Tíminn - 17.08.1951, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, föstudaginn 17. ágúst 1951.
184. blað.
jtá kafi til
Utvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Útvarpssagan: „Upp við
Fossa“ eftir Þorgils gjallanda;
III. (Helgi Hjörvar). 21.00 Tón-
leikar (piötur). 21.15 íþrótta-
þáttur (Sigurður Sigurðsson).
21.35 Tónleikar (plötur). 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.10
Vinsæl lög (plötur). 22.30 Dag-
skrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Útvarpstríóið; Tveir kaflar
úr tríói í E-dúr eftir Mozart.
20.45 Upplestrar og tónleikar.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög (plötur).
Dagskrárlok.
24.00
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell er á Akureyri. Arn
arfell átti að koma til Bremen
í gærkveldi, frá Elbu. Jökulfell
fór frá Valparaiso 14. þ. m. á-
leiðis til Guayaquil, mð við-
komu í Talara.
Ríkisskip:
Hekla er í Glasgow. Esja er
á leið frá Austfjörðum til Akur
eyrar. Herðubreið er á leið frá
Austfjörðum til Reykjavíkur.
Skjaldbreið fór frá Reykjavik í
grækvöld til Vestfjarða og Húna
flóa. Þyrill er í Faxaflóa. Ár-
mann var i Vestmannaeyjum í
gær.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík 3.
8. til Grikklands. Dettifoss fór
frá Reykjavík 8.8. til New York.
Goðafoss er á Akureyri, fer það
an til Siglufjarðar. Gullfoss
kom til Reykjavíkur 16.8. frá
Kaupmannahöfn og Leith. Lag
arfoss er í Hull, fer þaðan vænt
aniega 16.8. til Leitþ og Reykja-
víkur. Selfoss er í Reykjavík.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 15.
8. til New York. Hesnes fór frá
Hull 9.8. væntanlegur til Reykja
víkur í kvöld 16.8.
Flugferðir
Loftleiðir:
1 dag er ráðgera að fljúga til
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Ak
ureyrar, Siglufjarðar, Sauðár-
króks, Hólmavíkur, Búðardals,
Hellissands, Patreksfjarðar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyr-
ar og Keflavíkur (2 ferðir). Frá
Vestmannaeyjum verður flog-
ið til Hellu og Skógasands.
Á morgun verður flogið til
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Ak
ureyrar og Keflavikur (2 ferð-
ir).
Flugfélag íslands:
Innanlandsflug: í dag eru á-
ætlaðar flugferðir til Akureyr-
ar (2 ferðir), Vestmannaeyja,
Kirkjubæjarklausturs, Fagur-
hólsmýrar, Hornafjarðar og
Siglufjarðar. Á morgun er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Blöndu
óss, Sauðárkróks, ísafjarðar,
Egilsstaða og Siglufjarðar.
Millilandaflug: Geysir fer til
Kanupmannahafnar kl. 8,30 í
fyrramálið.
Ámað heulo
Hjónaba.'id.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Torfhildur
Hannesdóttir og Ágúst Helga-
son bakari á Blönduósi.
Trúlofanir.
í blaðinu í gær urðu þau mis
tök, er skýrt var frá þremur
trúlofunum í Húnaþingi, að
sagt var, að um hjónavígslur
Þessi ungi maður heitir Huss
ein og er sonarsonur Abdull-
ah Transjórdaníukonungs,
sonur Talals, elzta sonar hins
myrta konuitgs. Talal er nú
kominn heim frá heilsuhæli í
Sviss, og Hussein hefir verið
kallaður heim frá námi í
Alexandríu, og er búizt við að
hann verði konungur Trans-
jórdaníu. Hussein er 16 ára
að aldrk
hefði verið að ræða. Blaðið hef
ir sem sé hraðað atburðarás-
inni — hjónavígslurnar koma
síðar.
Hjónaband.
1 dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Elín Guð-
mundsdóttir stud. odant. og
Jón Ingimarsson stud. jur.
Faðir brúðgumans fram-
kvæmir hjónavígsluna. — Á
morgun munu ungu hjónin
fara með m.s. Gullfossi til út-
landa. — Framtíöarheimili
þeirra verður að Vitastíg 8A.
Úr ýiJisum áttum
Úr Fljótum.
í Fljótum tóku 104 þátt í sam
norrænu sundkeppninni. Elzti
maðurinn var Márus Símonar-
son i Haganesi, 72 ára, en yngst
var Birna Salómonsdóttir, Haga
nesvík. Sundið var þreytt í
Barðslaug.
Leiðrétting.
í grein Hannesar Pálssonar
hér í blaðinu í gær, ferðaminn-
ingar frá Vestfjörðum, er talað
um írafell í Dýrafirði, en það
á að vera Mýrafell, kennt við
bæinn Mýrar.
Ný bryggja í sraíð-
ura í Haganesvík
Frá fréttaritara Tím-
ans í Haganesvík.
í desemberveðrinu í fyrra
brotnaði trébryggja, sem hér
var. Var í sumar í júlibyrjun
hafin smíði nýrrar bryggju,
steinsteyptarar, er verður
hærri og breiðari og átján
metrum lengri en gamla
bryggjan var.
Þessi bryggja verður þó að-
eins fyrir smábáta, því að út-
grunnt er í Haganesvík, en
síðar meir er fyrirhugað að
lengja bryggjuna.
Undirnefnd ræðir
vopnahléslínuna
Vopnahlésnefnd kommún-
ista í Kaesong samþykkti til-
lögu Joy flotafortngja um und
irnefnd til að fjalla um vopna
hléslínuna með þeirri breyt-
ingu, aö tveir menn yrðu í
nefndinni frá hvorum aðila
eða alls fjórir.
Hættu fundir aðalnefnd-
anna þá í biii í gær, en undir
nefndin settist á rökstóla í
Kaesong. Er verkefni henn-
| ar það eitt að finna einhvern
samningsgrundvöll að samn-
; ingum um vopnfahléslínuna
’og afmörkun hins afvopnaða
svæðis milli herjanna. EJru
fundir ]>essara manna óform
legir og eru þeir sjálfráðir að
því, hve lengi þeir ræðast við
dag hvern eða á hvaða tímum
dags.
Aðalnefndirnar munu því
I bíða nokkra daga og ekki
hefja fundi á ný fyrr en und
1 imefndin hefir skilað áliti,
hvort sem það verður þá já-
kvætt eða neikvætt.
H.f. Eimskipafélag islands Í
M.s. Gullfoss
fer frá Reykjavik laugardaginn 18.
ágúst kl. 12 á hádegi til Leith og Kaup
mannahafnar.
Tollskoðun farangurs og vegabréfa
eftirlit byrjar i tollskýlinu vestast á
hafnarbakkanum kl. 10,30 f.h. og
skulu allir farþegar vera komnir í
tollskýlið eigi síðar en kl. 11 f.h.
WAV.W.’.V/AV.’.V.V.V.’.V.’.V.V.’.V.V.WA’.W.’.V.V
■-V.V/AY.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.’.VA^
í ;■
Nýr Lundi
HERÐUBREIÐ j!
Sími 2678. J
V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.'
Opna í dag
klæðaverzlun og saumastofu
(» j nýjum húsakynnum við LAUGAVEG 46 (áður Hverf-
rsgötu 117). Hefi á boðstólum ný gaberdinefni í brúnum,
bláum og gráum lit, einnig karlmannafatnað og aðrar
vörur fyrir herra.
Reynið viðskiptin. — Það bezta er ekki of gott.
BRAGI BRYNJÓLFSSON,
klæðskerameistari.
Hervarnarsamning-
ar á Kyrrahafs-
svæðinn
Snemma í næsta mánuði
mun verða undirritaður varn
arsáttmáli milli Filippseyja og
Bandaríkjanna um hervarn-
ir þessara landa. Er svo á kveð
ið í samningnum, að árás á
hvort ríkið um sig skuli verða
litið sem árás á hitt og allar
hernaðaraðgerðir miðaðar við
það. í undirbúningi eru einn
ig sams kqnar samningar
milli Bandaríkjanna annars
vegar og Ástralíu og Nýja Sjá
lands hins vegar. Samningar
þessir eiga að vera vísir að
því, að vörnum^, Kyrrahafs-
svæðinu verði skipað með
svipuðum hætti og Atlants-
hafssáttmálinn gerir ráð fyr-
ir.
Faxaflónsíld
| (Framhald af 1. síðu.)
úti og bíða þess að að fylla
sig.
í gær fóru fimm Akranes-
bátar til viðbótar á reknet, og
þrír eru að búast á þær veið-
ar.
Aflahæstu bátarnir.
Þeir bátar, sem aflahæstir
eru á reknetaveiðunum hér
suðvestan lands, eru nú bún-
ir að fá hátt i tvö þúsund
tunnur, til dæmis Hafdís,
sem gerð er út úr Garð. Ing-
ólfur og Geir goði frá Kefla-
vík eru einnig mjög háir, og
Skíðblaðnir sömuleiðis, enda
þótt hann missti úr þrjár fjór
ar góðar lagnir vegna véla-
bifunar.
Af Grindavíkurbátum eru
fimm bátar með 1000—1300
tunnur, sem aflazt hafa á
röskum hálfum mánuði. Eru
það Högni, Maí, Skírnir, Sæ-
borg og Búi.
Be nhákarlinn.
Beinhákarlsins, sem um
tíma gerði mikinn usua í síld
arnetunum, hefir ekki orðið
vart í Grindavíkursjó síðustu
daga, og í Miðnessjó gætir
hans ekki orðið að verulegu
ráði. Vænta menn, að sá ó-
fögnuður sé farinn hjá.
♦♦♦♦♦♦♦<
Fra m kvæmda rst jóri
óskast fyrir togaraútgerð. Umsóknir um starfið séu
sendar Útgerðarnefnd Keflavíkur, Keflavík, fyrir 1.
september n. k.
*
Utgerðarnefnd Keflavíkur
5
Ráðskonu
vantar 1. september fyrir þvottahús í Reykjavik. Um-
sðknir, ásamt upplýsingum, sendist blaðinu fyrir 24.
é.gúst n.k. merkt „Þvottahús“.
Litli drengurinn okkar
ÁSGEIR
andaðist á Landakotssþitala 15. þ. m.
Jarðsett verður frá Fossvogskapellu 20. þ. m. og
hefst athöfnin kl. 2 eftir hádegi.
Inga Markúslóttir,
Ásgeir Höskuldsson.