Tíminn - 16.12.1952, Page 8
„ERLEXT YF1RLIT“ t UAÍív
Kóreufiir Etsenhowers
36, árg.
16. desember 1952.
: T :n" 286. blað.
Byssukestir uppreisnarmanna í Inaó-Kína
Fyrirsát verkfallsmanna í nafni
heilbrigðiseftirlitsíns í Reykjavík
rppreisnarmenn í Indó-Kína hafa undanfarna daga orðið
að hörfa mjög skjótlega undan hraðri sókn Frakka og yfir-
gefa landssvæði, sem beir unnu nýlega. Á hinum hraða
fiótta láta upprcisnarmenn vopn sín eftir í hrönnum. Byss-
urnar liggja í haugum, allar hlaðnar.
Faríð að sneiðast um
benzín hjá ieigubíium
í dag mun vera farið að sneyðast mjög um benzín hjá
leigubifreioastjórum hér í bænum, þar sem benzínhirgðir
einstakra bifreiðastjéra munu vera að ganga til þurrðar.
Um helgina var talið, að
beir, sem bezt hefðu birgt sig
upp með benzín fyrir verk-
fallið, ættu ekki eftir nema
tvisvar til þrisvar á benzín-
geyma bifreiðanna, en það
lætur nærrj að vera fjögurra
daga forði, miðað við innan-
bæjarakstur venjulegra leigu
bifreiða, sem hér eru í not-
kun.
Benzínið langsótt
og dýrt.
Eitthvað mun hafa verið
um það, að leigubílstjórar
haíi orðið sér úti um benzín
Mjólkurbrúsum
stolið undir bensín
Meðan mest var að þvi
gert að sækja benzín í bif-
reiðir i Reykjavik upp í sveit
ír, áður en verkfall kom í
Hvalfj arðarstöðinni og benz-
ínafgreiðslu þaðan var hætt,
var nokkuð farið að bera á
því, að tcmum mjólkurbrús-
um, sem stóðu við vegina á
svæði því, sem flytja má
mjólk af til mjólkurstöðvar-
innar í Reykjavík, væri stol-
ið. Leikur grunur á, að þar
hafi veríð að verki menn,
sem voru að leita íláta til
þess að geyma á benzín.
utan af landi, en margir
munu hafa sótt það í benzín
geyma í nágrenni bæjarins,
meðan benzín var fáanlegt af
þeim geymum. Hefir mikill
aukakostnaður lagzt á ben-
zínið, að sækja það svo langt
cg leita að því, eftir að geym
ar nærlendis fcru að tæm-
ast.
Úr Árnessýslu og
Bcrgaríirði.
Þegar benzin hætti að íást
í nágrenni Reykjavíkur, leit-
uðu leigubilstjórar fiarlæg-
ari miða, allt austur í Árnes-
sýslu og upp í Borgarfjörð,
og sóttu sér þá saman nokkr
ir og sentíu vörubifreiðar
með tur.nur undir benzínið.
I
L'ýrt fcrennsluefni.
| Geíur að skilja, að brennslu
efnið er orðið dýrt, þegar bú-
ið er að sækja það upp í Borg
r.rfjörð éða austur í Árnes-
sýslu, enda mun hver benzín
tunna, komin til bæjarins af
þessmn svæðum, kosta rúm-
ar íimm hundruð krónur, tvö
hundruð lítrarnir, auk þess,
sem bifreiðastjórar hafa orð-
ið að greiða gjald fyrir tunn
urnar. Er þetta ekki alllítiil
frádráttur, o~ hefir mátt
haida vel á spöðunum, svo að
hefðist upp í kostnaðinn við
að aka á þessu fimm hundr-
uð krónu benzíni.
Togarinn Sólborg
fær undan|)águ
á ísafirði
Frá fréttaritara Tímans á fsafirði
Togarinn Sólborg kom í
gær til ísafjarðar, hlaðinn
kolum frá Þýzkalandi. Hafði
hann áður selt 320 smálestir
af saltfiski í Esbjerg á Jót-
landi, kom við í Reykjavík á
heimleið.og komu þaðan með
honum sextíu farþegar.
Verkfall verkalýðsfélagsins
hófst hér í gærkvöldi, en fé-
ilagið hefir veitt undanþágu
hvað snertir togarann, svo að
kolum verður skipað upp úr
honum og fer hann síðan á
veiðar á morgun.
Bátarnir, sem stunda veið-
ar frá ísafirði, munu leggja
upp afla sinn annars staðar
hér í grenndinni.
Margar ferðir í
happdrætti Karla-
kórs Reykjavíkur
Karlakór Reykjavíkur efn-
ir til happdrættis til styrktar
Miðjaðarhafsförinni. Vinn-
ingarnir eru mikil og löng
ferðalög og tvö málverk.
Ferðirnar eru til New York
og heim aftur ásamt sjóði
sem ætlast er til að endist í
hálfan mánuð enda þótt far-
iö sé með nokkurri rausn.
Þá er annar vinningur ferð
til Miðjarðarhafslanda með
Gullfossi og kórnum. Þriðji
vinningurinn er ferð fyrir
tvö til Kaupmannahafnar
meö Gullfossi á 1. farrými.
Fjórði og fimmti vinningur
eru málverk.
i Verðmæti vinninganna er
30 þúsund krónur. Dregið
verður í hapf)drættinu 15.
marz og verð miða er tvær
krónur.
Það voru einkennilegir fulltrúar heilbrigðiseftirlitsins í
Reykjavík, sem kynntu sig vegfarendum við Grafarliolt í
fyrrinótt. Skömmu eftir miðnætti kom bíll ofan af Akra-
nesi suður og ék létt eftir greiöfærum vegi ofan við Graf-
arholt. Þegar kemur fyrir blint horn á þjóðveginum, sem
margir vegfarendur kannast við, munaði minnstu að stór-
slys hlytist af tiltektum kommúnista, sein búizt höfðu nm
þar á brúnni í slakkanum í nafni heiíbrigðiseftirlitsins í
Reykjavík, en voru raunar verkfailsverðir frá Dagsbrún.
Menn þessi höfðu lagt fólks
bifreið þversum á brúna, svo
að ekki var hægt 'að komast
yfir á ööru farartæki. Var
bifreiö þessi merkt M-30, tví-
lit gul og brún, áS því að veg-
farendum virtist.
Bílnum, sem kom að ofan,
tókst á síðustu ,s.tundu að
stöðva, og forða því, að ek-
ið væri á bílinn og verkfalls-
verði á brúnni. En vegna
hins blinda horns hjá Graf-
arholti sést ekki á staðinn
fyrr en skammt er eftir að
brúnni.
Þóttust vera embættis-
menn.
Þeir, sem í aðkomubílnum
voru, vissu ekki fyrri til en
fjórir menn rifu upp hurðir
og ruddust óboðnir inn og
hófu leit. Voru þeir þá spurð-
ir hverra manna þéir væru,
isvo frakkir náungar á þjóð-
vegum úti. Leitarmennirnir
I höfðu svör á reiðum höndum
j og sögðust vera fulltrúar fyr-
j ir heilbrigðiseftirlitið. Var þá
spurt, hvort þeir hefðu nokk
< ur bréf upp á það, að þeir
gætu að landslögum gert sig
svo heimakomna"við ókunn-
uga vegfarendur. Hinir kváð-
j ust að vísu hafa bréf upp á
það, en þeim. hefðu þeir
gleymt heima. -
Báru ekkert úr býtum.
Þegar leitin bar ekki árang
j ur, spurðu þeir ákaft eftir
, mjólk, því næst kjöti, smjöri
eða öðrum landbúnaðaraf-
urðum. En þegar komumenn
gátu ekkert af þessu látið af
hendi rakna, þótti leitar-
mönnum, sem þeir heföu lít-
ið fengið fyrir snúð sinn og
fóru án þess .að kveðja.
Kommúnistar að verki.
Hvarvetna, þar sem - verk-
fallsverðir beita ófyrirleit-
inni frekju og lögleýsúnt; eru
kommúnistar að verki ög
skaða málstað verkamanna í
kjaradeilunni, enda er for-
ingjum kommúnista ekkert
kærara en til vandræða og
illinda dragi. Þeir telja verk-
föll og verkalýð aðeins tæki
til að koma áfram lengri bjóð
málaáætlun, eins og berlega
kemur fram í kenningum
Marx.
Verið að reyna end-
urvarpsstöðina í
Hornafirði
Frá fréttarítara Tímans
í Hornafirði.
Senn líður nú að því, að
endurvarpsstöðin- hér í Höfn
verði tekin í notkun og hyggj
um við þá gott til að hlusta á
útvarp og losna við tiinar leiðu
truflanir. Niðursetningu stöðv
arinnar er lokið, og er þessa
dagana verið að reyna hana.
Mun hún verða tekin í notk-
un um hátiðarnar.
Barnabók um lax-
inn í íslenzkum ám
Laxabörnin heitir barna-
bók sem komin er út á veg-
um bókaútgáfunnar Hlynur.
Bókin er rituð af brezkum
laxveiðimanni, sem er mörg-
um íslendingum að góðu
kunnur, R. N Stewart, en þýð
andi er Eyjólfur Eyjólfsson.
Bókin, sem er skemmtileg
j aflestrar segir frá lífi laxanna
jí íslenzkum ám og því hvern
j ig laxabörnin alast upp og
j flytjast frá heimkynnunum
jút i heiminn, en leita síðan
aftur heim á æskustöðvarn-
ar.
J Sagan var á sínum tíma
framhaldssaga fyrir börn í
brezka útvarpinu. Bókin er
jprýdd nokkrum skemmtileg-
I um teikningum.
30 smálestir af fiski
seidar af togaraþilfari
í gær voru þrjátíu smá-
lestir af fiski seldar af þil-
fari á bæjartogaranum Ing
ólfi Arnarsyni í Reykjavík-
urhöfn. Var ös við skipiö
lengst af, og um fjögurleyt-
ið í gær var allur fiskurinn
seldur.
90—100 aurar kíló-
grammið.
Fiskur sá, sem á Ingólfi
Arnarsyni var, var einvörð-
ungu þorskur. Var hann
seldur í slöttum, nokkrir
fiskar hverjum manni, og
var verðið sera svaraði 90—
100 aurar hvert kílógramm.
Kom þessi fisksala sér vel
fyrir margan, Sem hefir
litlu úr að spila eftir hálfs
mánaðar verkfall.
I
ílópur kominn
fyrir átta.
Salan hófst klukkan átta
í gærmorgun. En á áttunda
tímanum var þegar kominn
á brvsre.iu hónur manna.
sem beið þess að salan hæf
ist. Þegar fiskurinn úr Hall
veigu Fróðadóttur var seld-
ur, hvarf hann á skömmum
tíma, svo að þeir, sem ekki
komu í býtið, fengu ekkert.
Munu ýmsir hafa hugsað
sér að láta ekki svo fara í
þetta sinn.
Atvinnuieysi
í Bíldudal
Frá fréttaritara Tímans
í Bíldudal.
Þrír bátar frá Bíldudal hafa
stundað rækjuveiðar í haust,
en eru nú hættir. Rækjuafl-
inn hefir verið heldur lítill og
misjafn.
Rækjurnar hafa verið soðn
ar niður í niðursuðuverksmiðj
unni, og hafði kvenfólk
nokkra vinnu við að hreinsa
rækjurnar, en annars er enga
vinnu að fá í Bíldudal.