Tíminn - 21.03.1954, Page 2
TÍMINN, sunnudaginn 21. marz 1954.
67. blað.
Ahugaljósmyndari Ijóstraði upp
leyndarmáli um nýjustu flugvélina
I Washington er nú mjög rætt
um uppljóstrun eins af þýðingar-
mestu flugleyndarmálum Bandaríkj
anna, og er þá átt við VTO orustu-
flugvélina, sem Convair-verksmiðj-
an framleiðir. Flugvélin var dregin
út úr flugvélaskýlinu og út á vinnu-
svæði verksmiðjunnar fyrir utan
San Diego í Californiu. Áhugaljós-
myndari greip tækifærið og náði
ágætri mynd með fjarsýnni ljós-
myndavél. Myndin vár síðan vend
út um víða veröld af Associated
Press.
Orsökin til þessa atburðar er talin
vera sú, að ljósmyndari frá viku-
hlaði nokkru hafði fengið leyfi til
að taka litmyndir af þessari marg-
umtöluðu flugvél. Myndimar átti að
nota í grein, sem senda átti vini
eins af æðstu yfirmönnum banda-
riska flotans. Öðrum ljósmyndurum
var hins vegar vísað frá á þeim
íorsendum, að FY-l-áætlunin væri
mjög áríðandi leyndarmál. Þetta
gerði það að verkum, að menn gerðu
allt, sem þeir gátu til þess að taka
mynd af flugvélinni frá þjóðvegin-
um fyrir utan umráðasvæði verk-
smiðjunnar.
Upplýsingaþjónusta hersins ákvað
að myndir vikublaðsins yrðu ekki
birtar, enda væri hún andvíg því,
að veita einhverjum einum aðila
einkarétt til að gera ný vopn opin-
ber.
Þetta er í annað skiptið, sem slíkt
Útvarpib
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Morguntónleikar (plötur).
13,15 Erindaflokkurinn „Þættir úr
ævisögu jarðar“ eftir Goerge
Gamow prófessor; 5. erindi
(Hjörtur Halidórsson).
17,00 Messa í dómkirkjunni (Prest-
ur: Séra Óskar J. Þörláksson.
Organleikari: Páll ísólfsson).
18.30 Barnatími.
20,20 Erindi: Fjarlæg lönd og fram
andi þjóðir; II: Mexíkóborg
fyrr og nú (Rannveig Tómas-
dottir).
20.45 Tónleikar (plötur).
21,00 Umræðufundur í útvarpssal:
Guðlaugur Þorláksson skrif-
stofustjóri, séra Gunnar Árna
t sorí, séra Óskar J. Þorláksson
og Theodór B. Líndal hæsta
réttarlögmaður tala um kirkj-
una og þjóðfélágið. — Vil-
hjálmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri stýrir fupdinum.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,05 Danslög (plötur).
23.30 Dagskrárlok.
tÚtvarpið á mórgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.20 Útvarpshljómsveitin; Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar.
20,40 Um daginn og veginn (Ólafur
Jóhannesson prófessor).
21,00 Einsöngur og tvísöngur: Frú
Svava og séra Eríc Sigmar
syngja; Fritz Weisshappel að-
stoðar.
2120 Erindi: Fornleifarannsóknir
á Bergþórshvoli (Kristján Eld
járn þjóðminjavörður).
21,50 Erindi: Mannréttindasáttmáli
Sameinuðu þjóðanna (ívar
Guðmundsson ritstjóri).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Passíusálmur (31).
22.20 Útvarpssagan.
22.45 Dans- og dægurlög (plötur).
23,00 Dagskrárlok.
Árnað heilla
Hjónaband.
í gær voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Hólmfríður Gísladóttir
frá Vindási í Grundarfirði og Egg-
ert Th. Kjartansson frá Fremri-
Langey á Breiðafirði. Heimili þeirra
er á Langholtsvegi 39, Rvík.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band ungfrú Edda Konráðsdóttir,
Grundargötu 4 á ísafirði og Sigurð
ur Þorsteinsson, Laugateigi 26. Séra
Sigurðu^ Ki'istjánsson á ísafirði
gaf brúðhjónin saman.
á sér stað í Convair-verksmiðjunni.
Sinu sinni, þegar stdrum Pugbáti
var tt út úr flugskýlinu fvrir nokkr
um árum, nötaði ljósmyndári, sem
átti leið fram hjá, tækifærið :il
þess að taka myríd af bátnum, og
án leyfis flotans var myndin biit.
Á hinni ólöglegu mynd af FY-1
sést greinnega, aö flugvéiin li_gur á
þrem eða jafnvel fjórum „sporð-
uggum“. Vélin er kringum 10 m.
löng. Bæði Ccnvairs og Lockheads
VTO-orustuflugvélar eru úttúnar
með Al'ison T-40 mótorum. í Uug-
takinu er flu véiunum hjálpað aí
Jato-rakettum. T-40 mótorinn er
5500 hestaíla, en sögusagnir eru um,
að Aliison ætli að framleiða stærri
mótor, T-54, sem verður 7500 hest-
afia, og þessi mótor mun geta lyít
flugvéiunum lóðrétt upp án aðstoð
ar raket.a.
Bandaríski flotinn hefir í hyggju
að nota þessar f'.ugvélar frá ýmsum
tegundum skipa, jafnvel kaupskip-
um ,sem þá geta flutt með sér sinn
ei_in 'oftflcta, þar sem VTO-örustu
flugvélin þarf ekki nema nokkurra
fermetra flugtaksvöll. Bandariski
flugherinn hefir einnig mikir.n
áhuga á þessum nýju véium.
j í Convairs FY-1 situr flugmaður-
inn í stól, sem getur sveiflazt til,
svo að hann situr í eðlilegum stell-
I ingum, bæði við fiugtakið jg venju
légt lárétt flug. Það heíir einnig
I komið ti! mála, að láta flugmann-
inn liggja á maganum á venjulegu
I flugi, en þá stendur hann við flug-
takið.
I (Aftenposten'.
Söliimaður deyr
Fyrsta mynd í Stjörnubíói eftir
brunann og velheppnaða viðgerð er
Sölumaður déyr með Frederic
March í aðalhlutverki. Mynd þessi
er með því bezta, er sést á '.érefti
hér. Hafi Frederic Maich sýnt eft-
irminnilegan leik fyrr og kvikmynda
hússgéstir hrifizt, þá munu ninir
sömu engú siður undrast þann há-
tind, sem hann nær í list sinni í
þessari mynd.
Synir sölumannsins, kona hans,
hjákopa háns í Boston, vinur hans
og virinuveitandi hans eru persónur
án landamæra. Sámnefnara þeirra
í skuldum og kennduni er alls stað-
ar að finna. Óskhyggja sölumanns-
ins býf einnig með fólki álls staðár.
Erkienglar.peninganna héldu aldr
ei í hönd hans, né gáfu honum nafn
borgarstjóra til að prentast í blöð-
um, né gerðu hann áð meðeiganda
í fyrirtæki eða syni hans að sena-
torum. En honum gefst sú umbun
að láta lífið í demantaflóði hug-
s; nar á þeirri breiðgötu, er fóstraði
hann og í þeirri Fordbifreið, sem
hann var löng og mörg ár að eign-
ast.
Fáum tekst nema örsjaldan að
skapa eins algildar persónur í sam-
runninni söguumgerð og Miller í
Sölumaður deyr. Og fáum tekst að
skila svo orðum skáids í leik, að
það gleymist áhorfendum að verkið
er samið, en ekki lifað.
I. G. Þ.
SándgerSi
(Framhald af 1. síðu.-
hæstur með 15 lestir. í síSustu
róðrum hafa bátarnir oröið
fyrir geysimiklu veiðarfæra-
tjóni af völdum togara, sem
farið hafa yfir línut þeirra.
Virðist vera margt um erlenda
togara á þessum sióðum núna.
Erna Sigurleifsdóttir
kona Curleys
Sýningum a5 ljúka
á Mýs og memi
í kvöld sýnir Leikfélag
Reykjavíkur sjónleikinn „Mýs
og menn“ í tuttugasta sinn
og er sýningum um það bil
að ljúka, þar sem Erna Sig-
urleifsdóttir leikkona, sem
leikur eina kvenhlutverkið í
leiknum, fer utan í vikunni.
Næst siðasta sýning leiksins
hefir verið ákveðin þriðju-
dagskvöld, en sala aðgöngu-
miða að þeirri sýningu hefst
ekki fyrr en á mánudag á
venjulegum sölutíma, kl. 4.
liínuvciSSariim
(Framhald af 1. síðu.)
bótunum er lokið. Verður
það væntanlega notað til
fiskveiða og flutninga, eftir
því sem henta þykir.
Sigríður er járnskip, byggt
í Noregi 1919, og er um 150
lestir að stærð.
liijijur louiin
SAIV3VH NN iT <E flíí íE AJKtl
REYKJAVÍK - SÍMI 7080
| UMBODSM£NN UM LANO ALLT
Skriðuhætta
(Framhald af 1. síðu.)
staðsetningu ýmsra mann-
virkja hér á landi undan-
farna áratugi hefir ekki ver-
ið nægilegt tillit tekið til
skriðufalla og snjóflóðahættu
og hafa því ýms mannvirki
orðið fyrir stóru tjóni af
þeim sökum.
Bændur hafa líka oft ekki
vitað um, hvar snjóflóða-
hættan er mest og orðið þess
vegna fyrir ónauðsynlegu
tjóni. Þannig nefndi Haf-
steinn Pétursson, sem var
framsögumaður í málinu,
sem dæmi, að hann hefði
orðið fyrir tjóni af snjóflóði,
sem nam 70 þús. kr., en sem
hefði mátt fyrirbyggja með
10 þús. kr. kostnaði.
Allvíða er hægt að fyrir-
byggja snjóflóð með mann-
virkjum, sem ekki kostuðu
nema lítið brot af þeim fjár-
munum, sem eyðileggðust, ef
ekkert væri aðgert. Þetta
mál er því þannig vaxið, að
það má ekki liggja í þagnar-
gildi lengur.
Húsfreyjur
Haldið elli og þreytu 1 hæfilegri fjarlægð. —
Látið „Veralon", þvottalöginn góða, létta y8ur
störfin.
Sími
7698
NOTA
STAÐGREIÐSLÁ
Versl. Dísafoss, Orcttísgötu 44, Reykjavík
1954
Marz 10.
Án; 2 m. Rayon gabardine,
cm. br. @ 25,50
Tölur og Tvinni
Kr. au.
51,00
3,00
54,00
S.E.&O.
Þetta er nægilegt efni i eina karlmannsskyrtu með
kraga og löngum ermum. Ef viðkomandi er óvenju
stör er vissara að taka 2y4 m. Til í mörgum litum.
Biðjið um það, sem yðar vantar af vefnaðar- og smá-
vöru. Áfgreiðslu og verði má treysta. — Póstsendum.
Virðingarfyllst
Dísafoss
S.K.T.
Danslaga-
keppni
S.K.T.
Nýju dansarnir í G. T. húsinu í kvöld kl. 9
Söngvarar með hljómsveitinni;
Adda Örnólfsdóttir og Haukur Mortens
9 NÝ DANSLÖG VERÐA LEIKIN
— SPENNANDI KEPPNI —
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6,30. — Sími 3355. Trygg
ið ykkur aðgöngumiða tímanlega. Það verður ekki út-
varpað frá keppninni í kvöld.
«SSSSS«SSSSíSSSÍS4SS«SS$íS«SS«SS$SíSSS*SíSSSSSSSSS*ÍSSSSSSS«ÍSÍSÍSSS«Sa
FITTINGS
STÉYPUSTYRKTARJÁRN
VATNIÆIÐSLURÖR
Útvegum við frá Tékkóslóvakíu
Lágt verð. Fljót afgreiðsla
R. Jóhannesson h.f.
Nýja Bíó-húsið. — Sími 7181
fSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSi
Móðir mín
SOFFÍA SKÚLADÓTTIR
verður jarðsungin að Stóruborgarkirkju, þriðjudag-
inn 23. þ. m. kl. 2 e. h. Bílar fara frá Ferðaskrifstof-
unni í Reykjavík.
F. h. vandamanna
Halldór Gunnlaugsson
Bezt að auglýsa í TÍMANUM