Tíminn - 08.07.1951, Side 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
15. árgangnr.
Reykjavík, sunnudaginn 8. júlí 1951.
151. blað
Aukakosningar í Mýra-
sýslu fara fram í dag
Kjósið heimamann þingmann Mýrnmanna
t , .
í dag fara fram í Mýrasýslu
aukakosningar vegna brott-
farar Bjarna Ásgeirssonar al
landinu. í kjöri eru fjórii
menn — Andrés Eyjólfsson,
bóndi i Síðumúla, af hálfu
Framsóknarmanna, Pétur
Gunnarsson úr Reykjavík af
hálfu Sjálfstæðismanna, Að
alsteinn Halldórsson úr Rvik
af hálfu Alþýðuflokksins og
Bergur Sigurbjörnsson úr
Reykjavik, sem býður sig
fram utan flokka, én með
stuðningi kommúnista.
Framsóknarmenn í hérað-
inu munu í dag fylkja sér fast
um Andrés í Síðumúla, og
margir aðrir munu telja það
einsýnt, að kjósa hann —
eina héraðsmanninn, sem i
kjöri er, vinsælan og dugmik-
inn bónda, sem mun skipa
þingsæti Mýramanna með
sóma.
Mýramenn: Sækið vél kjör
stað og sparið ekkert til þess,
að Andrés í Síðumúla nái kosn
ingu með sem mestum sóma.
Z-dag er vegið að hagsmuna
Síldveiðin varð minni í gær sök-
um veðurs en síldar víða vart
Síldin færist fremnr aostur á bóginn. Hfikil
síld sést enn út af Malarrifi
Vegna þoku og brælu á miðunum út af Horni og Húnaflóa
í fyrrinótt og í gær varð veiðin minni hjá síldarskipunum
cn dagana áður. Þó náðu nokkur skip sæmilegum köstum.
Nokkur skip komu inn með síld í gær.
Andrés Eyjólfsson,
bóndi í Síðumúla.
«
um. Veitið verðugar viðtökur.
Allir frjálslyndir Mýra-
menn: Kosningahríðin stend
ur aðeins milli Andrésar Eyj-
ólfssonar og Péturs Gunnars
sonar. Það er ekk< vandi að
málum ykkar úr tveimur átt-!velja á milli þeirra.
Breyting fyrirhuguð á
kennaranámi í haust
Undirbimingur hafinn að bvggingu nýs
kennaraskóla, er bvr jað verði á næsta ár
í lögum um menntun kennara er gert ráð fyrir, að inn-
tökuskilyrði í kennaraskólann verði þau sömu og í lærdóms-
deildir menntaskóianna. Þetta kemur fyrst til framkvæmda
nú í haust, og breytist þá nám í kennaraskólanum að nokkru.
í ýmsum greinum verður ^ frönskunám verður ekkert.
lesið það sama sem krafizt er
til stúdentsprófs, í sumum
aftur minna. Latínu og
Vilja ullina helzt
í heilum reifum
Ullarmóttaka er hafin fyrir
nokkru hjá KEA og er ullinni
veitt móttaka í sláturhúsi fé-
lagsins á Oddeyrartanga. Fé-
lagið greiðir eftirfarandi áætl
unarverð til félagsmanna:
hvít, heil reifi 12 kr. pr. kg.,
hvít, sundurlaus 11 kr., mislit,
heilreifj kr. 9,50, mislit, stmd
urlaus, kr. 8,50. Lögð er á-
herzla á að bændur skili sem
mestu af ullinni í heilum reif
um. Reifi teljast heil, þótt þau
séu klofin að endilöngu, eftir
hryggnum. Þess er vænzt, að
bændur reyni að koma með
ullina eins fljótt og auðið er
og um fram allt, að þeir reyni
að hafa hana sem heillegasta
og bezt útlítandi. Þpð er mest
ur hagur fyrir alla aðila.
Þess í stað kemur aftur upp-
eldisfræði, kennslufræði og
kennsluæfingar og fleira, sem
nauðsynlegt er til undirbún-
ings kennaraefnum. Enda
þótt greiðari leið verði til
framhaldsnáms með þessari
skipun, verður megináherzla
á það lögð að veita alnænna
kennaramenntun i skólanum.
Ný kennaraskólabygging.
|. Þá hefir verið afráðið, að
i kvennadeild og smíðadeild
handíðaskólans starfi fram-
1 vegis í sambandi viS kennara
skclann, en samt sem sjálf-
i stæð stofnun. Er þetta spor
; að því marki, að öll kennara
menntun í iandinu verði sam-
j einuð á einuní stað.' En svo
j getur þó ekki orðið fyrr en ný
j húsakynni rísa af grunni. Að
þeim málum er nú unnið.
j Bygginganefnd var skipuð í
■ vor, og vinnur hún að undir-
búningi málsins. Þess er
vænzt, að framkvæmdir geti
hafizt á næsta ári, enda er
þörf nýrra híbýla fyrir kenn-
aramenntunina mjög brýn og
aðkallandi.
Djúpavík.
Til Djúpuvíkur komu þrjú
skip í fyrrinótt og gær með
sfld. Var það Pólstjarnan frá
Ðalvík með 618 mál, Fagri-
klettur frá Hafnarfirði með
462 mál og Edda frá Hafnar-
firði var að landa þar klukk-
an þrjú í gær og hafði 8—
900 mál. Verksmiðjan á Djúpu
vík hefir nú tekið við 6200
málum.
Sigurður Guðjónsson verk-
smiðjustjóri í Djúpuvík skýrði
blaðinu svo frá í gær, að gott
veður væri á þessum slóðum,
stillt og sjólaust en þoka
hefði verið á miðum, svo að
skip hefðu átt erfitt með að
athafna sig. Þó hefðu nokkur
skip fengið einhverja veiði
2—300 mál norður af Horni.
Engin síld við Kolbeinsey.
Hafrannsóknarskipið María
Júlía fór í fyrradag norður
undir Kolbeinsey en sá enga
síld á þeim slóðum, en rauð-
áta var mikil í yfirborði sjáv
ar. „
Mikil síld út af Malarrifi.
Þá sagði verksmiðjustjór-
inn, að skeyti hefði borizt frá
hvalveiðibátnum Hval II, að
hann hefði séð mikla síld út
af Malarrifi á Snæfellsnesi.
Voru þar margar torfur og
stórar og álitlegar til veiða.
Hafa hvalveiðibátar á þess-
um slóðum séð síld nær því
hverja nótt, og virðist því
enn vera mikil síld á leið
norður.
Skagaströnd.
Til Skagastrandar komu
nokkur skip í fyrrinótt og
gær með nokkra síld. Voru
þar á meðal Víðir frá Akra-
nesi, Haukur frá Ólafsfirði og
Dagur frá Reykjavík. Verk-
smiðjan á Skagaströnd er nú
búin að fá 12—13 þús. mál
síldar en bræðsla er ekki haf
in enn.
Siglufjörður.
Fá skip komu með síld til
Siglufjarðar í fyrrinótt og
gær, en þó kom Stígandi frá
Ólafsfirði þangað í gærmorg-
un með 400 mál.
Fregnir af miðunum í fyrri
nótt og gær bentu til þess,
að veiði hefði verið tregari.
Þoka var á vesturmiðunum
og bræla þegar austar og norð
ar dró. f fyrrakvöld gátu að-
eins ein þrjú eða fjögur skip
kastað, og a. m. k. Tryggvi
gamli og .Ingvar Guðjónsson
fengu einhverja veiði.
í gærmorgun var líka þoku
súld og bræla austan til og
gátu skipin lítið aðhafzt
fram eftir degi, en vonir stóðu
til að veður yrði hagstæðara
í gærkveldi. Síldin virðist fær
ast heldur austur á bóginn og
er á mjög stóru svæði og kem
ur viða upp, svo að flotinn
getur athafnað sig án þess að-
þurfa að berjast um hverja
torfu eins og oft hefir verið
áður. Telja sjómenn útlitið
hið bezta.
Síldarleit úr flugvélum er
nú að hefjast og eru starfs-
menn við hana að búa um sig
á Siglufirði.
Eftir langa bið.
„f morgun hefir verið mik
il bræðslulykt hér á Siglu-
lirði os mikið barið á reykj-
ar- og gufumökkvum verk-
smiðjanna, því að þær eru
nú þrjár í gangi. Tvær bræða
karfa og ein síld. Það er nú
langt síðan við Siglfirðingar
höfum séð þrjár verksmiðj-
ur að störfum í einu“, sagði
fréttaritari blaðsins á Sigiu
firði, er tíðindamaður átti
tal við liann | gær.
Sjálfstæðisflokk-
urinn í bónorðsför
til kommúnista
Þau tíðindi gerðust í
gærmorgun, að Sjálfstæðis
flokkurinn hóf opinskáa
liðsbón til kommúnista í
Mýrasýslu og hét á þá
Pétri Gunnarssyni til full-
tingis í kosningunum í dag.
í grein í Vísi í gær, sem
fjallar um það, hvern kom
múnistar í Mýrasýslu eigi
að kjósa, er skýrt frá því,
að farið sé að koma nýtt
„hljóð í strokkinn“ hjá
þeim.
Þar segir orðrétt:
„Upp á síðkastið hafa
þessir sömu kommúnistar
sagt: Fyrst við höfum ekki
okkar eigin frambjóðanda,
kjósum við ekki Berg. En
—vern kjósa þeir þá? Sitja
þeir heima, blessaðir?
Kjósa þeir Pétur . . . ?“
Válerengen í kappleik viö Viking frá Stafangri. Ragnar
Andresen til vinstri, en sá, sem oltið hefir er Ragnar Berge.
(Sjá grein á 3. síðu).
Sveinn Guðmunds-
son fékk góða rek-
netaveiði
Sveinn Guðmundsson, sem
einn Akranesbáta stundar nú
reknetaveiðar út af Faxaflóa,
fékk á annað hundrað tunn-
ur í fyrrinótt. Hann taldi þó
ekki borga sig að köma inn
með síldina í gær og hélt á-
fram að láta reka 1 nótt. Akra
nesbátar eru nú allir að búa
sig á síldveiðar með reknet,
þeir sem ekki eru komnir norð
ur, og munu leggja út þá og
þegar.
Fyrsta síldin til
ísafjarðar
Frá fréttaritara Tím-
ans á ísafirði.
Vélbátarnir Flosi og Smári
eru komnir með síld til sölt-
unar hjá Samvinnufélagi ís-
firðinga. Fengu þeir þennan
afla við Horn. Er þetta fyrsta
síldin, sem til ísafjarðar berst
að þessu sinni.