Tíminn - 31.01.1954, Side 4

Tíminn - 31.01.1954, Side 4
TÍMINN, sunnudaginn JMllUMrl Missir hitaveitan mikiö af heita vatninu í hendur einkafélags? Sérstakt hlutafélag, Jarðhiti h.f., hefur fengið sérréttindi til að bora eftir heitu vatni á einum bezta stað hitasvæðisins á Reykjum Þa5 mun hafa farið fram hjá flestum, þegar auglýst var í Lögbirtingablaðinu í sumar, að stofnað væri nýtt hlutafélag, er nefndist Jarð- hiti h.f., að þar væri á ferð- inni alvarleg ógnun við hita- veitu Reykjavíkur, er stafaði af furðulegum slóðaskap bæj- aryfirvaldanna. Sú saga skal því rakin hér í megindráttum. i Jarðhiti h. f. í Lögbirtingarblaðinu 7. júlí síðastl. birtist auglýsing um stofnun Jarðhita h.f. og hljóð- ar upphaf hennar á þessa leið: „Heiti félagsms er Jarðhiti h.f. Heimili þess og varnar- þing er í Reykjavík. Tilgang- ur félagsins er að borg eftir heitu vatni í sumarbústaða- landi Kjartans Ásmundsscn- ar, úr landi Reykjahvols í Mos fellssveit, og hagnýta það í sambandi við gróðurhúsarækt til sölu og á hvern þann hátt, sem heppilegastur reynist á hverjum tíma. Dagsetning samþykkta þess er 22. maí 1953. Stofnendur eru: Kjartan Ásmundsson, gullsmiður, Smáragötu 14, Sigurgeir Sigur jónsson, hrl., Skaptahlíð 9, Guðjón Hólm Sigvaldason, hdl., Ásvallagötu 27, Ólafur Jónsson, gjaldkeri, Melhaga 1, Friðrik Dungal, kaupm., Útsöl um, Seltjarnarnesi, Ásgeir Bjarnason, forstjóri, Mar- bakka, Seltjarnarnesi, Sveinn B. Valfells, forstjóri, Blöndu- hlið 15, Sigurður Guðmunds- son, forstjóri, Ásvallagötu 24, Einar Ásmundsson, forstjóri, Hverfisgötu 42, Friðrik A. Jóns son, útvarpsvirkjameistari, Garðastræti 11, Helgi Þórar- insson, framkvæmdastjóri, Bárugötu 19, Hans R- Þórðar- son, forstjóri, Grenimel 38, Theodór Brynjólfsson, tann- læknir, Miðstræti 12, Theodór Jónsson, forstjóri, Gunnars- braut 30, Rvík. Stjórn félags- ins skipa: Sigurgeir Sigurjóns son, hrl,. Skaptahlíð 9, for- maður. Meðstjórnendur: Ólaf ur Jónsson, Melhaga 1, og Frið rik Dungal, Útsölum, Seltjarn arnesi. Til vara: Kjartan Ás- mundsson, Smáragötu 14.“ Þá er ennfremur tekið fram í auglýsingunni, að hlutafé félagsins sé 70 þús. kr. og sé það allt innborgað. Forsaga málsins. Nánari tildrög þessarar hlutafélagsstofnunar eru þessi: Nokkru áður en Reykja- víkurbær keypti hitaréttindi Reykjatorfunnar, seldi eig- andi Reykjahvols dálitla spildu úr þvi svæði, þar sem jarðhitinn er einna mestur. Þessu litla svæði, sem var ætlað undir sumarbústað, fylgdu hitaréttindi. Sala þessi var þinglýst. Þegar Reykjavíkurbær svo keypti hitaréttindi Reykjatorfunn- ar, láðist honum að kaupa einnig þetta land eöa a. m. k. hitaréttindin þar. Eigandi þessa lands nú, er Kjartan Ásmundsson gull- smiður. Hann og fyrri eigend ur þessa lands, munu hafa boðið bænum kost á að kaupa hitaréttindin fyrir mjög lítið gjald eða nánar sagt, að bær inn fengi réttindin gegn því, að séð yrði um leiðslur á heitu vatni í sumarbústað- inn, er stendur á landinu. Forráðamenn bæjarins hafa stundum haft um það góð orð, en þó jafnan dregið að gera nokkuð. Afleiðing þess hefir því orðið sú, eins og aug lýsingin ber með sér, að gróðamenn hafa stofnað hlutafélag um að hagnýta Sér réttindin. Getur orðið alvarlegt áfall fyrir hitaveituna. Eítir þvi, sem blaðið hefir frétt, hefir þetta félag nú í undirbúningi að hefja boran- j ir eftir heitu vatni á umræddu J svæði. Getur það haft hinar sögulegustu afleiðingar. j Land það, sem hér um ræðir, er nokkurn veginn á | miðju hitaveitusvæðinu. — Sérfróðir menn telja, að , yrði borað þar eftir heitu J vatni, myndi það bera mjög góðan árangur. Afleiðing þess yrði hins vegar vafa- lítið sú, að heita vatnið minnkaði í borholum hita- veitunnar og gæti það hoft liinar alvarlegustu afleið- ingar fyrir notendur heita I vatnsins í Reykjavík. i Þetta litla dæmi sýnir vel slóðaskapinn og sinnuleysið, jsem einkennir rekstur hita- veitunnar. Það er ekki einu sinni hugsað um að tryggja jhin nauðsynlegustu hitarétt- indi. Þess vegna getur svo fariö, að gróðafélag nái miklu af vatninu frá hitaveitunni. Hvað þá að hugsað sé um að nýta vatnið sem bezt og koma því í sem flest bæjarhverfi, svo að þau geti átt þess kost, megin hluta ársins. Úr þessum vanrekstri hita- veitunnar verður ekki bætt, nema bæjarbúar steypi íhald inu úr stóli í dag og tryggi bænum betri og röskari for- ustu. I ■iiiiiMiiiiiiiimiiiiimiiimiiiiiiiimiiimiii|l||||imiim,|immi|,ll,l|||mill,l,liíimii|,||||||m||||||]||||||||||||||||(mv \ Hvert atkvæði, sem B-1 :| listinn fær, kemur að I I fuliu gagni | Af hálfu andstæðinga Framsóknarflokksins er nú | í rekinn af miklu kappi sá áróður, að hann sé viss um | | að koma einum manni að, en hafi enga möguleika til | ! að fá tvo menn kosna. Þess vegna geti svo og svo margir I [ af fylgismönnum hans kosið með öðrum flckkum og 1 Í haft þannig meiri áhrif á úrslitin. [ Vegna þessa áróðurs skal bent á eftirfarandi: | 1. Framsóknarflokkurinn stefnir að því að fá tvo I menn kjörna og hefir því engin afgangsatkvæði- I 2. Framsóknarflokkurinn hefir sízt minni möguleika | en hinir andstöðuflokkar ihaldsins til þess að vinna | oddasætið af íhaldinu, heldur að öllum líkindum | meiri. Kommúnistar munu halda áfram að tapa, § Þjóðvarnarflokki^rinn mun tæplega Ixalda fylgi 1 sínu frá í sumar vegna þess, að nú er ekki kosið J um varnarmálin og Bárðarmálið spillir fyrir han-. i um. Alþýðuflokkurinn mun nú sem yenjulega fá;. | minna fylgi í bæjarstjórnarkosningunum en jþing- | kosningum. Talsvert af Sjálfstæðismönnum ,cg í óháðum kjósendum mun hins vegar kjósa með J Framsóknarflokknum að þessu sinni. ,| X B-listinn i 3. Morgunblaðið hefir deilt Iangsamlega m’est' á | Framsóknarflokkinn í þessum kosningum. Það er | sönnun þess, að íhaldinu stendur mestur stuggur | af B-listanum. 4. Því meira fylgi, sem Framsóknarflokkurinn fær, I því sterkari verður aðstaða hans til samninga f, | bæjarstjórninni, ef svo færi, sem vona b.er, að iþald, f i ið missti meirihlutann. = ( . . r , -■ . 5 - 5. Alþingiskosningar geta verið stutt undan og tíefír | það þá meginþýðingu, að kosningaúrslitin nú sýni,' I | að Framsóknarflokkurinn á raunverulegá þingsæti | Í hér í bænum. 5 2 Af þessum og mörgum ástæðum fleirum hefir það I [ meginþýðingu að Framsóknarflokkurinn eflist í þess- i Í um kosningum. Þess vegna hefir flckkurinn engin af- | [ gangsatkvæði, heldur vantar atkvæði til að tryggja fall i i íhaldsins. Þess vegna burfa fleiri íhaldsandstæðingar | Í að koma til liðs við hann. Þá er sigur B-listans vfs og i i fall íhaldsins öruggí. Það er hins vegar víst, að allir aðrir andstæðingá- | I listar íhaldsins hafa meira og minna af afgangsatkvæð- | Í um. Kommúnistar eru öruggir með þrjá fulltrúa, jafn- | 1 aðarmenn með tvo og Þjóðvörn með einn-Ilins vegar fer | Í útilokað að þessir flokkar geti fengið fleiri fulltrúa:' | Í Afgangsatkvæðin, sem þeir fá, geta því orðið til að | [ tryggja íhaldinu sigur. íhaldsandstæðingar! Látið slíkt ekki henda. Fylkið | [ ykkur því um B-listann og tryggið með því fall íhalds- | I ins og nýja, betri bæjarstjórn. liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiilliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiHiiiiiiiuiiiiiiiHiiiiiiiiinimimiiiiiii^ii|iiiiiiiiiiiijiiitii|ii|iiiia -rrrrT" KJÖRSEÐILL i Á ‘|/! M J. '« J * við bæjarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 31. janúar 1954: A Listi Alþýðuflokksins X B Listi Framsóknarflokksins c Listi Sameiningarfl. alþýðu — Sósíalistaflokksins D Listi Sjálfstæðisflokksins F Listi Þj óövarnarf 1. íslahds 1. Magnús Ástmarsson 2. Alfreð Gíslason 3. Óskar Hallgrímsson 4. Guðbjörg Arndai 5. Albert Imsland 6. Jón P. Emils 7. Sigfús Bjarnason / 8. Pétur Pétursson o. s. frv. 1. Þórður Björnsson 2. Þórarinn Þórarinsson 3. Sigríður Björnsdóttir 4. Björn Guðmundsson 5. Egill Sigurgeirsson 6. Esra Pétursson 7. Pétur Jóhannesson 8. Kristján Benediktsson o. s. frv. 1. Guðmundur Vigfússon 2. Petrína Jakobson 3. Ingi R. Helgason. 4. Jónas Árnason 5. Hannes M. Stephensen 6. Katrín Thoroddsen 7. Sigurður Guðgeirsson 8. Þórunn Magnúsdóttir o. s. frv. 1. Gunnar Thoroddsen 2. Auður Auöuns 3. Sigurður Sigurðsson 4. Geir Hallgrímsson 5. Sveinbjörn Hannesson 6. Guöm. H. Guðmundsson 7. Einar Thoroddsen 8. Jóhann Hafstein o. s. frv. 1. Bárður Daníelsson 2. Gils Guðmundsson 3. Guðríður Gísladóttir 4. Hafsteinn Guðmundsson 5. Eggert H. Kristjánsson 6. Jón Helgason 7. Magnús K. Jónsson 8. Hallberg Hallmundsson o. s. frv. Þannig lítur kjörseðillinn í Reykjavík út þegar iisti FRAMSÓKNARFLOKKSINS hefir verið kosinn

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.