Tíminn - 26.03.1955, Blaðsíða 1
Bkrifstofur 1 EddutiíUö
Frétta-simar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
39. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 26. marz 1955.
71. blaff.
Skýrsla ríkisstjórnarinnar um á-
hrif kauphækkana á ríkisbúskapinn
Forsaeíisráðliet*a*a gaf si AlSíingi í ga?r f. li.
rílvisstjairnariimar eftirfarsmdi skýrslu. —
í gær gaf Ólafur Thors, forsætlsráðhevra, svoliljóðandi
skýrslu á Alþingi fyrir hönd ríki stjórnarinnar: Á Alþingi og
í blöðum landsins hefir oftlega verið að því vlkð síðustu dag-
ana að ríkisstjórn íslands bæri að leysa kaupdeilu þá, sem
nú stendur yfir. Umræður þessar bera vott um að menn hafa
ekki haft handbær gögn um áhrif kauphækkunar á ríkis-
búskapinn. Þykir því ekki hjá því komizt, að ríkisstjórnin
gefi upplýsingar, er mættu auðvelda mönnum réttan skiln-
ing á þessum efnum..
Hefir því verið gerð áætl-
un um áhrif kaupgjalds á
ríkisbúskapinn. Er þá miðað
við 7% hækkun grunnlauna
annars vegar, en á hinn bóg-
inn 26% hækkun grunn-
kaups. Báðar þessar tölur
hafa verið talsvert nefndar
í sambandi við málið og það
1. Hækkun launa ..........
2. Hækkun tryggingarútgjalda
vegaviðhalds, sjúkrakostn.
utan ríkissjúkrahúsa, fæðis-
kostn. á skipum og sjúkra-
húsum og framræsluframl.
gefur gleggri mynd að taka
þannig dæmi.
Áætlun
um hækkun ríkisúgjald,a á
næsta fjárhagsári, 1956, ef
grunnkaup hækkaði um 7%
eða 26%:
7% kauph. 26% kauph.
ca. 12,0 millj. 42,2 millj.
ca. 5,2 millj. 18,5 millj.
Samtals
Auk þessara liða hækka
margii1 aðrir liðir, sem draga
sig saman og mjög stórir
framkvæmdaliðir, sem hljóta
að hækka, þegar frá líður.
Þá hækka ríkisútgjöldin
til viðbótar þessu með hækk
andi vísitölu, en vísitalan
hlýtur að hækka, ef kaup-
hækkanir verða. Hækka rik
isútgjöldin um a. m. k. 1,2
millj. kr. við hvert vísitölu-
stig.
Gert er ráð fyrir, að verð-
hækkun á landbúnaðarvör-
Xim mundi valda 2,9 stiga
hækkun á vísitölunni næsta
haust, ef 7% kauphækkun
yrði, og er þá miðað við nú-
gildandi verðlagsgrundvöll
landbúnaðarafurða, en 26%
kauphækkun mundi valda
ca. 17,2 millj. 60,7 millj.
með sama reikningi 10,6
stiga hækkun næsta haust,
vegna landbúnaðarafurðanna
einna saman. Auk þess hlytu
kauphækkanirnar að valda
hækkun vísitölunnar í gegn-
um fleiri liði en landbúnað-
arafurðir, þótt staðið yrði
gegn slíkum hækkunum, sem
auðið væri, og yrði því hækk
un vísitölunnar meiri en
þetta.
Það er þvi áætlað, að á-
hrif 7% kauphækkunar til
hækkunar á ríkisútgjöldum
næsta f járhagsárs, yrðu ekki
undir 22,0 millj. kr. og er
þá gert ráð fyrir 4 stiga
hækkun á vísitölunni á
þessu ári og áhrif 26% kaup
hækkunar ekki undir 78,7
(Framhald á 7. sI5u.)
Tilraunir með þorsk-
veiði í nót halda áfram
Tilraunum með þorskveiðar í nót verður haldið áfram við
Vestmannaeyjar strax og veður batnar. Þessar veiðar cr
ekki hægt að stunda nema í góðri tíð. Helgi Benónýsson,
fuiltrúi Fiskifélags íslands í Eyjum, lét blaðinu þær upp-
lýsingar í té í gær, að þessar veiðitilraunir hefðu gefið góða
raun og teldu sjómennirnir, sem við þær unnu, að hér væri
um f^amtíðarveiðiaðferð að ræða.
Fiskurinn, sem veiddist 1
nótina, reyndist mjög vel, og
hafa margir útgerðarmenn 1
Eyjum hug á því að taka bess
ar veiðiaðferðir upp þar. Það
mun hafa verið Norðmaði.r,
sem kom til Eyja í fyrravor,
sem vakti athygli manna á
nótinni, sem afkastamiklu
veiðarfæri til þorskveiða
Fiskimálasjóður styrrti þesr.
ar veiðitilraunir, þar sem of
mikil áhætta var í sambandi
við þær til þess að nokkur em
staklingur vildi óstuddiu
leggja út í þessa veiðiferð.
Net margra Eyjabáta eru
illa komin eftir langvarandi
óveður og brim og er fullvíst
að margir verða fyrir mikiu
tjóni af þessum sökum.
Samningafundur
boðaður i dag
Sáttanefnd ríkisstjórnar-
innar í vinnudeilunni hefir
boðað fund með samninga
nefndum í dag kl. 2. Hafa
íamningaviðræður nú legið
niðri síðan um siðustu helgi.
Ekki er þó vitað, hvort nýj-
ar tillögur liafa komið fram
sem gera lausn deilunnar
líklegri en þegar frá var
horfið.
Verkfall boðað
á Akureyri
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri.
Verkámannafélag Akureyr
ar og verkakvennafélagið
hafa boðað verkfall þar frá
og með 1. apríl. Að undan-
förnu hafa farið fram við-
ræður milli samninganefnda
en án árangurs. Verkfall hef
ir verið boðað hjá Vinnu-
veitendafélag Akureyrar,
KEA og Akureyrarbæ.
Badmintonmót
Rvíkur hefst í dag
í dag kl. 5,40 hefst Meist-
aramót Reykjavíkur í bad-
minton, og fer keppnin fram
i íþróttahúsi KR. Þátttak-
endur eru 40 frá TBR og ÍR,
og er það meiri þátttaka en
nokkru sinni áður í badmin
tonmóti hér. Keppt verður í
einliðaleik karla og kvenna,
tvíliðaleik karla og kvenna
og tvenndarkeppni, og verða
leiknir 31 leikur áður en úr-
slitaleikirnir verða. Meðal
þátttakenda eru margir þekkt
ir íþróttamenn eins og Al-
bert Guðmundsson, Finn-
björn Þorvaldsson og Jóel
Sigurðsson og Wagner Wal-
bom.
Frumvarp um kaup
staðarréttindi fyrir
Kópavogshrepp
í gær var lagt fram á Al-
þingi frumvarp til laga þess
efnis, að Kópavogshreppur
skuli öðlast kaupstaðarrétt-
indi. Flutningsmenn frum-
varpsins eru Ólafur Thors,
Steingrímur Steinþórsson og
Emil Jónsson.
Annað olíuskipið farið með
farminn vegna aðgerða ASÍ
Hltt skipið lig'gur enn í Hvalfirði en er
meinað að fá vatn — Olíuleysi fer nú að
sverfa að á ýmsum stöðum úti á landi —
Eftir þeim fregnum, sem blaðið fékk í gærkveldi lítur ekki
líklega út fyrir, að bætist úr þeim olíuskorti, sem fyrir dyr
um er, og orðinn er mjög tilfinnanlegur á nokkrum stöð-
um á landinu. í gær fór annað beirra olíuskipa, sem hér
hafa legið með farm, brott með eftirstöðvar farmsins fyrir
tilverknað Alþýðusambands íslands.
Þetta var rússneska olíu-
skipið Leningrad. í fyr.rakvóld
fóru fulltrúar frá verkfalls-
stjórninni um borð í skipið
og gengu á fund skipstjórans
með bréf frá forseta Alþýðu
sambands íslands í bráfi
þessu er skipstjóranum til-
kynnt, að Alþýðusambandið
muni biðja verkalýðssambör.d
annarra landa að setja Len-
ingrad í bann og neita þvi
um afgreiðslu, ef skipið af-
greiði nú meiri olíu til I.itla
fells og Skeljungs.
Er þetta rökstutt með þvi.
cð Litlafell og Skeljungur séu
verkfallsbrjótar. Ennfremur
var rússneski skipstjórinn bcð
inn að tilkynna íslenzku olíu
félögunum að hann hafi feng
ið þessa aðvörun og geti því
ekki leyft frekari afgreiðslu
á olíu til nefndra skipa.
Skipið farið.
Skipstjórinn vildi að sjálf
sögðu ekki eiga á hættu að
lcnda í vandræðum í öðr-
um löndum með skip sitt, og
hafði bréf Alþýðusambands
ins þær afleiðingar, að hann
óskaði að fá að fara héðan
þegar í stað með eftirstöðv
ar farmsins, og töldu olíufé-
lögin sig verða að fallast á
þá ósk hans, o.g er skipið því
farið.
Olíufélögin munu h:ns veg
ar líta svo á, að Litlafell og
Skeljungur séu alls ekki verk
fallsbrjótar, þó að þau skin
hafi tekið olíu úr rússneska
skipinu og flutt til hafna, þar
sem alger vandræði eru að
skapast vegna olíuleysis. SliKt
hefir þráfaldlega verið gert.
að olía væri tekin þannig
beint úr stóru olíuskipi í litlu
flutningaskipin og vio það
hafa aldrei unnið menn ur
landi. Hér sé því aðeins haldið
venju.
Fer Smeralda líka?
ítalska olíuskipið Smer-
alda liggur enn í Hvalfirði,
og mun vera óráðið enn,
hvað verður um þær 8 þús.
lestir af olíu, sem í því eru.
Er eins líklegt, að það verði
einnig að fara með farm
sinn, því að skipið er aff
verða vatnslaust með öllu,
(Framhalcl á 7. siðu)
Vatn komið í öll
hús í Borgarnesi
Frá fréttaritara Tímans
í Borgarnesi.
Eins og skýrt var frá hér
í blaðinu fyrir nokkru, þá
varð vatnslaust í Borgarnesi
í frostunum, sem gengu yfir
fyrir um það bil mánuði. Var
vatn sótt á bilum, meðan
leiðslurnar voru í ólagi. Nú
hefir þessu verið komið í lag
og kom vatn í síðasta húsið í
fyrradag. Kom vatn síðast í
hús á Brákarey.
69 Ferguson-drátt-
arvélar til Akur-
eyrar
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri.
Unnið er hér að uppskipun
vara úr Dísarfelli og Reykja
fossi. Arnarfell liggur hins
vegar úti á höfn, og hefir
ekki náðst samkomulag um
uppskipun úr því. Með Reykja
fossi komu hingað 69 Fergu-
son-dráttarvélar, sem skipað
er hér upp og eiga að fara
til bænda í Eyjafirði og ná-
grannahéruðum.
Almenn samkoma Framsókn-
arfél. í Árnessýslu að Selfossi
Framsóknarfélögin í Árnessýslu halda almenna sam
komu í Selfossbíói næst kemandi miðvikudag og hefst
hún kl. 9 síðdegis. — Formaður Framsóknarfélags Ár
nessýslu, Bjarni Bjarnasen, skólastjóri, setur sam-
komuna o.g stjérnar henni. Meðal ræðumanna vcrður
Jörundur Brynjólfsson, forseti sameinaðs þings. Val-
ur Gíslason og Klemenz Jónsson, leikarar skemmta.
og Guðmundur Jónsson, óperusöngvari syngur einsöng
með aðstoð Weisshappels. Að lokum verður dansaff.
Árnesingar munu fjölmenna á þessa samkomu.