurjöfnun
arnefnd Reykjávíkur eru sóma-
menn, sem viljá gera vel og
Vilja gera rétt. Hitt er svo ann-
að mál, hvort þeim vinnst tími
til að grundvalla útsvarsálagn-
inguna einS og æskilegt væri, en
viljandi gera þeir engum rangt.
Það er nú svo að allir niður-
jöfnunarnefndarmennirnir eru
opinberir starfsmenn, sem að-
eins hafa niðurjöfnunarnefnd-
arstarfið í eftirvinnu, sem svo
er kallað. Þeir munu byrja þetta
niðurjöfnunarstarf sitt um miðj
an febrúar ár hvert og hafa
lokið verkinu í byrjun júní-
mánaðar.
Að þessu sinni hefir niðurjöfn
unarnefndin jafnað réttlátlega
útsvörum á Reykvíkinga, að upp
hæð 64,7 milljónum, á rúmum
100 kvöldstundum. Þetta er
mikill vinnuhraði. Gengur hann
næstur því, er meistari hnatt-
anna skóp hnattkerfið, en það
er sá mesti vinnuhraði, sem
heimsbókmenntirnar greina
frá, svo langt' er til jafnáð ,og
ekki gert lítið úr okkar ágætu
niðurjöfnunarnefnd með sam-
anburðinum, enda engin ástæða
til að gera það. Mér er tjáð, að
Reykjavíkurborg greiði ca. Vz
milljón króna fyrir álagningu
útsvaranna. Hljóta því niður-
jöfnunarnefndarmennirnir að
fá vel borguð þessi þýðingar-
miklu og virðulegu störf sín.
Þelr fá auðvitað sér samboðið
eftirvinnukaup.
Formaður niðurjöfnunar-
nefndar varar fólk, í blaðavið-
talinu, við að kæra útsvörin.
Hann minnist þess, að yfir hann
rigndi 1500 útsvarskærum s. 1.
ár. Honum stendur stuggur af
þessu fjaðrafoki. Hann hefir
nokkrar áhyggjur af kostnaði
þeim, er fylgir af kærunum fyrir
þá, sem ekki geta gert það
sjálfir. Þeir, sem þekkja for-
mann niðurjöfnunarnefndar
Reykjavíkur vita, að hann er
maður hlýr og hjartagóður. Má
því verá að hann kenni nokk-
urs innri sársauka þegar hann
er að deila skattafúlgunni á
fátæklingana eða þá, að hann
vorkenni þeim eyris útgjöldin
fremúr, en ekki krónu útgjöld-
in.
Annars hélt ég, að formaður
niðurjöfnunarnefndarinnar .
vissi lítið hvað útsvarskærur
kosta hér í bæ. Hann er svo fær
maður, að hann getur sjálfur
skrifað sínar kærur. Hann seg-
ir, að kærurnar beri lítinn ár-
angur. Bendir það til þess, að
hann telji sig alls ráðandi í
útsvarsmálum Reykjavíkur.
Mætti minna hann á, að hann
tilheyrir lægsta dómstigi skatta
málanna. Til er yfirskattanefnd
Reykjavíkur og Ríkisskatta-
nefnd. Þær eru æðra dómstig
sk'attamálanna, og undir þeim
þjónar hann.
Það er að skjóta yfir mark, að
vorkenna gjaldendum kæru-
kostnaðinn. Eg mótmæli því
harðlega, að ég sendi markleys-
iskærur, eins og formaðurinn
orðar það í blaðaviðtalinu, að
komi til niðurjöfnunarnefndar-
innár.'og óska ég að vera laus
við allar slikar aðdróttanir.
Hefir niðurjöfnunarnefndin, á
ur.danförnum árum, oft fallist á
mál mitt, og lækkað útsvörin.
Þar sem það hefir brugðizt hef-
ir verið leitað til æðri dómstiga
í skattamálum, og það borið oft
góðán árangur. Vona ég að við-
skiþtaviiiir mínir séu sáttir við
mig fyrir afskipti mín af skatta-
málum þeirra.
Þar sem það leynir sér ekki,
að formaður niðurjöfnunar-
nefndar ber hag skattborgara
Reykjavíkur fyrir brjósti, og
hann er maður málsmetandi,
þá ætti hann að beita áhrifum
sínum við bæjarstjórn Reykja-
vikur í þá átt, að snúið verði við
á þeirri útsvarsbraut, sem far-
in hefir verið undanfarin ár, og
nú verði framvegis árlega lækk
uð upphæð sú, sem lögð er á út-
svarsgreiðéndur bæjarins, því
að ég held að útsvarsmælir bæj-
arstjórnar Reykjavíkur sé orð-
inn fullur. Gæti hann lækkað
kúfinn á honum, þá mundu
margir blessa nafn hans.“
Fleiri hafa ekki beðið um orð-
ið í. dag.
Starkaður. .
Ferðafatnaður
Úrval af hentugum fötum í sumarferðalögin.
GEFJUN - IÐUNN
Kirkjustræti 8B.
Sími 2838.
AUGLYSIÐ í TIMANUM