Tíminn - 16.12.1952, Síða 2
2.
TÍMINN, ]>riðjudaginn 16. desember 1952.
286. blaff.
í atóm-flugvél verður komið í á-
fanga, áður en lagt er af stað
Maffurinn er alltaf að sækjast eftir hraffa, og honum hef-
ir áunnizt mikið í því efni, einkanlega á síðari tímum. Mark-
ar tilkoma véiarinnar tímamót í því efni. Fyrst gufuvélin,
síðan benzínvélin og nú upp á siðkastið, þrýstiloftsvélin.
En það er ekki nóg að gert,
þó að manninum hafi tekizt
að færa sig yfir allt að því
tvisvar sinnum hraðar en
hljóðið, heldur er nú í smíð-
um atómknúin vél í flugvél-
ar, sem mun verða þess vald-
andi, að enn býðst mannin-
um tækifæri til að færa sig á
milli staða á skemmri tíma
en áður.
Úraníum 235.
Aflgjaíi þessarar nýju vél-
ar mun verða úraníum 235 og
þarf vélin hálft kílógramm af
efninu til að geta flogið átta-
tiu sinnum umhverfis jörð-
ina við miðjarðarlínu, með
fjögur þúsund kílómetra
hraða á klukkustund.
Tíminn sigraður.
Það má segja, að tímatal
okkar sé farið að riða við all-
an þennan gífurlega hraða.
- Tii sönnunar má geta þess, að
verði flogiö í atómflugvél frá
íslandi til Ameríku verður
hægt að ná áfangastað löngu
fyrir þann tíma,_ sem > iagt
var upp í ferðina’. Hægt verð
ur að fljúga þvert yfir At-
lantshaf á fimm stundar-
fjórðungum.
Vandamálið leyst.
Brennsluefnið hefir verið
vandamál, því í núverandi
mynd sinni, þurfa flugvélar
mikið brennsluefni, sem er
þungt í sér, og því hraðar sem
flogið er, því meiri birgðir
þarf vélin að bera með sér af
efninu, gildir þar sama um
langflug. Með tilkomu atóm-
vélarinnar verður ekki leng-
ur að ræða um þyngd
brennsluefnis, utan þess litla
magns af úraníum 235, sem
vélin þarf til að fljúga óra-
leiðir.
Útvarpið
IJtvarpið í dag:
8.00 Morgunútvarp. — 9.10 Veður
fre£ nir. 12.10—13.15 Hádegisút-
varp. 15.30 Miðdegisútvarp. — 16.30
Veðurfregnir. 17.30 Enskukennsla;
II. fl. — 18..00 Dönskukennsla; I.
fl. 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Fram-
burðarkennsla í ensku, dönsku og
esperantó. 19.00 Þingfréttir. — 19.
25 Óperettulög (plötur). 19.45 Aug-
lýsingar. — 20.00 Fréttir. 20.30 Er-
indi: Um aðbúð kennara (Símon
Jóh. Ágústsson prófessor). - 20.55
Undir Ijúfum lögum: Carl Billich
o. fl. flytja smálög eftir Johann
Sebastian Bach. 21.25 Gamlir tón-
sniilingar; I. Johann Pachelbel. 22.
00 Fréttir og veöurfregnir. 22.10
Uplestur: „Heimur í hnotskurn",
scgukaíli eftir Giovanni Guareschi
(Andrés Björnsson). 22.30 Sam-
leikur á fiðlu og p'anó. 23.00 Dag-
skrárlok.
Útvarpið á morgun:
8.00 Morgunútvarp. — 9.10 Veð-
urfiegnir. 12.10—13.15 Hádegisút-
varp. 15.30 Miðdegisútvarp. — 16.
30 Veðurfregnir. 17.30 íslenzku-
kennsla; II. fl. — 18.00 Þýzku-
kennsJa; I. fl. Í8.25 Veðurfregnir.
18.3.0 Barnatími. 19.15 Þingfréttir.
— 19 30 Óperulög (plötur). 19.45
Auglýsin; ar. — 20.00 Fréttir. 20.30
Útvarpssagan: „Mannraun" eftir
Sinclair Lewis; XVI. — sögulok
(Hagnar Jóhannesson skólastjóri).
21.00 íslenzk tónlist: Guðmundur
Jónsson syngur lög eítir Emíl
Thoroddsen. 21.20 Vettvangur
kvenna: Erindf: Frá Ítalíuferð
(frú Sigríður J. MagnússonV 2145
Tónleikar (plötur). 22.00 Fréttir cg
veðurfregnir. 22.10 „Désirée", saga
eftir Annemarie Selinko (Ra n-
heiður Hafstein). — XXXII. 22.50
Dans- og dægurlög (plötur). T:3 10
Dagskrárlok.
Markaskrárnar
stækka þegar nýtt
fé kerast á fót
Uin þassar mundir er ver-
iff að undirbúa nýja ú^gáfu
af markaskrá Borgarfjarff-
arsýslu o? annast In^imund
ur Ásgeirsson, bóndi að Hæli
í Flókadal, útgáfu skrár-
innar, sem væntanleTa kem
ur út í vor. Verður þetta um
fangjsmsta markaskrá, sem
komið hefir út í sýslunni,
því að mikill fjöldi nýrra
marlta, bæíist við.
Síðast þegar markaskráin
var gefin út fyrir Borgarfjarð
arsýslu voru í henni tæplega
1000 mörk. Þau höfðu þá aldr
ei verið fleiri. — Ekki er búið
aö gangá frá handriti skrár-
innar og ekki öll gögn komin
til Ingimundar á Hæli. Auð-
séð er, að mörkin verða all-
míklu fleiri en í síðustu skrá.
Þegar mörkum er fjölgað,
verður að hafa margt í huga
og eru talunörk fyrir því,
hvað hægt er að fjölga þeim.
Fyrst verður að sjá, hvort
markið á sér nokkra hlið-
stæðu í nærliggjandi sýslum
og eins er bannað að taka
upp ýms soramörk, svo sem
mörk, þar sem sílhamrað er,
geirsýlt, eða netnál.
Ef slík soramörk eru í notk
un, eru fyrirmæli í lögum
um að láta þau deyja út, þeg
ar eigendurnir hætta að nota
þau.
Færð þyngisí á
Fagradal
Frá fréttaritara Tímans
í Reyðarfirði.
Undanfarna þrjá daga hef
ír snjóað töluvért, og í gær
var mikill kuldi o^ skafrenn-
ingur i Reyðarfirði. Færð er
þó sæmileg ennþé, og var
íailð yfir Fagradal í ívrra-
dag, og. síðdegis í gær var
last af stað á bílum upp á
Hérað, en óvíst í gærkvöldi,
hvort þeir hefðu komizt yf-
ir Fagradal.
Á Reyðarfirði er ekkert
verlcfall og hefir ekki verið
boðað, en verkfallið á Akur-
eyri og Reykjavík, ásamt
samgönguleysinu,1 veldur
örffugleikum og skorti á ýms-
um vörum. En nægilegt er þó
til af nauðsynjum enn um
sinn.
Miklir skaðar af
fárviðri á Ítalíu
Geysilegt óveður, hvass-
viðri og steypiregn, herjaði
míkinn hluta ítaliu í gær og
hafa orðið miklir skaðar á
vegum, akurlendum og síma-
linum. Við Liverno brotnaði
amerískt skip í tvennt í ó-
veorinu og afturhlutinn sökk
þegar, en á framhlutanum,
sem enn flaut 1 gærkveldi,
voru um 40 menn. Þeim var
reynt að koma til hjélpar
með helikopter-flugvélum og
biörgunarbátum, en hafði
ekki tekizt sökum óveðurs-
ins. Talið er, að nokkrir monn
hafi farizt af skipinu, en ekki
vitað, hve margir þeir voru.
J NÝR BÓKMENNTAVIÐBURÐUR
I Vitið þér enn
7
Smásögur eftir Svein Auðun Sveins-
son, höfiind skáldsöguiinar. Leiðin lá j
. til Veslurheims, sem út kom 1950.
Dómar um þessa nýju bók eru á einn veg:
Helgi Sæmundsson (Varðberg 14. nóv.):
Þetta eru persónulegar sögur, gáfulegar og athyglis
verðar — og ærinn skáldskapur..Vítiff þér enn —?,
er á sínu sviði engu minni bókmenntaviðburður en
Leiðin lá til Vesturheims. Maður þykist þess fullviss,
að Sveinn Auðunn Sveinsson sé einn af mönnum fram
tíðarinnar.
Kristmann Guðmundsson (Morgunblaðinu 27. nóv.):
Höf. hefir sálfræðinlegan skilning og virðist kunna
viöbragöafræði. Honum er lagið að láta atburðalýsing-
ar og umhverfislýsingar falla eðlilegan saman i skáld-
lega heild, sömuleiöis að láta áhrif þess ósagða koma
skýrt fram. Þegar honum tekst bezt, er hann sjálf-
stætt og frumlegt skáld, sem ánægja er aö lesa.
!
Bæjartogararnir
veiða í salt
Frá fréttaritara Tímans í Sielufirðt
Báðir bæjartogaTarnir eru
nú farnir á fiskveiðar í salt
og munu stunda veiðar á mið
unum hér við land.
Ótíð hefir hamlað útgerð
trillubáta og smærri fiskibáta
um sinn. Aflaðist þó allvel á
þá um tíma og nokkur at-
vinnubót að þeirri sjósókn.
Ekkert verkfall er í Siglu-
firði, og hefir ekki veriS boð-
að þar.
Flugvélin kom við
á vestnrleið
1 Millilandaflugvélin Hekla
'kom til Reykjavíkur í fyrra-
'dag og hafðj hér nokkra við-
! civöl á leið sinni vestur um
(haf, vegna lítilsháttar bilun-
ar.
| Vélin kom frá Noregi og
var með farþega til Banda-
ríkjanna. Hafði hún meðferð
is nægt benzín alla leið vest-
ur á Nýfundualand. Lagði af
stað héðan um miðnætti og
lenti á Gander nokkru fyrir
hádegi í gær.
Árekstrar
(Framhald af t. síðu).
| bifreið austan úr Vík í Mýr-
, dal. Lögreglan skarst þar í
| leikinn og lyktaði þráttinu
j með því, að fólk fékk böggl-
ana afgreidda.
9
Guðmundur Danielsson (Vísir 1. des.):
Sögurnar eru sjö talsins .... Engih þeirra er löng,
engin léleg. Flestar þeirra gerast meðal fátækra verka
manna í kaupstað og varpa skörpu ljósi á ytri. kjör
þeirra og innra líf. Hófsemi höf. í málfari og stíl ber
aöalssvip og smekkvísi hans er óskeikul.
Guffrn. Gíslason Hagalín (Albýðublaðið 2. des.):
.... Hlátur drengsins í fyrstu sögunni og þögn
heldra fólksins, andstæðan í lok annarrar sögunnar
milli löngunar drengsins og þeirra lífsannar, sem knýr
hann, gereyðing snjóhússins í þeirri þriðju, dinglándi
kaðalendinn í seinustu sögunni, þegar hann mætir
brögð piltsins í seinustu sögunni, þegar hann mætir
stúlkunni sinni, eftir að samvizkukvalirnar hafa þrúg-
að að honum — allt er þetta hnitmiðað til listrænna
og lífrænna áhrifa.
Halldór Kristjánsson (Tíminn 11. des.):
Svo skrifar enginn nema hann sé snillingur á stíl
og skilji hetjusögu og nautn alþýðlegrar lífsbaráttu.
Það er bláköld og dagsönn alvara íslenzkrar lífsbar-
áttu, sem er styrkur þessara sagna, ýkjalaus og lát-
laus túlkun þess sem samferðamönnum okkar býr í
brjósti. Á þeim vegi er þessi höfundur hlutgengur svo
að hann þarf engan að öfunda eða biðja afsökunar.
Gefið vinum yðar Vitið þér enn? í jjála-
gjjöf. Verð kr. 45,00 ifo. og br. 35,00 ©1».
;
Forn Sjóður
(Framhald af 1. síðu).
en þó eru innan um það fá-
ein brot af silfurpeningum.
Ekii sumir þeirra þýzkir að
uppruna, mótaðir fyrir Ottó
keisara þriðja á síðustu ár-
um 10. aldar, en sumir eru
arabiskir frá 9. eða 10. öld.
Sýnir þetta aldur sjóðsins.
Fátíður fundur.
Fundir slíkra sjóða gang-
silfurs eru fátíðir hér á landi,
og ekki er nema einn sam-
bærilegur sjóður annar til í
þjóðminjasafninu. Er hann
frá Sandmúla inn af Bárðar-
dal, en þriðji sjóðurinn með
eintómum mótuðum silfur-
peningum frá 1000 fannst í
Gauiverjabæ í Flóa 1930.
Ketusilfrið er því merk við-
bót við það litla, sem til er af
fornu, íslenzku gangsilfri.
Keíllsúfgáfan
■<&<
51 Gerist áskrifendur að |
ímcinum I
Áskriftarsími 2323
Jörð til sölu
Tilboð óskast í jörðina Hjörsey II. (hálfa lenduna),
Hraunhreppi, Mýrasýslu. Tilboö sendist skriflega und-
» irrituöum, sem veitir umbeðnar upplýsingar. Bústofn
J og heyvinnuvélar geta fylgt. Áskilinn' réttur til aö taka
1 hvaða tilboði sei^i er eða hafna öllum.
Hjötur Þórðarson,
Hjörsey. Símstöð um Arnarstapa, Mýrum.
Jarðarför móður minnar
VALGERÐAR ÞORBJARNARDÓTTUR,
er andaðist að heimili sínu, Harrastöðum í Miðdölum
7. des. s.l., fer fram frá heimili hennar kl. 10 árd. —
Jarðsett verður að Kvennabrekku.
Þorbjörn Ólafsson.