Tíminn - 28.11.1954, Page 7
370. blaff.
TÍMINN, sunnudaginn 28. nóvember 1954.
Sunnud. 28. nwv.
FySkjum Hði —
fram til sigurs
Ef litið er yfir sögu ís-
lenzkra stjórnmála undanfar
in ár, er það aðallega tvennt,
sem vekur athygli Hið fyrra
er hin mikla sundrung vinstri
aflanna í landinu, sem hefir
stuölað að því, að þrátt fyrir
hlutfallslega minnkandi fylgi
íhaldsins með þjóöinni hefir
þingmannatala þess aukizt.
Síðara atriðið er pólitískur
loddaraháttur Sjálfstæðis-
manna. Síðan . flokkurinn
skipti um nafn 1928 hefir
hann reynt eftir mætti að
blekkja fólk með fáránlegum
yfirboðum og stefnuleysi.
Flokkurinn hefir marg
sinnis gengiff beint á móti
sinni yfirlýstu stefnu. Flokk
urinn segist berjast fyrir
framtaki einstaklingsins en
gegn ríkis og bæjarrekstri í
framkvæmd er stefnan sú,
aff í því eina bæjarfélagi,
Reykjavík, sem flokkurinn
liefir völd rekur bærinn
stærsta útgerffarfyrir-
tæki bæjarins meff tilheyr-
andi fiskiffjuveri.
Flokkurinn þykist vera
fylgjandi frjálsri verzlun og
andvígur allri einokun. Samt
berst flokkurinn cg hefir
barizt fyirir einokun Eim-
skipafélags íslands á sigl-
ingum til landsins, fyrir ein
okun Brunabótafélags ís-
lands á tryggingum húsa.
Flokkurinn hamast gegn
því aff útflutningsverzlunin
sé gefin frjáls ,en ekki tak
mörkuð viff einstaka aðila.
Menn, sem lagt hafa trún
að á fleipur Morgunblaðsins
og annarra málpípna Sjálf-
stæðisflokksins, ættu að
kynna sér betur samræmið í
orðum og verkum þessara
manna áður en þeir taka af-
stöðu og fylgja flokknum sem
sérstökum boðbera frelsisins
En hitt er sorgarsaga, hvern
ig íhaldinu hefir tekizt að
koma á sundrung í röðum
andstæðinga þess, sem stuðl
ar eingöngu að því, að auka
áhrif þess, án þess að fylgið
hafi vaxiö.
Þjóffvarnarflckkurinn er
hreint afsprengi íhaldsins,
enda ausa stórgróffamenn
þess fé í flokkssjóð hans
vegna þess, að þeir vita, að
Þjóövarnarflokkurinn er ör
uggasta hjálpartæki íhalds-
ins til valda í þjóðfélaginu,
hjálpartæki, sem jafnvel
gæti fært íhaldinu meiri-
hlutavald á Alþingi, enda
þótt þaff sé í minnihluta
meff þjóffinni, meff því aff
stofna til sundrungar i röð
um andstæðinga þess.
íhaldið hefir áður leikið
þennan leik við kommúnista.
Það efldi þá á sinni tíð til
valda í Alþýðusambandinu, í
Kron og til ýmissa annarra á-
hrifa. Afleiðingin var sú, að
síðan 1938 hefir ekki verið
hægt að mynda ábyrga stjórn
íhaldsandstæðinga en Sjálf-
stæðisflokkurinn haft öll
lyklavöld um stj órnarmynd-
anir og afgreiðslu mála.
AHir vita, aff kommúnist-
ar eru ekki viðtalshæfir um
stjórn landsins. Allir vita af
hverju, og þeir menn, sem
reynt hafa samvinnu viff þá,
t hvort sem það hefir veriff
Simrad Asdicdýptarmælar ryðja
sér mjög til rúms hér á landi
--------T—■ j
c/ |
Þáttur kirkjurmar
iiiiinmiuuMMmiuiiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiin
Yfir SO tæki hafa verið sett í ási. skip
Hér á landi eru nú staddir tveir sérfræðingar frá Simon-
sen Radio LOsló, þeir Ralph Eide og Ragnar Hallre, sem
framleiða pieðal annars asdictæki og dýptarmæla. Hafa
slík tæki verið flwtt inn hér á vegum Vinnustofu Friffriks
A. Jónssonar og munu yfir 20 tæki í notkun í skipum hér.
Blaffamenn ræddu í gær viff Norffmennina og skýrðu þeir
nokkuff frá tækj?mam.
í síðustu styrjöld unnu
nokkrir. íiorskir verkfræðing
ar hjá brezkum rannsóknar-
stofnunum við tilraunir með
hátíðniþljóð í sambandi við
dýptarmæla og asdictæki.
Eftir stríöiö voru þessir verk
fræðingar ráðnir að Asdic-
deild hinnar nýstofnuðu rann
sóknarstofnunar norska hers
ins í Horten.
Eftir þrjú ár var dýptar-
mælirir.n tilbúinn og skyldi
hann þá fenginn í hendur
iðnaðinum til þess að fram-
leiðsla hans gæti hafizt. í
harðri samkeppni fékk Sim-
onsen Radio A/S, Oslo, einka
rétt á að framleiða norska
dýptarmælinn.
En smám saman hafði
mönnum orðið Ijóst, að báta
flotinn mundi verða stærsti
kaupandi dýptarmælanna.
Þess vegna lagði framleiðand
inn allt kapp á að aðhæfa
dýptarmælinn hinum sér-
stöku þörfum bátaflotans og
aðstöðunum um borð í bát-
uniim. Þetta verk tók tvö ár
í viðbót, þannig að fyrstu
SIMRAD dýptarmælarnir
komu á markaðinn árið 1950.
Árið áður höfðu lokatil-
raunir farið fram á sildveið-
um við ísland í m.b. „Vart-
dal“ undir stjórn Finns De-
vold fiskimálaráðunauts.
Nýtt fyrirtæki.
Simonsen Radio A/S var
um þetta leyti alveg nýtt fyr
irtæki, en því var stjórnað
af reyndum verkfræðingum.
Það hafði sett á markaðinn
radiosíma, sem vakti athygli
sökum þess hve einfaldur og
traustbyggður hann var. Fyr
irtækið byggði einnig „Wal-
kie-Talkie‘ (lítið ferðaútvarp
og -senditæki), og hefir það
selt norska hernum mörg
þúsund þeirra. Nokkur SIM-
RAD „Walkie-Talkie“-tæki
háfa einnig verið seld danska
hernum, birgðamálaráðu-
neyti Bretlands og íslenzku
landhelgisgæzlunni.
Síðan hafa yfir 1000 SIM-
RAD dýptarmælar verið sett
í félögum, bæjar- effa sveit
arstjórnum effa annars staff
ar, hafa allir sömu sögu að
segja af þeim. Trúin á og
hlýðnin við hiff erlenda vald,
sem stjórnar flokknum, hef
ir ávallt reynzt sterkari
hagsmunum þeirra manna,
sem þeir áttú að vinna fyrir
í félagi effa fannars staðar.
Með þessu hafa kommúnist
ar dæmt sig úr leik í íslenzk
um stjórnmálum.
Á árunum 1934^-1938 unnu
Framsóknar og( Alþýðuflokk-
urinn saman 3$ áhugamálum
sínum. En sí^áh hefir stöðugt
hallað undán/fæti fyrir AI-
þýðuflokknum og áhrif hans
stöðugt farið minnkandi.
Þaö er ekkert laúnungar-
mál, að meirihluti Fram^pkn
armanna vill samstarf við' Al
þýðuflokkinn, en hann er nú
sem stendur of veiimr til sliks
ir í norska fiskibáta, og auk
þess seldir til ýmissa ann-
arra landa, allt frá Svíþjóð
til Suður-Afríku, og frá Tyrk
landi til fslands. Alls staðar
fannst sjómönnum mikið
koma til hinna nákvæmu
mælinga þessara tækja og
öryggis þeirra. Á hinn bóg-
inn er augljóst. að sjómönn-
um yrði mikill hagur i því að
geta fært út „sjónarsviö“ sitt
þannig, að það væri ekki að-
eins beint undir bátnum
(bergmálsdýptarmælar) held
ur einnig út frá bátnum í all
ar áttir (asdic). Allir fram-
leiðendur dýptarmæla hafa
þess vegna unnið af kappi aö
því að leysa þann vanda, að
geta framkvæmt láréttar
mælingar í sjónum.
Ekki ný wppfinning.
Asdictækin voru í raun og
veru ekki ný uppfinning. Þau
höfðu verið notuð við kaf-
bátaveiðar og tundurdufla-
leit á stríðsárunum, en þau
kostuðu offjár (6—700.000 ísl
kr.). Vandinn var í því fólg-
inn að búa til asdictæki, sem
sjómennirnir hefðu efni á að
kaupa. Að lokuin tókst þeim
að búa til tæki, sem samein-
aði í sér dýptarmælir og as-
dic. Það var mjög einfalt að
gerð, tiltölulega ódýrt og
hæfði bæði smáum og stór-
um fiskibátum.
SIMRAD Asdicdýptarmælar
voru settir í fyrstu bátana
fyrir einu ári, og voru það
hinir fyrstu sinnar tegund-
ar á heimsmarkaffin.um.
Sem dýptarmælir mælir
hann lóðrétt niður á tveim
aðalsviðum: 0—110 og 0—275
faðma. Auk þess er 'hægt að
flytja 110 faðma sviðið með
hjálp „djúpskiptis“ í 50
faðma áföngum alveg niður
á 410 faðma. Þetta er gert
til að fá stækkaða mynd af
gerð botnsins og hugsanleg-
um fiskitorfum.
Við asdicmælingu er hljóð
geislinn sendur lárétt út frá,
bátnum með svokölluðu as-
dicbotnstykki. Ef geislinn
samstarfs, hvernig sem úr því
rætist.
Fleiri og fleiri þeirra, sem
um stjórnmál hugsa, eru nú
aff komast á þá skoffun, að
ef menn vilja hamla gegn
ofurvaldi íhaldsins, verði
allir andstæðingar þess að
standa saman.
Augu margra eru nú að
opnast fyrir því, aff Fram-
sóknarflokkurinn er sá eini
flokkur í landinu, sem þess
er megnugur aff sameina
alla þá, sem berjast vilja
gegn íhaldinu.
Ef þjóðin þekkir sinn vitjun
artíma og gerir sér grein fyrir
um hva§ er að ræða, þá mun
hún fylkja sér undir merki
Framsóknarflokksins og veita
honum fulltingi til þess að
bera fram til sigurs hin mörgu
og merkilegu stefnumál sín,
sem miða til betra lífs og far
sælli framtiðar fólksins í
þessu landi.
Asdic-dýptarmælir
hittir fiskitorfu, endurkast-
ast nokkuð af hljóðinu, og as
dicbotnstykkið grípur nokk-
uð af endurkastinu. Hljóð-
merkið er leitt til magnara
og þaðan til mælitækis, sem
skráir fjarlægð fiskitorfunn-
ar frá bátnum á dýptarmæla-
pappír.
Hægt er að snúa asdic-
geislanum frá stjórnborða og
fyrir stefnið til bakborða, og
er langdrægi hans allt að
1000 metrar. En reynslan hef
ir sýnt, að tækið vinnur bezt,
ef fjarlægðin er 4-500 metrar.
HEILSUVERND
vi —----0
Öndutiin
Fjórár höfuðskepnur við-
halda líkama mannsins: Loft,
vatn, matur og eldur. Eldur
inn er fólginn 1 hinum eðli-
legai líkamstVuna, og getur
ekkert líf haft nokkurt við-
nám hjá manninum án hans
eitt einasta andartak. Maður
inn getur hins vegar lifað í
nokkra mánuði, án matar,
sem fyrr segir, og án vatns í
örfáa daga. Hins vegar geta
engir aðrir en yogar lifað án
lofts lengur en eina til tvær
mínútur.
Líf manna hér a jörðu hefst
með fyrsta andardrætti hins
nýfædda barns, og því lýkur
með því að hinn lífsþreytti
öldungur andar út.
Aldrei getur maðurinn ver
ið án þess að anda, enda er
hann andi, því að „þá mynd
aði Drottinn Guð manninn af
leiri jarðar og blés lífsanda í
nasir honum, og þannig varð
maðurinn lifandi sál.“
Lífsþróttur, heilsufar og
langlífí mannsins fer líka að
verulegu leyti eftir því, hversu
vel hann andar.
Skýrslur líftryggingarfé-
laga sýna það, að menn með
mikið lungnaþanþol lifa leng
ur en aðrir, að öðru jöfnu.
Lungnaþanþolið fer eftir því
hversu miklu lofti maðurinn
getur andað að sér í einu and
ardragi, mælt í lítrum lofts.
Til þess að mæla það eru höfð
sérstök tæki, lík fýsibelgjum.
Venjulegt fólk hefir 3—4 lítra
lungnaþanþol, en hjá dugleg
um verkamönnum og æfðum
íþróttamönnum er það meira.
Hjá glímumönnum og hnefa
leikurum er það um það bil
4% lítri, en langmest mælist
það hjá góðum frjálsíþrótta-
og sundmönnum. Hjá þeim er
það oft rúmlega 6 lítrar, eða
Framh. á 11. síðu.
Fórnardauðinn
Ekki þarf að fara í grafgöt
ur um það, að samkvæmt
kenningu Nýja-testamentis-
ins er dauði Jesú fórnardauffi.
Hann lýsir dauða sínum þann
ig í innsetningarorðum kvöld
máltíðarinnar, einmitt þegai
hann er að búa lærisveina
sína undir það, sem koma
skal á íöstudaginn langa.
Flestir kannast við að hafa
heyrt þá kenningu, að fórnin
sér færð til þess að blíðka reiði
guðs, svo að hann hegni ekki
hinu synduga mannkyni fyrir
misgerðir þess. Hann láti son
sinn syndlausan taka út hegn
inguna, í staðinn fyrir menn
ina, sem til hennar hafi unn-
ið.
Margt skortir til þess, að
þessi kenning reynist aðgengi
leg. Væri það réttlátur og góð
ur faðir, sem þannig færi að?
spyrja menn. Og væru menn
irnir nokkru bættari fyrir
slíka fórn, sem ekki felur í
sér annað en hið neikvæða,
að sleppa við afleiðingar mis
gjörða sinna. Kemur það
heim við guðshugmynd Bibl-
íunnar, og þá sérstaklega
Nýja-testamentisins, að guð
skipti um „hugarfar“ gagn-
vart börnum sínum við það,
að saklaus maður sé leiddur
til aftöku? Getur friðþæging
in verið í slíku fólgin?
Þegar urn svo alvarlegar
spurningar er að ræða, er það
ómaksins vert að kynna séi
nánar, hver er hinn trúarsögu
legi grundvöllur fyrir því, að
Jesús talar um dauða sinn
sem fórnardauða. Og liggur
þá fyrst fyrir að athuga,
hvaða þýðing fórnunum var
eignuð í Gyðingdómnum á
dögum hins gamla-testament
is. Þar er að vísu til sú skoðun,
að fórnin hafi átt að blíðka
guð (II. Sam. 21), en trúar-
sagan sýnir, hvernig Gyðing
ar vaxa upp úr slíkum hug-
myndum. Spámennirnir Jes-
aja, Jeremía, Hósea, Amos og
Mika eiga tæplega nógu sterk
orð í eigu sinni til að lýsa fá-
nýti fórnana, ef mennirnir
sjálfir iðrist ekki misgjörða
sinna og breyti samkvæmt
vilja guðs. „Því að á miskunn
semi hefi ég þóknun, en ekki
á sláturfórn, og á guðsþekk-
ing fremur en á brennifórn-
um.“ (Hós. 6, 6.) Þar sem tai
að er um sektarfórnir í III.
Mósebók (6. kap.) er því ó-
tvirætt haldið fram, að fórn
in leysi manninn alls ekki
undan þeirri skyldu að bæta
fyrir misgjörðir sínar, eftir
föngum, og breyta rétt gagn
vart guði og mönnum.
„Kjarninn í hinni gyðing-
legu trú á fórnina, er að varð
veita lífið.“ (Hvidberg.) Líf
líkamans er í blóðinu. (III.
Mós., 17, 11.) Höfuðmerking
fórnarinnar var að varðveita
lífssambandið við þann guð,
sem lífið gaf. Guð er gjafari
lífsins á jörðinni. Dýrin og
jarðargróðinn var til orðinn
fyrir hans kraftaverk Það var
því næsta eðlilegt, að honum
væri gefið og honum helgað
það líf, sem frá honum var
sprottið, svo sem frumburður
hjarðarinnar á vorin, hin
fyl’stu kornöx, sem skorin
voru af akrinum. Við fórnar-
máltíðina gerðist allt í senn,
að guð sjálfur var gestgjafi
mannanna, tók við gjöfum
Framh. & 10. slðu.