Tíminn - 14.10.1951, Side 3

Tíminn - 14.10.1951, Side 3
TÍMTNN, srninuðaginn 14. október 1851. 3, 232. blað. Árelíus Níelsson Stórfenglegustu hlutaveltu ársins heldur Kvennadeild Slysavarnafélags íslands í Verkamannaskýlinu við höfnina sunnudaginn 14. bessa mánaðar. A lilutaveltu þcssari eru kynstrin öll af góðum og dýrmætum munum t. d. Flugferö til Ísaíjaröar meö Loftleiöum — Sjóferö til Akureyrar meö Rík- isskip — Fjöldi af vönduðum bókum — Skrautútgáfa Helgafeils og ísa- foldar — Fjölnir frá Litoprent — Kol í tonnatali — Ólía í tunnum — Ým- iskonar fatnaöur — Allskonar matvörur í pökkum og heilum sekkjum, einn ig kjötskrokkar — Snyrtivörur — Skrautvörur — og jafnvel silfurborð- búnaöur. — Dráttiirlnn 50 aurar. Að^angíir 50 aurar Eiig'in niifl Fjölmennið á þessa ágætu hlutavcltu, Allur ágóði rennur til slysvarna. Kvennmleild SUisavurnufélafis íslands REYKJAVÍK. Bænrækni Margir telja bænir lítils- viröi. Og þær eru lítilsvirði, ef þuliö er hugsunarlaust. Annars eru þær líkt því að fá sér svalandj eða hressandi drykk, t.d. við fjallalind í erf- iöri smalamennsku. Bæn þarf ekki að vera orð. Sönn bæn er einmitt að opna sál sína. sitt innra líf fyrir innstreymi frá Guði, innstreymi frá upp sprettu lífsins. En þá þarf andi mannsins aö vera rétt stemmdur til að veita krafti alvitundarinnar viðtöku. Strengir tilfinning- anna þurfa að veröa líkt og þræðir viðtækis, sem stilltir eru til viðtöku á réttan hátt, annars verður ekki annað en óskapnaður úr sambandinu. Sálir sumra manna eru líkt og viðtæki, sem alltaf er með alls konar truflanir, Aðrir opna aldrei sín viðtæki og vita því aldrei hvaða dásemd- ir i orðum og tónum hin þög- ula eða margraddaða tilvera umhverfis þá kann aö geyma. Sumir geta einmitt’ stiflt sína strengi svo að segja hvenær sém er. Þá fæðast oft hin feg urstu listaverk í orðum eða híjómum, því allt slíkt er komið til mannheima við rétta stillingu tilfinninganna í bæm‘ - Menn geta verið í bænará- standi án þess að gera sér þess fulla grein að um venju lega bæn sé að ræöa. Aðal- atriðið er innri friður, upp- Ijómun og einhver angurblíð sæla, sem gjarnan brýzt fram i þöglum gráti — tárum. ’Þaö er sérstök gjöf himins- irís að eignast hið sanna bæn- arástand. Samt er hægt að gjöra margt til að æfa það og verða barn bænarinnar. Þess vegna skyldi venja börn á ýtri bænrækni áður en þau skilja fyllilega þýðingu bæn- ar. Það er algjör skortur á góöu uppeldi éf það er i'' gjört. Til þess er nauðsyn- legt að hafa frið og kyrrð, helzt sérstakar stundir, sér- stákan stað. t.d. svefnher- bergi, og gott er að umhverfiö fái á þeim stundum sérstak- an blæ. Gott er að kveikja kertaljós, eða kveikja á reyk- elsi. Og stundin á að vera stutt fyrir börn, örstutt, kann ske mínúta til áð byrja með. Þörfin skapar síðar lengri tíma. Kristur fór á afskekktan eyðistað, snemma morguns. Þar skópust hinar fegurstu bænir, sem svala margri manns-sál enn í dag. Ég sagöi áöan, að mörg, kannske öll dýrðlegustu íista verk nlannkyn.íins eigi upp- tök sín í hrifningarástandi sannrar djúprár bænar. jafn vel listaverk hinna svoköll- uðu heiðingja. Við getum ekki öll skapað listaverk í litum og tónum, eða orðum, en við getum öll leitazt við að móta lásam- legasta listaverk 'jarðar, en það heitir: Fagurt mannlíf. Til þess styður bænrækni flestu öðru fremur. Þess vegna skulum við varðveita vel þau tækifæri, sem veit- ast til að stilla strengi hugsun ar og tilfinninga til samræm- is við lifskraft alvitundarinn ar og kærleikans, og reyna að gjöra næátu kynslóðir enn færarj til þess en við erura siálf. Til þessá eiga kirkjurnar auðvitað að hvetja og hjálpa, en í heimahúsum og ekki sízt í einveru og þögrí nátt- úrunnar er gott að. eignast hljóða, helga stund, ekki sízt við bfennandi heita haustliti lyngsins og dvínandi ilm deyj andi blóma, þegar’ líf og dauði fallast i faðma signd af fölum stjörnufingrum Þvottabalar Úrvals tegundir af þýzkum þvottabölum og vatnsfötum nýkomið Járnvöruverzlun JES ZIMSEN H.F. Kjötkvarnir Kaffikvarnir Straujárn 3 stk. í setti. Strauborð. Járnvöruverzlun JES ZIMSEN H.F. Dánarminning: Jón Tómasson FyriHristuhaífai' SSM'fessíiai' riðfi'íip Sláíiífslmífar Flsaíiiliig’sluaífar Essialje þvoftaföt Járnvöruverzlun JES ZIMSEN H.F. Miðstöðvarketill Nýr. miðstöðvarketill bæði fyrir oliukyndingu og kol, tveggja fermetra til sölu. Verð kr. 1.250.00 Einnig litið orgel. Verð kr. 1.050.00. Upplýsingar i síma 80932. NY DIESEL- rafmagnsstöð 6 kw til sölu með tækifæris- verði. — Upplýsingar í síma 1134, Reykjavík. _ Síðastliðinn fimmtudag kvöddum við Jón Tómasson frá Kollsá hinni hinstu kveðju, er hann var til mold- ar borinn hér í Fossvogs- kirkjugarði. Já, margs er að minnast og þakka af okkur, sem með honum höfum dval- izt um margra ára skeið. Jón var fæddur að Kollsá í Hrútafiröi 2. maí 1884. Þeg- ar í æsku lærði hann söðia- smíði hjá fööur sinum, og stundaði þ,á iðn ásamt bú- skapnum ætíð meðan hann bjó, og eingöngu eftir að hann fluttist hingaö til Reykjavik- ur. — Eftir komu sína hingað til Reykjavíkur vann Jón á sööla smiðaverkstæði Baldvins Ein- arssonar, þar til í ágúst i sum ar, að hann veiktist, og varö að dveljast á sjúkrahúsi um tíma. Um 30—40 ára skeið mun Jón hafa stundað búskap og söölasmíði, og lengst af á Litlu-Hvalsá í Hrútafirði. Flestir Hrútfiröingar eiga því einhver reiðtygi, sem Jón hefir smiðað, og bera þeir gripir allir ótvíræðan vott um smekkvísi hans og vand- virkni. En það þurfti meira en að smíða þessa hluti, þaö varð einnig að sjá um við- hald þeirra, því að tönn tím- ans kvikar aldrei frá því lög- máli sínu, að allir hlutir verða fyrr eða síðar að Iáta undan og slitna. Oft bar það við að gestir komu til Jóns meö alls konar reiðtygi, sem þurfti að gera við samstundis. Kom þetta éngu síður fyrir þótt Jón væri önnum kafinn við síátt eða heyþurrk á túninu. En þrátt fyrir það, reyndi hnnn ávallt að leysa úr vandræö- um gesta sinna, og var þá oft viðbragðsíljótur og léttstígur heim og aö heiman, þegar Svo stóð a. Ég minnist þess ekki, að Jón hafi synjað nökkr um manni þeirrar bónar, sem honum var auðið að láta í té. Hann var fyrirmyndarbóndi í orðsins lyllstu merlríngu, starfsamur, hagsýnn, reglu- samur og nýtinn, og sérstak- ur skepnuvinur og skepnu- hirðir. Hann var mjög i'jöl- hæfur starfsmaður og vinnu- glaður hvort heldur var á sjó eða landi. Ég minnist eins atviks, er ég var með Jöni á sjó. Við rérum saman eitt haust frá Litlu-Hvalsá. Það va” næg ur fiskur skammt undan. landi. í einum róðrinum mátti svo heita, að fisk-ur væri á hverjum öngli. Ég ríefni þetta sökurn þess, að rriér eru svo minnisstæð þau hröðu og léttu handtök Jóns, er hann dró lóðina, sem fíaut með vænum fiski. Ég minn- ist þess ekki að hafa orðið jafn snortinn af veiðiáhuga og í þetta skipti. Ég hygg, að ég hafi sefjast af gleði og áhuga frænda mí-ns, er hann sá svo góða veiöi, sem gaf björg í bú. Öll samvinna við Jón var alveg sérstaklega góð og auð veld, og hann kostaði jafnan kapps um að hlúa að því bc-zta í fari samferðamanna sinna. Aðfinnslur eða þungar átöl- ur heyrðust aldrei frá hon- um. Þess ber líka að minnast, að Jón átti því mikla láni að (Framhald á 6. síSu) Átíræður: Sigurour Sigurðsson Sigurður dúx er áttræður í dag. Nú, hvaða Sigurður er þáð? Þeir eru svo margir Sig- urðarnir og' hafa sennilega ýmsir orðið dúxar í skóla. Jú, vel má þaö vera. En þessi átt ræði Sigurður er Sigurður Sig urðsson, núverandi vörður Bókasafns Austurlands á Seyð ýsfirði og fyrrverandi kennari á Eiðum, Hólum, Seyðisfirði og víðar — lítill maður vexti en mikill í starfi, hæglátur og hávaðalaus, svo að ýmsum kynni yfir að sjást. í Ekki er ég við því húinn að skrifa áeviskrá hans alla í fræð'imannastíl, enda munu aðrir verða til þess — og hafa oröið. En leiðir okkar Sigurð- ar hafa legið mjög saman á þrem tímabilum ævinnar, um nálægt þriðjungi aldar. Hefir öll okkar kynning hnigið til einnar áttar. Maðurinn er dúx, ekki fyrir afburðagáfur, í venjulegum skilningi þess orös, heldur fyrir afburða notkun góðra gáfna, þvi iðn in, vandvirknin og samvizku semin eru með afbrigðum. Og það eru ekki gáfurnar einar, en fyrst og fremst notkun þeii'ra, sem gerir manngildið. Forsendur þessa dóms eru þær, að við Sigurður höfum verið sessunautar í Möðruvallaskóla, sambýlingar á kennaraskólanum í Blágaröi í Kaupmannahöfn og sam- starfsmenn og nágrannar á Seyðisfirði. Mætti ég því þekkja manninn allvel. Dúx-nafnbótina félck Sig- urður á Möðruvöllum og var vel að henni kominn'j, því hann var efstur í sínum bekk við öll próf nema eitt, enda las hann löngum, meðan við flest ir vorum að leik. Hygg ég, að hann hafi jafnan haft sömu reglu við lexíur allar í lífsins skóla. í sumar var Sigurður á ferð hér um slóðir. Var haixn í eftirleit að því, sem Bókasafn Austurlands átti óheimt frá prentsmiðjum í Reykjavík. Hann var þá hress í anda og léttur í spori, magnaður á- huga og starfsgleði eins og fyrr. Kona Sigurðar, Soffía Þor- kelsdóttir frá Klúku i Hjalta staðaþinghá er nýlega látin, góð kona og gegn. Var heim ili þeirra vistlegt og vel hald ið. Dóttur eignuöust þau eina, Helgu. Hún býr nú með föður sínum, en starfar í pósthúsi Seyðisfjarðar með alúð og samvizkusemi, eins og hún á foreldri til. Sigurður fæddist í Fögru- hlíð í Jökulsárhlíð í Norður- Múlasýslu. Gæfa væri það landi og lýð, ef fjölgaði vel þeim Fögruhlíðum, þar sem fæddust mannsefni á borð við' Sigurð, og lifðu honum likt. .. Karl. Finnbogason. j

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.