Tíminn - 15.11.1951, Blaðsíða 8
Ránnsóknsrgögregian
hsndsamar 2 ræningfa
Aðeins ííu krónur efíir af ISOO, seni jieir
rieiitln a$farnnúlt niám.dass síðasili'Sins
Rannsóknarlögreglan í Reykjavík hefir nú handsamaö
menn þá, sem rændu hinn drukkna mann aðfaranót’t síðast-
liðins mánudags. Voru þar að verki tveir piltar um tvítugt.
Iftun því verða fagnað af bæjarbúum, að tekiat hefir að hafa
hendur í hári þessara manna. Af peningum þeim, sem þeir
Pæhdu, gátu þeir aðeins skilað ííu krónum.
Eiríkur Einarsson
láíinn
Hinir seku menn eru Þórð-
ur Guðjón Þórarinsson, Loka-
stíg 23 A, og Guðmundur Fíf-
ill Þórðarson, Langholtsvegi
164.
Þvottavéi í boði
Happdrætti
Tímans býður
ykkur þvoíta-
vél af vand-
aðri gerð. —
Þorra hús-
mæðra vant-
ar enn heim-
ilisvélar til þess að spara sér
vinnu og fyrirhöfn, og þó að
því miður vanti enn viða raf-
magnið, er þvottavél samt sem
áður mikiís virði og auðvelt
að selja hana og kaupa fyrir
andvirðið annað, sem heimil-
ið vanhagar um.
Hinir þrjátíu vinningar,
sem happdrættj Tímans býð-
ur, eru allir góðir og eftir-
sóknarverðir, og ættu að
verða til varanlegrar ánægju.
Eirikur Einarsson, alþingis-
maður andaðist í fyrrakvöld,
tæpra 67 ára að aldri. Hafði
hann að undanförnu átt við
mikla vanheilsu að stríða.
Eiríkur var fyrst kosinn á
þing 1919 og sat út það kjör-
tímabil. Enn var hann þing-
maður 1933—1934, og frá 1937
sat hann óslitið á þingi, þar
til í vetur, að hann gat ekki
lengur gegnt þingstörfum
vegna sjúkleika síns.
Eiríkur var maður mjög
vinsæll af öllum, sem hann
þekktu, og hinn mesti dreng-
skaparmaður í hvívetna.
Hjónaband, sem
gæti orðið sögulegt
Fyrir nokkru var stofnað til
einstæðs hjónabands í Portúgal.
Frægasti kvennautabani þar i
landi og þótt víða sé leitað, ung
frú Cintron, sem lagt hefir 390
naut að velli á 13 árum, gekk að
éiga frægan ljónaveiðimann.
Ungfrúin er 28 ára að aldri og
hafði unnið óteljandi sigra á
blóðvöllum nautaatsins, er hin-
um unga ljónaveiðimanni, Don
Francisco, tókst að ná ástum
hennar.
Hjónabandið gerbreytti ævi
ungfrúarinnar, að því er talið er,
þvi að hún hefir nú lagt nauta
atið á hilluna til að geta gerst
húsmóðir og eiginkona.
Sýndi ræningjunum í
veski sitt í salerninu.
Piltar þessir, sem báðir voru
á dansleik í Breiðfirðingabúð
á sunnudagskvöldið, hittu
þar mann þann, sem þeir
rændu síðar, og sýndi hann
þeim í veskj sitt þar í salerni
hússins. Er þeir fóru úr hús-
inu, kom þeim saman um það
að bíða á Skólavörðustíg, i
því skyni að hafa af honum
fé til áfengiskaupa.
Dans, sem fékk illan endi.
Þegar maðurinn kom út,
gáfu þeir sig þegar að hon-
um, gengu með honum niður
Ingólfsstræti og inn í portið
við Nýborg. Fór allt mjög vin-
samlega fram, og þarna fór
annar ræningjanna að dansa
við fórnarlambið. En er
minnst varði slengdu þeir
kumpánar manninum til jarð
ar og börðu hann, unz hann
missti meðvitund. Stálu þeir
síðan peningum hans, 1900
krónum, en fleygðu tómu vesk
inu ofan á hann. Hröðuðu þeir
sér síðan brott.
Sic transit gloria mundi.
Nú höfðu hinir ungu ræn-
ingjar mikil umsvif. Þeir
keyptu áfengi, óku í bifreið-
um og buðu með sér dömum.
Fóru þeir í þessu slagtogj til
Keflavíkur, upp í skíðaskála
og síðast til Hafnarfjarðar.
Höfðu þeir í ferðum þessum
samdrykkju við ungar dömur
og annað yndi.
Hörð hríð gerð að
Vishinski
Á fundi allsherjarþingsins í
París í gær var rætt um helztu
leilumál stórveldanna á breið-
um grundvelli og tóku margir
til máls. Meðal þeirra voru Ole
Björn Kraft utanríkisráðherra
Dana og van Zeeland utanríkis-
ráðherra Hollands. Gerðu þeir
báðir mjög harða hríð að Vis-
hinsky og töldu liann taka af-
vopnunartillögum vesturveld-
anna af heimatilbúinni andúð
og heift og sökuðu hann um
að neita að ræða af rólyndi og
skynsemi þær tillögur, sem fram
kæmu og nota slagorð og ögrar.
ir í stað þess að yfirvega málin
af ró og íestu.
Guðnínu og Guð-
mundi vel fagnað
Guðrún Á. Símonar söngkona
og Guðmundur Jónsson söngvari
héldu söngskemmtun í Gamla
Bíó í gærkveldi fyrir fullu húsi
og við framúrskarandi undir-
tektir áheyrenda. Sungu þau lög
úr óperum og óperettum. Urðu
þau að syngja mörg aukalög,
bæði sameiginlega og aðskilin.
Söngskemmtunin verður end
urtekin á sama stað næstkom
Kvöldvökur góð-
templara vel sóttar
Eins og kunnugt er hefir Góð
témplarareglan undanfarin
kvöld efnt til fræðslu- og
skemnjtikvölda í Góðtemplara-
húsinu. Hófst fyrsta fræðslu-
kvöldið s. 1. mánudagskvöld, en
það siðasta verður í kvöld. All
ar hafa samkomur þessar verið
svo vel sóttar, að íærri hafa
kömizt þar að en vildu.
Á kvöldum þessum hafa skipzt
á ræður, upplestrar, gamanþætt
ir, söngur, samtalsþættir, hljóm
list og leikþættir.
í kvöld er síðasta samkoman
að þessu sinni. Þar flytur á-
varp Njáll Þórarinsson, kvartett
svngur, Þorsteinn Þorsteinsson,
kaupmaður, og Indriði Indriða-
son fulltrúi flytja stuttar ræð-
ur, Guðm. G. Hagalín rithöfund
ur les upp nýja frumsamda sögu.
Þá er leikþáttur og Ari Gíslason
kennari flytur lokaorð. Hljóm-
sveit leikur í upphafi fundarins
og milli atriða. Öllum er heimill
ókeypis aðgangur.
En lögreglan var
á næstu grösum.
Lögreglan hafði hins vegar
meðan þessu fór fram, kom-
ist á snoðir um það, hverjir
myndu hafa rænt manninn.
Er þeir kumpánar komu úr
Hafnarfirði eftir hádegíð í
fyrradag, ákváðu þeir að fara
i Austurbæjarbíó kiukkan
fimm, enda var þá ekki eftir
af peningum, er endast mætti
til stórra hluta. Að lokinni
kvikmyndasýningunni fóru
beir niður í bæ, og þar lauk
ævintýrinu á þann kuldalega
hátt, að lögreglan hremmdi
þá. Og var þá og lokið hug-
dirfð ræningjanna. Játaði
annar þegar afbrot sitt, en
hinn morguninn eftir.
Arinbjörn Bardal
látinn
Arinbjörn Bardal, útfarar-
stjóri i Winnipeg, andaðist í
fyrradag. Hann var ættaður úr
Bárðardal, maður háaldraður.
Hann var einn í hópi hinna
þekktari Vestur-íslendinga.
Mjög harðnandi
andspyrna komm-
únista í Kóreu
Ekkert samkomulag varð á
fundi vopnahlésnefndanna í
Kóreu í gær um vopnahléslín-
una. Hvikar hvorgur aðili frá
síðustu tillögum sínum. Komni
únistar hafa hert mjög áhlaup
á vesturvígstöðvunum síðustu
dægur, en áhlaupunum hefir bó
öllum verið hrundið. Tefla komrn
únistar síféllt fram nýjum og
oþreyttum hersveitum vel vopn
uðum, og þykir sýnt, að be;m
hafi mjög aukizt styrkur siðustu
daga, jafnvel svo að hersveitum
S. Þ. geti verið hætta búin á
þessum slóðum og neyðist til
undanhalds bráðlega. Yfirmenn
bers S. Þ. hafa bent á það, að
nú beri brýna nauðsyn til að
hraða mjög liðflutningum og
vopnasendingum til Kóreu til
að tryggja stöðu og framsókn
hersveitanna.
andi föstudagskvöld.
Útgerðarmenn áminnt-
ir um öryggi skipa
Aðalfundur L.Í.Ú. rædtli meðal annars erindi frá skipa-
skoðunarstjóra um misbrest, sem á því hefir verið, að fylgt
sé fyrirmælum um öryggi skipa og hinna tíðu sltipsbruna.
Beindi fundurinn þeim fyrirmælum til útvegsmanna, að
hlýtt skyld í hvívetna gildandi lögum og reglum um öryggi
skipa. —
Sérstaklega var á það bent, að
hafa taltæki jafnan i góðu lagi,
hafa skipsbát eða fleka á skip
um yfir tuttugu smálestir og
ganga örugglega frá öllum út-
búnaði í sambandi við olíukynta
ofna og vélar.
Skattar vegna
fiskábyrgSarinnar.
Fundurinn taldi óeðlilegt; að
haldið verði áfram að innheimta
skatta vegna fiskábyrgðarin.nar,
bar sem hún er úr sögunni, og
hét á alþingi að afnema þá. En
verði þeir innheimtir áfram, sé
þeim varið til niðurgreiðslu á
nauðsynjum almennings, er
hækka kaupgjaldsvísitöluna.
Síldarleit.
Þess var farið á leit við síldar
leitarnefnd, að hún beitti sér
fyrir því, að minnsta kosti eitt
síldarleitarskip hér við land yrði
búið elac- eða asdictækjum, og
verði það skip til aðstoðar síld
veiðiflotanum á sama hátt og
G. O. Sars er aðstoðar norska
veiðiflotann.
Síldarverksmiðjurnar.
Loks var skorað á þingið að
breyta svo lögum um sildarverk
smiðjur ríkisins, að stjórn verk
smiðjanna sé heimilt með ráð-
herraleyfi að taka á móti síld t;l
vinnslu af skipum, sem seit
hafa verksmiðjunum ákveðiö
magn síldar við föstu verði.
Fundir og kröfu-
göngur í borgum
Egyptalands
Geysifjölmennir útifundir og
kröfugöngur fóru fram í Kairo,
Alexandríu og öðrum stærri borg
um Egyptalands í gær til að mót
mæla setu Breta við Súes og í
Súdan. I Kairo talaði forsætis-
ráðherrann á fjölmennasta fund
inum og gekk í broddi fylkingar
aðalkröfugöngunnar. Voru borin
áletrunarspjöld og fánar í göng
unni. Allt fór nokkurn veginn
friðsamlega fram enda var her
og lögregla hvarvetna á verði,
einkum við bústaði og skrifstof
ur erlendra manna.
Rifið innan úr Pat-
reksfjarðartog-
aranum
Patreksfjarðartogarinn Ólafur
Jóhannesson fór á ísfisksveiðar
í gærmorgun, og hafði þá verið
í höfn á þriðju viku. Var ástæð
an sú. að rífa varð innan úr lest
um skipsins og brjóta steypu í
botni, þar sem ekki þótti vog-
andi að fara með skipið á ís-
fisksveiðar vegna hættu á
skemmdum í fiskum af völdum
kolsýru- eða gasmyndunar í því.
Verð á útflutta
kjötinu nær tveim
krónum hærra
Landbúnaðarráöherra svar
aði á þingi í gær fyrirspurn-
um um útflutning og verð-
lag á dilkakjöti. Hann sagði,
að sláturhús landsins hefðu
fengið í haust um 4000 lest-
ir af kindakjöti, og er það um
sextíu lestum meira en í fyrra.
Af þessu kjöti væri 600—700
lestir ærkjöt, en hitt dilka-
kjöt og geldfjárkjöt. Af þessu
kjöti væri búið að flytja til
Bandaríkjanna um 500 lestir.
Kjötsalan innan lands fram
til októberloka nam 700 lest-
um. Kindakjötbirgðir eiga
því að vera um 2750 lestir og
um áttatíu lestum meiri en í
fyrra. Gera má ráð fyrir rýrn
un, sem nemur 40—50 lest-
um. 112—115 lestum meira
en í fyrra er til í landinu af
hrossakjöti og nautakjöti.
Fyrir það, sem flutt er út,
fást 14,95 frítt um borð í ís-
lenzkri höfn, og eftir þeim
tölum, sem framleiðsluráð
landbúnaðarnis byggðj á um
verðlagningu í haust, má
vænta, að bændur geti fengið
þrettán krónur fyrir kíló af
útflutta kjötinu. Er hér jöfn-
um höndum um að ræða
dilkakjöt í fyrsta og öðrum
gæðaflokki.
Fyrir dilkakjöt það, sem
selt ér innan lands, var reikn
aö með, að bændur fengu að
meðaltali ellefu krónur á kíló.
Áætlunarverö líflamba, sem
keypt voru í haust vegna fjár-
skiptanna, var ákveðið sex
krónur fyrir kíló, miðað við
lifandi þunga, en uppbót á
það verður ákveðin síðar, þeg
ar vitað er um endanlegt verð
á sláturfjárafurðum.
England og Wales
unnu
í gær föru fram tveir lands-
leikir í Stóra-Bretlandi, milli
Englands og írlands, og Wal-
es og Skotlands, og báru fyrr-
nefndu liðin sigur úr býtum.
Leikurinn milli Skotlands
og Wales fór fram í Hampden
Park leikvanginum í Glas-
gow, og horfðu 80 þús. Skot-
ar á landslið sitt tapa fyrir
Wales á síðustu míiiútu leiks-
ins, en þá tókst framlínu
Wales að ná knettinum og
brjótast í gegnum vörnina, eft
ir að skozka liðið hafð'i verið
í nokkuð stöðugri sókn. Clarke
(Manch. City) átti mestan
heiðurinn af markinu, þó
Allchurch (Swansea) skallaði
knöttinn í netið. í fyrri hálf-
leik fengu Skotarnir víta-
spyrnu, en tókst ekki að
(Framhald á 7. síðu.)