Tíminn - 28.11.1954, Blaðsíða 12
1
Fárviðri á sjó og landi, fjöldi
skipa í háska, stórtjón á Englandi
35 þiss> Icsíii oiínsklp hrotnaSi í Ivonal. —
7 íncnn innllokaðir í síröijdnðis vlíaskipi
London, 27. nóv. — Fárviðri það hið mikía, sem undanfarna
daga hefir geisað um Norðursjó, hluta af Atlantshafi og Ln'v
land, hefir gert mikinn usla bæði á sjó o? landi. Mörg skiu
hafa ient í sjávavháska ag enn er óvíst, hvort takast mirai
að bjarga lífi allmargra manna, sem orðið hafa skipreika.
Fkki er enn kunnugt um, að neinn hafi farizt, en marsrir
hafa lent í hrakningum og: mannraunum. Sjávarflóð, ofsa-
rok og vatnavextir hafa valdið stórtjóni á híbýlum manna,
eig'num og mannvirkjum á Suður-Englandi og Wales. Veðrið
liefir nú nokkuð lægt en þó er spáð hvassviðri og stórrign-
ingii um mestan hluta Bretlandseyja og Norðursió næsta
sólarhring.
Brezkt vitaskip rak á land í
morgun við suðvestur strönd
Englands. Helikopterflugvél.
tókst að bjarga einum af
áhöfninni, en þinir eru lokað
ir niðri i skipinu og bíða þess
er verða vill, þar eð ógerlegt
er að kornast út í skipið sem
stendur vegna brims og veður
ofsa.
Olíuflutningaskip brotnar
í tvennt.
35 þús. lesta olíuflutninga-
skip með grískri áhöfn brotn
aði í tventn s. 1. nótt. Var skip
iö nýlagt af stað frá Suð’ur-
Englandi áleiðis til Miðjarðar
hafshafna. Björgunarbáti
tókst að bjarga 35 manns af
áhöfninni, sem höfðust við á
afturhluta skipsins.
7 liafast við á hinum
helmingnum
7 menn hafast við á hinum
helming skipsins. Helikopter
vél gerði misheppnaða tilraun
til að bjarga þeim, enda voru
aðstæður erfiðar, feiknalegur
sjógangur og veðurofsi. Er
mjög óttazt um líf þessara
manna.
5 mílur milli flakanna.
Skipshelmingarnir reka nú
Sjórinn braut varnargarða.
Á einum 6 stöðum á strönd-
inni frá Sussex til Cornwall-
skaga braut sjórinn skörð i
garða þá, sem verja landið
sjávargangi. í bæjunum Hast
ing og Devon flæddi sjórinn
inni í kjallara og neðstu hæð-
ir húsa ,svo að fólk varð að
flýja heimili sín unnvörpum,
en stórmiklar skemmdir urðu
á vörum í birgðaskemmum,
auk þess tjóns, sem varð á
íbúðum manna, húsbúnaði og
eignum.
Rafmagn og sími bilar.
í bænum Devon er ástand-
ið sérlega slæmt. Símakerfi
bæjarins bilaði og eru um 2
þúsund símnotendur nú síma-
Jausir. Rafmagn fór einnig um
hvor frá crðu.m um úfinn sjó
og gráan og voru seinast 5
mílur milli þeirra. Mörg skip,
þar á meðal flugvélaskipið
Ilustrous eru á sveimi kring
um flckin og reyna að veita
hinum nauðstöddu mönnum
þá aöstoð, sem unnt cr.
Vega hrekst um Ermarsund.
Danska skipið Vega hrekst
nú mannlaust um Ermarsund,
þar eð áhöfn skipsins varð að
yfirgefa það í dag. Er jafnvel
talið, að öðrum skipum kunni
að stafa hætta af skipinu.
Mörg önnur skip hafa lent í
hrakningum, en öllum mun
hafa verið komiö til aðstoðar,
og þau sloppin úr bráðri
hættu.
Mikil flugumferð á
norðurleiðinni
Mjög mikil flugumferð er
nú um norðurleiðina yíir
Atlantshaf, því að flugskilyrði
eru góð og veður hagstæð þar.
í gærkveldi voru til dæmis
10—12 flugvélar á leiðinni hér
yfir og til lendingar. Var því
mikið að gera við flugstjórn-
ina.
skeið í bænum. Járnbrautir á
þessum slóðum urðu að breyta
ferðum sínum vegna skemmda
á j árnbrautarlínum.
Rauðikrossinn hjálpar.
í Cornwall hafa Rauða-
krossdeildir víða hlaupið und
ir bagga með húsnæðislausu
fólki, útbýtir meðal þess olíu-
vélum, ábreiðum, mat o. fl.
Ár í vexti.
Hinar stórfelldu rigningar,
sem fylgja veðurofsanum,
valda því að vöxtur mikill hef
ir hlaupið í margar ár. Flæða
þær yfir bakka sína og valda
margs konar tjóni, á vegum,
akurlendi og á stöku stað hafa
flóðin komist inn í íbúðir
manna.
arinEar
Það er í kvöld kl. 11,30, sem
fyrri hljómleikar varnariiðs-
hljómsveitarinnar til ágóða
fyrir barnaspítalasjóð Hrings
ins fara fram í Austurbæjar-
bíói. Þessir hljómleikar og
þeir næstu, sem verða á
þriðjudagskvöld, eru tileink-
aðir jazztónlist, en síðar mun
hljómsveitin halda tónleika
í Þjóðleikhúsinu, einnig til á-
góða fyrir Hringinn, og verða
viðfangsefnin þar létt klass-
ísk lög. Myndin hér.að ofan
er af stjórnanda hljómsveit-
arinnar, Patrick F. Veltre,
sem hefir áður stjórnað mörg
um herhljómsveitum.
í Indónesíii
fFramhald af 1. sfðul
eru góð hjálparmeðul, þegar
veikinnar verður vart, en
margir eru lengi að verða
jafn góðir, þótt lækning tak
ist strax með fljótvirkum
lyfjum og nokkrir bíða þessa
aldrei bætur.
Annars eru lífskjör erlendu
flugmannanna góð. Þeir búa
í góðu húsnæði og við Evrópu
fæði. Sjálfsagt þykir, að hver
eínasti hvitur maður hafi
einn til þrjá innfædda þjóna.
Kaup þeirra er lágt, eða sem
svarar 150—200 krónum á
mánuði og ein hrísgrjóna-
skál til að draga fram lífið.
Aðrar kröfur gera þeir litlar
til lífsins.
Fallegt í Indónesíu.
Náttúrufegurð er ákaflega
mikil og verða þeir, sem
gista þessar austlægu töfra-
slóðir, aldrei þreyttir á því
að skoða fegurð eyjanna.
Mjög er fagurt á Java, ekki
sízt uppi í fjöllunum. Þá er
alkunn fegurðin á Bali og
ekki siður yndislegt á mörg-
um hinna smærri eyja.
Indónesía er ungt ríki og
margt þar í deiglunni, en fólk
ið er yfirleiit vingjarnlegt
við Evrópubúa, ef undan eru
skyldir einstaka ofstækis-
menn, sem ekki mega sjá
hvítan mann án þess að sýna
andúð sína í orðum eða verki.
Erlendar frcítir
í fáura orðum
□ Tító forseti Júsóslavíu fer í 3
da^a cpinbera heimsókn tii
Indlands 16. des. n. k.
□ Yoshida, forsætisráðherra Jap-
ans, hefir sagt af sér for-
rcennsku í frjáislyn&afiokkn-
um samkvæmt áskcrun frá þin»
flokknum.
□ Dides, lögregiustjóra Parísar,
sem vikið var frá embætti um
stundarsakir, hefir nú formlega
verið sviptur stöðu sinni.
□ Fnrmaður leynifélags Bræðra-
félags Múhnnejstrúarmanna er
nú fyrir rétti í Kairó. Saksókn
arinn krefst dauðadóms yfir
manni þessum.
□ Tekizt hefir að ráða niðurlög-
um eldsins í sænska olíuflutn
ingaskipinu Los Angeles, þar
sem þaö lig_ur úti fyrir höfn-
inni í Brest.
Olíuflntningaskip
eyðileggst í eldi
Swansea, 27. nóv. — Miítil
sprenging varð í morgun í
norska olíztflutningaskipinu
Olaf Ringdal, þar sem það
lá á höfninni í Swansea. Við
sprenginguna kviknaði í
skipinu og liðu 6 klst., áður
en tókst að ráða niðurlög-
ztm eldsins. Einn maður af
skipshöfninni, sem var 48
manns, beið ban«, en
tveggja er saknað. Margir
særðwst illa í eldinum eða
er þeir stukku fyrir borð til
að bjarga lífi sínu. Skipið
eyðilagðist að mestu.
En sem betur fer heyrir slíkt
undántekningum til.
Margt einkennilegt hend
ir í flugferðum á þessum
slóðum. Eitt sinn lenti
Sveinn flugbát sínwm sem
oftar við eyju, þar sem ekki
hafði flugvél komið áður.
Mörg hundruð manns synti
á móti flugvélinni, svo gæta
varð stökustu varkárni að
ekki hlytist slys af gáleys-
inu. Klifraði mannskapur-
inn síðan upp um þennan
einkennilega sjófugl og
ætlaði ekki að sleppa hon-
um aftur. Þeii síðwstu hrutu
ekki út af flotholtunum í
sjóinn fyrr en fhigvélin var
komin á fulla ferð i flug-
takinu og farin að losa sig
frá sjónwm.
Forsetinn spurði um
hitaveitu.
Eitt sinn flaug Sveinn í 10
daga ferðalag um eyjarnar
með Sokarno, forseta lands-
ins. Er hann hinn prýðileg-
asti maður í framkomu, hæg
látur en skemmtilegur. Hann
fór aö spyrja Svein um hita-
veituna á ís’andi, sem hann
hafði heyrt talað um á skóla
árunum í Hollandi.
Nú er Sveinn aftur á leið-
inni til Indónesíu til áfram-
haldandi starfa í þessum
fjarlæga heimshluta. Fyrir
jól verður hann farinn að
hefja vélar sínar til flugs
milli fjallanna á Java eða
Bali og ótal eyjum öðrum.
Góðar óskir fylgja honum að
heiman. Hann er Væringi
hins nýja tíma og eykur hróð
ur íslands. —gþ.
Varnargarðar bila viö
strendur S.-Englands
Sj«r flæðir lim í ncðstn haeðii* lulsa og
f jölskyldur flýja Iscimili sín í . slórlió|Bum
Fárviðrið og stórrigningar, sem því fylgja, liafa einnig
valdið stórtjóni víða um Suður-England og í Wales. í mörg-
um bæjum og þorpum við ströndina hafa ótaldar fjölskyldur
orðið að flýja heimili sín, því að sjór hefir gengið á land og
flætt inn 1 íbúðir mannna. Síma- og rafmagnskerfi hafa
víða bilað, samgöngur truflazt og tjón orðið á mannvirkjum.
Á . .,27«. blað.
--—........ ■ i !.>■
Stórfelldnr eldsvoði
í Istambul
Istambul, 27. nóv. — Mikill
elt'ur kom upp í verzlunar-
hverfi Istambúl-borgar í
morgun. Slökkvilið borgar-
innar barðizt við að hefta
útbreiðslu hans lengi dags,
en gekk illa. Talið er, affi
helmingur þeirra 3 þús.
verzlana, sem eru í þessu
hverfi, hafi eyðilagzt að
mestu. Tjónið er mttið á
milljónir sterlíngspunda. —*
Allmargir slökkviliðsmena
slösuðust og liggja á sjúkrœ
húsum. Ríðandi lögreglu-
menn voru hvarvetna á
ferðinni til að hindra rán
og gripdeildir.
Dulles svarar Knov
land á mánudag
Washington, 27. növ. — Til-
kynnt er, aö Dulles muni n.
k. mánudag halda ræðu, þar
sem hann gerir ýtarlega
grein fyrir stefnu Bandaríkj
anna í utanríkismálum. Ræö
an veröur fyrst og fremst
svar við árásum þeim, er
Knowland, formaður repu-
blikana á þingi, hefir gert á
stefnu Dulles og Eisenhowers
í utanríkismálum.
■ •i
Rússar halda
samt ráðstefnu
Moskvu, 27. nóv. — Sendi-
nefndir frá kommúnistaríkj-
um A-Evrópu halda nú sem
óðast til Moskvu á ráöstefnu
þá, sem Rússar buöu til flest
um Evrópuríkjum og hefjast
á 29. þ. m. Vesturveldin hafa
öll hafnað þátttöku, en ber-
sýnilegt er, að Rússar ætla
samt að halda ráðstefnu
þessa með fylgiríkjum sínum
einum. Pekingstjórnin send-
ir áheyrnarfulltrúa á ráð-
stefnuna.
Guðrun Á. Símonar
í norska útvarpinu
Guðrún Á. Símonar söng
inn á segulband. fyrir norska
útvarpið, er hún var stödd í
Osló í síðastl. mánuði, svo
sem fyrr hefir verið skýrt
frá. Þessum dagskrárlið verð
ur útvarpað á morgun kl. 16
—16,20 (ísl. tími) á þessum
bylgjulengdum: Stuttb. 41
mtr., miðb. 228,5 og 477 mtr.,
langb. Í376 mtr.
Lögin, sem Guðrún syng-
ur. eru þessi: Fuglinn í fjör-
unni, eftir Jón Þórarinsson,
Kom ég upp í Kvíslarskarð,
eftir Sigurð Þórðarson,
Draumalandið, eftir Sigfús
Einarsson, Til skýsins, eftir
Emil Thoroddsen, Sebben,
crudele, eftir Antonio Cald-
ara, O, del mio amato ben,
eftir Stefano Donaudy, og
Salta, lari, lira, eftir Vittorio
Giannini. — Undirleikari er
Robert Levin.