Tíminn - 23.07.1953, Side 3
mrWaör
" gr-Tawjga^
TÍMINN, fimmtudagínn 23. júlí 1953.
/ slendingajpættir
Dánarminning: Guðni Magnússon
Hinn H. maí s. 1. andaðist
í Húsavík Guðni Magnússon
Smiður. Hann var fæddur 11.
júlí 1867, að Lækjardal (nú
eyðibýli) í Axarfirði og því
nálega 86 ára að aldri, er
hann lést. Pöreldrar hans
voru hjónin; Kristín Guðna-
dóttir og Magnús Björnsson.
1 Guðni ólst .upp í Axarfirði.
Giftist 1890 Hqlmfríði Hjálm
ársdóttur frá : Hallbjarnar-
siööum á Tjörnesi, systur
Finnboga . Hjálmarssonar, þegnar þess vildu rækja
sem Tlú ér á tiræðisaldri bú- 1 borgaralegar skyldur sínar
bjuggu nokkur ár á Tjömesi.
En fyrir meira en hálfri öltí |
fluttust þau til Húsavíkur!
og þar átti Guðni lengst afj
heima eftir það. Hólmfríður
kona Guðna dó árið 1922.
Þau eignuðust þrjá dætur og
er aðeins ein þeirra á lífi.
Jakobína Petrína, sem verið
hefir bústýra föður síns síð-
an móöir hennar dó.
Einn son eignaðist Guðni
utan hjónabands: Oddgeir,
sem nú mun búa í Skinna-
lóni á Sléttu.
Guðni Magnússon var smið
ur góður. Einkum varð hann
kunnur fyrir húsasmíðar. Á
efri árum var hann gerður
heiðursfélagi í Iðnaðar-
rnannafélagi Húsavíkur.
Annars stundaöi hann auk
smíðanna sjósókn og land-
búnað og lagði á margt
gjörva hönd og vandvirka.
Eftirminnilegastur er Guðni
mér fyrir það, hversu áreiðan
legur hann var í verkum og
viðskiptum og reglusamur í
hvívetna.
Þjóðfélag vort væri vel á
vegi statt, ef allir — eða þó
ekki væri nema flestir, —
Þátttakendur í skemmtiferðalaginu um Suðurland og Borgarfjarðarhérað ásamt fararstjór
anum, Óskari Jónssyni. Myndin er tekin fyrir utan Safnhúsið í Reykjavík. (Ljósm.: G. Þ.)
Skemmtiferð húsmæðra úr Hörglandshreppi
í hoði Kaupfálags Skaftfellinga í Vík
séttur í - Amerík.u,. vestur við
Kyrrahaf, kunnur af merk-
um jritgerðum í íslenzku blöð
unum í Vésturhéimi.
Hólmfríður og Guðni
jafnvel og undantekningar-
laust og Guðni Magnússon.
Sá vitnisburöur fylgi minn
ingu hans.
Karl Kristjánsson
(^VW.VAV, V' .VV.V.V.V.V.W.VAW.'AWW.WJWA
I '
U. M. F. H.
V Hfn árlega
í
s
Álfaskeiðsskemmtun
í Hrunamannahreppi verður haldin sunnudaginn 26.
júli og hefst kl. 2 e. h.
DAGSKRÁ:
Guðsþjónusta. Séra Gunnar Jóhannesson, Skarði, pré-
dikar. --— Ræða: Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur. —
Karlakór Reykjavíkur syngur, Sigurður Þórðarson
stjórnar. — Lárus Pálsson, leikari, skemmtir. — Keppni
í frjálsum íþróttum milli Umf. Hrunamanna og Umf.
Selfoss. — Dans.
Veitingar allan daginn. Ferðir frá Ferðaskrifstofu
ríkisins.
STJÓRNIN.
Vindrafstöðvaeigendur
WAV.V.V.W.V.W.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.VAW.W;
WAV.V.W.V.VAWAVAVAVAV.WV6V.W/WAWJ1
l - :
[• Afgreiðslu á varahiutum, sem væntanlegir voru fyrir »*
:« nokkru, mun seinka um 2—3 mánuði sökum skemmda J
Uj af vöídum flöð's í Wincharger- verksmiðjunum í j"
■| Sioux City. V
■: Auglýst verður aftur, þegar varahlutirnir koma. I*
|
G. MARTEINSSON.
^VAV.W.WAV.W.W.VAWAWaVmW.'AWAVVk
Hughcilar þakkir til allra þeirra, er á einn eða annan
hátt auðsýndu hluttekningu við fráfall og jarðarför
JÓNS HANNESSONAR,
Deildartungu.
Sigurbjörg Björnsdóttir
og börn.
Laugardaginn hinn 4. júli
lögðu 16 húsmæður úr Hörgs
landshreppi á Síðu upp í 4
daga skemmtiferðalag um
Suðurland og Borgarfjarðar-
hérað, í boði Kaupfélags
Skaftfellinga í Vík.
Upphaflega var tilætlunin
að í förinni yrðu svo til all-
ar húsmæður úr hreppnum
þátttakendur, en ýmissa á-
stæðna vegna gátu ekki
fleiri þekkzt boðið.
| Fyrsta dag ferðarinnar
j var ekið austan af Síðu til
. Reykjavíkur, með viðkomu i
Vík og Hvolsvelli. í Reykja-
vík gistu konurnar hjá vin-
um og vandamönnum. Því er
nú orðið þannig háttað að
hver einasta fjölskylda hvar
sem er á landinu á nú í
Reykjavík og nágrenni fleiri
og færri frændur og vini, sem
fólkið í hinum dreifðu byggð
um er í nánum tengslum við
og lifandi sambandi að
meira eða minna leiti.
Sunnudaginn 5. júlí héldu
konurnar áleiðis til Borgar-
fjarðar fyrir Hvalfjörð. Var
hádegisverður snæddur í
veitingaskálanum við Hvítár
i brú. Þaðan var haldið upp í
Borgarfj arðardali undir leið
sögn Halldórs Sigurðssonar,
jfulltrúa hjá Kaupfélaginu í
! Borgarnesi. í Reykholt þótti
. konum gaman að koma og
j var staðurinn skoðaður svo
! sem bezt mátti verða og þótti
j skaftfellsku konum búsæld-
I ariegt rnn að litast í Reyk-
holtsdal eins og hann þá leit
. út baðaður í sólskini og feg-
ursta gróðrar skrúða sum-
arsins. í Reykholti tók við
leiðsögn Bjarni Bjarnason,
söngstjóri frá Skáney. Var
nú ekið inn alla Hvítársíð-
una alla leið að Húsafelli. Á
þeirri leið er margt fagurt að
sjá í góðu veöfi enda allir í
sólskins- og söngskapi. Til
baka var ekið um Þverárhlíð
ina og alla leið að Bifröst, fé
j lagsheimili Samvinnufélag-
anna í landinu, og gist þar.
í Bifröst tók á móti konun-
um hr. Baldvin Þ. Kristjáns-
son, erindreki SÍS. Bauð
hann gestina velkomna og
flutti þeim kveðju stjórnar
og framkvæmdastjóra Sam-
bands ísl. samvinnuféiaga.
Þá talaði hann um vaxandi
þátttöku kvennþjóðarinnar í
samvinnustarfinu í landinu,
sem mundi verða ómetanleg
hvatning til enn stærri af-
reka á sviði samvinmmar í
landinu. Konurnar voru
mjög hrifnar af hinu glæsi-
lega félagsheimili, Bifröst og
umhverfi þess við Hreða-
vatn.
Mánudagsmorguninn var
haldið sem leið liggur í Borg
arnes, með viðkomu að hús-
mæðraskólanum að Varma-
landi. Þótti konunum
skemmtilegt að skoða hinn
glæsilega skóla og kynnast
þar notkun heita vatnsins.
Óskuðu þær oft eftir því að
þær hefðu sem flestar eina
heita laug við bæ sinn. í
Borgarnesi var snæddur há-
degisverður og litast um i
þorpinu. Meðal annars var
skoðaður hinn fagri skrúð-
garður er lykur um haug
Skallagríms. Frá Borgarnesi
var haldið að Hvanneyri og
staðurinn skoðaður. Nutu
ferðalangarnir þar bezta
beina og alúðlegrar leiðsögu
skólastj óraf rúarinnar á
staðnum. Frá Hvanneyri var
ferðinni haldið áfram um
Lundareykjadalinn, yfir Uxa
hryggi á Þingvöll. Var öil
þessi léið hin tilkomumesta
enda skyggni hið ákjósanleg
asta. Á Þingvöllum var geng-
ið um hina fornhelgu staði
og umhverfið skoðað. Að Lög
bergi flutti fararstjórinn,
Óskar Jónsson, bókari hjá
Kaupfélagi Skaftfellinga í
Vík, stutta ræðu um staðinn
og þær kendir er hann vekti
í brjósti hvers einasta íslend
ings. Frá Þingvöllum var far
ið að Ljósafossi og mann-
virki skoðuð þar. Siðaíi var
íerðinni haldið áfram að
I.augarvatni og gist þar í
bezta yfirlæti. Nutu konurn-
ar þar hinnar alkunnu gest-
risni og hvers konar fyrir-
greiðslú Eysteins Jóhanns-
sonar, gistihússtjóra að Laug
arvatni. Að Laugarvatni bar
margt merkilegt fyrir augu
ferðalcvennanna. Sérstak-
lega þótti þeim ánægjulegt
að skoða húsmæðrakennara-
skóla íslands, og kynnast
starfsemi hans, enda nutu
konurnar. þar leiðsögn skóla-
stýrunnar og námsmeyja er
sýndu þeim og skýrðu hvað
eina er máli skipti, svo og til
högun alia um rekstur skó!-
ans.
Þriðjudagurinn, hinn T.
júlí var ekið frá Laugar-
vatni austur Biskupstungur
að Gullfossi. Var fossinn mjög
tilkomumikill ekki síst vegna
þess hve Hvítá var í miklum
vexti. Frá Gullfossi var ekið
yfir Hvítárbrú hjá Brúar-
hlöðum og haldið suður hina
fögru leið um Hreppa og
Skeið. Á þeirri leið sér yfir
hinar blómlegustu byggðir á
Suðurlandi, enda var hriín-
ing ferðafólksins mikil er
það horfði yfir hina broiðu
bvggð í hinu fegursta veðri.
Að Hvclsvelli var áð og notið
þar bezta beina, sem allir
lofa er þar koma. Til Víkur
var komið um kl. 7 síðdegis
og snæddu konurnar kvöld-
verð hjá starfsfólki kaupfé-
lagsins. Eftir nokkra dvöl í
Vík var haldið austur á Síðu.
Um óttu skeið í dýrðlegu
veðri opnaði hið fagra hérað
Síðan, faðm sinn móti kon-
unum, er una þar glaðar við
sitt og vinna sveit sinni allt
er þær mega með hug og
hönd og skapa þann arineld
er íslenzk sveitaheimili hafa
kveikt í brjóstum hverrar
nýrrar kynslóðar til viðhalds
íslenzkri menningu og mann
dómi.
<Pramh í\ fi cfSu)
íþróttir
Rússinn Vladimir Kusnezov
hefir enn bætt árangur sinn í
spjótkasti. Á móti í Leningrad
setti hann rússneskt met í
greininni, kastaði 76,59 metra,
og er það bezti árangur, sem
náðst hefir í spjótkasti á þessu
ári, og jafnframt bezti árang-
ur, er náðst hefir síðan Yrjö
Nikkanen, Finnlandi, setti
heimsmet sitt, 78,70 m., árið
1938.
Ib Planck hefir sett nýtt
danskt met í 3000 m. hlaupi.
Á móti í Dússeldorf í Þýzka-
landi hljóp hann vegalengd-
ina á 8:14,2 mín., en það er
mjög góður árangur. Planck
hafði áður sett met í 5000 m.
hlaupi. Á þessu sama móti
sigraði Gunnar Nielsen, Dan-
mörku, þýzka heimsmethaf-
ann í 1500 m. hlaupi, Werner
Lueg, í keppni á þeirri vega-
lengd. Tíminn var þó ekki sér-
lega góður. Gunnar hljóp á
3:51,4 mín., en Lueg var 4/10
sek. á eftir.