Tíminn - 05.11.1954, Page 2
TIMINN, föstudaginn ö. nóvember 1954.
250. blað.
Ríkasti maður í heimi ekur í
ódýrum vagni og spilar póker
IlaiiBt er óframfærism í fraiitkomn ©g vlll
Iielzt ckkl lála taka af sér Ijósmyitdli* —
Þeir tímar eru nú liðnir, þegar furstinn af Hyderabad var rikasti
maður heimsins, enda þótt ekki sé beinlínis hægt að segia að
hann berjist í bökkum með 50 millj. árstekjur og eignir sem nema S
a.m.k. 15 milljörðum. Auðaefi furstans liafa samt farið minnkandi S
síðan indverska stjórnin afnam forréttindi hans og Indiand varð j
sjálfstætt, en sá sem nú skipar sess ríkasta manns veraldarinnar |
er fyrrverandi skógarhöggsmaður frá Texas, cr hóf feril sinn
sem olíuleitarmaður með fimmtíu doilara, er hann hafði fengið
að iáni, í vasanum.
Þessi maður, sem nú slær
furstan af Hyderabad alveg út
hvað auðæfi snertir, heitir Har-
oldson Hunt, og á hverjum degi
bætast 200 þúsundir dollara við
hina tvo milljarða, sem fyrir eru
í bankabókinni.
Fremur óframfærinn.
Hunt heyrir til þeirri mann-
tegund, sem við köllum ófram-
færna. Honum er mjög illa við
alla auglýsingastarfsemi á verk-
um hans, líður ekki vel í við-
tölum við blaðamenn og vill
helzt ekki láta taka af sér mynd-
ir. Hann ekur bifreið sinni sjálf-
ur, er meðlimur presbyteríönsku
kirkjunnar og óvenju góður
pókerspilari.
í stjórnmálum er hann á bandi
demókrata og álítur að stefna
repúblikana sé of róttæk og
hættuleg amerískum stjórn-
málum. Þrátt fyrir það studdi
hann Eisenhower við síðasta
forsetakjör og segist muni gera
það aftur næst, enda þótt hann
sé honum ekki að öllu leyti
sammála.
í kaupmennsku og skógarhöggi.
Hunt fæddist í fylkinu Illino-
is 1889. Faðir hans var uppgjafa-
hermaður úr Suðurríkjahernum
og móðir hans dóttir herprests,
sem var á vígvöllunum með
Norðurríkjahernum í amerísku
borgarastyrjöldinni. Hunt gekk
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Tónleikar.
21.10 Upplestur: Saga úr bókinni
„Dagar mannsins" eftir Thor
Vilhjálmsson (Höfundur les).
21.45 Hæstaréttarmál (Hákon Guð-
mundsson hæstaréttarritari). •
22.10 Útvarpssagan: „Gull' eftir E.
H. Kvaran; X. (Helgi Hjörv-
ar.)
22.35 Dans- og dægurlög (plötur).
23.10 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
13.45 Heimilisþáttur (Frú Elsa Guð-
jónsson).
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Foss
inn“ eftir Þórunni Elfu Magn-
úsdóttur; II. (Höfundur les).
18.30 Tómstundaþáttur barna- og
unglinga (Jón Páisson).
18.50 Úr óperu- og hljómleikasal
(plötur).
20.30 Samfelld dagskrá um þjóð-
sögur. — Einar Ól. Sveinsson
prófessor og Bjarni Vilhjálms
son cand. mag. taka saman
efnið og búa til útvarps. —
Útvarpshljómsveitin leikur
einnig íslenzk þjóðlög í útsetn
ingu Karls Ó. Runóifssonar.
22.10 Dansiög (plötur).
24.00 Dagskrárlok.
Arnað heilta
Trúlofun.
Síðast liðinn laugardag opinber-
uðu trúlofun sina ungfrú Þorbjörg
Jóhannesdóttir frá Gunnarsstöð-
um, Þistilfirði, og Kristinn Skær-
ingsson, Drangshlíð, Eyjafjöllum. _U
í skóla í fimm og háift ár en
vann síðan í kaupavinnu á bú-
görðum og við skógarhögg víðs-
vegar um Bandaríkin og Kan-
ada. Þegar hann var 22 ára
hafði hann sparað sér saman
nægilegt fé til að festa kaup á
bómullarplantekru í Arkansas.
Fjórum árum síðar kvæntist
hann og flutti búferlum til Tex-
as. Hugur hans beindist fyrst að
olíunni skömmu eftir fyrra
stríð, og þá fékk hann lánaða
peninga til þess að leita að olíu-
lindum. Nú í dag á hann eitt
stærsta olíufyrirtæki heimsins,
olíulindir í 13 ríkjum Banda-
ríkjanna og einnig í Kanada.
Hunt á f jóra syni og tvær dæt-
ur, og elsti sonur hans, Hassie,
er nú af fullum krafti að koma
sér á fót sínu eigin olíufyrirtæki
og ætlar að keppa við föðurinn.
Ræður aðeins reglufóik.
Hunt er ekki bindindismaöur
sjálfur en hefir þá ófrávíkjan-
legu regíu að ráða ekki óreglu-
samt fólk til vinnu við fyrir-
tæki sitt. „Ég hefi ekkert á móti
því að fólk fái sér glas af víni,
en ég vil bara ekki hafa slíkt
fólk í minni þjónustu. Ég vil
ekki eiga það á hættu að starfs-
fólk mitt ljósti upp um leyndar-
mál fyrirtækisins í ölvímu“.
Mikill fjármálamaður.
Það þarf varla að taka það
fram að Hunt hefir óvenjulega
hæfileika á fjármálasviðinu,
enda er það mönnum hulin ráð-
gáta hvernig honum hefir tek-
izt, með litið fé handa á milli í
byrjun, að verða ríkasti maður
heimsins. Sjálfur vill hann alls
ekki skýra frá ástæðunni fyrir
H
Harcldson Hunt
lét tilleiðast að láta mynda sig
þessu, og þegar hann endrum
og eins er spurður um það í
blaðaviðtölum, hvort hann sé í
rauninni ríkasti maður í heimi,
brosir hann hógværlega og
svarar: „Fólk segir að svo sé —
þá hlýtur það víst að vera satt“.
Annars kemur hann þannig
fyrir sjónir að hafa engan áhuga
fyrir hinum miklu auðæfum
sínum, aðeins ef hann hefir nóg
fyrir sig og sína.
Texasbiiar stoltir.
Hunt býr í geysistóru húsi í
Dallas. í bílskúrnum er fjöldinn
allur af bílum, m.a. nokkrir
Katiljákar, en Hunt kýs heldur
að aka í litlum og látlausum
vagni, þegar hann fer í ökuferð
um bæinn. Þótt hann vilji ekki
láta mikiö á sér bera, en fólk á
þessum slóðum aftur á móti sé
mikið fyrir íburð og auglýsingu,
þá eru Texasbúar stoltir af því
að hann hefir nú gefið fylkinu
ríkasta mann jarðar, sem var
eiginlega hið eina, er hina sjálf-
öruggu íbúa slcorti til að vera
fullkomlega ánægðir með fylkið
sitt, sem er að þeirra áliti ekki
einungis fegursta og fullkomn-
asta fylkið í Bandaríkjunum,
heldur glæsilegasti blettur á
jörðlnni.
Heimili Hunt í Dallas.
OTEL BORG
Dansleikur
£ kvöld til kl. 1 e. k.
Aðgöngumiðar við suðurdyr frá kl. 8.
Borðpantanir í síma 1440 eða hjá yfirþj óninum.
Óskuin eftir
að kaupa skrifstofuhúsnæði
fullgert eða í smíðum. Til greina kemur einnig lóð
eða gamalt hús, sem hægt væri að breyta, á góðum
stað í bænum.
Vmnuveitendasamband Islands
Átthagaf éiag Strandamanna
heldur skemmtifund í Skátaheimilinu
í kvöld kl. 8,30.
Kvikmyndasýning.
Gamanvísur: Hjálmar Gíslason.
Dans.
Prof-ex
þakið?
Með PROTEX má stoppa
á augabragði allan leka, á
steini, járni, timbri, gleri
og pappa.
Tryggið hús yðar gegn
leka með PROTEX. —
MALNING &
JÁRNVÖRUR
Sími 2876 — Laugavegi 23
HJARTANLEGUSTU ÞAKKIR færum við öllum
þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför mannsins míns, föður okkar og fóstur-
föður
SIGURBERGS DAGFINNSSONAR
Haukanesi.
Einnig pökkum við öllum þeim, er glöddu hann
með heimsóknum og veittu honum aðhlynningu í
sj úkrahússdvöl hans.
Valgerður Pálsdóttir
Páll Sigurbergsson
Jóhanna G. Sigurbergsdóttir
Gwðríður Björnscöttir
ÍVAR HLÚJÁRN. Saga efiirWalter Scott. Myndir eftir Peter Jackson93
1
J: Hcrmcnn scm mútnð Iigfði vcriöuil
nfig var vitni að því, að í
þcssi galdranorn lífgaðl við I i
mann, scm var Uauðasærð- 7 I
„Allt, scm þessir mcnn hafa sagt ér upþ-
spuni cinn. Hiö eina, scm ég*Hcfi gcrf.
cr að hjúkra sjúkum og særðum. cn án
allrar sciðkyngi. fig skora á Brján ridþ
ara írá Bósagiljum að lýsa þessar ásak-
anir rangar.“ •