Tíminn - 22.07.1952, Side 8
„ERLEJVT YFIRLIT“ t ÐAG
KosninffahorSuvnur í IJ.S.A,
íþróttamenn 69 þjóða ganga til leiks á Ólympíuleikvanginn
Ung, hvítklædd kona að óvör-
um í ræðustól Olympíuvangsins
iiallur Símonarson, fréttamaður Tímans á Ólympínletkunnm,
seg’ir frá setning'u leikanna og’ fyrstu keppni.
Von Frenckell leiðir hvítklæddu konuna brott frá ræðu-
stólnum eftir að hún hefir reynt að' ávarpa mannfjöldann.
Þessi mynd birtist í finnskum blöðum daginn eftir komu ís-
íendinganna til Helsingfors, og sjást þar ýmsir Ólympíu-
faranna, þótt marga helztu íþróttamennina vanti á mynd-
ina. Erlendur Ó. Pétursson stendur í flugvélardyrunum.
ANNAR KEPPNISDAGUR:
Torfi Bryngeirsson
keppir til úrslita í stöng
Helsingfors í gær.
MeÖal fyrstu greina í keppn
inni í gær var stangarstökk,
þar sem Torfi Bryneeirsson
keppti. Auðséð var, að hann
var til alls líklegur. Fyrstu
Örn Clausen tek-
ur ekki þátt í
tugþrauíinni
Helsingfors, sunnudag.
Það er nú talið útséð um,
að Örn Clausen geti keppt
í íugþrautinni. Hann varð
fyrir því óiáni fyrir nokkr-
um dögum að togna illa í
hægri hendi, er hann var að
lyfta tösku upp í rúm. Hefir
bann verið undir læknjs-
hendi og skipað að hvílast að
minnsta kosíi hálfan mán-
uð. Er þetta mikið áfall fyrir
íslenzku sveitina, þvj að við
mestu var búizt af Erni. Hef
ir mikið verið skrifað um
þeífa í finnsk blöð. Ekki Iief
ir Örn vantað viljann til
æfinga og var hann í ágætri
þjálfun, kastaði t.d. 44—45
metra kringlu og árangur
engu siðri j öðrum greinum
hans.
hæðirnar 3,60, 3,80 og 3,90 fór
1 hann leikandi í fyrstu at-
jrennu, og 4 metra í annarri
Jatrennu í mjög fallegu stökki
og hlaut óspart lof áhorfenda.
Hafði hann þar með tryggt
sér rétt til úrslitakeppni. Varö
hann meðal sjö, er fóru þessa
hæð í öðrum flokknum, en
ikeppendum var skipt í tvo
flokka til undirbúningskeppni
þar sem keppenöur voru urn
40. í dag verður keppt til úr-
slita í þessari grein. Fleiri ís-
lenöingar tóku ekki þátt í
keppni í'gær.
Rúluvarp.
j í kúluvarpi sigraði Banda-
i ríkjamaðurinn O’Brian og
1 kastaði 17,49 m., sem er nýtt
. Ólympíumet. Tveir næstu
jvoru og Bandaríkjamenn, og
|var Fuch í þriðja sæti með
■ 17,06 m. og gekk hann ekki
iheill tii ieiks.
!.
, Úrslitin í 100 m.
í gær fóru einnig fram úr-
slit í 100 m. og sigraði Rem-
! inglin frá Bandarikjunum á
110,4 sek., en McKinley frá
Jamaica og Bailey frá Bret-
landi næstir á sama tíma og
þurfti Ijósmyndir til að skera
úr um þessi þrjú fyrstu sæti.
(Framhald 4 7. alðu)
Helsingfors, láugardag.
Setning Ólympíuleikanna er athöfn, sem englim, er við-
staddur er, mun úr minni líða. Fegurðin og hátiðleikinn
grípur hugann sterkum tökum, en menn finna um leið sárt
til þess, að ekki er sólskin. Það er aðeins tvennt, sem brugð-
ið hefir skugga á þessa hátíðiegu athöfn, seytlandi drunga-
legt regnið og hvítklædda konan.
Sá atburður var allan dag-
inn í hugum manna, og spurn
ingin: Hver var.hún? Hvern-
ig stóð á þessu atviki? var á
vörum allra, þar til skýringin
var fengin.
Síðustu tónar Ólympíu-
söngsins voru að devja út. —
Menn biðu þess að erkibisk-
upinn síigi í stólinn og lýsti
blessun og fánaberarnir
tækju sér heiðursstöðu við
ræðustólinn. Allt í einu
stökk hvítklædd kona niður
frá áhorfendapöllunum og
tók á rás eftir hringlagaðri
hlaupabrautinni í hellirign-
ingunni í áttina til ræðustóls
ins. Áhorfendurnir 70 þús.
vissu ekki hvaðan á sig stóð
veðrið. Var þetta eitthvert
atriði, sem átti að koma á
óvart og ekki hafði verið
sett á dagskrána?
70 þús. áhorfendur sátu
sem steing'ervingar.
Grafarþögn lagðist yfir leik
vanginn mikla og þúsundirn-
ar biðu í ofvæni. Allir sátu
sem steingervingar. Hvít-
klædda konan hljóp létt sem
hind, engu þyngslalegar en
hlauparinn Nurmi rétt áður.
Aðeins képpendurnir, sem
höfðu raðað sér upp á knatt-
spyrnuvellinum, létu á sér
bæra. Þeir hlupu út að braut-
inni. Konan hljóp 250 metra,
hélt annarri hendinni í kjól-
inn, sem flaksaðist frá henni.
„Ystaevat.“
Hún kleif þegar upp í
ræðustólinn, er hún kom þar
að, en hún var dálítið móð
af hlaupunum, þegar hún
ætlaði að tala. Hún greip þó
þegar hljóðnemann og
sagði: „Ystaevat“, sem er
finnska og þýðir vinir. Síð-
an brá hún fyrir sig ensku
og sagði: „Ladies and gentle
men.“
En lengra komst hún ekki.
Nú virtust menn hafa áttað
sig á því, að eitthvað óvenju-
legt og utan dagskrár var að
ske. Tveir verðir þustu að
stólnum og gripu í konuna, en
hún hélt dauðanaldi í brík
ræðustólsins og vildi ekki gef
ast upp. Svo bar von Frenc-
kell, framkvæmdastjóra
Ólympíunefndarinnar þar að,
og þegar konan sá hann,
hlýddi hún þegar og lét Frenc
kell leiða sig auðsveip brott.
Hann fylgdi henni til lög-
reglunnar, sem fór með hana
á lögreglustöðina. Þar kom í
ljós, að stúlka þessi er frá
Vestur-Þýzkalandi og heitir
Barbara Rutbraut-Pleyer og
er 23 ára. Hún hefir að und-
anförnu reynt að ná tali af
Paasikivi Finnlandsforseta
árangurslaust, og þegar það
tókst ekki. ákvað -hún að vekja
á sér athygli á þennan hátt.
Hún sagðist vera friðarsinni
og hafa ætlað að 'tala máli
friðarins jafnframt því að
óska að keppendur frá Austur
og Vestur-Þýzkalandi kepptu
sem ein þjóð. Stúlkan virtist
vera heilbrigð á geðsmunum.
Að öðru leyti fóif setning
leikanna fram tafalaust og
eftir ákveðinni dagskrá.
Tekur að rigna.
Um klukkan 11 f.h. tók að
rigna í Helsingfors.Æ>egar há-
tíðin átti að hefjast kl. 1,
hafði verið stöðugur fólks-
straumur þangað í tvær stund
ir. Grasvöllurinn var nýsleg-
inn og leit út eins og fagurt
borð, en umhverfis hann var
hlaupabrautin rauð á litinn
Paavo Nurmi stendur við
Ólympíualtarið eftir að hafa
kveikt þar hinn helga eld með
blysi sínu.
en virtist nokkuð laus.
Ólympíunefndin
og forsetinn.
Ég var kominn í sæti mitt
klukkan rúmlega 12 og mátti
ekki siðara vera, því að blaða
inannastúkan var að fyllast,
enda voru þar um 3000 blaða
menn staddir. Fimm mínútum
(Framh. á 7. síðu).
FYRSTI KEPPNISDAGÖR:
Kristján Jóhannsson
setti nýtt íslandsmet
Helsingfors á mánudag. mundi mistókst viðbragö og
Fyrsti dagur kéþpninnar á ’varð 5. á 11,1 sek., en Hörð-
Ölympíuleikunum sýndi þeg-
ar, að þessir leikarmunu færa
marga íþróttasigra. Þennan
fyrsta dag voru sett fjögur
Ólympíumet.
Nýtt íslandsmet.
Fyrsta greinin; "Sém keppt
var til úrslita í, vár 10 þús.
metra hlaup. Þar képpti Krist
ján Jóhannsson og má segja
að frammistaða hans háfi ver
ið með ágætum. Fyrri 5 þús.
metrana hljóp hann á 15 mín.
26,2 sek., sem er hér um bil
sami tími og met hans á
þeirri vegalengd. Hann átti þó
eftir að bæta sig.betur. Hann
kom 26. í niark á nýju 'glæsi-
legu íslandsmeti, 32 mín.
sléttum og bættl fyrra met-
ið um heila mínútm Það átti
Stefán Gunnarssonv
Sigurvegarinn í þessari
grein var hinn ósigr^ndi
Tékki Zatopek og-hljóp hann
vegalengdina á 29,17,0 mín.,
nýju Ólympíumeti, sem hann
átti sjálfur frá 1948. Annar
varð Frakki, og veitti hann
Zatopek mjög harða keppni
þar til á síöasta km.
100 m. hlaup.
í undanrásum' í 100 m,
hlaupi keppti Ásmundur
Bjarnason í 1. riðli en Hörö-
ur Haraldsson í 3. piðli. Ás-
(Framii. á 7. síðu).
i I
Tékkinn Zatopek, sem sigr-
aði í 10 þús. metra hlaupi á
Ólympíuleikunum á laugar-
daginn á nýju Ólyinpíuincti,
29.17,0 mín.